RÚV
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.netfang: mannlegi@ruv.isUmsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.ruv.is
Hol hallgathatod?
Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio HamarosanA podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz
Epizódok
Málþing ungra sagnfræðinga, Bleika slaufan og breytingaskeiðið 03.10.2024 50:57
Næstkomandi laugardag heldur Félag um átjándu aldar fræði málþing undir yfirskriftinni Rannsóknir ungra sagnfræðinga á sögu Íslands á átjándu og nítjándu öld. Þór Martinsson, sagnfræðingur og kynningarfulltrúi Reykjavíkur Akademíunnar, er fundarstjóri á málþinginu, hann kom í þáttinn í dag ásamt Kolbeini Sturlu G. Heiðusyni sagnfræðingi, en hann heldur erindi á málþinginu um eigur vinnuhjúa í Skag...
Öndunaræfingar og kæling og Samtökin Sólskinsstundir 02.10.2024 50:00
Theódór Gunnar Smith, matreiðslumaður, sjósundkappi, öndunarleiðbeinandi, „kælari“, setti Íslandsmet í ísbaði í síðustu viku með því að vera 45 mínútur og sex sekúndur á kafi í vatni við frostmark. Metið var sett á Akureyri þar sem aðstoðarmenn jusu sífellt krapi niður í baðið til hans til að halda því nógu köldu. Við fengum að vita hvernig þessi þrekraun fór fram og hvað fer í gegnum hugann á með...
Öndunaræfingar og kæling og Samtökin Sólskinsstundir 02.10.2024 52:55
Theódór Gunnar Smith, matreiðslumaður, sjósundkappi, öndunarleiðbeinandi, „kælari“, setti Íslandsmet í ísbaði í síðustu viku með því að vera 45 mínútur og sex sekúndur á kafi í vatni við frostmark. Metið var sett á Akureyri þar sem aðstoðarmenn jusu sífellt krapi niður í baðið til hans til að halda því nógu köldu. Við fengum að vita hvernig þessi þrekraun fór fram og hvað fer í gegnum hugann á með...
Jafningjastuðningur á geðsviðinu og monsúnvindar og sumarkuldi í veðurspjallinu 01.10.2024 55:48
Alþjóðleg ráðstefna um geðhvörf stendur nú yfir í Hörpu og við fjölluðum í dag um nýja nálgun á geðsviði sem er aukið samstarf á milli geðheilbrigðisstarfsfólks og jafningja með eigin reynslu af geðsjúkdómum. Nína Eck, félagsráðgjafi hjá Geðhvarfateymi Landspítala og fyrrum notandi geðheilbrigðisþónustu, kom í þáttinn, en hún hefur tekið þátt í að innleiða jafningjastuðning í Geðþjónustu Landspíta...
Jafningjastuðningur á geðsviðinu og monsúnvindar og sumarkuldi í veðurspjallinu 01.10.2024 50:00
Alþjóðleg ráðstefna um geðhvörf stendur nú yfir í Hörpu og við fjölluðum í dag um nýja nálgun á geðsviði sem er aukið samstarf á milli geðheilbrigðisstarfsfólks og jafningja með eigin reynslu af geðsjúkdómum. Nína Eck, félagsráðgjafi hjá Geðhvarfateymi Landspítala og fyrrum notandi geðheilbrigðisþónustu, kom í þáttinn, en hún hefur tekið þátt í að innleiða jafningjastuðning í Geðþjónustu Landspíta...
Skautað á Akureyri, vinkill um rauðan sportbíl og Soffía lesandi vikunnar 30.09.2024 50:00
Við kíktum í heimsókn í Skautahöllina á Akureyri og fovitnuðumst um hið öfluga félagsstarf sem þar fer fram hjá Skautafélagi Akureyrar. Þar vaxa upp leikmenn sem skila sér í íshokkífélög til dæmis í Svíþjóð, Þýskalandi og Danmörku svo eitthvað sé nefnt. Við hittum framkvæmdastjórann Jón Benedikt Gíslason og tvo unga leikmenn. Við fengum svo í dag vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn fjal...
Skautað á Akureyri, vinkill um rauðan sportbíl og Soffía lesandi vikunnar 30.09.2024 52:49
Við kíktum í heimsókn í Skautahöllina á Akureyri og fovitnuðumst um hið öfluga félagsstarf sem þar fer fram hjá Skautafélagi Akureyrar. Þar vaxa upp leikmenn sem skila sér í íshokkífélög til dæmis í Svíþjóð, Þýskalandi og Danmörku svo eitthvað sé nefnt. Við hittum framkvæmdastjórann Jón Benedikt Gíslason og tvo unga leikmenn. Við fengum svo í dag vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn fjal...
Föstudagsfeðgarnir Stefán og Haraldur Ari og matarspjall frá Róm 27.09.2024 53:22
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru aftur tveir, eins og í síðustu viku, en í þetta sinn eru það feðgar. Ekki nóg með það heldur leikstýrir faðirinn syninum í leikriti sem fjallar um feðga. Þetta eru þeir Stefán Jónsson, leikari og leikstjóri og Haraldur Ari Stefánsson leikari og tónlistarmaður. Við spjölluðum við þá í dag um lífið, listina og tilveruna. Við fórum með þeim aftur í...
Fundur um stöðu ungmenna, Ónæmisgallar og Ullarvika 26.09.2024 52:41
Fullt var út úr dyrum á foreldrafundi sem fram fór í Safamýri í fyrradag fyrir foreldra barna í hverfum 104, 105 og 108 þar sem kallað var eftir því að opnunartími félagsmiðstöðva og sundlauga yrði rýmkaður og starf félagsmiðstöðva eflt ásamt foreldrarölti. Ljóst er að foreldrar eru að kalla eftir meiri viðbrögðum í skólakerfinu og víðar til að sporna gegn vaxandi unglingadrykkju og ofbeldi meðal...
Lyfjafræðingar aðstoða, áhugaverðir staðir að ferðast til og póstkort frá Magnúsi 25.09.2024 52:41
Lyfjafræðingurinn Sigríður Pálína Arnardóttir sem rekur Reykjanesapótek hefur ásamt sínu teymi hjálpað fólki við að venja sig af og trappa sig niður vegna neyslu á ávanabindandi lyfjum. Hún flutti til Íslands árið 2017 frá Noregi og er undir miklum áhrifum þaðan um hvernig lyfjafræðingar geta veitt fólki þessa aðstoð. Sigríður vill taka kaupmannsstimpilinn af lyfjafræðingum því þeir séu fyr...
Langvinn Covid einkenni, Hljóðóþol og Efnaskiptavandi 24.09.2024 51:37
Hópur fólks hér á landi sem hefur glímt við alvarleg og langvinn veikindi eftir COVID kallar eftir vitundarvakningu og úrræðum í íslensku heilbrigðiskerfi. Þessi eftirköst og veikindin hafa gert það að verkum að fólk er nánast óvinnufært og glímir við margvíslegan heilsubrest á borð við eilífðar flensueinkenni, mæði, slæma hausverki, ógleði, heilaþoku, máttleysi og margt fleira. Þær Hafdís Inga He...
Leikárið í Tjarnarbíói, kjötsúpuvinkill og Móheiður lesandi vikunnar 23.09.2024 53:09
Við höfum verið að fjalla undanfarna mánudaga um það hvað verður á fjölunum í leik- og sviðslistahúsunum í vetur. Í dag var komið að Tjarnarbíói, Snæbjörn Brynjarsson nýráðinn leikhússtjóri þar á bæ kom í þáttinn. Tjarnarbíó hefur verið aðalmiðstöð frjálsu leikhópana hér á höfuðborgarsvæðinu og verður það áfram í vetur með fjölbreytta dagskrá sem Snæbjörn sagði okkur frá henni í þættinum. Við feng...

Föstudagsgestirnir Elín og Katla og uppáhaldsmatur Elvis Presley 20.09.2024 50:08
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru tveir, leik- og tónlistarkonurnar Elín Hall og Katla Njáls. Þær leika aðalhlutverkin í kvikmyndinni Ljósbrot sem hefur fengið frábærar viðtökur, var frumsýnd á Cannes, hefur verið valin á fjölda virtra kvikmyndahátíða og er í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Þær hafa báðar leikið talsvert, bæði á sviði og fyrir framan myndavélarnar, o...

Áráttu- og þráhyggjuröskun, Bergrisar og Heimsforeldrar 19.09.2024 50:58
Við töluðum í dag við Brynjar Halldórsson, klínískan sálfræðing sem er dósent við Háskólann í Reykjavík og sinnir klínísku starfi við geðsvið Landspítalans. Hann fræddi okkur um áráttu- og þráhyggjuröskun. Við töluðum við hann til dæmis um mýturnar tengdar þessu, hverjar eru birtingamyndirnar, hver eru áhrif þeirra, hvað er hægt að gera og af hverju það skiptir máli að fá hjálp við þeim. Eva Rós Ó...
Íris Stefanía og Kynveran og netnámskeið Geðverndarfélagsins 18.09.2024 54:05
Íris Stefanía Skúladóttir kom í þáttinn í dag. Hún er að fara af stað með námskeiðið Kynveran í Kramhúsinu. Hún hefur þróað það í tvö ár í framhaldi af lokaverkefni hennar frá LHÍ sem kallaðist „Þegar ég fróa mér“. Eftir útskrift hefur verkefnið lifað góðu lífi og vaxið og dafnað. Hún hefur meðal annars farið með það á leiklistarhátíð í Finnlandi nýlega, einnig til Hollands og Akureyrar. Íris sagð...
Íris Stefanía og Kynveran og netnámskeið Geðverndarfélagsins 18.09.2024 50:00
Íris Stefanía Skúladóttir kom í þáttinn í dag. Hún er að fara af stað með námskeiðið Kynveran í Kramhúsinu. Hún hefur þróað það í tvö ár í framhaldi af lokaverkefni hennar frá LHÍ sem kallaðist „Þegar ég fróa mér“. Eftir útskrift hefur verkefnið lifað góðu lífi og vaxið og dafnað. Hún hefur meðal annars farið með það á leiklistarhátíð í Finnlandi nýlega, einnig til Hollands og Akureyrar. Íris sagð...
Raddheilsan, geðheilbrigði á vinnustað og veðurspjallið 17.09.2024 50:00
Halldís Ólafsdóttir talmeinafræðingur flutti hingað til lands fyrir nokkrum árum til að starfa sem talmeinafræðingur. Hún er menntuð í Danmörku og hefur starfað bæði þar og í Noregi. Hún hefur sérhæft sig í raddmeinum en raddmein geta stafað af margvíslegum toga og haft mikil áhrif á líf fólks hvort sem það hefur atvinnu af röddinni eða ekki. Hver er líffræðin á bak við góða raddbeitingu og hvaða...
Raddheilsan, geðheilbrigði á vinnustað og veðurspjallið 17.09.2024 51:02
Halldís Ólafsdóttir talmeinafræðingur flutti hingað til lands fyrir nokkrum árum til að starfa sem talmeinafræðingur. Hún er menntuð í Danmörku og hefur starfað bæði þar og í Noregi. Hún hefur sérhæft sig í raddmeinum en raddmein geta stafað af margvíslegum toga og haft mikil áhrif á líf fólks hvort sem það hefur atvinnu af röddinni eða ekki. Hver er líffræðin á bak við góða raddbeitingu og hvaða...
Leikárið í Þjóðleikhúsinu, vinkill um forystufé og Signý lesandinn 16.09.2024 50:55
Við héldum áfram yfirferð okkar um leik- og sviðslistahúsin, hvað verður á fjölum þeirra í vetur. Í dag var það Þjóðleikhúsið, Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóri, kom og sagði okkur allt um það hvernig leikveturinn verður þar á bæ. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Að þessu sinni fjallaði vinkillinn um forystufé. Það mun vera sérstakur fjárstofn, með sérstaka eiginleika se...
Föstudagsgesturinn Björn Jörundur Friðbjörnsson og matarspjall um haustmat ofl. 13.09.2024 50:10
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn er tónlistarmaðurinn og leikarinn Björn Jörundur Friðbjörnsson. Hann þarf vart að kynna fyrir hlustendum en hefur auðvitað verið í hljómsveitinni Nýdönsk í vel á fjórða áratug, gefið út tónlist í eigin nafni auk fjölda annarra verkefna í tónlistinni. Hann hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta, frá því að hann lék sitt fyrsta hlutverk í Só...
Ólöf og Ljósið, Kallaspjall Bjarna og þjóðlistahátíð 12.09.2024 52:05
Við fræddumst um átak hjá Ljósinu endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Átakið snýst um að safna nýjum Ljósavinum og að virkja hóp aðstandenda sem standa að einstaklingi með krabbamein gerist Ljósavinur. Þegar einhver úr hópnum greinist með krabbamein er Ljósið til staðar til að grípa og veita stuðning sem hópurinn hefur mögulega ekki ráð e...
Ný bók um þyrlusögu Landhelgisgæslunnar og póstkort 11.09.2024 51:38
Hinar stóru og öflugu björgunarþyrlur Landhelgisgæslu Íslands eru flestum auðþekktar þegar þær birtast og hverfa úr augsýn yfir höfuðborgarsvæðinu, þær eru í stöðugum verkefnum í þágu veikra,slasaðra og nauðstaddra. Allt bendir til þess að Lárus Eggertsson hafi verið fyrsti Íslendingurinn sem flaug þyrlu. Lárus sem var fæddur á Akureyri árið 1921 stundaði um tíma þyrluflugnám meðfram þjálfun í bjö...
Ný bók um kúk, piss og prump, Hafrót á Eyrabakka og leikhússkóli 10.09.2024 52:27
Sævar Helgi Bragason kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá nýrri bók sinni sem heitir Kúkur, piss og prump. Eins og segir aftan á bókinni, „Allt í náttúrunni er hluti af hringrás. Þú líka! Þar leikur meltingin algjört lykilhlutverk. Heimurinn verður svo fallegur og forvitnilegur þegar við uppgötvum hvernig allt er tengt. Meira að segja kúkur, piss og prump verður bara... spennandi!“ Sævar Helgi f...
Hasonló podcastok
A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.