RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.ruv.is
Hol hallgathatod?
Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio HamarosanA podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz
Epizódok
Ódysseifskviða 9 - Ástir á Ólympsfjalli 26.04.2026 50:00
Í þessum kafla Ódysseifskviðu greinir enn frá veisluhöldum sem Ódysseifur er viðstaddur í höllu Fæeka. Þar flytur blinda skáldið Demódókus meðal annars heldur blautlegt kvæði um samskipti Aresar stríðsguðs og Afródítu ástargyðju. Spurningin er hvort Demódókus sé í aðra röndina sjálfsmynd skáldsins Hómers. Síðar segir meðal annars frá hinum einkennilegu Lótusætum sem Ódysseifur og menn hans hrekjas...
Hestasögur eftir Þorgils gjallanda og Gest Pálsson 19.04.2026 58:58
Gunnar Theódor Eggertsson hefur komist að því að Íslendingar séu að líkindum með þeim allra fyrstu sem skrifuðu dýrasögur á ofanverðri 19. öld. Þá er ekki átt við sögur þar sem dýrin tala eða hafa mjög mannlega eiginleika, heldur er reynt að lýsa ævi þeirra frá þeirra forsendum. Hér verða lesnar tvær sögur, önnur er Heimþrá eftir Þorgils gjallanda og hin Skjóni eftir Gest Pálsson.
Hvað þáði kristindómurinn frá trúarbrögðum Persa? - 2 12.04.2026 1:00:00
Framhald af síðasta þætti; hér verður athygli einkum beint að sögu ríkjanna Ísraels og Júda frá 800-586 FT, greint frá því hvað þau áttu sameiginlegt og hvað var ólíkt í trúarlegum efnum. Síðan segir frá örlögum íbúanna þegar Assyríumenn hernámu Ísrael og síðan Babýloníumenn Júda. Þá hyllir loks undir hernám Persa og þau áhrif sem þeir höfðu á trúarlíf Gyðinga.

Hvað þáði kristindómurinn frá trúarbrögðum Persa? 05.04.2026 50:00
Í þessum páskaþætti verður fjallað um uppruna hinna svokölluðu Zaraþústra-trúarbragða í Persíu. Þar segir frá ungum Baktríumanni sem gerbylti hugmyndum landa sinna um guðdóminn og lagði grunn að nýrri trú sem var síðan við lýði í tvö þúsund árum. Og snemma í sögu þessara trúarbragða höfðu þau mjög afdrifarík áhrif á trú Gyðinga og þar af leiðandi kristinna manna líka. Fyrri þáttur.

Kropotkin fursti - 3 29.03.2026 50:18
Kropotkin fursti skrifaði rómaða sjálfsævisögu sem áður hefur verið gluggað í í Frjálsum höndum. Nú er hann kominn á táningsár og farinn að komast í kynni við hirðlífið í hinu feyskna ríki Romanov-keisaraættarinnar. Þrælahaldið heldur áfram að varpa skugga yfir þjóðlífið allt.
Ódysseifskviða 8 - Veisluhöld og íþróttir hjá Alkinosi 22.03.2026 49:59
Nú er Ódysseifur gestur Alkinosar konungs Fæeka sem lofar honum aðstoð við að komast heim til sín. Ekki gerir kappinn þó uppskátt um hver hann er. Haldin er mikil íþróttakeppni við hirð Alkinosar og nærvera Ódysseifs vekur mikla athygli.
Trippa Sigga 1: Uppeldi á Snæfellsnesi 15.03.2026 50:10
Hér verður gluggan í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem varð svo fræg fyrir hestamennsku og hestaferðir að hún var jafnan kölluð Trippa Sigga. Hér segir þó fyrst og fremst af uppeldi hennar fram að fermingu en hún ólst upp á Snæfellsnesi og bjó við vægast sagt misjafnt atlæti í æsku. Meðal annars var henni stranglega bannað að læra landafræði.

Anna á Moldnúpi, Ólafur Jóhann og Ásta vitlausa - 2 08.03.2026 50:00
Hér segir frá gagnrýni sem Anna á Moldnúpi ("fjósakona sem fór út í heim") setti fram á skáldsögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Fjallið og draumurinn, árið 1944. Hún taldi bókina skelfilega lýsingu á sveitalífi og höfundi ekki til sóma. Ólafur Jóhann svaraði fyrir sig fullum hálsi og Anna svaraði þá enn. Í ritdeilunni birtist ólíka afstaða þeirra til bókmennta og samfélags og kynjaviðhorf koma og vi...
Anna á Moldnúpi, Ólafur Jóhann og Ásta vitlausa 1 01.03.2026 50:06
Árið 1944 gaf Ólafur Jóhann Sigurðsson út skáldsöguna Fjallið og drauminn sem hlaut yfirleitt mjög góða dóma, þótt sumir væru upp og ofan, t.d. dómur Halldórs Laxness. En ein persóna bókarinnar, niðursetningurinn Ásta vitlausa, varð sérlega umdeild enda lýsing á ævi hennar sérlega ofboðsleg. Undir lok þáttar víkur svo að alþýðukonunni Önnu frá Moldnúpi sem nánar segir af í næsta þætti.

Kravténko og ógnarárið 1936 - 4 22.02.2026 50:00
Kravténko þarf að berjast á hæl og hnakka til að hverfa ekki inn í Gúlag-eyjaklasa Stalíns eða hreinlega vera tekinn af lífi þegar hreinsanir í Sovétríkjunum standa sem hæst.

Kravténko og ógnarárið 1936 - 3 15.02.2026 49:59
Hreinsunaræði Stalín náði æ fastari tökum á sovésku samfélagi árið 1936. Viktor Kravténko segir frá örlögum ýmissa samstarfsmanna sinna og loks stendur hann sjálfur í eldlínunni.
Kravténko og ógnarárið 1936 - 2 08.02.2026 50:00
Ógnir hreinsana Stalíns og hans manna færast æ nær Kravténko sem reynir að halda velli sem yfirmaður verksmiðjunnar í Nicopol. Allt í kringum hann falla jafnvel eldheitir kommúnistar í valinn og svo gerist hið óumflýjanlega, röðin kemur að honum.

Kravténko og ógnarárið1936 - 1 01.02.2026 50:00
Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko kom síðast við sögu í Frjálsum höndum haustið 2024 en þá var hann orðinn forkólfur í iðnframleiðslu þeirri sem stjórn Stalíns hrinti af stokkunum á fjórða áratug síðustu aldar. Á ýmsu gekk í iðnvæðingunni en jafnframt færðist ofsóknaræði Stalíns í aukana. Og árið 1936 hófust nýjar "hreinsanir", grimmari en nokkru sinni fyrr.

Ódysseifskviða 7 - Násíka prinsessa fer að þvo þvott 25.01.2026 50:01
Enn er litið í Ódysseifskviðu og borið niður í sjöttu kviðu. Nú er Ódysseifur kominn í land Fæaka og hittir fyrir prinsessuna Násíku sem hefur farið að boði guðanna til að þvo þvotta í laug nálægt heimili foreldra sinna og ákveður að liðsinna hinum prúða Ódysseifi. Hún ráðleggur honum hvernig skuli ganga á fund kóngs og drottningar.

Höskuldur Jónsson, Bólu-Hjálmar og Eyvindur duggusmiður 18.01.2026 49:59
Hér lýkur að segja frá Höskuldi Jónssyni, sem Bólu-Hjálmar skrifaði um, en síðan er gluggað í frásögn Hjálmars af Eyvindi Jónssyni bónda og smið á 17. öld en hann var sérlega frægur fyrir bátasmíði sína og eru af því rómaðar sögur sem Hjálmar skráði mjög skemmtilega.

Höskuldur Jónsson og Bólu-Hjálmar 2 11.01.2026 49:59
Áfram er gluggað í magnaða frásögn skáldsins Bólu-Hjálmars um ævi Höskuldar Jónssonar bónda og sjómanns sem bjó á Siglufirði og í nágrannasveitum á fyrri hluta 19. aldar. Eftir miklar raunir sem fjölskylda hans lenti í vegna snjóflóða tekur almenn lífsbarátta við, en stundum þarf Höskuldur ekki síður að hafa áhyggjur af nágrönnum sínum en náttúruöflunum.
Hasonló podcastok
A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.