Dr. Edda Blumenstein
Í FREMSTU RÖÐ
Hvað einkennir fyrirtæki, stjórnendur og starfsfólk sem skarar fram úr? Í Fremstu Röð er hlaðvarp sem svarar þeirri spurningu með því að miðla fræðilegri þekkingu á hagnýtan hátt, í bland við reynslusögur úr íslensku atvinnulífi. Þannig brúar hlaðvarpið bilið milli fræða og atvinnulífs, milli rannsókna og reynslu og milli þekkingar og framkvæmda. Í hverjum þætti færðu skýra innsýn í eitt viðfangsefni, byggt á ritrýndum rannsóknum og raunverulegum dæmum úr rekstri. Markmiðið er að efla þekkingu, bæta ákvarðanatöku og styðja við árangur árangur stjórnenda, starfsfólks og fyrirtækja.
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : podcasters.spotify.com
Auteur
Dr. Edda Blumenstein
Catégorie
Site du podcast
Dernier épisode
20 nov. 2026
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Góð hugmynd. Hvað svo.... Hvernig færðu fólk með þér? 20.11.2026 1:07:40
Hvernig velurðu hvaða hugmynd á að þróa? Hvernig færðu fólk með þér í breytingar? Og hvenær er kominn tími til að breyta um leið eða leggja verkefni til hliðar? Í þessum þætti af Í fremstu röð ræði ég við Lóu Báru Magnúsdóttur um nýsköpun og vöruþróun. Lóa Bára sækir dæmi í reynslu sína hjá Orkla og Origo og segir frá því hvernig sköpun og öguð vinnubrögð geta farið saman, allt frá því að skilja...
Nike og smásalarnir: Hjónaband, ráðgjöf eða skilnaður? 14.10.2026 1:01:18
Hvað eiga samstarf Nike og smásala og hjónaband sameiginlegt? Meira en þú heldur, stundum þarf meira að segja hjónabandsráðgjöf. Árni Ingi Pétursson, Strategic Account Director hjá Nike, er gestur þáttarins. Við ræðum hvernig vörumerki og smásalar fara frá því að kaupa og selja vörur yfir í náið samstarf þar sem traust, gegnsæi og gögn leggja grunn að sameiginlegum árangri og betri upplifun viðski...
Frá 40.000 klippikortum í vildarklúbb í appi 27.08.2026 33:06
Í þessum þætti ræði ég við Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóra hjá Te & Kaffi um tryggðarvegferð fyrirtækisins, frá tugþúsundum klippikorta yfir í stafrænan vildarklúbb. Af hverju velur fyrirtæki þá vegferð og hvað lærir það á leiðinni? Gögnin. Kerfin. Samstarfsaðilarnir. Sjálfbærnin. Og stóra markmiðið: að verðlauna bestu viðskiptavininina. Þessi þáttur var upphaflega tekinn upp sérstakleg...
Lokaðu hringnum er leyndarmálið á bakvið framúrskarandi viðskiptavinaupplifun (CX) 09.06.2026 1:06:00
Hvers vegna eru sum fyrirtæki mun betri en önnur í að halda í viðskiptavini sína? Í þessum þætti ræði ég við Kára Þór Rúnarsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Brilliant, um upplifun viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði (B2B) og hvers vegna hún er orðin einn mikilvægasti samkeppnisþáttur fyrirtækja sem vilja vera í fremstu röð. Við ræðum meðal annars: Hvers vegna fyrirtækjamarkaður og neytendamarkaður...
2 milljónir meðlima: Saga Club stærsti vildarklúbbur Íslands 28.05.2026 58:29
Í þessum þætti köfum við ofan í einn stærstu vildarklúbb Íslands - Icelandair Saga Club. Með mér er Magnús Þorlákur Lúðvíksson, forstöðumaður Saga Club, sem gefur okkur innsýn í hvernig vildarkerfi Icelandair hefur þróast frá hefðbundnum flugpunktum yfir í öflugt vistkerfi með yfir 2 milljónir skráðra meðlima og 400.00 þúsund virka notendur. Við ræðum meðal annars: Hvernig tryggðarvegferð Iceland...
Úr 600 milljónum í 100 milljarða: stefnan á bak við netverslunarrisann Boozt 05.05.2026 1:16:46
Í þessum þætti köfum við ofan í vegferð BOOZT, fyrirtækis sem hefur á tiltölulega skömmum tíma byggt upp eitt öflugasta netverslunarkerfi Norðurlanda. Við ætlum ekki bara að segja söguna heldur rýna í hvað liggur raunverulega að baki árangrinum og hvað önnur fyrirtæki geta lært af þessari vegferð. Við ræðum sérstaklega stefnu, omnichannel nálgun, mælikvarða, hlutverk stjórnar ásamt framtíðarhorfu...
Vegferð ELKO: Frá verðsamkeppni í traustan ráðgjafa 21.04.2026 1:02:22
Í þessum þætti fáum við innsýn í vegferð ELKO í átt að metnaðarfullu markmiði: að eiga ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði - sem náðist á þessu ári með afgerandi hætti. Ég ræði við Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóra ELKO, um hvað liggur raunverulega að baki þessum árangri. Við köfum í hvernig ELKO hefur umbreytt stefnu sinni – frá því að keppa fyrst og fremst á verði og úrvali yfir...
NOVA Fyrir þig 07.04.2026 58:28
Í þessum fyrsta þætti af Í Fremstu Röð fjöllum við um NOVA, fyrirtæki sem hefur hlotið íslensku ánægjuvogina 17 ár í röð. En frá því að þátturinn var tekinn upp bættist enn eitt árið við! Í þættinum ræði ég við þær Renötu Blöndal, fararstjóra upplifunar og Elfu Arnardóttur, þjálfara viðskiptaþróunar. Við köfum sérstaklega í tryggðarvegferð NOVA og hvernig fyrirtækið byggir upp langtíma samband...
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics