RÚV
Í ljósi sögunnar
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.ruv.is
Hol hallgathatod?
Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio HamarosanA podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz
Epizódok
Kim Il-sung 23.09.2016 43:59
Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kóreuskaganum var skipt upp í Norður- og Suður-Kóreu, ævi fyrsta leiðtoga Norður-Kóreu, einræðisherrans Kim Il-sung, og upphaf kjarnorkuáætlunar norðurkóreska ríkisins.
Týndi Franklin-leiðangurinn 16.09.2016 40:00
Í þættinum er fjallað um leiðangur breska landkönnuðarins John Franklins í Norður-Íshaf í leit að norðvestursiglingaleiðinni. Franklin hvarf sporlaust á leiðinni og aldrei hefur fengist fullkomlega á hreint hvað varð af honum, tveimur skipum hans og 130 manna áhöf, en nýverið fannst annað skipa hans á botni við kanadíska heimskautaeyju.
Islam Karimov og Úsbekistan 09.09.2016 39:22
Í þættinum er fjallað sögu Úsbekistan á síðustu áratugum. Sagt er frá ævi og valdatíð Islams Karimovs, einræðisherrans miskunnarlausa sem nýlega féll frá, og var meðal annars alræmdur fyrir að láta sjóða andófsmenn lifandi, og sömuleiðis litríkri dóttur Karimovs, Gulnöru, sem var ríkasta kona Úsbekistan, dreymdi um að verða alþjóðleg poppstjórna, en lenti svo upp á kant við föður sinn og lenti í s...
Íslamska ríkið II 02.09.2016 38:42
Síðari þáttur af tveimur um sögu hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, hafa á síðustu árum lagt undir sig landsvæði í Írak og Sýrlandi og staðið á bak við ótal hryðjuverk um heim allan. Í þessum síðari þætti er fjallað um það hvernig hópur hryðjuverkamanna í Írak notfærði sér upplausnina í grannríkinu Sýrlandi til að kveða sér hljóðs, og uppgang núverandi leiðtoga samtakanna, Abu...
Rætur Íslamska ríkisins 26.08.2016 41:11
Þátturinn er annar af tveimur um rætur og upphaf hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki og hafa á síðustu árum lagt undir sig landsvæði í Írak og Sýrlandi og staðið á bak við ótal hryðjuverk og ódæðisverk um heim allan. Í þessum fyrri þætti er farið yfir ævi og ferils Jórdaníumannsins miskunnarlausa Abu Musab Al-Zarqawi, sem notfærði sér ólguna í kjölfar innrásar Bandaríkjamanna í Í...
Raoul Wallenberg 12.08.2016 38:58
Í þættinum er fjallað um ráðgátuna um sænska stjórnarerindrekann Raoul Wallenberg sem bjargaði lífi þúsunda gyðinga í Búdapest í seinni heimsstyrjöld en hvarf svo sporlaust í stríðslok.
Stonewall 05.08.2016 40:42
Í þættinum er fjallað um atburð sem markaði vatnaskil í réttindabaráttu samkynhneigðra og hinsegin fólks í Bandaríkjunum og á heimsvísu, gestir á Stonewall Inn, næturklúbbi fyrir homma og hinsegin fólk í Greenwich Village í New York risu upp gegn lögreglumönnum sem ætluðu að loka staðnum, sumarið 1969.
Valdaránið í Grikklandi 1967 29.07.2016 40:05
Í skjóli nætur þann 21. apríl 1967 tóku nokkrir hægrisinnaðir herforingjar öll völd í Grikklandi í hendur sér, settu herlög, bönnuðu stjórnmálaflokka og allt andóf og fangelsuðu þúsundir manna. Herinn stjórnaði Grikklandi næstu sjö árin. Fjallað er um aðdraganda og ástæður valdaránsins, hlutskipti almennings á herstjórnarárunum, skammlífa uppreisn stúdenta í Aþenu og það sem að lokum varð herforin...
Indland og Pakistan II 15.07.2016 35:03
Seinni þáttur um skiptingu bresku nýlendunnar Indlands í tvö sjálfstæð ríki, Indland og Pakistan, árið 1947. Í þessum þætti er fjallað um eftirmál skiptingarinnar og hlutskipti almennra borgara í báðum nýju ríkjunum, en allt að fimmtán milljónir manna hröktust á flótta eftir skiptinguna og hundruð þúsunda féllu í átökum eða fórust á flóttanum. Lesarar: Bjarni Pétur Jónsson. Guðmundur Björn Þorbjör...
Indland og Pakistan 08.07.2016 39:23
Í þættinum er fjallað um skiptingu bresku nýlendunnar Indlands í tvö sjálfstæð ríki, Indland og Pakistan, árið 1947, aðdraganda skiptingarinnar og þær ómældu hörmungar sem þær höfðu í för með sér fyrir borgara beggja nýju ríkjanna. Lesari: Tryggvi Aðalbjörnsson.
Victoria Woodhull 01.07.2016 37:44
Í þættinum er fjallað um lygilega ævi baráttukonunnar Victoriu Woodhull, sem árið 1872 varð fyrsta konan til að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna, mörgum áratugum áður en bandarískar konur fengu kosningarétt. Hún var sömuleiðis með fyrstu kvenkyns verðbréfasölum á Wall Street, sjáandi, tugthúslimur, og boðberi frjálsra ásta löngu á undan sinni samtíð.
Rodrigo Duterte 10.06.2016 35:33
Í þættinum er fjallað um Rodrigo Duterte, nýkjörinn forseta Filippseyja, sem hefur verið kallaður „hinn filippeyski Donald Trump“ vegna stefnumála sinna og yfirlýsinga. Hann hefur meðal annars hvatt almenning til að myrða glæpamenn og er sakaður um stuðning við dauðasveitir.
Nepalska konungsfjölskyldan 03.06.2016 37:16
Í þættinum er fjallað um morðin á nepölsku konungsfjölskyldunni árið 2001, þegar krónprins Nepals skaut föður sinn og móður og fleiri ættingja til bana.
Boko Haram 27.05.2016 36:53
Í þættinum er fjallað um sögu nígerísku öfgasamtakanna Boko Haram. Vígamenn samtakanna eru taldir hafa að minnsta kosti tuttugu þúsund mannslíf á samviskunni og meira en tvær milljónir manna hafa lent á hrakhólum vegna árasa þeirra, sem beinast jafnt gegn nígerískum stjórnvöldum og óbreyttum borgurum.
Nauðungarflutningar á Krímtatörum 20.05.2016 38:02
Í þættinum er fjallað um nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944, en lag um þá hörmungaratburði sigraði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á dögunum. Jósef Stalín sakaði Tatara á Krímskaga um landráð og svik og lét því flytja alla þjóðina, nærri tvö hundruð þúsund manns, til Úsbekistan um borð í gripalestum. Þar beið þeirra vist í fangabúðum, og talið að allt að fjörutíu prósent krímtat...
Hillary Rodham Clinton 13.05.2016 40:00
Fjallað um bandarísku stjórnmálakonuna Hillary Clinton, æsku hennar og námsár og upphaf sambandsins hennar við Bill Clinton.
Erdogan Tyrklandsforseti 06.05.2016 39:06
Fjallað um ævi og feril Recep Tayyip Erdogans, forseta Tyrklands.
Tsjernóbyl-slysið 29.04.2016 37:42
Um slysið í Tsjernóbyl-kjarnorkuverinu í Úkraínu 26. apríl 1986, alvarlegasta kjarnorkuslys sögunnar.
Dilma Rousseff 22.04.2016 40:30
Í þættinum er fjallað um ævi Dilmu Rousseff Brasilíuforseta, sem nú er sökuð um spillingu og embættisglöp. Hún var skæruliði á dögum herforingjastjórnar í Brasilíu, sat í fangelsi og sætti þar hryllilegum pyntingum - en varð síðar forseti eins fjölmennasta og stærsta ríkis á jörðinni og ein valdamesta kona heims.
Líbía 15.04.2016 38:56
Í þættinum er fjallað um sögu Líbíu í Norður-Afríku á tuttugustu öld.
Nagorno-Karabakh í Kákasus 08.04.2016 39:11
Í þættinum er fjallað um héraðið Nagorno-Karabakh í Kákasus sem Armenía og Aserbaídsjan hafa eldað grátt silfur vegna frá falli Sovétríkjanna. Allt að 30 þúsund manns féllu í sex ára stríði um Nagorno-Karabakh sem lauk með vopnahléi árið 1994. Friðarviðræður hafa ekki skilað árangri og síðast kom til átaka í héraðinu fyrir örfáum dögum.
Radovan Karadzic 01.04.2016 41:29
Í þættinum er fjallað um ævi Radovans Karadzic, leiðtoga Bosníuserba í Júgóslavíustríðinum, sem nýverið var dæmdur í fjörutíu ára fangelsi af stríðsglæpadómstól fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni, og lygilegan flótta hans undan réttvísinni í þrettán ár.
Hasonló podcastok
A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.