RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : www.ruv.is
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Happy Pinoy, sending frá Feneyjum og Mahler 06.06.2024 55:34
Happy Pinoy er listhópur Filippseyinga á Íslandi, og þau ætla að taka Klúbb listahátíðar yfir í Iðnó á laugardag. Hópurinn lýsir sér sem asísku klisjunni því saman hlæja þau, elda og syngja. Á viðburðinum ætla þau að bjóða upp á filippíska menningu, meðal annars Sinulog-dansa, hlaðborð matar á bananalaufum, harana-serenöður, ljóðlist – og karókí. Við kíkjum í heimsókn til Marví Gil en íbúð hennar...
Svipmynd: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir 05.06.2024 49:37
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er myndasöguhöfundur, barnabókahöfundur, tónlistarkona og myndlistarkona. Lóa Hlín elskar að reyna að skilja fólk og í myndasögum hennar birtist hárbeitt samfélagsrýni þar sem hún greinir tíðarandann á einstakan hátt. Hún er einn af stofnendum hljómsveitarinnar FM Belfast og hefur gefið út nokkrar barnabækur, bæði sem myndhöfundur og rithöfundur og var bók hennar Grísafjörð...
Typisch gluggaveður, Surtsey á mannöld 04.06.2024 53:43
Davíð Örn Halldórsson hefur fyrir löngu skapað sér sess í íslensku myndlistarlífi. Hann útskrifaðist úr Listaháskólanum árið 2002 og hefur síðan haldið fjölda einkasýning hér og erlendis. Verk Davíðs eru jafnan litrík abstrakt málverk, þar sem birtast vísanir í óvæntar áttir, jafnt teiknimyndir, graffíti eða vestræna listasögu. Hann notar jöfnum höndum sprey, málningu, liti og lökk, og festir huga...
Gildi, Á milli mála, lýðræðisvæðing listanna 03.06.2024 53:03
Við hefjum þáttinn á því að fara niður að Tjörn, þar sem þær Agnes Ársæls og Anna Andrea Winther sýna keramikskúlptúra í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Verkið, sem þær kalla Milli mála er hluti af stærra rannsóknarverkefni þar sem þær rannsaka samband manns við umhverfi sitt og stigveldið sem birtist í fagurfræði og framkomu okkar við dýr. Listamennirnir segjast pínu hræddir um afdrif verkan...
Vigdís Finnbogadóttir í Loftskeytastöðinni, nornir í dönskum bókmenntum 30.05.2024 53:27
Hvað varð til þess að Vigdís Finnbogadóttir varð fyrsta konan í heiminum til að verða kjörin þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosningum? Þessari spurningu leitast sýningin Ljáðu mér vængi í Loftskeytastöðinni við að svara, auk þess að varpa ljósi á ævi og störf Vigdísar. Við sækjum sýninguna heim og ræðum við Maríu Theódóru Ólafsdóttur forstöðumann Loftskeitastöðvarinnar. Auk þess verður rætt við Snæd...
Svipmynd af klarínettuleikara / Arngunnur Árnadóttir 29.05.2024 55:22
Arngunnur Árnadóttir er tónlistarkona og rithöfundur. Hún byrjaði snemma að læra á hljóðfæri. Eftir að hafa lokið forskóla Tónmenntaskólans í Reykjavík langaði hana að hefja nám á saxófón en vegna fingralengdar var henni frekar ráðlagt að leggja fyrir sig klarínett. Á unglingsárum sínum kom henni til hugar að hætta hljóðfæranámi en á þeim tíma spilaði hún í fyrsta skipti með sinfóníuhljómsveit og...

Púls, félagslegt húsnæði og nýr leikhússkóli 28.05.2024 51:23
Um liðna helgi opnuðu tvær sýningar í Listval við Hverfisgötu, á bak við þær eru listamennirnir Helga Páley Friðþjófsdóttir og Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttur. Sýning Hólmfríðar Sunnu kallast Púls og sýnir málverk þar sem efnið sjálft ræður för á ferð um hringrás náttúrunnar; himinn, jörð, plöntur, hold og kynjaverur og allskyns óvænt form birtast þar í mjúkum tónum og lífrænum formum. Hólmfríður...
Aldan í Þorlákshöfn, Í myrkrinu fór ég til Maríu, Anatólískt rokk, ólesnar bækur 27.05.2024 53:33
„Íslendingar eru ekki alveg búnir að fatta hversu mikil auðlind aldan er, og hversu mikið aðdráttarafl býr í Þorlákshöfn.“ Þetta segir Elín Signý Ragnarsdóttir, dansari og einn af stórnarmeðlimum í Brimbrettafélagi Íslands, en nú stendur til að setja landfyllingu í höfnina og þar með eyðileggja öldu sem er sú besta á landinu og þó víðar væri leitað. Gegn þessum framkvæmdum berst Brimbrettafélag Ís...
Viibra, ekkert og Grafreiturinn í Barnes 23.05.2024 51:46
Í þættinum heyrum við af nýrri plötu og útgáfutónleikum flautuseptettsins Viibru, en stallsysturnar sjö sem sveitina skipa ferðuðust víða um heim með Björk Guðmundsdóttur á síðustu árum, blésu í fjölbreyttar flautur sínar og runnu í raun nánast saman við tónlistina. Við hittum í þættinum Berglindi Maríu Tómasdóttur, flautuleikara og Margréti Bjarnadóttur, danshöfund, og ræðum tónleika í Hörpu á su...

Vinna 22.05.2024 54:38
Víðsjá dagsins verður tileinkuð vinnu í víðum skilningi. Vinna er nefnilega ekki bara störfin sem við gegnum heldur getur hún verið nánast hvað sem við tökum okkur fyrir hendur, ennfremur er hún efnahagsleg og þekkingarfræðileg undirstaða mannlegra samfélaga. Í þættinum veltum við meðal annars fyrir okkur tengslum vinnu og sjálfsmyndar, kulnun, borgaralaunum og andvinnuhreyfingunni.

IceCon, Cancion Ranchera og Feneyjatvíæringurinn 21.05.2024 52:13
Við fáum sendingu frá Feneyjum í þættinum. Starfsnemar í listfræði, myndlist og sýningastjórnun við Listaháskóla Íslands og Háskóla Íslands munu á næstu vikum flytja stutt erindi um sýningar Feneyjartvíæringsins. Í pistli dagsins tekur Auður Mist, oftast kölluð Auja Mist, myndlistakona frá Reykjavík, til máls og segir meðal annars frá því hvernig jaðarsettir hópar í myndlist hafa nýtt dulspeki sem...

Vaxtaverkir, Orðabók hinna týndu orða, sjósund í Gufunesi 16.05.2024 51:58
Á sýningunni Vaxtaverkir í Árbæjarsafni setur hönnunarhópurinn ÞYKJÓ fram skólasögu Reykjavíkur á frumlegan hátt. Þróun námsgreina og kennsluaðferða er miðlað á óvæntan hátt með dýrmætum safngripum, ljósmyndum og frásögnum frá fyrri tíð. Við hittum Sigríði Sunnu Reynisdóttur, listrænan stjórnanda Þykjó, í Árbæjarsafni í þætti dagsins og ræðum um sýninguna. Við bryggjuna í Gufunesi hafa vaskir nema...

Svipmynd: Rúnar Rúnarsson leikstjóri 15.05.2024 53:24
Það má segja að stuttmyndin Síðasti bærinn hafi sett ákveðin tón í höfundaverk Rúnars Rúnarssonar leikstjóra sem hefur ómað síðan. Kvikmyndir Rúnars eru oftar en ekki teknar á filmu, þær eru ljóðrænar þroskasögur um fólk á tímamótum, þar sem umhverfið leikur stórt hlutverk. Þetta eru stórar sögur sem fjalla um það smáa í tilverunni. Hann komst inn í Danska kvikmyndaháskólann með Síðasta bænum og h...

Margpóla, Fearless Movement, Freyja Þórsdóttir 14.05.2024 52:43
Á sýningunni Margpóla í Listasafni Íslands beinir Anna Rún Tryggvadóttir sjónum okkar að ósýnilegum kröftum sem hafa margvísleg áhrif á allt okkar líf. Þessir kraftar leynast í segulsviði jarðar og birtast okkur með ólíkum hætti á sýningunni í pastellituðum vatnslitaverkum og eldrauðum skúlptúr. Í ljóðrænni nálgun sinni á viðfangsefnið bendir Anna Rún meðal annars á mannhverfa sýn okkar á náttúrun...

Gestabók, Hundrað þúsund, Rætur að rekja í Nýlistasafni 13.05.2024 55:22
Gestabók nefnist safn smásagna sem hverfast allar um sömu veisluna og gestina sem þangað koma þó flestir virðist koma í veislu af skyldurækni en löngun. Að baki bókinni eru 10 ritlistarnemar og 3 ritstjórnarnemar við Háskóla Íslands. Við ræðum við Karólínu Rós, Birgittu Björgu og Vigni Rafn í þætti dagsins Í Nýlistasafninu opnaði um liðna helgi útskriftarsýning meistaranema í myndlist við Listahás...

Svipmynd af tónlistarmanni / Steingrímur Karl Teague 08.05.2024 52:04
Steingrímur Karl Teague er söngvari, djazzpíanisti, lagahöfundur og bókmenntafræðingur, sem ólst upp á Seltjarnarnesi með viðkomu í Bandaríkjunum. Hann er hvað þekktastur fyrir að vera einn af meðlimum hljómsveitarinnar Moses Hightower, sem setti alveg nýjan tón í íslenska tónlistarflóru árið 2010 með plötunni Búum til börn. Sálarskotinn fönk hljóðheimurinn í bland við hrífandi íslenska texta hefu...

Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics