fr

Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : www.thjodmal.is

Auteur

Þjóðmál

Catégorie

Society

Site du podcast

www.thjodmal.is

Dernier épisode

16 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

#167 – Aukaþáttur – Bjarni segir óvænt af sér 11.10.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða í sérstökum aukaþætti um aðdraganda og ástæður fyrir óvæntri afsögn Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Rætt er um álit umboðsmanns Alþingis og þá þau atriði sem þar koma fram, hvaða pólitísku afleiðingar afsögn Bjarna hefur, hvort að andstæðingar Bjarna hafi borið sigur úr býtum og margt annað sem þessu tengist.

#166 – Biðleikur Seðlabankans – Ráðherragrín eða ráðherrapirringur – Hrikalegir atburðir í Ísrael 09.10.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um það hvort að ákvörðun Seðlabankans um að hækka ekki vexti í síðustu viku hafi átt að koma á óvart eða hvort um biðleik sé að ræða, um skrýtin viðbrögð við ráðherragríni og enn eitt höggið í innri samskipti ríkisstjórnarinnar, um sviptingar á fjármálamarkaði, um þá hræðilegu atburði sem áttu sér stað í Ísrael um helgina og furðuleg viðbrögð þeirra s...

#165 – Haustfundur með Þórði Pálssyni – 15 ár frá hruni – ESG staðlar sem enginn bað um 06.10.2023

Þórður Pálsson mætir í Þjóðmálastofuna og fjallar um aðdraganda og eftirmála fjármálahrunsins haustið 2008, þar sem nú eru liðin 15 ár frá þeim tíma. Við fjöllum um það hvort að staða Íslands hafi verið öðruvísi en annarra ríkja, hvort það sé eðli fjármálamarkaða að taka dýfur eða jafnvel hrynja með reglulegu millibili, hvort og þá hvernig hagkerfið hefur breyst síðan þá og margt fleira. Við tökum...

#164 – Er fasteignamarkaðurinn kominn út í stýrivaxtahorn? – Upptaka af fundi með FVH 05.10.2023

Félag viðskipta- og hagfræðinga, í samstarfi við Þjóðmál, stóð fyrir hádegisfundi þann 4. október sem ber yfirskriftina Er fasteignamarkaðurinn kominn út í stýrivaxtahorn . Á fundingum var rætt um nýja stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands, sem var birt fyrr um morguninn, og hvaða áhrif stefna Seðlabankans hefur á fasteignamarkaðinn og efnahaginn. Gestir fundarins voru þau Rannveig Sigurðardóttir,...

#163 – Páll Gunnar rennur á bananahýðinu – Fundargerðin sem hvarf – Erfiður hlutabréfamarkaður 27.09.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson koma saman á ný. Í þættinum er rætt um smjörklípu verkalýðsforystunnar sem vill allt í einu skipta um gjaldmiðil, stöðuna á eldrauðum hlutabréfamarkaði, stjórnmálamenn sem boða umfangsmiklar aðgerðir við vandamálum sem ekki eru orðin, yfirlætisfulla lækna sem vilja banna alla hluti, vandræðagang Samkeppniseftirlitsins, gula spjaldið sem við gefum Willum Þó...

#162 – Winter is coming in the pólitík – Brim sigrar SKE – Reykjavík rekin á yfirdrætti og smálánum 21.09.2023

Andrés Jónsson og Friðjón Friðjónsson fara yfir sviðið á vettvangi stjórnmála nú þegar þingið er byrjað á ný, hvaða mál verða hitamál í pólitíkinni í vetur, hvaða mál eru ekki rædd, hvaða verkefni hefur ekki tekist að leysa og fleira í þeim dúr. Þá er rætt um stjórnsýsluklúður Samkeppniseftirlitsins og matvælaráðuneytisins, við förum yfir spurningar úr sal, tekin er umræða um yfirvofandi greiðsluþ...

#161 – Leitað til lögfræðings – Ruglingurinn um fullveldi og sjálfstæði – Dómarar í skjallbandalagi 18.09.2023

Bjarni Már Magnússon, prófessor og nýr forseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst og hafréttarsérfræðingur, ræðir um hafrétt og það hlutverk sem fagið gegnir í öryggis- og varnarmálum, um muninn á fullveldi og sjálfstæði þjóða, átök um umráðasvæði og nýtingu á Norðurslóðum, það hvort að alþjóðastofnanir séu að taka völd af þjóðríkjum og önnur flókin mál sem krefjast úrlausna. Þá er einnig fjallað...

#160 – Rauður markaður en hagsveifluleiðréttur frumjöfnuður er hugtak dagsins 13.09.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson rýna fjárlög næsta árs og hvaða, eða öllu heldur hvort þau feli í sér einhver pólitísk skilaboð. Þá er rætt um horfur á vinnumarkaði, hvort að það séu einhverjar líkur á því að vextir fari lækkandi og margt fleira.

#159 – Helgarvaktin með Hildi Sverrisdóttur 08.09.2023

Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um það helsta á vettvangi stjórnmálanna, ríkisstjórnarsamstarfið, hvort að pólitískt erindi Sjálfstæðisflokksins felist eingöngu í því að bæta eða breyta vondum málum í þinginu, hvernig pólitísk umræða endar oft út í skurði, hvort það sé rangt fyrir stjórnmálamenn að sækjast eftir völdum, hvaða flokk hún vildi síst vilja hafa á þingi og m...

#158 – Í gullleit á Grænlandi – Hetjusögur úr atvinnulífinu 05.09.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ferðast með hlaðvarpi Þjóðmála til að skoða öfluga starfsemi Amaroq Minerals og þau áhrif sem hún hefur haft á atvinnuuppbyggingu á Suður-Grænlandi. Fjallað er um hetjusögur úr atvinnulífinu, breyting á þinginu, hvalveiðar og kvikmyndageirann, sektarsjóð Samkeppniseftirlitsins, innherjaupplýsingar á gjaldeyrismarkaði og margt annað.

#157 – „Maður er ekki ráðherra til að fá útrás fyrir sína villtustu drauma“ – Þriðja vaktin staðin að svörtum bakstri 31.08.2023

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson eru menn sem taka þriðju vaktina alvarlega. Þeir mæta í Þjóðmálastofuna og taka umræðu um vottaðar hvalveiðar, leikþáttinn í kringum skýrslu matvælaráðherra um sjávarútveginn, hvort það sé vandamál að bankar séu reknir með hagnaði, horfurnar á gasmarkaði í Evrópu í vetur, svartan bakstur og margt margt fleira.

#156 – Ríkisstjórn í gjörgæslu – Björn Ingi rýnir í stöðuna í pólitíkinni 28.08.2023

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, ræðir um stjórnarsamstarfið og samskipti ríkisstjórnarflokkanna, það hvort að flokksráðsfundir Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna hafi kveikt einhverja neista í ástlausu hjónabandi flokkanna, um helstu áskoranirnar framundan, flókin mál sem stjórnmálamenn forðast að ræða og margt fleira.

#155 – Vaxtahækkunarhaukar sigra dúfurnar – Forstjóraskipti í Kviku – Fráleit vinnubrögð SKE 23.08.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stýrivaxtahækkun Seðlabankans og það hvort að bankinn sé að missa salinn eða standi fastur fyrir á sínu, um stöðuna á vinnumarkaði og undarleg ummæli verkalýðsforystunnar, um forstjóraskiptin í Kviku banka, hlutverk Stoða í fjárfestingum hér á landi, undarlegan samning Samkeppniseftirlitsins við matvælaráðuneytið og margt fleira. Þá svörum við nokk...

#154 – Maraþonþáttur Þjóðmála 18.08.2023

Við skellum í fjögurra klukkustunda þátt fyrir þá sem hlaupa maraþon – og alla hina sem vilja alvöru umræðu um þjóðfélagsmál. Fjölmargir gestir líta við og bjóða hér upp á úrvalsefni sem enginn má láta framhjá sér fara.

#153 – Stjórnkerfið í sumarfríi – Orkuskipti með orku sem má ekki framleiða 15.08.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hugmyndir framsóknarmanna um bankaskatt, losunarheimildir í skipaflutningum og viðhorf stjórnvalda til atvinnulífsins í því samhengi, um undarleg ummæli orkumálastjóra, kyrrstöðu í frekari orkuöflun og verðmætasköpun í landinu og það hvort að stjórnkerfið sé fullt af fólki sem vill ekki sjá frekari orkuöflun. Í þættinum er einnig rætt um bréf forst...

#152 – Stríð og friður – Brothætt staða Samfylkingarinnar – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna 07.08.2023

Björn Bjarnason ræðir um stöðuna í stjórnmálunum, bæði hér á landi og erlendis. Rætt er um kvikmyndina um Oppenheimer og það hvaða áhrif framleiðsla á kjarnorkuvopnum hefur haft á valdajafnvægi í heiminum, stöðuna í Úkraínu og hvað kann að vera framundan á þeim vígstöðvum, um það hvort við séum að meta alþjóðastjórnmál í baksýnisspeglinum eða hvort við getum metið framtíðina af atburðum nútímans o...

#151 – Brekkusöngurinn með Herði og Stefáni Einari – Gjaldeyrir flýgur um á þyrlum 02.08.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara léttir inn í verslunarmannahelgina. Í nýjum þætti er rætt um stöðu ferðaþjónustunnar og hvernig ferðamenn við viljum helst fá til landsins, um hagnað bankanna og traust almennings til bankakerfisins, um nýja stjórn Íslandsbanka og það hvernig kjör hennar fór fram, um þingmann Pírata sem vill efla lögregluna og margt fleira.

#150 – Verðbólga eða gróðabólga? – Eru margir á Þór Saari vagninum? – Ekki láta hávaðann ráð för 30.07.2023

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson fara yfir málefni líðandi stundar á helgarvakt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt er um tiltrú á aðgerðir Seðlabankans og stjórnvalda í baráttu við verðbólgu og hvort að það sé rétt að tala um verðbólgu sem gróðabólgu, hvort það sé góð hugmynd að stofna þjóðarsjóð, það hvernig stjórnvöld nota Samkeppniseftirlitið eins og svissneskan vasahníf, um hluthafafund í Íslandsbanka,...

#149 – Heimsókn í Friðheima – Skál fyrir Guðmundi í Brim – Fasteignastefna Framsóknar 24.07.2023

Hlaðvarp Þjóðmála kíkir í heimsókn á Friðheima og þáttur dagsins er tekinn upp í nýrri vínstofu þar á bæ. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um mikilvæga atvinnuuppbyggingu í tómataframleiðslu og ferðaþjónustu og hvaða þýðingu það hefur þegar fólk tekur áhættu og leggur sig fram við að ná árangri. Þá er rætt um minnkandi verðbólgu og hvort ástæða sé fyrir bjartsýni í þeim málum, um vei...

#148 – Pólitíkin þarf ekki að vera sammála um allt – Bjarni Benediktsson í ítarlegu viðtali 20.07.2023

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, kemur víða við í ítarlegum þætti. Rætt er um samstarfið í ríkisstjórninni og það hvort að samstarfið hangi á bláþræði, þann pólitíska vilja sem skortir til að taka á málefnum hælisleitenda, helstu áskoranirnar sem eru framundan á vettvangi stjórnmálann, hvort að til greina komi að selja fleiri ríkisfyrirtæki, hvort að við séum...

#147 – Sumargleði Þjóðmála heldur áfram – Katrín dyggasti stuðningsmaður Nato – Hrópræði hrekur skynsemina á brott 17.07.2023

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um þau mál sem hæst bera í góða veðrinu, hvernig þjóðfélagsumræðan fær að þróast og hverjir móta hana, hvort að hrópræði nái yfirtökum á umræðu á vettvangi stjórnmála, flókna stöðu forsætisráðherra sem segist vera á móti Atlantshafsbandalaginu en missir helst ekki af fundi þar, einkennilega áráttu opinberra starfsmanna til að banna allt mögulegt, og...

#146 – Ríkið hér og ríkið þar, ríkið alls staðar 13.07.2023

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, ræða um viðskiptafrelsi, samkeppnishæfni, samkeppni einkaaðila við ríkið, hvernig ríkið setur reglur sem reynast þröskuldar fyrir atvinnulífið, hvort einhver hafi beðið um ríkisrekstur í bögglasendingum og margt annað sem tengist útþenslu hins opinbera og það hvernig einkageiri...

#145 – Kerecis færir milljarða inn í landið - Þingmaðurinn sem enginn vissi að væri á þingi – Ríkisendurskoðandi lítill í sér 07.07.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fjalla um söluna á Kerecis, hversu ánægjulegt það er að auðmönnum skuli fjölga hér á landi, það mikilvæga hlutverk sem félagið gegnir og hvaða áhrif salan kanna að hafa í för með sér. Þá er fjallað um undarleg ummæli framsóknarþingmanns í umræðuþætti ríkisradíósins, ríkisendurskoðanda sem er lítill í sér og vantar athygli, fasteignafélögin sem allt í einu...

#144 – Jörðin skelfur og ríkisstjórnin titrar – Hvort rofnar fyrst? 05.07.2023

Andrés Magnússon og Karítas Ríkharðsdóttir ræða um stöðuna í ástlausu hjónabandi ríkisstjórnarinnar, erjurnar sem hafa komið upp á stjórnarheimilinu og hvaða afleiðingar þær kunna að hafa, grein Óla Björns Kárasonar þar sem hann næstum því kallar eftir stjórnarslitum, hvernig næstu vikur og mánuðir kunna að vera og annað skemmtilegt úr stjórnmálum dagsins.

#143 – Allir gluggar opnir en enginn heima – Stríðfréttaritarar Þjóðmála fara yfir stöðuna 30.06.2023

Kristján Johannessen og Stefán Gunnar Sveinsson frá Morgunblaðinu þekkja manna best stöðuna á austur-vígstöðum. Þeir fara yfir undarlega atburðarrás síðustu helgi þegar það leit út fyrir uppreisn í rússneska hernum, hvernig staðan er núna og hvað kann að vera framundan. Hlaðvarp Þjóðmála nærir og fræðir þjóðina.

Écoute le podcast Þjóðmál sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics