RÚV

Heimskviður

News IS ↓ 355 epizód

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.ruv.is

Szerző

RÚV

Kategória

News

A podcast weboldala

www.ruv.is

Legutóbbi epizód

2026. okt. 10.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android közel 10 M letöltés · 4,8-as értékelés iOS hamarosan

Epizódok

43 | #FreeBritney, sýn Repúblikana og sjálfsvíg á Grænlandi 28.08.2020

Í þriðja þætti haustsins er fjallað um sjálfsvíg ungs fólks á Grænlandi, sýn Repúblikana á Donald Trump og um hreyfinguna FreeBritney, sem er mönnuð stuðningsfólki tónlistarkonunnar Britney Spears. Er Britney Spears fangi föður síns? Þessu trúa þau sem fylgja #FreeBritney-hreyfingunni. Í tólf ár hefur þessi heimsfræga tónlistarkona, sem er oft kölluð prinsessa poppsins, ekki haft yfirráð yfir fjár...

42 | Flóttinn yfir Ermasund, morðið á Hariri og hin nýja Múlan 21.08.2020

Í öðrum þætti haustins er fjallað um flóttann yfir Ermasundið. Þúsundir flóttamanna hafa það sem af er ári farið frá Frakklandi til Bretlands yfir Ermasundið á misgóðum bátum, rétt eins og gerðist við Miðjarðarhaf fyrir fimm árum, til að óska eftir hæli í Bretlandi. Þegar hefur orðið eitt dauðsfall af þessum sökum. Stjórnmálamenn kenna glæpagengjum og öðrum stjórnmálamönnum um, en hjálparstofnanir...

41| Trump í vanda, æfir Hvítrússar og framtíð Líbanon 14.08.2020

Í fyrsta þætti annarrar þáttaráðar Heimskviða er komið við í Bandaríkjunum, Hvíta-Rússlandi og Líbanon. „Donald Trump og Repúblikanaflokkurinn eru í miklum vandræðum,“ segir stjórnmálaprófessorinn James Thurber, í viðtali við Bjarna pétur Jónsson. Thurber segir sömuleiðis að fyrirhugaðar forsetakosningar í Bandaríkjunum verði mikil prófraun fyrir lýðræðið þar í landi. Svo gæti farið að eftir 80 da...

Sumarútgáfa: Mið-Austurlönd 07.08.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í áttunda og síðasta sumarþættinum er Mið-Austurlönd. Fjallað er um dauða Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, eða ISIS. Samtökin eru ekki svipur hjá sjón í dag miðað við það sem áður var. Langur vegur er þó frá því a...

Sumarútgáfa: Deilur og átök 31.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í sjöunda sumarþættinum eru deilur og átök. Fjallað er umdeilda friðaráætlun Bandaríkjastjórnar og Ísraelsstjórnar fyrir Palestínu, af hverju svo margir Bandaríkjamenn falli ár hvert í skotárásum, og nýja heimastjórn á Norður-Írlandi. Heimskviður er fréttaskýringaþá...

Sumarútgáfa: Suður-Ameríka 24.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í sjötta sumarþættinum er Suður-Ameríka. Fjallað er um þá vaxandi óánægju sem gætir meðal almennings út í ríkjandi stjórnvöld víða í álfunni, morðið á argentíska saksóknaranum Alberto Nisman, og bræðraþjóðirnar Kólumbíu og Venesúela. Heimskviður er fréttaskýringaþát...

Sumarútgáfa: Spilling 17.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fimmta sumarþættinum er spilling. Fjallað er um spillingu í Suður-Afríku, Líbanon og morð á virtum blaðamanni á Möltu. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þátt...

Sumarútgáfa: Glæpir og sakamál 10.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fjórða sumarþættinum er glæpir og sakamál. Fjallað verður um morðið á Olof Palme, servéttu sem varð morðingja að falli í Bandaríkjunum, hvarf Önnu Elisabeth Hagen og almennan áhuga fólks á sakamálum. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og l...

Sumarútgáfa: Skemmtanaiðnaðurinn 03.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í öðrum sumarþættinum er skemmtanaiðnaðurinn. Óskarsverðlaunin veitt 9.febrúar, í 92. sinn. Það er ekki ósennilegt að stór hluti þjóðarinnar verði óútsofinn í vinnu og skóla á mánudag, þau sem vilja fylgjast með því hvort Hildur Guðnadóttir bæti ekki síðustu og stær...

Sumarútgáfa: Karlar 26.06.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í öðrum sumarþættinum er karlar. Fjallað er um andlát Kobe Bryant, eins besti körfuboltamanns allra tíma, hefði farist í hörmulegu þyrluslysi í janúar. Kobe var ekki dæmigerður íþróttamaður. Hann var líka skáld, og óskarsverðlaunahafi, sem var í stöðugri leit að ful...

Sumarútgáfa: Konur 19.06.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fyrsta sumarþættinum er konur. Við fjöllum um Aung San Su Kiy leiðtoga Mjanmar, belgísku íþróttakonuna Marieke Vervoort og líknardráp í Belgíu, og deilu eiginkvenna tveggja af þekktustu fótboltamönnum Bretlands, Rebeccu Vardy og Coleen Rooney. Heimskviður er frétt...

40 | Lokaþáttur: Sögurnar sem ekki voru sagðar 12.06.2020

Í fertugasta og síðasta þætti Heimskviða veturinn 2019-2020 fara þáttastjórnendur yfir víðan völl. Hvaða fréttir frestuðust vegna Covid-19? Hvaða fréttir voru ekki sagðar? Eurovision-keppnin, sigur Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, Brexit, staða flóttamanna, engisprettufaraldur í Afríku, staðan á Vesturbakkanum, og fleira. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hát...

38 | Afvopnunarsamningar, Bolsonaro og Inger Støjberg 29.05.2020

Í þrítugasta og áttunda þætti Heimskviða er fjallað um afvopnunarsamninga, og þá staðreynd að Donald Trump dró nýverið Bandaríkin út úr samningi um svokallaða gagnkvæma loftelgi. Þetta er þriðji alþjóðasamningurinn sem Trump dregur Bandaríkin út úr á kjörtímabilinu. Hallgrímur Indriðason rýnir í hvaða afleiðingar úrsagnir frá þessum samningum geta haft á alþjóðasamfélagið, ásamt Alberti Jónssyni,...

37 | Sinnuleysið í Ischgl, ríkisstjórn í Ísrael og barnarán í Kína 22.05.2020

Í þrítugasta og sjöunda þætti Heimskviða er fjallað um skíðabæinn alræmda, Ischgl í Austurríki. Stjórnarandanstæðingar í Austurríki segja að hagsmunatengsl ferðaþjónustunnar í Tírol og yfirvalda í Austurríki skýra sinnuleysi gagnvart útbreiðslu Covid-19 í bænum. Þúsundir taka nú þátt í hópmálsókn og fara fram á bætur frá Austurríska ríkinu vegna veikindanna en ýmislegt bendir til þess að ferðamála...

36 | Biden í bobba, ný heimsmynd og ópólitískur Jordan 15.05.2020

Í þrítugasta og sjötta þætti Heimskviða er fjallað um ásakanir á hendur Joe Biden, frambjóðanda Demókrata í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Nýverið var hann ásakður um alvarlegt kynferðisofbeldi af konu sem var aðstoðarmaður hans snemma á tíunda áratugnum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Biden er ásakaður um óviðeigandi framkomu í garð kvenna, en þetta er í fyrsta sinn sem hann er saka...

34 | Sænska leiðin, matarskortur í heiminum, og hver á Grænland? 01.05.2020

Í þrítugasta og fjórða þætti Heimskviðna bregðum við okkur til Svíþjóðar, nánar tiltekið til Gautaborgar, þar sem Kári Gylfason fréttamaður býr. Kári flytur sinn fyrsta pistil fyrir Heimskviður og fjallar um það hvernig Svíar hafa brugðist við kórónuveirufaraldrinum. Nálgun Svía er þvert á það sem gert er í öllum sambærilegum samfélögum og hefur verið harðlega gagnrýnd. Dauðsföll í Svíþjóð af völd...

33 | Trú og heimsfaraldur, krísa í Barcelona og framtíð sjónvarps 24.04.2020

Í þrítugasta og þriðja þætti Heimskviðna er fjallað um trúarbrögð á tímum heimsfaraldurs. Fjölmargar kirkjur og trúfélög víða um heim hafa óhlýðnast yfirvöldum og virt samkomubann að vettugi, sem getur haft alvarlegar afleiðingar. En svo getur virkt trúarlíf fólks líka haft jákvæð áhrif, bæði á andlega líðan, og auðvitað með því að hlýða yfirvöldum en um leið hjálpa öðrum. Guðmundur Björn Þorbjörn...

32 | Kórónuveira í Rússlandi, Trump í basli, og tígrisdýr í haldi mann 17.04.2020

Í þrítugasta og öðrum þætti Heimskviðna er áfram fjallað um áhrif Covid-19 víða um heim. Fjölmörg ríki hafa slakað á aðgerðum sem miða að því að hindra útbreiðslu veirunnar, á meðan önnur ríki herða aðgerðir enn frekar, þar á meðal Kína. Og hver er staðan í stærsta landi heims, Rússlandi? Forseti Bandaríkjanna hefur nú verið gagnrýndur fyrir að bregðast seint og illa við yfirvofandi heimsfaraldri....

31 | Öfgar á tímum COVID19, áhrif veirunnar á umhverfið og Inter Miami 03.04.2020

Í þrítugasta og fyrsta þætti Heimskviðna fjalla Guðmundur Björn og Birta um ólík viðbrögð þjóðarleiðtoga um veröld víða við útbreiðslu kórónuveirunnar COVID19. Forseti Filippseyja vill skjóta þá sem rjúfa sóttkví, en forseti Brasilíu segir fólki að hundskast í vinnuna. Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands er nánast orðinn einvaldur, og í Hvíta-Rússlandi gengur lífið sinn vanagang, líkt og...

28 | Áhrif COVID19, Britta Nielsen og er stríðið í Afganistan á enda? 13.03.2020

Í tuttugasta og áttunda þætti Heimskviðna verður ekki komist hjá því að ræða um áhrif COVID19 veirunnar á samfélög og þjóðir heims. Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um ferðabann frá Evrópu, fjármálamarkaðir voru í frjálsu falli, Danir skelltu í lás og íþróttaheimurinn og skemmtanaiðnaðurinn fer ekki varhluta af áhrifum veirunnar. En þá er einnig fjallað um aðra hluti, enda hætta hjól heimsins ekk...

27 | Julian Assange, átök á Indlandi og ógnir á Norður-Atlantshafi 06.03.2020

Í tuttugasta og sjöunda þætti Heimskviðna er fjallað um Julian Assange, stofnanda Wikileaks, og framsalskröfu Bandaríkjanna á hendur honum. Assange heldur nú uppi vörnum í Bretlandi, en bresk stjórnvöld hafa fallist á framsalskröfu Bandaríkjanna. Kristinn Hranfsson, ritstjóri Wikileaks, ræðir um réttarhöldin og hvernig niðurstaða þeirra gæti haft áhrif á framtíð blaðamennsku og tjáningarfrelsis í...

26 | COVID-19, morðingi Olof Palme og trúarleiðtogi Trumps 28.02.2020

Í tuttugasta og sjötta þætti Heimskviðna er fjallað COVID-19, kórónaveiruna sem fer sem eldur í sinu um heimsbyggðina. Fleiri en 80 þúsund manns hafa sýkst af henni og tæplega þrjú þúsund látið lífið af völdum hennar. Er heimsfaraldur í vændum eða er COVID-19 stormur í vatnsglasi? Guðmundur Björn fjallar um málið. Í dag eru 34 ár frá því forsætisráðherra Svíþjóðar, Olof Palme, var myrtur í miðborg...

25 | Umskurður kvenna, Ástralía og Extinction Rebellion 21.02.2020

Í tuttugasta og fimmta þætti Heimskviðna er fjallað um umskurð kvenna, en á hverjum fimmtán sekúndum eru kynfæri stúlku limlest einhvers staðar í heiminum og um 200 milljónir núlifandi stúlkna og kvenna lifa með afleiðingum slíkra aðgerða. Umskurður er gjarnan notað fyrir þennan verknað en þau sem til þekkja vilja frekar tala um limlestingu á kynfærum kvenna. Áform eru um að útrýma þessum aldagaml...

17 | Morðið á Möltu, þinkosningar í Bretlandi og endalok The Simpsons 06.12.2019

Í sautjánda þætti Heimskviðna er fjallað um morðið á Daphne Galizia, blaðakonu á Möltu, árið 2017. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræðir við vinkonu Galizia, Dóru Blöndal Mizzi og Renete Schroeder, framkvæmdastjóra Evrópusamtaka blaðamanna. Rannsókn málsins hafði lítið miðað áfram þangað til leigubílstjóri var handtekinn á flugvelli á Möltu um miðjan síðasta mánuð. Hann var tengiliður milli leigumorðing...

16 | Skógareldar í Ástralíu, forval Demókrata og baráttan við Trump 29.11.2019

Í sextánda þætti Heimskviðna förum við til Ástralíu. Halla Ólafsdóttir, fréttamaður, er búsett þar um þessar mundir og flytur hún okkur pistil um fordæmalausa skógarelda sem hafa geisað í landinu síðustu vikur, og ekkert lát er á. Það er ekki síst umfang eldanna og tímasetningin sem er fordæmalaus en í Ástralíu er sumarið rétt að byrja og og heitasti og þurrasti tíminn fram undan. Halla fór á stúf...

Hallgasd a(z) Heimskviður podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.