Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: fotbolti.net

Szerző

Fotbolti.net

Kategória

Sports

A podcast weboldala

fotbolti.net

Legutóbbi epizód

2026. nov. 25.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android 10 M+ letöltés · 4,7+ értékelés iOS hamarosan

Epizódok

Turnar Segja Sögur - Eric Cantona 11.06.2025

Eric Cantona er einn af fyrstu erlendu leikmönnunum sem setti svip sinn á enska boltann. Eric ólst upp í helli, brenndi allar brýr að baki sér í Frakklandi en er einn af mikilvægustu leikmönnunum sem spilaði fyrir Sir Alex hjá Man Utd. Cantona er raðsigurvegari, söngvari, leikari og alger snillingur. Allt við King Cantona er áhugavert ! Góða skemmtun

Grasrótin - 7. umferð, tölum aðeins um neðrideildirnar 10.06.2025

Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 7. umferð í 2. og 3. deild karla, 5. umferð í 4. deild og 4. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 3:25, 3. deild, 38:50, 4. deild, 1:13:40, 5.deild, 1:38:50Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

Tveggja Turna Tal - Aron Ýmir Pétursson 10.06.2025

Er þjálfun ofmetin? Er DNA-ið á skaganum betra en annarsstaðar? Hvernig nýta skagamenn allar þær lifandi goðsagnir sem alið hafa manninn í fótboltabæ Íslands og þótt víða væri leitað? Aron Ýmir er yfirþjálfari ÍA og við fórum yfir þetta allt og fleira til!

Leiðin úr Lengjunni - ÍR á toppinn og ekkert gengur upp í Árbænum 07.06.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Útvarpsþátturinn - Sigur á Hampden, Besta liðið og Gunnar Heiðar 07.06.2025

Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 7. júní. Í fyrri hluta þáttarins er 3-1 sigur Íslands gegn Skotlandi gerður upp og valið úrvalslið Bestu deildarinnar hingað til á skemmtilegan hátt. Í seinni hlutanum kemur Gunnar Heiðar Þorvaldsson í heimsókn en hann er að gera mjög áhugaverða hluti sem þjálfari Njarðvíkur.

Turnar Segja Sögur - Írland frá Jackie Charlton til Heimis Hallgríms 06.06.2025

Turnar segja sögur er nýr liður þar sem við Krissi setjumst niður og ræðum algjörlega tilgangslausar staðreyndir úr knattspyrnusögunni – sem eru samt óskiljanlega fastar í hausnum á okkur. Í þessum þætti förum við yfir sögu írska landsliðsins, allt frá tímum Jack Charlton til Heimis Hallgríms. Charlton masteraði „the granny rule“ og fékk blessun frá Jóni Páli Páfa í Vatíkaninu. Við kíkjum líka á s...

Uppbótartíminn - Þurfum að vinna leikina á EM 04.06.2025

Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni og fer í umspil þar. Næsta verkefni er EM í Sviss og þar þurfum við að fara að vinna einhverja leiki, en stelpurnar hafa núna farið í gegnum tíu leiki í röð án sigurs. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir síðasta landsliðsglugga og framhaldið með þeim Orra Rafni Sigurðarsyni og Gylfa Tryggvasyni. Icelandair, TM, Lýsi, Landsbankinn og Hertz styðja...

Leiðin úr Lengjunni - Leiknismenn rifu í gikkinn og afgerandi úrslit 03.06.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Innkastið - Umdeild atvik og Íslandsmeistararnir vakna 02.06.2025

Innkastið eftir 10. umferð, Valur Gunnarsson stýrir þættinum í fjarveru Elvars Geirs. Haraldur Örn fréttaritari Fótbolti.net og Atli Viðar Björnsson fyrrum leikmaður FH mættu með honum.

Neðri deildir lengst uppi! 02.06.2025
Tveggja Turna Tal - Þorkell Máni Pétursson 02.06.2025

Þorkell Máni hefur marga fjöruna sopið. Máni kom og við ræddum þjálfaraferilinn hans, stjórnarsetuna í KSI og það að vera fótboltapabbi. Mögulega ræddum við líka um Leeds og pappakassa! Góða skemmtun.

Freysi á heimavelli - Hvernig er líf íslenska þjálfarans í Bergen? 31.05.2025

Fréttamaður Fótbolta.net er kominn til Bergen í Noregi og fyrsta verk á dagskrá var að hitta Frey Alexandersson, þjálfara Brann, og ræða við hann um líf þjálfarans í Bergen - þessari fallegu borg. Það er óhætt að segja að Brann er flaggskip borgarinnar og hér halda allir og ömmur þeirra með félaginu. Í þessu langa spjalli fer Freyr yfir fyrstu mánuðina hjá Brann og lífið hér í borginni. Hann er ek...

Útvarpsþátturinn - Boltinn, Brann og bestu barirnir 31.05.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. maí. Elvar Geir, Valur Gunnars og Benedikt Bóas. Sævar Atli Magnússon, nýjasti leikmaður Brann, kom í upphafi þáttar og svo var farið yfir Lengjudeildina og Bestu deildina. Garðar Ingi frá FH kom, heyrt er í hressum hlustendum og bestu barirnir í Bestu deildinni valdir. Biggi hjá ÍTF ræðir um leiðinlega fólkið sem vill banna bjór á vellinum. Þá...

Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar 29.05.2025

Innkastið eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Haraldur Örn, fréttamaður Fótbolta.net og stuðningsmaður KA. ÍA, KA og ÍBV unnu öll í þessari umferð og náðu þannig að snúa deildinni á hvold. Sóknarleikurinn er áhyggjuefni Breiðabliks sem tapaði öðrum leiknum í röð. Víkingur vann leiðinlegan toppslag og Valsmenn nálgast.

Grasrótin - 4. umferð, Baldvin Borgars í mánaðarfrí 29.05.2025

Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 4. umferð í 2. og 3. deild karla, 3. umferð í 4. deild og 2. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2.deild, 2:50, 3.deild, 32:00, 4.deild, 1:06:45, 5.deild, 1:26:10Þátturinn er í boði Ásachat.is, vertu viss sem fyrst.

Hugarburðarbolti Uppgjörið í Enska ! 29.05.2025

Það komu frábærir gestir í uppgjörs þátt Hugarburðarbolta. Villi Neto og Davíð Guðbrands gerðu upp tímabilið með okkur og vinningshafar voru krýndir. Þökkum kærlega fyrir tímabilið og heyrumst á því næsta.

Sveindís fer yfir ákvörðunina óvæntu - Valdi borg englanna 28.05.2025

Landsliðskonan vinsæla Sveindís Jane Jónsdóttir gekk á dögunum í raðir Angel City í Bandaríkjunum. Þetta voru skipti sem komu nokkuð mikið á óvart. Hún hefur síðustu ár verið á mála hjá Wolfsburg í Þýskalandi en hefur nú nýjan kafla í borg englanna í Bandaríkjunum í sumar. Þetta er áhugaverð. Sveindís settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Þrándheimi í Noregi í dag og ræddi þar betur um þess...

Hugarburðarbolti GW 38 Sturlaður lokasprettur í enska! 27.05.2025

Newcastle, Aston Villa og Nottingham Forest töpuðu öll sínum leikjum í baráttunni um meistaradeildarsætin. Evrópudeildarmeistarar Tottenham steinlágu á heimavelli gegn Brighton 1-4 Man Utd kvöddu stuðningsmenn sína með sigri og á Anfield fór Englandsbikarinn á loft.

Leiðin úr Lengjunni - Hamingja á Húsavík og fúlir Fylkismenn 26.05.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Uppbótartíminn - Nýtt lið á toppnum og mikilvægir landsleikir 26.05.2025

Það voru vendingar í síðustu umferð Bestu deildar kvenna eins og rætt er um í nýjum þætti af Uppbótartímanum, sérstökum hlaðvarpsþætti um kvennaboltann. Þróttur Reykjavík er á toppnum eftir að FH tókst að leggja Breiðablik að velli í Kaplakrika. Rætt er um síðustu umferð sem er að baki og einnig um mikilvæga leiki sem eru framundan hjá kvennalandsliðinu gegn Noregi og Frakklandi. Guðmundur Aðalste...

Enski boltinn - Rándýr dómaramistök og bikar á loft á Anfield 26.05.2025

Liverpool er Englandsmeistari. Það er löngu vitað. En bikarinn fór á loft á Anfield í gær. Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar var annars mjög áhugaverð þar sem dómaramistök á Old Trafford höfðu mikið að segja í Meistaradeildarbaráttunni. Hrafn Kristjánsson, stuðningsmaður Liverpool, og Haraldur Örn Haraldsson, gerðu lokaumferðina og tímabilið upp ásamt Guðmundi Aðalsteini.

Tveggja Turna Tal - Óskar Smári Haraldsson 26.05.2025

Óskar Smári Haraldsson er bóndasonur úr Varmahlíð. Hann var tvisvar sinnum valinn í lið umferðarinnar í Lengjudeildinni fyrir rúmum áratug síðan og það var hápunktur ferilsins sem var sjálfmiðaður, að hans mati! Kristján Guðmundsson tók í burtur úr honum hrokann og kenndi honum auðmýkt, leikgreiningu og ýmislegt annað og undanfarin fjögur ár hefur Óskar Smári unnið þrekvirki með kvennalið Fram. Vi...

Innkastið - Blikar lúta í gras og Davíð Smári finnur lausnir 25.05.2025

Innkastið eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Óskar Smári, þjálfari kvennaliðs Fram. Víkingur tók toppsætið, Blikar töpuðu verðskuldað fyrir FH og Vestri kom til baka með stæl gegn Stjörnunni. Skagamenn eru á botninum en KA náði í mikilvægan sigur.

Útvarpsþátturinn - Vond vörn og uppgjör við enska hringborðið 24.05.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. maí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Íslenski boltinn í fyrri hálfleik þáttarins. Baldvin Borgarsson ræðir um 8. umferð Bestu deildarinnar, leikur KR og Fram er gerður upp og einnig rætt um Lengjudeildina. Enska hringborðið í seinni hálfleik þáttarins. Kristján Atli gerir upp tímabilið í ensku úrvalsdeildinni, skoðar liðin sem eru að koma upp og um ú...

Grasrótin - 3. umferð, neðri deildirnar í stuði 23.05.2025

Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 3. umferð í 2. og 3. deild karla, 2. umferð í 4. deild og 1. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2. deild, 2:10, 3. deild, 37:20, 4. deild, 1:10:00, 5.deild, 1:29:20

Hallgasd a(z) Fotbolti.net podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.