Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2954 episodi

Podcastþættir Fótbolta.net

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: fotbolti.net

Autore

Fotbolti.net

Categoria

Sports

Sito del podcast

fotbolti.net

Ultimo episodio

25 nov 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android 10 mln+ di download · valutazione 4,7+ iOS in arrivo

Episodi

Heimavöllurinn: Þriðjungsuppgjör Bestu og allt eftir bók í bikar 30.05.2022

Það er þegar búið að spila þriðjung Bestu deildarinnar og knattspyrnuþjálfararnir Guðni Þór Einarsson og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir mæta og fara yfir deildina til þessa – að sjálfsögðu í boði Heklu og Dominos. Lengjudeildin er einnig til umræðu sem og bikarkeppnin en nú er ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit.

Útvarpsþátturinn - Bikardraumar, París og lið ársins 28.05.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 28. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum er rætt um íslenska boltann, Mjólkurbikarinn og landsliðið. Í seinni hlutanum velur Kristján Atli lið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og heyrt er í Hafliða Breiðfjörð sem verður á úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Hjörvar um Viaplay - Meistaradeildin, landsliðið og margt fleira 26.05.2022

Streymisveitan Viaplay er eitthvað sem margir Íslendingar hafa kynnst í vetur, flestir lesendur eflaust í kringum Meistaradeildina í fótbolta. Framundan er úrslitastund í Meistaradeildinni því á laugardagskvöld fer fram sjálfur úrslitaleikurinn. Þeir Hörður Magnússon og Heimir Hallgrímsson munu lýsa úrslitaleiknum frá Stade de France. Hjörvar Hafliðason er íþróttastjóri Viaplay og ræddi við Sæbjör...

Enski boltinn - Fagnaði titlinum í hjarta samfélagsins 25.05.2022

Titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni var gerð upp í dag með því að fá stuðningsmann Manchester City og stuðningsmann Liverpool í hljóðver. Þeir Eiríkur Þorvarðarson, markmannsþjálfari og stuðningsmaður City, og Sveinn Waage, fyrrum fyndnasti maður Íslands og stuðningsmaður Liverpool, fóru yfir upplifun sína af lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar með Sæbirni Steinke. Sveinn var á Anfield á sunnudag...

Innkastið - Stefnuleysi og stór lið komin í mikil vandræði 24.05.2022

Innkastið eftir sjöundu umferð Bestu deildarinnar er aðeins seinna á ferðinni en venja er. Þar er þó boðið upp á beinskeytta yfirferð yfir allt það sem skiptir máli. Elvar Geir stýrir þættinum en sérstakir gestir eru Magnús Haukur Harðarson FH-ingur og fjölmiðlamaðurinn Þór Bæring sem fjallar um deildina fyrir Morgunblaðið. Blikar eru í bílstjórasætinu eftir markasúpu gegn Fram, FH-ingar halda sig...

Ástríðan - 3. umferð - Magnaður Kristófer og ekki tala við okkur um virðingu 24.05.2022

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir þriðju umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis:Garðurinn fékk virðingu en fleygði henni, KFG heldur áfram að skora eftir þörfum, Káramenn steinlágu á Króknum, Völlarar rændir og nú þurfa nokkur lið að fara að vakna. Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að fá 40...

Fótboltafréttir vikunnar og spennandi lokaumferð 21.05.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í óhefðbundnu formi þessa vikuna þar sem þáttastjórnendur eru uppteknir í steggjun. En í staðinn er þessi sérstaka hlaðvarpsútgáfa þar sem Elvar Geir Magnússon ræðir við góða menn. Farið er yfir helstu fótboltafréttir vikunnar með Sæbirni Steinke, Úlfur Blandon skoðar Lengjudeildina og Bestu deildina og Kristján Atli Ragnarsson spáir í lokaumferð ensku úrvalsdeilda...

Fantabrögð - LOKAUMFERÐ 21.05.2022

Þá er komið að því. Þetta skrýtna fantasy tímabil með allar sínar tvöföldu umferðir er að verða búið. Bara ein umferð eftir og eins og venjulega með lokaumferðir þá eru allir leikirnir á sama tíma. Blautir draumar fantasy spilarans. Aron og Heiðmar hittust í stúdíóinu og köstuðu fram alls konar hugmyndum að leikmönnum til að kaupa og capteina. Þeir voru samt eiginlega ósammála um allt. Flippuð fyr...

Enski boltinn - Úrslitastund á sunnudag 18.05.2022

Þeir Albert Hafsteinsson, Arnar Már Guðjónsson og Baldvin Már Morgarsson ræddu málin með Sæbirni Steinke þessa vikuna. Á morgun fara fram þrír leikir en svo er það úrslitastundin á sunnudag þar sem barist verður um efsta sætið, Meistaradeildarsæti, Evrópudeildarsæti og tvö laus sæti í deildinni. Farið var yfir leiki liðinnar helgar í úrvalsdeildinni, bikarúrslitaleikinn, sigur Newcastle á Arsenal...

Ástríðan - 2. umferð - Dalvík og Víðir byrja vel og Njarðvík að pakka saman 2. deildinni 18.05.2022

Sverrir Mar, Óskar Smári og Sæbjörn Steinke settust niður og fóru yfir aðra umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis:Sterk byrjun Haukanna, Garðurinn óskar eftir virðingu, Njarðvík eru ógnasterkir, Kormákur/Hvöt eru búnir að styrkja sig vel og verða ógn og munu styrkingar Völsungs tryggja þeim í toppbaráttuna? Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað...

Heimavöllurinn: Lokaspá 2.deildar, Lengjusprengja og framtíðarleikmenn Íslands 17.05.2022

Í boði Dominos og Heklu mæta Sunneva Hrönn leikmaður FH í Lengjudeildinni og Arnar Páll Garðarsson aðstoðarþjálfari KR á Heimavöllinn og fara yfir lokaspá fyrir 2.deildina sem hefst á miðvikudaginn. Sunneva er fyrrum leikmaður Hamars og Arnar Páll er fyrrum þjálfari KH. Við förum einnig yfir fyrstu 2.umferðirnar í Lengjudeildinni. 

Innkastið - Enginn á séns í Blika og fallfnykur í Breiðholti og Eyjum 17.05.2022

Innkastið gerir upp 6. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke í hljóðverinu á Krókhálsi. Blikar með fullt hús, allt aðrir Víkingar en í fyrra, KA dansar í takt, Silfurskeiðin vaknar, Valsmenn í vandræðum með að finna taktinn, KR byrjað að safna stigum, Framarar unnu sinn fyrsta leik, fallfnykur í Breiðholti og Eyjum, Lengjudeildarhornið, Rauði baróninn gefur ráð og fle...

Útvarpsþátturinn - Besta deildin og ferðasaga Tom 14.05.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 14. maí. Elvar Geir og Tómas Þór er á sínum stað og Sæbjörn Steinke er með þeim í þætti vikunnar. 5. umferð Bestu deildarinnar er gerð upp, rýnt í leikina og litið á helstu fréttir og næstu leiki. Einnig er farið yfir það sem er að gerast í Lengjudeildinni. Í seinni hlutanum er farið í enska boltann og Tómas segir ferðasögu en hann var á faraldsfæti í vik...

Enski boltinn - Stórliðin í brennidepli fyrir lokasprettinn 13.05.2022

Arnar Laufdal, stuðningsmaður Liverpool, sér um þáttinn að þessu sinni. Eysteinn Þorri Björgvinsson, stuðningsmaður Manchester United og Brynjar Örn Hauksson, stuðningsmaður Chelsea, eru með honum. Stórliðin eru í brennidepli í þættinum fyrir spennandi lokasprett sem er framundan. Það eru úrslitaleikir á næsta leyti og Manchester City er í góðri stöðu fyrir lokaleikina í úrvalsdeildinni.

Ástríðan - Eiríkur hafði svo bara tíma! Eru Haukar langnæstbesta lið deildarinnar? 10.05.2022

Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva settust niður þrátt fyrir allt og fóru yfir fyrstu umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis:Eru Haukar langnæstbesta lið 2. deildar? Gaui Þórðar hefur engu gleymt. Eiríkur hafði svo bara tíma eftir allt saman. Er reitur og spil það eina sem hugurinn girnist í 3. deild? Munu Vængirnir fljúga upp? Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Pizzunnar þ...

Innkastið - Stór lið fjarlægjast og vítaveislu hafnað í Breiðholti 09.05.2022

Elvar Geir, Ingó Sig og Sverrir Mar eru í Innkastinu og gera upp fjórðu umferð Bestu deildarinnar. Víkingur átti að fá þrjú víti en fékk ekkert, Bykov þekkir ekki Kjartan, ótrúlegur uppbótartími í Garðabæ, rautt og sex mörk í leiðinlegum leik, Blikum halda engin bönd og Lengjudeildarhornið mætir til leiks.

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Meistaradeildin 07.05.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 7. maí. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir sviðið í íslenska boltanum, kryfja 2-2 leik FH og Vals í Bestu deildinni, hita upp fyrir aðra leiki, skoða fréttir vikunnar, fyrstu leiki Lengjudeildarinnar og fleira. Kristján Atli, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, er á línunni og ræðir um Meistaradeildina mögnuðu.

Ástríðan - Veislan er að hefjast 06.05.2022

Veislan er að hefjast! Sverrir Mar og Gylfi Tryggva ræddu stöðuna þegar mótið er við það að hefjast. Félagsskipti hafa átt sér stað, bikarleikir hafa farið fram og skýrari mynd er komin á hvernig deildirnar munu verða. Niðurstaðan? Þetta verður einhver þvæla og það er engin leið að spá í neitt. En strákarnir reyndu. Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afs...

Fantabrögð - Stærsta umferð tímabilsins framundan 05.05.2022

Framundan í fantasy er stærsta umferð tímabilsins - umferð 36. Stóru liðin spila öll tvöfalt og flestir þurfa ekki að hafa mikið fyrir því að ná 11 spilandi mönnum með tvo leiki. Aron og Ásgeir ræddu það helsta í umferð 35 sem einkenndist af 19 stigum Son, en eyddu megninu af tímanum í að ræða það sem er framundan.

Innkastið - Stórfengleg skemmtun og skrópað í viðtöl 02.05.2022

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir 3. umferð Bestu deildarinnar. Sóknarmenn í ham en varnarmenn í basli í besta leik í sögu Bestu deildarinnar, drama á Dalvík, allir komnir á blað nema Keflvíkingar, Blikar rúlluðu yfir FH-inga og hasar á Hlíðarenda þar sem Valur vann KR.

Númer sex eins og Tinna Mark og LeBron 02.05.2022

Bjarni Mark Duffield er staddur á Íslandi í stuttu fríi þar sem ekki var spilað í norsku B-deildinni um helgina. Sæbjörn Steinke fékk Bjarna í spjall sem hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan og í öllum hlaðvarpsveitum. Bjarni er leikmaður Start í Noregi en hann söðlaði um og gekk í raðir félagsins eftir nokkur í ár í Svíþjóð þar á undan. Hann er Siglfirðingur sem skipti yfir í KA þegar han...

Útvarpsþátturinn - Sú Besta og Lengjudeildarspáin 30.04.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 30. apríl Elvar Geir, Tómas Þór og Rafn Markús ræða um Bestu deildina og opinbera spá fyrir Lengjudeildina. Farið er yfir öruggan sigur Íslandsmeistara Víkings gegn Keflavík og hitað upp fyrir 3. umferðina. Þá er rætt um öll liðin tólf í Lengjudeildinni. Einnig mætir Oscar Clausen formaður Leiknis og ræðir um áhugavert verkefni í Breiðholti.

Enski boltinn - Leeds niður og West Ham Evrópumeistari? 29.04.2022

Enski boltinn í dag fór mest í að ræða málefni West Ham og Leeds þar sem gestir þáttarins eru á þeirri hlið í lífinu. Þeir Máni Pétursson og Tómas Steindórsson ræddu málin við Sæbjörn Steinke. Evrópuævintýri West Ham er í fullum gangi en liðið þarf að ná í sigur í Þýskalandi í seinni undanúrslitaleiknum. Leeds er fimm stigum fyrir ofan fallsæti en Máni er þó á því að liðið falli úr úrvalsdeildinni...

Heimavöllurinn: Keflavíkursamba, miðvarðamörk og ein uppalin hjá Blix 28.04.2022

Besta deildin er hafin og fyrsta umferðin var góð skemmtun. Á Heimavöllinn eru mættar þær Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Sigríður Dröfn Auðunsdóttir og Steinunn Sigurjónsdóttir til að fara yfir leiki fyrstu umferðar ásamt Mist Rúnarsdóttur. Að sjálfsögðu í boði Dominos og Heklu.

Fantabrögð - Allt í skrúfunni 27.04.2022

Aron og Gunni hittust og ræddu síðustu umferðir í Fantasy og stemminguna í kringum leikinn þessa dagana, en hlutirnir ganga nokkuð erfiðlega. Meðal efnis í þættinum: - Reece James og brotin loforð - Á að selja Tottenham menn? - Á að Free Hitta í umferð 36 eða 37? - Hvað er að frétta af Gylfa? - Verða róteringar hjá Liverpool? P.S. eftir að þátturinn var tekinn upp kom í ljós að leikur Wolves og Ma...

Ascolta il podcast Fotbolti.net su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici