Ormstungur

Ormstungur

Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.

Auteur

Ormstungur

Catégorie

Arts

Site du podcast

www.ormstungur.is

Dernier épisode

12 juin 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android 5 M+ de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

1. Gunnlaugs saga Ormstungu - Lagt á borð 31.03.2026

Ormstungur eru alltaf að breyta og bæta. Hér er ein gömul og góð. Enduhljóðblönduð. Gunnlaugs saga sagan hefur allt! Af nógu er að taka; ást, draumar, hetjuskapur, öfund og hefnd. Um þessar mundir er líka söngleikurinn Ormstunga á fjölum Þjóðleikhússins. Um að gera að rifja þessa snilld upp.

x Benedikt Erlingsson 24.03.2026

Einn gamall og góður í betri hljómgæðum! Benedikt Erlingsson þarf varla að kynna fyrir landsmönnum. Leikari, leikstjóri, leikskáld, sjómaður og sjóbissnessmaður. Þekktastur er hann þó fyrir hlutverk sitt sem Þjóðólfur í Fóstbræðrum. Hann hefur sett á Íslendingasögurnar á svið og miðlað þeim til samtímafólks. Fyrst var það Ormstunga og svo Mr. Skallagrímsson. Við fórum yfir víðan völl, frá manni að...

x Söngleikurinn Ormstunga (Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson 06.02.2026

Við fengum höfunda söngleiksins Ormstunga, þá Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson í spjall til okkar. Söngleikurinn er sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins um þessar mundir og er meistaraverk. Þá er vægt til orða tekið. Við ræddum að leika sér með formið sem Íslendingasögurnar eru, söngleikinn sjálfan og svo margt, margt fleira. Nálgast má miða á Ormstungu hér: https://leikhusid.is/syningar/o...

4. Reykdæla saga & Víga Skútu 07.10.2025

Víga-Skúta mætir á klakann og hefur bara eitt í huga. Að hefna pabba gamla og nú duga engin vettlingatök, hvorki hjá honum né tungunum. Þessi hluti sögunnar hefur allt: dulargervi, leynibirgi, tilræði á tilræði ofan og mann bundinn nakinn við staur í hólma út á miðju Mývatni. Lifir hann það af? Jah, bölvaðu ekki blessaðri flugunni sagði afi en vargurinn gefur … og vargurinn tekur. Hlustið og hlýði...

3. Reykdæla saga & Víga Skútu - 07.10.2025

Vémundur Fjörleifsson! Hvað er hægt að segja? Geitin í slæmum hugmyndum, skeytingarleysi og forréttindahyggju? Jókerinn? Eða bara ljótur hálfviti? Allavega er maðurinn harðákveðinn í að gera sem mest vesen á þeim blaðsíðum sem hann lifir í sögunni. Og honum er ekkert heilagt hvort sem það eru hvalföng, þingbúðir, nautgripir eða tilvonandi brúðir. Áskell hefur ekki undan að sópa upp eftir hann og t...

2. Reykdæla saga & Víga Skútu - Áskell í yfirvinnu 07.10.2025

Áskell goði Eyvindarson. Hann hefur líklega séð fyrir sér rólegt líf í allsnægtunum í Reykjadal. Bara eitthvað að rölta meðfram ánni með strá í munni, en ónei. Hann er í yfirvinnu við að skrifa sáttargerðir fyrir systursyni sína og nágranna. Og hann er bara rétt að byrja. Tungurnar sigla nokkuð örugglega af stað en Hjalti lendir þó í vandræðum þegar hann man ekki orðið móðurbróðir. En þetta hefst....

1. Reykdæla saga & Víga Skútu - Lagt á borð 07.10.2025

Loksins loksins segja einhverjir! Þessir einhverjir eru ættaðir úr dölunum norðan við Mývatnssveit og nágrenni. Tungurnar ráðast nefnilega í Reykdælasögu og Víga-Skútu og hitta fyrir nokkra vel gíraða höfðinga. Því eins og allir vita eru Norðlendingar montnastir Íslendinga, Þingeyingar montnastir Norðlendinga, Mývetningar montnastir Norðlendinga og Suðursveitungar montntastir Mývetningar. Það er þ...

5. Finnboga saga ramma - Hinn rammi 29.08.2025

Klárum þessa sögu. Sá rammi stendur undir nafni. Það er enn sótt að honum úr öllum áttum. Hann á fleiri óvini en það eru mýflugur eru á Mývatni. En er allt gott sem endar vel? Viltu hjálpa okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Farðu á Patreon og kláraðu málið: www.patreon.com/ormstungur  

4. Finnboga saga ramma - Heimkoma, deilur og harmleikur 29.08.2025

Við erum komnir heim. Finnbogi er búinn að vera í stórsókn. Allt búið að ganga upp. Hann á samt óuppgerðar sakir heima fyrir. Nú fara óveðurskýin að hrannast upp. Vandræðin elta okkar mann uppi. Það er kalt á toppnum! Viltu hjálpa okkur að styðja við lestur Íslendingasagnanna? Farðu á Patreon og kláraðu málið: www.patreon.com/ormstungur  

3. Finnboga saga ramma - Suðrænar slóðir 29.08.2025

Eins og í öllum góðum Íslendingasögum þá höldum við til Noregs. Finnbogi er enn með kattareðlið í sér og með klækjum fær hann að sýna sig og sanna fyrir Jarlinum í Niðarósi. Við förum líka á suðrænni slóðir í fyrsta sinn. Viltu hjálpa okkur aðstyðja við lestur Íslendingasagnanna? Farðu á Patreon og kláraðu málið: www.patreon.com/ormstungur  

2. Finnboga saga ramma - Urðarköttur 29.08.2025

Kettir eru lúmsk dýr og það eru margir sem skilja þá ekki. Söguhetjan okkar, Urðarköttur, er ekki eins og flest önnur börn. Það er ástæða fyrir því. Við skoðum barnæsku Urðarkattar og fylgjum honum úr bæjarhlaðinu. Viltu hjálpa okkur að styðja við lestur Íslendingasagnanna? Farðu á Patreon og kláraðu málið: www.patreon.com/ormstungur  

1. Finnboga saga ramma - Lagt á borð 29.08.2025

Velkomin um borð. Langt síðan síðast. Nú leggja Ormstungur á borð fyrir Finnboga sögu ramma. Er höfundur þessarar sögu að gera gys af Íslendingasögunum? Má ekki hafa gaman? Svarið er jú. Fylgið okkur í þessa þeysireið!

7. Laxdæla - Þeim var ég verst er ég unni mest 13.10.2024

Lokaorð Laxdælu hefur skemmt marga og fólk á ekki afturkvæmt í samfélag manna eftir að hafa lesið þessa sögu. Ormstungur gera klára og gera upp söguna. Þeir verða aldrei samir aftur.

6. Laxdæla - Misjöfn verða morgunverkin 13.10.2024

Sagan nær hámarki. Tungurnar fara yfir um. Af hverju verður þessi saga bara betri og betri eftir því sem hún er oftar lesin?

5. Laxdæla - Dýrt er drottins orð 13.10.2024

Kjartan snýr aftur til Íslands og fær haustlægðina beint í andlitið. Þú vilt ekki reita þennan mann til reiði. Potturinn er byrjaður að glamra all hressilega.

4. Laxdæla - Draumar í Sælingsdal 13.10.2024

Guðrúnu dreymir fjóra drauma. Þetta er sagan krakkar, takið eftir! Draumarnir eru ráðnir í pottinum í Sælingsdal en Kjartan og Bolli slá í gegn í Noregi. Það sem er hins vegar hættulegt við Noreg er að festast þar og gönguskíða yfir sig. Nú fara leikar að hefjast.

3. Laxdæla - Keltaveisla 13.10.2024

Óli Pá neglir sér til Noregs og leitar upprunans. Spaðagosinn og Spaðaásinn stíga á sviðið ásamt drottningunni. Það byrjar að krauma í pottinum…

2. Laxdæla - Allt sem er gott byrjar í Noregi 13.10.2024

Tungurnar reka sig á gat og þurfa að hringja í Vilborgu Davíðsdóttur þegar kemur að hinni miklu Unni Djúpúðgu. Þeir velta sér í heyi með Höskuldi Dala-Kollsyni. Það er ekki annað hægt en að klæja og klóra sér til yfir meðferð hans á Melkorku Mýrkjartansdóttur.

1. Laxdæla - Dælan snúin í gang (aftur) 13.10.2024

Sem betur fer er ekki nóg að taka Laxdælu einu sinni fyrir. Ormstungur taka söguna aftur fyrir í betri gæðum en síðast og þeir eru betri menn fyrir vikið. Eða hvað?

x Þústlar 16.06.2024

Þorsteinn Dagur Rafnsson, betur þekktur sem Þústlar á samfélagsmiðlum, kíkti í heimsókn til okkar. Þorsteinn hefur náð miklum vinsældum á samfélagsmiðlum með efni sínu um sögu Íslands og er við mælum með að fylgjast með honum á TikTok, Instagram, Facebook og Youtube. Vinna hans er gífurlega mikilvæg í að framleiða efni á íslensku og er heldur betur farið yfir víðan völl í viðtalinu. Þústlar – gjör...

2. Grænlendinga saga 01.05.2024

Í þessari tveggja þátta röð leggja tungurnar Ameríku við fót og kanna landfundi Íslendinga í Ameríku! Eiríks saga rauða og Grænlendinga saga gjörið svo vel.

1. Eiríks saga rauða 01.05.2024

Í þessari tveggja þátta röð leggja tungurnar Ameríku við fót og kanna landfundi Íslendinga í Ameríku! Eiríks saga rauða og Grænlendinga saga gjörið svo vel.

6. Fóstbræðra saga - Hefnd og sögulok 03.03.2024

Nú er komið að sögulokum. En komið fyrst með Tungunum til Grænlands. Það hefur ekki klikkað hingað til. Hjalti hefur komið þangað. Þormóður þarf að hefna en það er sýnd veiði en ekki gefin á þessum slóðum.

5. Fóstbræðra saga - Skammt stórra höggva í milli 03.03.2024

Þorgeir hefur aldrei opnað kexpakka án þess að klára hann, sest upp í bíl án þess að botna hann og aldrei farið út að hlaupa án þess að klára maraþon. Gjörsamlega hömlulaus. Einhvern tímann segir faðir tími stopp.

4. Fóstbræðra saga - Kvennavafstur Kolbrúnarskálds 03.03.2024

Við fáum smá pásu frá drápum og fókusinn fer á Þormóð sem glímir við þunglyndi og einmanaleika. Hann tekst á við það með því að taka upp á því að fífla konur. Það veit ekki á gott.

Écoute le podcast Ormstungur sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics