Heiðrún Þórðardóttir
Hugarheimur Tolkiens
Velkomin í hlaðvarpið Hugarheimur Tolkiens. Í þessum þáttum mun ég skyggnast inn í þann undraheim sem Tolkien skapaði, heimurinn sem þið sjáið og lesið um í Hringadróttinssögu og Hobbitanum, en í þeim sögum kynnist þið aðeins smá broti af heiminum, því handan þess sögusviðs er gríðarlega stór heimur, fullur af verum og undraverðri náttúru og ótal mörgum sögum.
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : rss.com
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Hugarheimur Tolkiens 6.þáttur - Flótti álfanna - Sólin og tunglið 04.10.2023 17:53
Þátturinn fjallar um flótta álfanna frá Valinor og yfir til landanna í austri, sem síðar verða nefnd Miðgarður. Einnig er fjallað um sköpun sólar og tungls. Byggt er á köflunum The Flight of the Noldoli og The Tale of the Sun and Moon í bókinni The Book of Lost Tales.
Hugarheimur Tolkiens 5.þáttur - Melkor og Ungoliant 13.09.2023 26:07
The Theft of Melko and the Darkening of Valinor er sjötti kaflinn í bók týndra sagnanna. Þar er að finna fyrstu frásögn Tolkiens af sögunni um flótta Melkors úr Valinor, þjófnað hans á Silmarilunum og samsæri hans um eyðileggingunni sem hann framkvæmdi með verunni Ungoliant (einnig kölluð Wirilomë).
Hugarheimur Tolkiens 4.þáttur - Koma álfanna 05.09.2023 25:16
Í þessum þætti er fjallað um hvernig álfarnir komu til sögunnar. Byggt er frásögnina að mestu á kaflanum The Coming of the Elves and the Making of Kôr sem er fimmti kaflinn í The Book of Lost Tales . Sagt er frá ferðalagi álfanna til guðanna í Valinor og hvernig þeir byggðu fyrstu borgir sínar. Auk þess er sagt frá sköpun gimsteina og Silmerla.
Hugarheimur Tolkiens 3.þáttur - Melkor 29.08.2023 18:41
Við höldum áfram með bókina The book of Lost Tales og er nú komið að sögunni um Melkor, eða Morgoth, og hvernig hann er loks handsamaður. Sagan kallast The Chaining of Melkor.
Hugarheimur Tolkiens 2.þáttur - Valinor 23.08.2023 26:12
Annar þáttur fjallar um komu Vala og bygging Valinor. Hér koma ýmsir merkilegir Valar til sögunnar, t.d. Manwë, Varda og Ulmo. Fjallað er um fyrstu heimsmynd Tolkiens og þau illu áhrif sem Melko hafði á sköpunina.
Hugarheimur Tolkiens 1.þáttur 16.08.2023 18:22
Velkomin í fyrsta þátt hlaðvarpsins Hugarheimur Tolkiens. Í þessum þáttum mun ég skyggnast inn í þann undraheim sem Tolkien skapaði, heimurinn sem þið sjáið og lesið um í Hringadróttinssögu og Hobbitanum, en í þeim sögum kynnist þið aðeins smá broti af heiminum, því handan þess sögusviðs er gríðarlega stór heimur, fullur af verum og undraverðri náttúru og ótal mörgum sögum.
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics