fr

Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : fotbolti.net

Auteur

Fotbolti.net

Catégorie

Sports

Site du podcast

fotbolti.net

Dernier épisode

13 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Kaffispjallið: Uppköst, húðflúr á hálsi og Casillas eða Neuer? 21.07.2026

Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, mætti í annan þátt Kaffispjallsins. Farið var yfir hvað leiddi hann aftur í búrið á öðru ári í 2. flokki, skiptin frá Njarðvík til Keflavíkur og hvað virkilega gerðist þegar hann gisti hjá Stefáni Jóni Friðrikssyni.

Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi? 20.07.2026

Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnars stýrir ferðinni þessa vikuna og með honum eru Sæbjörn Steinke og Jói Skúli. Þórsarar voru fyrstir til að vinna Víkinga í deildinni, Evrópukeppnin er að trufla liðin, KA hélt ekki út manni fleiri og Skaginn í frjálsu falli.

HM hringborðið - Leiðinlegasti úrslitaleikur sögunnar? 20.07.2026

Síðasta HM hringborð mótsins. Spánverjar heimsmeistarar og Englendingar hirtu bronsið. Magnús Haukur Harðarson og Kári Snorrason fóru yfir úrslitaleikinn, bronsleikinn og veittu viðurkenningar.

Útvarpsþátturinn - Glugginn galopinn og allir angar úti 17.07.2026

Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir allt það helsta. Félagaskiptaglugginn er opinn, íslensk lið að spila um alla Evrópu, heil umferð framundan í Bestu og úrslitaleikur HM er framundan.

HM hringborðið - Sá taktíski féll á prófinu 16.07.2026

HM hringborðið á fimmtudegi. Ásgeir Frank Ásgeirsson var gestur í setti og fór yfir undanúrslitin ásamt Kára Snorrasyni. Thomas Tuchel fékk falleinkunn og Spánverjar sigldu þægilega í gegnum stjörnum prýtt lið Frakka. Sömuleiðis var hitað upp fyrir úrslitaleik Argentínu og Spánar sem og bronsleik Frakka og Englendinga.

Harkið - Grenivíkur Grétar 15.07.2026
Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals 13.07.2026

Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars. Dómaramistök léku Keflavík grátt, KA vann gríðarlega mikilvægan sigur en illa gengur hjá ÍA, staða Vals versnar eftir tap gegn FH, vonlaus frammistaða Þórs og KR lék sér að ÍBV. Fréttir, slúður og fabúleringar. Lengjudeildin og Evrópuleikir koma líka við sögu.

HM hringborðið: Þarf að minnka skjátímann hjá Alf Inge 13.07.2026

Halldór Snær Georgsson og Runólfur Trausti Þórhallsson voru gestir í HM hringborðinu að þessu sinni. Farið var yfir 8-liða úrslitin og rýnt í spilin fyrir æsispennandi undanúrslit.

Árni Vill ræðir heimkomuna - „Þessi geðveiki virðist elta mig“ 13.07.2026

Árni Vilhjálmsson er genginn í raðir Stjörnunnar á frjálsri sölu frá Al-Taraji í Sádi-Arabíu. Kári Snorrason ræddi við Árna um skrefið heim ásamt því að fara yfir ferilinn úti í atvinnumennsku. Hann ræðir einnig upplifun sína af því að búa og spila í Sádi-Arabíu og Úkraínu á miklum óvissutímum.

Útvarpsþátturinn - Áhugaverð umferð og leikar æsast á HM 10.07.2026

Þátturinn er í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra eru í hljóðveri. Farið er yfir Evrópuleiki Stjörnunnar og Vestra, fréttir vikunnar í íslenska boltanum og hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni. Þá er fjallað um HM þar sem 8-liða úrslitin eru farin af stað.

Cecilía Rán fer yfir allt milli himins og jarðar í nýju hlaðvarpi 09.07.2026

Runólfur Trausti Þórhallsson settist niður með Cecilíu Rán, markverði Inter og íslenska landsliðsins. Farið var yfir víðan völl en þrátt fyrir ungan aldur hefur Cecilía Rán upplifað margt á sínum ferli. Kaffispjallið er nýr hlaðvarpsþáttur hér á síðunni þar sem rætt verður við leikmenn um allt milli himins og jarðar. Í fyrstu seríu hlaðvarpsins verður rætt við markmenn og svo vinnum við okkur upp...

Innkastið - Áfall í Evrópusigri 07.07.2026

Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór í Innkasti vikunnar. Víkingur vann nauman sigur á Györ en varð fyrir áfalli, Fram gerði jafntefli í Keflavík, Eyjamenn unnu Val og ungstirni Breiðabliks skína skært. Farið er yfir helstu fréttir og slúður.

HM hringborðið - Azteca stóð undir nafni og falleg vinátta forsetanna 07.07.2026

Það hefur mikið gengið á í HM heimum undanfarna daga. Þeir Óskar Smári Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson voru gestir í hringborðinu að þessu sinni og fóru yfir helstu tíðindi og úrslit.

Harkið - Írskir dagar kalla 07.07.2026
Útvarpsþátturinn - Besta, bestir í Lengju og HM 04.07.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars. Byrjað er á íslenska boltanum. Besta deildin, tíðindi tengd henni og Víkingur er á leið í erfitt Evrópueinvígi. Svo er það Lengjudeildin sem fær sviðsljósið og opinberað er val á úrvalsliði umferða 1-11. Í seinasta hluta þáttarins er farið yfir 32-liða úrslit HM og spáð í spilin fyrir 16-liða úrsliti...

HM hringborðið: Söguleg stund fyrir Ronaldo og uppáhalds HM leikmenn 03.07.2026

HM hringborðið á föstudegi. Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á Rúv og Óskar Smári Haraldsson þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar voru gestir að þessu sinni. Þeir fóru yfir úrslit síðustu leikja og spáðu í spilin fyrir leikina þrjá sem eftir eru í 32-liða úrslitum. Þá fóru þeir jafnframt yfir sína uppáhalds HM leikmenn.

HM hringborðið: Sævarssynir fara yfir 32-liða úrslitin 01.07.2026

Bræðurnir Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir voru gestir HM hringborðsins að þessu sinni. Þeir fóru yfir liðna leiki í 32-liða úrslitum og spáðu í spilin fyrir komandi leiki. Þá fór Birkir jafnframt yfir sigur Íslands á Englandi og heimsmeistaramótið í Rússlandi 2018.

Uppbótartíminn í mynd - Kristianstad, pælingar með Nik og slúður 01.07.2026

Það er landsleikjahlé í Bestu deild kvenna en við gefum út aukaþátt af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, þessa vikuna. Nik Chamberlain, þjálfari Kristianstad í Svíþjóð, er í heimsókn á Íslandi og hann mætti í þáttinn til að fara yfir tíma sinn hjá Kristianstad til þessa. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Nik fóru einnig yfir tölfræði úr Bestu deildinni, leikstíla og aðrar p...

Innkastið - Hemmi rekinn, Akureyri í frjálsu falli og Blikar nálgast bikar 29.06.2026

Innkastið eftir tólftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn eftir sigur Vals gegn Þór, Akureyri er í frjálsu falli, Keflavík vann KR og umferðinni lauk með leik ÍA og Fram á Akranesi. Þá er fjallað um sigur Breiðabliks gegn Víkingi í undanúrslitum bikarsins og einnig er Lengjudeildarhorn.

Harkið - Skandall í Sandgerði 29.06.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í 10 umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum auk þess var farið yfir verstu velli í 2. og 3. deild. -Uppgjör 3.deildar - 07:50 -Uppgjör 2.deildar - 37:50 -Spá og leikmaður umferðarinnar - 01:08 :00 Harkið er í samstarfi með Serrano og AB Sportvörum. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11 26.06.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Víkingar voru ekki sáttir þrátt fyrir 4-1 sigur í Kópavogi, úrvalslið umferða 1-11 í Bestu deildinni er opinberað... og líka vonbrigðaliðið! Gestur þáttarins er Óskar Borgþórsson sem hefur verið gjörsamlega frábær með Víkingum. Þá er sigur Íslands gegn Englandi 2016 rifjaður upp og f...

Uppbótartíminn - Þrjú lið á leið í titilbaráttu? 24.06.2026

Níunda umferð Bestu deildar kvenna kláraðist í gær með tveimur áhugaverðum leikjum. Farið var yfir alla leiki umferðarinnar í Uppbótartímanum í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Arnari Páli Garðarssyni og Snæbjörtu Pálsdóttur og þau fóru yfir leikina ásamt öllum helstu sögulínum.

HM hringborðið - Stjörnurnar standa undir nafni 24.06.2026

HM hringborðið á miðvikudegi. Kári Snorrason, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fóru yfir úrslit og atburði síðustu daga á heimsmeistaramótinu.

Harkið - Göngutúr í Garðinum 23.06.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í níundu umferð 2. og 3.deildar karla og val á leikmönnum umferðar í báðum deildum. -Uppgjör 3.deildar - 06:00 -Uppgjör 2.deildar - 40:00 -Spá - 01:24 Harkið er í boði Serrano Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson

Innkastið - Dalur martraðanna 22.06.2026

Innkastið eftir 11. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Runólfur Trausti íþróttafréttamaður og markvarðaþjálfari. Víkingar sýndu mátt sinn og megin þegar þeir tóku Framara í kennslustund, KR vann markaleik gegn ÍA, Eyjamenn eru komnir á mjög gott ról, fimmtán ára markaskorari þegar Breiðablik vann KA, jafntefli í Krikanum og á Hlíðarenda.

Écoute le podcast Fotbolti.net sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics