fr

Gæðastjórnin

Gæðastjórnin

Vinkonur þínar að tala um gæðin í lífinu.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : podcasters.spotify.com

Auteur

Gæðastjórnin

Catégorie

Arts

Site du podcast

podcasters.spotify.com

Dernier épisode

15 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Spúkístjórnin 15.10.2026

BÚ! Nýr þáttur mættur, fáránlega spooky í tilefni hrekkjavökunnar sem er á næsta leyti. Fastir liðir á sínum stað, bestu staðirnir fyrir speglaselfie teknir fyrir, búningahugmyndir, spooky aðstæður í hversdeginum OG, kæru hlustendur, engin önnur en Snæfríður Sól aka Snæja sound musicgenius director drolla er mætt aftur til leiks og hún endar þáttinn á mögulega besta spooky sexy halloween lagi allr...

Kósíbankinn 21.09.2026

Í þriðja þætti haustsins ræðum við kósýheitin í hversdeginum, hvort sem það er að opna eina crémant eða taka stutta skák, já eða bæði. Við svörum svo stóru spurningunni er þetta grænmeti eða? og einhver (sunna) fær lítið heilablóðfall. Við Rýnum í Refinn hjá Völu Kristínu stórleikkonu og grínista og kynnum inn TVO nýja fasta liði! Rvkfoodie hornið, þar sem Sunna fer yfir nýjustu fregnir í veitinga...

Súpur og Skipulag 07.09.2026

Já annar þátturinn í röð þar sem súpan er rædd í þaula, þykkar súpur, tærar súpur, beikonsúpur.. svo reynum við að kenna hvorri annarri eitt og annað um skipulag og kíkjum í heimsþekktan bragðaref!

Haust Naglasúpa 24.08.2026

Það er útlit fyrir pumpkin spice latte season og við í stjórninni hentum í einn kósí naglasúpuþátt í tilefni þess. Sannkallaður haustbragur er yfir þættinum, hvað er svona gott við haustið? Kunna allir að klæða sig eftir veðri?? EN það var ekki bara rætt um haust heldur hefur hulunni verið svipt af HOT FLOKKUN KARLA eftir ítrekaðar beiðnir frá sponsornum okkar Stefáni í ekkert að frétta pod og það...

Íslenskt Sumar pt.2 09.08.2026

Hvað er það besta við íslenska sumarið? Hvernig er hægt að vera sniðugur með nesti og mat í ævintýrum sumarsins? Er hægt að vera hot i útilegu?? Nýtt þemalag ADLsins? Er krúttlegra að vera loðinn einhversstaðar? Verður eitthvað partý sumarsins? Þurfum við kannski bara logn og einn bol til að sumarið sé gott? Hefuru strunsað út úr ísbúð?😤

Íslenskt Sumar pt.1 22.07.2026

Er Vigdís svo tveggja flokka kona eftir allt saman? Myndiru drekka baðvatnsbrúnan Collab? Hvernig gerir maður ávaxtasýróp án hita? Hvernig eldar maður með hráefnum úr íslenskri náttúru? Er sumarkokteillinn Viðey spritz? Dagsferðir á Íslandi, sólarlanda ADL, gubbusögur og besta gosið í hita.

Morgunstund 10.06.2026

Góðan dag elskurnar! Þema þáttarins er hin heilaga morgunstund, hvað gerir morgunstund góða? Við reynum að svara stóru spurningum lífsins; hvað þýðir stillingin á ristavélinni eiginlega, er hægt að eiga hugmyndir utan samfélagsmiðla, hvað er best að borða í morgunmat og hvað er super marmeladda? Andri Fannar Ottósson dregur okkur svo upp úr drullusvaðinu með ljóði sínu og við fáum hugljúfa innsend...

Sósa og (reyndar ekkert) salat 01.06.2026

Allt fyrir sósuna! Það er sumar í lofti og því lá beinast við að hafa þema þáttarins sumarlegt og hvað er sumarlegra en sósa og salat? Nema við gleymdum að tala um salat. Hins vegar ræðum við Subway sósur, bestu og verstu sósuna, hvernig Gagga smók gerir góða brúna sósu og auðvitað getum við ekki haldið kjafti með hotflokkunina okkar - hvaða sósa ert þú? Glænýr sponsor og vinkonudrama?

Brúðkaupsþátturinn Já 07.05.2026

Í þættinum verður farið yfir brúðkaups tips & tricks & do’s & don’ts & kiss me nots & tie the knots. Ekki skilja okkur eftir á altarinu < 3

Allt er vænt sem vel er dænt 27.04.2026

Þátturinn fjallar um allt sem tengist því að fara út að borða. Í gæðastjórninni fyrirfinnast nefninlega tveir sérfræðingar í veitingastaðamálum og ein kona sem finnur fyrir vanmætti sínum (og staðsetur sig á óvæntu bæjarstæði á Suðurlandi). Í þættinum verður eftirfarandi spurningum svarað; hvar færðu besta forréttinn? Kokteilinn? Aðalréttinn? Eftirréttinn? Post djamm bitann? Er kál mjög æðislegt?...

Einfalt og gott 17.04.2026

Í þættinum er farið yfir allt þetta einfalda og góða (aðallega matarkyns). Óvænt og ódýrt, skilvirkar uppskriftir, foreldra hacks, besta nammið og óvænt !hot take! (og eitt sögulega basic take reyndar). Kimchi partý, náttföt við kertaljós, saffran perrinn og allir kjammsa Conga! Setjið hvítan dúk á borðið, mundið hníf og gaffal, setjið servéttu í kjöltuna og gúffið svo þennan þátt. Og nenni þér pl...

Vinkonur (saumaklúbbs möns og karíókíkvarðinn) 10.04.2026

Þema þáttarins er vinátta! hversu cute? Við förum um víðan völl og ræðum m.a. bústaðaferðir og saumaklúbbinn, veitingarnarnar sem því fylgja (algjört aðalatriði), fáum innslag frá vinkonumálaráðherra Íslands Ellu Bjö og kynnum til leiks KARÍÓKÍ KVARÐANN! Ekki gleyma að hlusta í gegn því, eins og vanalega, gæti þar leynst eitt óvænt lítið lag úr smiðju Snæfríðar Sólar!

Lof mér að skvísast 02.04.2026

Umræðuefni þáttarins er skvísan. Hotvaktin, skvísuvaktin, óbærilegur skvísuleiki tilverunnar, skvísland ögrum skorið, skvísland er land þitt, skvísa í blíðu og stríðu, á barmi skvísuáfalls, all things skvísa, skvísan - alvarlegt mál, þín innri skvísa.

Hot Food Takes 26.03.2026

Í þessum þætti ræðum við okkar allra heitustu skoðanir á öllu matartengdu og svörum spurningum á borð við: getur ís verið heitur? Er í lagi að drekka hvítvín með tælenskum mat? Hvað er boðlegt að setja í bragðaref? Forréttur eða eftirréttur?

Sund (og pullur) 20.03.2026

Í fyrsta þætti Gæðastjórnarinnar kryfjum við hið heilaga sund sem allir þekkja og elska. En er hægt að tala um sund án þess að tala um eftir-sunds pulluna? Nei ég bara spyr. Talandi um pylsur, í þessum þætti er rúsínan svo sannarlega í pylsuendanum.

Écoute le podcast Gæðastjórnin sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics