fr

Hlaðvarp Grindavíkurbæjar

Góðan daginn Grindvíkingur

Hlaðvarpið Góðan daginn Grindvíkingur er hlaðvarp Grindvíkinga á vegum Grindavíkurbæjar. Ætlunin er að taka viðtöl við einstaklinga sem hafa frá áhugaverðum og fróðlegum hlutum að segja – hvort sem um ræðir sögur frá liðnum áratugum, verkefni dagsins í dag eða hugmyndir um framtíð Grindavíkur. Markmiðið er að hlaðvarpið verði vettvangur þar sem Grindvíkingar, hvar sem við erum, getum haldið tengslum og deilt reynslu okkar.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : www.buzzsprout.com

Auteur

Hlaðvarp Grindavíkurbæjar

Catégorie

Society

Site du podcast

www.buzzsprout.com

Dernier épisode

13 janv. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

#17 Guðrún Pétursdóttir og Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir 13.01.2026

Í þessum þætti af Góðan daginn Grindvíkingur ræðum við við Guðrúnu Pétursdóttur og Ingibjörgu Lilju Ómarsdóttur, sérfræðinga í endurreisn samfélaga í kjölfar náttúruhamfara.  Í viðtalinu ræða þær m.a. hvernig hamfarir hafa áhrif á fólk og samfélög til lengri tíma og hvers vegna hver rödd allra Grindvíkinga skiptir máli þegar kemur að bataferlinu, uppbyggingu og framtíðarsýn Grindavíkur.

#16 Guðfinna Magnúsdóttir 11.09.2025

Í þessum þætti af Góðan daginn Grindvíkingur ræðum við við Guðfinnu Magnúsdóttur, ljósmyndara og einn af stofnandum hönnunarhússins VIGT. Þá á Guðfinna sæti í stjórn Járngerðar. Í viðtalinu ræðir hún m.a. um æskuárin í Grindavík, áhrif samfélagsins á sköpunargleðina og það hvernig fjölskyldurekstur hefur orðið að lifandi hluta af bæjarmenningunni.

#15 Otti Rafn Sigmarsson 16.04.2025

Í þessum þætti af Góðan daginn Grindvíkingar ræðum við við Otta Rafn Sigmarsson, framkvæmdastjóra HP flutninga og einn af burðarásunum í starfi Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Otti hefur verið í framlínu björgunarstarfa í Grindavík í áratugi og stóð vaktina þegar allt breyttist þann 10. nóvember 2023. Í viðtalinu rifjar hann upp æskuárin í Grindavík, fyrsta útkallið, áskoranirnar sem fylgdu rými...

#14 Sigurður Rúnar Karlsson 09.04.2025

„Ég held að framtíð Grindavíkur sé björt – jafnvel bjartari en áður.“ Í þessum þætti af Góðan daginn, Grindvíkingar ræðum við við Sigurð Rúnar Karlsson, forstöðumann þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar – oft kallaðan Sigga Garðhúsum. Sigurður var fyrsti maðurinn sem snéri aftur í bæinn eftir rýmingu þann 11. nóvember 2023. Þar tók hann fyrstu skrefin í viðgerðum og uppbyggingu sem hann hefur stýrt...

#13 Jóhanna Lilja Birgisdóttir, framkvæmdastýra þjónustuteymis Grindavíkinga 02.04.2025

Jóhanna Lilja Birgisdóttir, sálfræðingur og framkvæmdastýra þjónustuteymis Grindvíkinga, ólst upp í Grindavík og býr yfir sterkum tilfinningalegum tengslum við heimabæinn, þrátt fyrir að hafa búið víða síðustu áratugi. Jóhanna fer yfir æskuárin í Grindavík sem hafa verið einstaklega hlý og mótandi þar sem samvera, náttúra og íþróttir gegndu stóru hlutverki. Lífið í litla sjávarplássinu var ríkt af...

#12 Kjartan Friðrik Adólfsson 27.03.2025

Kjartan Friðrik Adólfsson hefur verið búsettur í Grindavík frá árinu 1973. Hann rifjar upp æskuárin í Vestmannaeyjum, rýminguna vegna eldgossins á Heimaey og þróun bæjarlífs í Grindavík. Saga Kjartans veitir okkur dýrmæta innsýn í reynslu þeirra sem hafa misst heimili sín vegna náttúruhamfara. Hann leggur áherslu á að viðhalda jákvæðni og vanda ákvarðanir þegar kemur að endurbyggingu bæjarins, en...

#11 Fasteignafélagið Þórkatla 17.03.2025

Í þættinum ræða Örn Viðar Skúlason framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Þórkötlu og Dagný Lísa Davíðsdóttir fjármálastjóri félagsins um starfsemi félagsins. Fasteignafélagið Þórkatla hefur leikið lykilhlutverk í að skapa Grindvíkingum fjárhagslegt svigrúm í kjölfar hamfara en um leið hvílir mikil ábyrgð á félaginu að tryggja búsetur í Grindavík til frambúðar. (lag: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Heimkom...

#10 Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar 04.03.2025

Gestur okkar að þessu sinni er Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar. Hún ræðir m.a. um uppvöxt sinn í Grindavík, hvernig samfélagið mótaði hana og lagði grunninn að hennar lífsviðhorfi og starfsvettvangi sem kennari og síðar bæjarfulltrúi. Þá ræðir hún stöðuna í Grindavík í dag og hennar framtíðarsýn.  (Lag: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Heimkoma)

#9 Líð ég burt frá landi 10.03.2023

Tónleikarnir Líð ég burt frá landi voru í Grindavíkurkirkju, sunnudaginn 12. mars, 2023. Kvennakórinn Grindavíkurdætur frumflutti lög og texta eftir Kristínu Margréti Matthíasdóttur. Berta Dröfn Ómarsdóttir stjórnaði kórnum og Ingunn Hildur Hauksdóttir sá um meðleikinn. Tónleikarnir voru partur af skipulagðri Menningarviku Grindavíkurbæjar. Margrét Rut Reynisdóttir sagði frá vinnunni á bak við tón...

#8 Jólaþáttur Alexanders með góðum gestum 20.12.2022

Góðan daginn Grindvíkingar!  Alexander Birgir Björnsson mætti aftur í stúdíó240 og tók upp jólaþátt með sérlegri aðstoð frá Elínborgu Ingvarsdóttur, forstöðumanni Þrumunnar. Þau ræddu um jólahátíðina og fengu nokkra góða gesti í settið sem starfa við Grunnskóla Grindavíkur.  Við mælum með hlustun ef að þið viljið koma ykkur í jólaskap í þessu veðri.  Það verða svo sannarlega hvít jól þessi jólin....

#7 Alexander Birgir Björnsson 28.06.2022

Góðan daginn Grindvíkingar! Loksins kominn nýr þáttur eftir smá hlé.  Alexander Birgir Björnsson mætti í stúdíóið til okkar ásamt Veigari Gauta Bjarkasyni. Veigar Gauti fékk Alexander til þess að segja okkur aðeins frá sjálfum sér og hvernig hann var sem barn, erfiðu tímabili í hans lífi, um einhverfu, Eurovision og fleiru.  Takk Alexander fyrir að leyfa okkur að fá innsýn í þitt líf, segja okkur...

XM - Kosningavarp ungmennaráðs 08.05.2022

Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240. Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir (Didda) er oddviti Miðflokksins í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Friðrik Sigurðsson og Ólafur Reynir Ómarsson, fulltrúar ungmennaráðs, og Melkorka Ýr Magnúsdóttir, umsjónamaður ungmennaráðs, spyrja Diddu nok...

XU - Kosningavarp ungmennaráðs 08.05.2022

Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240. Helga Dís Jakobsdóttir er oddviti Raddar unga fólksins í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Vignir Berg Pálsson og Una Rós Unnarsdóttir, fulltrúar ungmennaráðs, og Melkorka Ýr Magnúsdóttir, umsjónarmaður ungmennaráðs, spyrja Helgu Dísi nokku...

XD - Kosningavarp ungmennaráðs 08.05.2022

Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240. Hjálmar Hallgrímsson er oddviti Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Friðrik Sigurðsson og Ólafur Reynir Ómarsson, fulltrúar ungmennaráðs, og Melkorka Ýr Magnúsdóttir, umsjónamaður ungmennaráðs, spyrja Hjálmar nokkurra s...

XS - Kosningavarp ungmennaráðs 08.05.2022

Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240. Siggeir F. Ævarsson er oddviti Samfylkingarinnar í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Vignir Berg Pálsson og Una Rós Unnarsdóttir, fulltrúar ungmennaráðs, og Melkorka Ýr Magnúsdóttir, umsjónarmaður ungmennaráðs, spyrja Siggeir nokkurra spurn...

XB - Kosningavarp ungmennaráðs 07.05.2022

Fulltrúar ungmennaráðs Grindavíkurbæjar tóku sig saman og undirbjuggu Kosningavarp fyrir bæjarbúa. Þau fengu oddvita allra flokka í Grindavík til sín í Stúdíó240.  Ásrún Kristinsdóttir er oddviti Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Grindavíkur. Þau Tómas Breki, fulltrúi ungmennaráðs, og Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður Þrumunnar, spyrja Ásrúnu nokkurra spurninga um flokkinn, fyrir hvað þau st...

#1 Góðan daginn Grindvíkingur - fyrsti þáttur 05.05.2022

Í þessum þætti verður fjallað um okkar nýjustu tækni, hlaðvarp Grindavíkurbæjar, Góðan daginn Grindvíkingur! Þær Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður Þrumunnar, og Sunna Jónína Sigurðardóttir, verkefnastjóri Kvikunnar, fara yfir það sem er framundan og greina frá því hvernig aðrar stofnanir Grindavíkurbæjar getur nýtt sér þessa tækni til þess að koma sér á framfæri og vonandi myndað samstarf í ge...

Écoute le podcast Góðan daginn Grindvíkingur sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics