Auja og Birta
í flæði
Í flæði ræða systurnar Auja og Birta um sköpunarkraftinn, andleg mál, myndlist, ritlist, bækur og allt það sem því tengist. Báðar eru þær sjálfstætt starfandi í listinni, Auja er rit -og myndhöfundur en Birta er rithöfundur og þýðandi og rekur Skriðu bókaútgáfu og prentverkstæði. Þá fá þær einnig til sín góða gesti til þess að ræða uppsprettu sköpunarinnar, andlegu málin og innblásturinn.
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : sites.libsyn.com
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Sveppatýnsla, draumráðning og bollaspádómar 13.09.2026 50:37
Í þættinum segja systurnar Auja og Birta frá sveppatýnsluferð og sultugerð, spá í bolla og ráða í draum.
Viðtal við skáldið Ásdísi Óla og fl. 05.09.2026 42:40
Í þættinum fá systurnar Auja og Birta góðan gest í þáttinn, skáldið Ásdísi Óladóttur, sem ræðir um skáldskapinn, andleg veikindi og líf sitt með geðklofa. Einnig ræða systurnar hvað er á döfinni hjá Skriðu í haust, draga spil, ræða ljóðabókina Rifsberjadalinn eftir Ásdísi og hvernig bókmenntirnar geta víkkað sýn okkar og gefið okkur innsýn í það sem við þekkjum ekki.
Draumar II 29.08.2026 50:20
Í þættinum fá systurnar Auja og Birta loksins aftur um að ræða sitt uppáhalds umræðuefni, draumana. Auja segir frá snákadraumi sem hana dreymdi nóttina áður og Birta les upp úr draumadagbókinni sinni, þar sem m.a. koma líka fram snákar, eyðihús og thermos kaffibrúsi. Þær ræða svo og ráða í einstaklega fyndinn og furðulegan draum sem þær fengu sendan.
Þráðurinn tekinn upp að nýju 22.08.2026 56:53
Í þættinum taka systurnar Auja og Birta upp þráðinn þar sem frá var horfið síðan síðast. Þær segja frá breyttum venjum eftir að þær hættu snjallsímanotkun, ræða bækur sem þær hafa verið að lesa, draga spil, spjalla um innsæið og það að treysta því, áskoranir sem andlegan þroska, ný verkefni í listinni og fleira.
Annar þáttur frá Argyroupoli og viðtal við Dimitris 11.04.2026 36:38
Annar þáttur sendur út frá fjallaþorpinu Argyroupoli á Krít. Auja og Birta ræða við kaffihúsaeigandann Dimitris, sem er fæddur í þorpinu og rekur þar æðislegt kaffihús. Einnig ræða þær um krefjandi fjallgöngur, bollaspá, grískt kaffi, hið illa auga í þjóðtrú grikkja og fleira.
Fyrsti þáttur frá Argyroupoli 03.04.2026 38:39
Þátturinn er sendur út frá litla fjallaþorpinu Argyroupoli á Krít. Í þættinum ræða Auja og Birta um þorpslífið, bækur sem þær hafa verið að lesa, segja frá húslestrinum og Auja les upp splunkunýja smásögu um fjárhirði.
Rabb um álfa og huldufólk 18.03.2026 43:24
Hér rabba Auja og Birta um álfatrúna sem virðist lifa góðu lífi, Birta les álfasögu og þær velta fyrir sér uppruna huldufólks.
Vísbendingar 10.03.2026 53:01
Í þættinum ræða Auja og Birta um vísbendingar og það að fylgja vísbendingum. Þær ræða líka um bækur sem þær hafa verið að lesa nýlega og segja frá verkefnum í Skriðu og Birta les upp tvö ljóð.
Móheiður Hlíf í Kanínuholunni 03.03.2026 51:39
Gestur þáttarins og jafnframt fyrsti gestur hlaðvarpsins er Móheiður Hlíf Geirlaugsdótttir, skáld, þýðandi og bóksali í Kanínuholunni. Við ræðum við hana um bókaveröldina Kanínuholuna, skáldskapinn, þýðingar, andleg mál og fleira.
Draumar 24.02.2026 32:04
Auju dreymir mikinn rottugang og Birta reynir að ráða í það. Þær ræða síðan um drauma, draumskyggni og hvernig draumar geta veitt innblástur í listinni og Birta les upp örsögu byggða á draumi. Tæknin var aðeins að stríða og því eru hljóðgæðin í 1.-3. þætti ekki uppá það besta en reynt verður að kippa því í liðinn í síðari þáttum.
Barnabækur og áhrif bóka á ímyndunaraflið 17.02.2026 32:50
Í þættinum ræða Auja og Birta um barnabækur sem höfðu áhrif á þær í æsku og mikilvægi þess að gefa sér stund til lesturs en einnig hvernig bækur geta haft áhrif á ímyndaraflið. Tæknin var aðeins að stríða og því eru hljóðgæðin í 1.-3. þætti ekki uppá það besta en reynt verður að kippa því í liðinn í síðari þáttum.
Flæði 17.02.2026 32:35
Í þættinum ræða systurnar Auja og Birta um hvað það er að vera í flæði, hvernig er hægt að komast í flæði og virkja þannig sköpunarkraftinn. Auja segir frá barnabók sem kom til hennar í flæði og Birta les upp örsögu. Tæknin var aðeins að stríða og því eru hljóðgæðin í 1.-3. þætti ekki uppá það besta en reynt verður að kippa því í liðinn í síðari þáttum.
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics