RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : www.ruv.is
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Afneitun og raunveruleikaflótti, Mancini og Vaughan, sjóræningjalög og 1. apríl 02.04.2024 56:45
Á Jazzklúbbnum Múlanum verða haldnir tvöfaldir heiðurstónleikar á morgun. Spilað verður til heiðurs Henry Mancini og Söru Vaughan sem bæði hefðu átt 100 ára afmæli á þessu ári. Á tónleikunum koma fram söngkonan Rebekka Blöndal og píanóleikarinn Karl Olgeirsson ásamt hljómsveit og kafa þau meðal annars ofan í plötuna “Sara Vaughan sings the Mancini Songbook.” Við ræðum við Rebekku og Karl í þætti d...

Svipmynd: Jón Kristinsson, arkitekt og uppfinningamaður 27.03.2024 49:01
Arkitektúr er ekki bara að teikna hús, segir Jón Kristinsson arkitekt, heldur svo margt annað. Arkitektúr er að vita hvar sólin kemur upp, hvernig þú athafnar þig við eldavélina, hvernig halda megi húsi hreinu og þurru, hvernig spara megi orku og skilja eitthvað eftir fyrir komandi kynslóðir. Því þú teiknar aldrei hús fyrir sjálfan þig, heldur alltaf fyrir komandi kynslóðir. Í verkum Jóns er formi...
Passía, hamfarir og Fragile Magic 26.03.2024 52:41
Á föstudaginn langa verður frumflutt í Breiðholtskirkju verkið Passía eftir Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur. Ingibjörg Ýr hefur verið útnefnd sem Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum og í fyrra var verk hennar Fasaskipti tilnefnt sem tónverk ársins. Ingibjörg hefur einnig verið meðlimur í kór Breiðholtskirkju í áratug og er það kveikjan að þessari nýju Passíu sem flutt verður á föstuda...
Hlutskipti, Bright Future, Hreinn Friðfinnsson og Auður Haralds 25.03.2024 54:07
Við lítum inn í Marshallhúsið í gallerí Þulu, þar sem systurnar Ingibjörg og Lilja Birgisdætur sýna ný verk á sýningunni Hlutskipti. Litaðar ljósmyndir, skúlptúrar, vidjóverk og síðast en alls ekki síst ilmur byggður á Ajaxlykt er meðal þess sem þær systur hafa skapað upp úr umbreytingaferli sem hófst með myglufundi og búslóðaflutningum. Með verkunum umbreyta listakonurnar farganinu sem fylgir end...
Sorgmæddar hurðir, Póst-Jón, Lexíurnar 21.03.2024 51:52
Sýningin Making Sense í Ásmundarsal er samsýning sex listamanna sem vinna útfrá hugmyndum Vísindalista; En það er sú hugmyndafræði sem skoðar sameiginlega þætti listsköpunar og vísindarannsókna. Á sýningunni óma orgelflautur og fótboltaspark er rakið milli fjarða. Þar er dagbók úr stríði en líka lykt af hurðum sem ískra sorglega. Sunna Svavarsdóttir hélt úti rannsókn á þessum sorglega ískrandi hur...
Hreinn Friðfinnsson 20.03.2024 53:20
Víðsjá dagsins er helguð Hreini Friðfinnssyni. Hreinn fæddist á Bæ í Dölum í febrúar 1943. Hann útskrifaðist frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1960 og fluttist stuttu síðar til Amsterdam. Hann var einn af stofnendum SÚM hópsins og hefur oft verið kallaður einn af frumkvöðlum hugmyndalistar hér á landi. Hreinn vann með i8 gallerí hér á landi og fleiri galleríum víðsvegar um Evrópu, en hann sýn...
Saga af svartri geit, hljómfræði og Jón Kristinsson 19.03.2024 55:15
Af hverju eru öll blúslög eins? Þessi spurning var yfirskrift Tónlistarkaffis sem haldið var í Borgarbókasafninu í spönginni um síðustu helgi. Á viðburðinum skoðaði Valgeir Gestsson, sérfræðingur í tónlistardeild safnsins, hljómfræðina sem mætti segja dvelji í undirmeðvitund okkar; hljómfræðina sem við finnum fyrir en kunnum kannski eða kannski ekki skil á. Við ræðum hljómfræðina við Valgeir í þæt...
ATM, Pólskar rætur og daglegt líf á Íslandi og X 18.03.2024 54:30
Sýningin Pólskar rætur og daglegt líf á Íslandi, var opnuð um liðna helgi í Þjóðminjasafninu. Þar gefur að líta brot af því efni sem þegar hefur borist Þjóðháttasafni Þjóðminjasafnsins sem nú vinnur í því að safna frásögnum Pólverja af Íslandi. Við lítum inn á Þjóðminjasafnið og ræðum við þær Ágústu Kristófersdóttur og Önnu Wojtynska um rannsóknina og sýninguna í þætti dagsins. Eva Halldóra Guðmun...
Svipmynd af rithöfundi / Margrét Tryggvadóttir 13.03.2024 51:00
Margrét Tryggvadóttir fæddist í Kópavogi 1972. Hana langaði til að læra myndlist en fór í Verslunarskólann til að vera skynsöm og svo í bókmenntafræði við Háskóla Íslands því hana langaði til að vinna sem ritstjóri. Hún hefur unnið með texta og myndir nær allar götur síðan, sem ritstjóri, myndritstjóri og höfundur. Margrét hefur gefið út fjölda bóka fyrir börn og ungmenni og hlotið ýmsar viðurkenn...
Strokkvartettinn Siggi, ... og hvað með það og En agosto nos vemos 12.03.2024 51:09
Í þætti dagsins ræðum við við tvo af fjórum meðlimum Strokkvartettsins Sigga, en plata þeirra Atli Heimir Sveinsson: The Complete String Quartets - Siggi String Quartet, er tilnefnd sem plata ársins og þau eru einnig tilnefnd sem flytjendur ársins. Strengjakvartettar Atla Heimis spanna stóran hluta ferils hans sem tónskálds og gefa, líkt og segir í texta sem fylgir með plötunni, ómetanlega yfirsýn...
Rúnir, Barbie, túlkun og upplifun 11.03.2024 54:58
Hugvísindaþing var haldið í Háskóla Íslands nú um helgina en þar var kvikmyndin um Barbie þar meðal annars til umræðu út frá fræðilegu sjónarhorni feminískra útópía. Við ræðum við Katrínu Pálmadóttur Þorgerðardóttur, heimspekinema, um Barbie og útópíur í þætti dagsins. Pistlahöfundurinn Freyja Þórsdóttir fjallar um það hvernig túlkun hefur áhrif á upplifun. Hvernig það sem við trúum hefur umbreyta...

Lífið er staður þar sem bannað er að lifa og Fjöruverðlaunin 07.03.2024 52:44
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum það eru Flokkur fagurbókmennta, flokkur barna og unglinabókmennta og flokkur fræðibóka og rita almenns eðlis. Verðlaunahafar að þessu sinni voru: Í flokki barna- og unglingabókmennta: Íslensk myndlist og fólkið sem ruddi brautina eftir Margréti Tryggvadóttur. Í flokki fr...
Svipmynd af ritöfundi / Dagur Hjartarson 06.03.2024 54:26
Dagur Hjartarson rithöfundur er gestur Víðsjár í Svipmynd vikunnar. Dagur hóf ritferil sinn á birtingu ljóða í Lesbók Morgunblaðsins og örfáum árum síðar hlaut hann Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir sína fyrstu ljóðabók, Þar sem vindarnir hvílast. Síðan þá hefur Dagur gefið út smásagnasafn, skáldsögur og fleiri ljóðabækur. Hann hefur hlotið Ljóðstaf Jóns úr Vör og verið tilnefndur til...

Tinna Royal, Orðið og Refaat Alareer 05.03.2024 54:22
Í þættinum hittir Víðsjá mynslistakonuna Tinnu Royal á vinnustofu sinni á Akranesi. Undanfarin ár hefur Tinna vakið nokkra athygli fyrir afar fjölbreytt verk. Allt frá málverkum til höggmynda af kleinuhringjum og nammiumbúðum til lágmynda af ryðguðum húsum til eyrnalokka og jólaskrauts. Sýningin Orðið var opnuð um liðna helgi í Neskirkju en þar sýnir Jóna Hlíf Halldórsdóttir úrval verka sem hún he...

Afbygging stóriðju í Helguvík, Frost, andrúmsloft 04.03.2024 52:54
Libia Castro & Ólafur Ólafsson hafa unnið saman að myndlist frá því að þau kynntust í Holland 1997. Þau starfa jöfnum höndum í Berlín, Malaga og Reykjavík en verk þeirra byggja oftar en ekki á þverfaglegum samvinnuverkefnum sem taka á sig mynd í ólíkum miðlum. Ólafur og Libia hafa sýnt víða um heim og hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín. Þau fóru fyrir hönd Íslands á Feneyjartvíæringinn 201...

Hreinn Friðfinnsson, María Elísabet Bragadóttir, Íslensku myndlistarverðlaunin,Eitruð lítil pillla 29.02.2024 51:19
Við hittum Styrmi Örn Guðmundsson myndlistarmann við verkið Klett eftir Hrein Friðfinnsson í þætti dagsins. Verkið var fyrst sett upp í Berlín 2017 en er nú til sýnis í Ásmundarsal. Hreinn fæddist á Bæ í Dölum 1943 og útskrifaðist frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1960. Hann var einn af stofnendum SÚM hópsins og er oft kallaður einn af frumkvöðlum hugmyndalistar hér á landi. Hann fluttist til...

Hark og svipmynd af kollektífu / Yrkjur 28.02.2024 52:51
Í þætti dagsins heyrum við af upplifun Trausta Ólafssonar af gamanrokksöngleiknum Hark sem frumsýndur var í síðustu viku í Tjarnabíói. Síðan tekur svipmynd af Skáldakollektífunni Yrkjum við. Yrkjur er skáldakollektífa ungra kvenna sem stofnuð var í byrjun árs 2022. Markmið þeirra er að skapa samfélag þar sem ungir höfundar geta komið saman, lært hver af öðrum og komið sér á framfæri, hvort sem er...
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics