Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2954 episodi

Podcastþættir Fótbolta.net

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: fotbolti.net

Autore

Fotbolti.net

Categoria

Sports

Sito del podcast

fotbolti.net

Ultimo episodio

25 nov 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android 10 mln+ di download · valutazione 4,7+ iOS in arrivo

Episodi

Leið næstum yfir Freysa - „Ótrúlega stoltur að hafa staðið með sjálfum mér" 05.06.2023

Lyngby hélt sér uppi í Superliga á laugardaginn með því að fá stig gegn Horsens í lokaumferðinni. Stigið dugði þar sem Álaborg tapaði gegn Silkeborg. Niðurstaðan varð sú að Lyngby og Horsens enduðu með jafnmörg stig en Lyngby var með betri markatölu. Álaborg var svo með stigi minna. Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby og þeir Alfreð Finnbogason, Kolbeinn Birgir Finnsson og Sævar Atli Magnússon...

Tiltalið: Guðjón Pétur Lýðsson 05.06.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Lengjudeildarliðs Grindavíkur Guðjón Pétur Lýðsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinu...

Stefán Teitur - Reyksprengjum kastað og stemningin þung 04.06.2023

Stefán Teitur Þórðarson var í stúkunni þegar Álaborg féll í fyrsta skipti úr dönsku Superliga í gær. Silkeborg, lið Stefáns Teits, vann leikinn 0-1 sem varð til þess að Álaborg endaði í neðsta sæti deildarinnar. Á sama tíma gerði Lyngby markalaust jafntefli við Horsens og dugði það stig til þess að Lyngby hélt sæti sínu í deildinni. Stefán var fjarri góðu gamni í leiknum vegna meiðsla og var því e...

Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og toppslagurinn þar sem allt sauð upp úr 03.06.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í boltanum. Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks er gestur eftir þennan rosalega toppslag Breiðabliks og Víkings sem endaði á óhemju dramatískan hátt. Þá mætir Sæbjörn Steinke og farið er yfir aðra leiki, bæði í Bestu deildinni og Lengjudeildinni.

Innkastið - Lögregluvarðstjórinn og margt býr í þokunni 02.06.2023

Innkastið í 10. umferð Bestu deildarinnar er með öðruvísi sniði. Í fyrri hluta þáttarins er talað við einn besta dómara deildarinnar, Pétur Guðmundsson lögregluvarðstjóra. Rætt er um líf og störf dómara Bestu deildarinnar, framkomuna gagnvart þeim og fleira. Seinni hlutinn hefst á 43:30 en þar skoða Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn leiki í Bestu deildinni og Lengjudeildinni.

Heimavöllurinn: Línudans, eldræður og skjálfti á Suðurlandi 02.06.2023

Sjöttu umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og enn fáum við óvænt úrslit og ýmislegt að ræða. Þau Guðmundur Ásgeir Aðalsteinsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur.

Ástríðan 4. umferð - Víðir með fullt hús og KF enn án stiga 30.05.2023

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu til sín góðan gest í Halla Óla sem kom og fór yfir 4. umferð í 2. og 3. deild með þeim. Ástríðan er í boði Bola léttöl, JakoSport, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.

Innkastið - Veðravíti og Víkingstap 29.05.2023

Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Dauðafæri fór forgörðum hjá Breiðabliki, Tryggvi Hrafn sá til þess að Víkingur tapaði sínum fyrsta leik, Akureyringum létt eftir sigur gegn Fram, Fylkismenn safna stigum á meðan Eyjamenn eru í frjálsu falli, KR vann heimasigur og FH vann HK í stórskemmtilegum leik.

Enski boltinn - Verðlaun veitt eftir að veislan kláraðist 29.05.2023

Ensku úrvalsdeildinni 2022/23 er lokið. Því ákváðu Gummi og Steinke að koma sér vel fyrir í Thule hljóðverinu í dag og gera upp skemmtilegt tímabil. Með þeim í dag er Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Grindavíkur og stuðningsmaður Newcastle. Farið var yfir lokaumferðina og verðlaun veitt fyrir tímabilið. Meðal annars var lið ársins valið, leikmaður ársins, ummæli ársins og margt fleira. Þá var...

Tiltalið: Arnór Gauti Ragnarsson 29.05.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og enska hringborðið 27.05.2023

Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Kristján Atli. Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um Bestu deildina og Lengjudeildina. Í seinni hlutanum er enska hringborðið dregið fram, úrvalsdeildin gerð upp og hitað upp fyrir fallbaráttuna.

Enski boltinn - Hemúllinn fer yfir ruglið og upprisuna hjá Coventry 26.05.2023

Coventry City, líkt og Luton Town, er einum leik frá því að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Gummi og Steinke fengu Arnar Sæberg Jónsson, sem sumir þekkja sem Hemúlinn, í spjall um Coventry í dag. Hann hefur lengi verið stuðningsmaður liðsins. Í þættinum ræðir hann um það hvernig áhugi sinn á Coventry kviknaði og sorglega tíma hjá félaginu síðustu árin. Þetta hefur verið skrautlegt lengi vel en...

Enski boltinn - Stefán Páls fer yfir ævintýri Luton Town 23.05.2023

Það eru tíu ár síðan Luton Town lék í ensku fimmtu deildinni, en á laugardaginn getur liðið tryggt sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Gummi og Steinke fengu sagnfræðinginn Stefán Pálsson til að ræða Luton í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Stefán hefur verið stuðningsmaður Luton í að verða 40 ár. Þetta er mikil öskubuskusaga en liðið frá flugvallarborginni gæti leikið í deild þeirra bestu á næsta t...

Innkastið - Yfirlýsingagleði og vonbrigði norðan heiða 23.05.2023

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í Innkastinu eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Lengjudeildin er einnig skoðuð en þar er dómgæslan áberandi í umræðunni. Víkingar áfram með fullt hús, menn ráða ekki við Gísla Eyjólfs, Valsmönnum tókst ekki að skora gegn Keflavík, yfirlýsingagleðin mikla í Hafnarfirðinum, laskað lið FH vann mikilvægan sigur og fleira.

Ástríðan - 3. umferð - Vesen á mörgum stöðum og nokkrar viðvaranir gefnar út 23.05.2023

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu á heimahaga, í .net stúdíóið, og fóru yfir 3.umferð í ástríðudeildunum. Félagarnir voru mjög ósammála um margt, báðir fóru í fýlu en samt vinir að lokum. Ástríðan er í samstarfi við Jako Sport, Bola léttöl, Unbroken og ICE nikotínlausa púða.

Tiltalið: Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 22.05.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni  er leikmaður Breiðabliks og landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tóku...

Útvarpsþátturinn - Fyrirliði Íslands 20.05.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 20. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir fréttir vikunnar, bikarleikina og næstu umferð Bestu deildarinnar skoðuð. Gestur þáttarins er Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði. Rætt er við hann um lífið í Katar, landsliðið og fleira.

Enski boltinn - Þjálfaraaugað sá fegurðina í sigri City 19.05.2023

Gummi og Steinke komu sér vel fyrir Thule stúdíóinu til þess aðallega að ræða leik Manchester City og Real Madrid í Meistaradeildinni. Frammistaðan hjá City í leiknum var hreint út sagt mögnuð. Halldór Árnason, aðstoðarþjálfari Breiðabliks, var á línunni og fór yfir leikinn frá sjónarhorni þjálfarans. Pep Guardiola er búinn að smíða magnað fótboltalið, það verður að segjast. Þá ræddu Gummi og Stei...

Tiltalið: Höskuldur Gunnlaugsson 18.05.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni var fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson. Við ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirfer...

Heimavöllurinn: Stuð, stemmning og rafmagnaður Húsvíkingur 16.05.2023

Fjórðu umferð fjörugrar Bestu deildar var að ljúka og þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir hentu sér beint í upptöku á Heimavellinum ásamt Mist Rúnarsdóttur eftir að leikir kvöldsins voru flautaðir af.

Enski boltinn - Blessun í dulargervi 16.05.2023

Titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni er búin þó að staðfest sviginn sé ekki mættur. Gummi, Steinke og Hlynur Valsson fóru yfir leiki helgarinnar í Enski boltinn hlaðvarpinu. Arsenal tapaði stórt gegn Brighton á heimavelli um helgina á meðan Manchester City fór illa með Everton. City hefur verið óstöðvandi síðustu vikur og eru að sanna sig sem eitt besta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Á meða...

Ástríðan - 2. umferð - Jafnt í Vogunum og Augnablik sterkir 16.05.2023

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fara yfir 2. umferð í ástríðudeildunum. Allt saman í boði Bola, Jakosport og Unbroken.

Tiltalið: Guðmundur Magnússon 15.05.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni var Guðmundur Magnússon leikmaður Fram og jafnmarkahæsti leikmaður Bestu deildarinnar 2022. Við ræddum við hina hliði...

Innkastið - KR á botninum og hiti í Hamingjunni 14.05.2023

Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og sérstakur gestur er Magnús Þórir Matthíasson. Víkingar áfram með fullt hús, Kjartan Henry stálheppinn, Fylkismenn með gríðarlega mikilvægan sigur, Eiður Aron missti hausinn, útlitið dökkt hjá Keflavík, Valur lék sér að KA, draumabyrjun Jökuls og Lengjudeildarhornið.

Útvarpsþátturinn - Það tjáir að deila við dómarann 13.05.2023

Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir málin. Lengjudeildin er til umfjöllunar og umtalað atvik þegar dómari dæmdi vítaspyrnu en hætti við eftir mótmæli. Hitað er upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni og rætt um þjálfaraskiptin í Garðabænum. Þá er Adam Ægir Pálsson á línunni.

Ascolta il podcast Fotbolti.net su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici