fr

RÚV

Frjálsar hendur

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : www.ruv.is

Auteur

RÚV

Catégorie

Society

Site du podcast

www.ruv.is

Dernier épisode

18 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Richard Henry Dana 4 - Til Kaliforníu 30.03.2025

Áfram er haldið að taka saman efni úr sjóferðaminningum Richard Henry Dana og nú segir frá því er skip hans Pílagrímurinn er komið eftir erfiða siglingu alla leið til Kaliforníu og þar hefst kaupskapur mikill. En babb kemur fljótlega í bátinn.

Guðmundur Hagalín 4 23.03.2025

Aftur er lesið út æviminningum Hagalíns og í þetta sinn úr þeim köflum bókarinnar frá bernskuárum hans er fjalla um dýrin á bænum og dýrin í náttúrunni á Vestfjörðum. Frásagnarsnilld Hagalíns nýtur sín einkar vel í þessum skemmtilegu, litríku og fallegu frásögnum.

Guðmundur Hagalín 3 16.03.2025

Á árinu 2024 hóf umsjónarmaður að glugga í frásagnir Guðmundar Hagalíns af forfeðrum sínum eins og þær voru skráðar í fyrsta bindi sjálfsævisögu hans. Nú er röðin að Hagalín sjálfum og hann segir á lifandi og skemmtilegan hátt frá eigin æskuárum að Lokinhömrum í Dýrafirði.

Síðasta skip suður 4 09.03.2025

Áður hefur í þessari þáttaröð verið litið í bókina Síðasta skip suður sem Jökull Jakobsson gaf út 1964 og fjallaði um mannlíf á Breiðafjarðareyjum að fornu og nýju. Hér er enn höggvið í sama knérunn og teknar saman nokkrar af hinum fögru frásögnum Jökuls.

Ida Grumbov 02.03.2025

Í byrjun 20. aldar kom hin þýska Ida Grumbkov til Íslands og var erindi hennar að grennslast fyrir um örlög unnusta síns sem hafði farist á Öskjuvatni, en sumt þótti dularfullt við hvarf hans. Hún skrifaði ferðasögu sína og er hér gluggað í hana.

Kristín Sigfúsdóttir 1 23.02.2025

Á fyrri hluta 20. aldar var Kristín Sigfúsdóttir í hópi vinsælustu rithöfunda þjóðarinnar. Hún var „óbreytt sveitakona“ sem kallað var en skrifaði skáldsögur og m.a.s. leikrit sem féllu vel í kramið. Í þessum þætti verður hins vegar gluggan í endurminningar Kristínar.

Richard Henry Dana 3 - Á slóðum Robinson Crusoe 16.02.2025

Í þessum þriðja þætti úr sjóferðaminningum hins unga Bandaríkjamanns frá 1834 segir frá ofsaveðrum við Hornhöfða, miklu áfalli sem skipshöfnin á Pílagrímnum verður fyrir þegar maður fer óbyrðis, og loks er fjallað um viðkomu skipsins á eyjunni Juan Fernandez sem kunn er fyrir að þar dvalist sem skipbrotsmaður fyrirmyndin af sögupersónunni Robinson Crusoe.

Richard Henry Dana 2 - Inn á ofsafengið Kyrrahaf 09.02.2025

Áfram er haldið að glugga í sjóferðasögu Dana frá árinu 1834. Briggskipið Pílagrímur er nú komin að suðurodda Suður-Ameríku og lendir í ægilegum illviðrum úti fyrir Hornhöfða eftir að á ýmsu hefur gengið á siglingunni hingað til.

Richard Henry Dana 1 - Frá Ameríku suður í höf 02.02.2025

Hér segir frá siglingu 19 ára bandarísks háskólapilts sem gerðist háseti á briggskipi 1834 og sigldi frá Boston suður fyrir Suður-Ameríku og til Kaliforníu. Dana skrifaði um reynslu sína víðfræga bók sem þykir gullmoli í bandarískum bókmenntum og hér segir frá upphafi ferðarinnar og fyrstu kynni hans af hinu hrjúfa sjómannslífi.

Reginfjöll haustnóttum 2 26.01.2025

Aftur er lesið úr bókinni Reginfjöll að haustnóttum eftir Kjartan Júlíusson. Lengsta frásögnin og sú veigamesta segir frá einni af þeim gönguferðum sem Kjartan var frægur fyrir að fara upp um fjöll og firnindi.

Reginfjöll að haustnóttum 1 19.01.2025

Árið 1978 kom út hjá Iðunni dálítil bók með endurminningum og frásöguþáttum gamals bónda í Eyjafirði. Hún hét Reginfjöll að haustnóttum. Óvenjulegt var að það var ekki minni maður en Halldór Laxness sem skrifaði formálann og fór þar fögrum orðum um bóndann, Kjartan Júlíusson. Í þættinum er formáli Halldórs lesinn og fáeinar frásagnir úr bókinni.

Sögur Chekhovs 1: Marskálksfrúin, Vanka litli og Veðmálið 12.01.2025

Í janúar 1915 birtist í fyrsta sinn í íslensku blaði smásaga eftir Anton Chekhov, Marskálksfrúin. Á næstunni ætlar umsjónarmaður Frjálsra handa að flytja með óreglulegu millibili ýmsar af þeim fyrstu smásögum eftir Chekhov er birtust í íslenskum blöðum, og fara ýmsum orðum um höfundinn og ævi hans. Í þessum þætti verða lesnar sögurnar Vanka litli og Veðmálið, auk Marskálksfrúarinnar.

Illugasaga Tagldarbana 05.01.2025

Eins og venjulega þegar um fyrsta þátt ársins er að ræða lýkur honum á því að lokalag þáttarins er leikið í fullri lengd, Adagio í g-moll eftir Remo Giazotto, þó oft sé það kennt tónskáldinu Albinoni. Fram að því les umsjónarmaður úr sannkallaðri tröllasögu, Illugasögu Tagldarbana, en hún var skrifuð í stíl Íslendingasagna en sennilega nokkrum öldum á eftir þeim. Ekki skortir viðburði því tröll, f...

Écoute le podcast Frjálsar hendur sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics