fr

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Flugvarpið

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : soundcloud.com

Auteur

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Catégorie

News

Site du podcast

soundcloud.com

Dernier épisode

4 nov. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,7+ iOS bientôt

Épisodes

#51 - ISAVIA, endurheimtin í KEF og vöxturinn framundan – Sveinbjörn Indriðason 17.11.2022

Sveinbjörn Indriðason forstjóri ISAVIA fer vítt yfir sviðið um fjölmörg og krefjandi verkefni félagsins. Reksturinn í Keflavík, stækkunaráform og þróun vallarins á næstu árum. Vel yfir 6 milljónir farþega fara um völlinn á þessu ári og í vetur munu fleiri flugfélög fljúga til Keflavíkur en nokkru sinni áður yfir vetrartímann. Sveinbjörn ræðir einnig ýmis atriði sem varða innanlandsflugvelli á Ísla...

#50 – Svaðilfarir, erfiðleikar og átök í þyrlurekstri LHG – Benóný Ásgrímsson og Páll Halldórsson 02.11.2022

Rætt er við tvo af reynslumestu þyrluflugstjórum Íslands þá Benóný Ásgrímsson og Pál Halldórsson um þyrlurekstur Landhelgisgæslunnar. Báðir tóku þeir þátt í að endurskipuleggja allt starf þyrlusveitar gæslunnar frá grunni eftir mannskætt slys sem varð á TF-RÁN í Jökulfjörðum árið 1983. Benóný og Páll segja hér frá ýmsum erfiðleikum og átökum við að byggja upp þyrlurekstur LHG og frá sínum einstaka...

#49 - Ein ánægjulegasta endurminningin þegar hreyfillinn sprakk– Gunnar Arthursson 12.10.2022

Rætt er við Gunnar Arthursson flugstjóra sem lenti í frægri svaðilför á Fokker F-27 flugvél þegar annar hreyfillinn sprakk skömmu eftir flugtak frá Ísafjarðarflugvelli árið 1982. Gunnar segir frá þessu atviki og frá ýmsu áhugaverðu af sínum langa atvinnuflugmannsferli sem spannar yfir 40 ár. Hann upplifði m.a. ótrúlegar breytingar á vinnustað frá DC3 til Boeing 757/767, en Gunnar hætti störfum sem...

#48 – Icelandair í sterkri stöðu eftir krísuástand síðustu ára – Bogi Nils Bogason 26.09.2022

Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um framtíðarplönin og viðsnúning í rekstri félagsins. Hann segir ótrúlegt afrek starfsfólksins að hafa komið félaginu á þann stað sem það er í dag á undraverðum tíma. Lausafjárstaða félagsins er sterk og uppbygging framundan eftir krísur síðustu árin. Rætt er um kjarasamninga framundan, flotamálin, innanlandsflugið og hvernig félaginu var forðað a...

#47 – Svefnheilsa og „Just Culture“ – Reykjavik Flight Safety Symposium 22.09.2022

Rætt er við dr. Erlu Björnsdóttur sálfræðing og sérfræðing í svefnrannsóknum og Ingvar Tryggvason flugstjóra og fyrrum formann Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Þau eru bæði fyrirlesarar á Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldið er í sjötta sinn í ár. Erla ræðir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan og árangur og Ingvar segir frá innleiðingu sanngirnismenningar eða „Just Cul...

#46 – Evidence Based Training umbyltir þjálfun flugáhafna – Davíð Ásgeirsson 27.08.2022

Rætt er við Davíð Ásgeirsson flugstjóra og eftirlitsmann hjá bresku flugmálastjórninni, en hann hefur á síðustu árum sérhæft sig í Evidence based training (EBT)eða hæfnimiðaðri þjálfun flugáhafna. Þar er um að ræða algjöra kúvendingu í allri nálgun og viðmiðum fyrir endurmenntun og síþjálfun flugmanna. Farið er aðeins yfir litríkan feril Davíðs í fluginu, þegar hann var m.a. hjá EasyJet og síðar W...

#45 - Erfiður tími að baki, nýjar áskoranir en bjart framundan – Þ. Haukur Reynisson 24.06.2022

Rætt er við Þórhall Hauk Reynisson flugrekstrarstjóra Icelandair um gríðarlegar áskoranir í rekstrinum síðustu árin og um stöðu félagsins í dag og horfurnar framundan. Haukur eins og hann er kallaður rifjar einnig upp áhugaverða tíma á ferlinum eins og þegar hann hóf sinn feril sem flugmaður hjá Flugfélaginu Erni á Ísafirði og sinnti þar fjölbreyttum verkefnum, allt frá sjúkra- og póstflugi um Ves...

#44 - Frelsið í fisfluginu heillar – Jónas Sturla Sverrisson 16.06.2022

Jónas Sturla Sverrisson segir hér frá starfsemi Fisfélags Reykjavíkur og gríðarlegum uppgangi í greininni. Sífellt fleiri sækja í fisflugið frekar en einkaflug af ýmsum ástæðum og njóta þannig frelsisins að fljúga um landið. Jónas hefur langa reynslu af fisflugi og fræðir hlustendur m.a. um reglur sem gilda um þessa grein flugsins og um baráttu fyrir tilvist félagsins m.a. innan þjóðgarða.

#43 – Lifði mannskætt flugslys en aldrei hræddur – Páll Stefánsson 12.05.2022

Rætt er við Pál Stefánsson fyrrverandi flugstjóra um langan og merkilegan feril hans í fluginu og um aðkomu hans að námskeiðshaldi fyrir fólk með flughræðslu sem hann hefur unnið við í um aldarfjórðung. Páll lifði af flugslysið sem varð á Mykinesi í Færeyjum árið 1970, þá sem ungur atvinnuflugmaður. Þrátt fyrir slysið hélt hann ótrauður áfram og hefur í gegnum bæði blómlega og róstursama tíma í fl...

#42 – Flughræðslan og ráð við henni – Álfheiður Steinþórsdóttir 10.05.2022

Rætt er við Áfheiði Steinþórsdóttur sálfræðing sem hefur lengi aðstoðað fólk við að vinna bug á flughræðslu. Hún segir mikinn árangur hafa náðst á námskeiðum sem haldin hafa verið á vegum Icelandair á fyrir þá sem vilja læra njóta þess að fljúga. Mörg hundruð manns hafa sótt slík námskeið á undanförnum árum. Rætt er við Álfheiði um hvað veldur kvíða og flughræðslu og hvernig megi vinna bug á hræðs...

#41 – NICEAIR – Til útlanda beint frá AEY - Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson 13.04.2022

Rætt er við Þorvald Lúðvík Sigurjónsson flugmann og athafnamann á Akureyri um hið nýstofnaða félag NiceAir. Þorvaldur Lúðvík hefur verið að fjúga allt sitt líf og fengið útrás fyrir því áhugamáli með ýmsu móti. Nú leiðir hann nýtt fyrirtæki sem stofnað er til að standa í fyrsta sinn að reglubundnu áætlunarflugi milli Akureyrar og annarra landa. Þorvaldur Lúðvík segir frá undirbúningi og viðskiptam...

#40 – Flugumferðarstjórn og ör tækniþróun – Guðmundur Karl Einarsson 05.04.2022

Sérhæft starf flugumferðarstjóra er til umfjöllunar í þessum þætti þar sem rætt er við Guðmund Karl Einarsson vaktstjóra í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Hann segir hér frá starfi flugumferðarstjóra sem hann hefur sinnt í tæp 20 ár og veitir hlustendum innsýn í vinnuna í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Guðmundur hefur tekið virkan þátt í margs konar þróunarvinnu á síðustu árum og þekkir...

#39 – Sóknarhugur og uppbygging Icelandair á ný – Jens Bjarnason 24.01.2022

Rætt er við Jens Bjarnason framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Icelandair um uppbyggingu félagsins sem nú stendur yfir. Jens segir félagið í sóknarhug og menn vilji vanda sig við að endurreisa og stækka fyrirtækið. Hann hefur verið viðloðandi flugrekstur áratugum saman og gengt ýmsum störfum fyrir Icelandair og fleiri á sínum ferli. Jens er doktor í verkfræði, með óbilandi áhuga á flugi og er bjartsýnn...

#38 – PLAY – með lægra verð á krefjandi markað - Birgir Jónsson 13.01.2022

Birgir Jónsson forstjóri flugfélagsins Play segir hér frá stofnun félagsins og sinni aðkomu að hinu nýja íslenska lággjaldaflugfélagi. Hann trúir því að félagið geti vel þrifist á krefjandi flugmarkaði ólíkt forverum sínum, ef rétt er staðið að málum. Birgir ræðir hér um stöðu félagsins og horfurnar framundan, ýmis deilumál sem komið hafa upp síðustu mánuði, hrekur ýmsar kjaftasögur úr bransanum o...

#37 – ÍS-lendingar á Suðurskautslandinu – leigflug á mörgæsaslóðum 17.12.2021

Rætt er við August Håkansson flugstjóra og verkefnastjóra, Rósu Björg Gunnarsdóttur flugfreyju og Arnar Þór Jóhannsson flugvirkja um leiguflug sem þau hafa verið að sinna til Suðurskautslandsins. Um er að ræða leiguflug þar sem flogið er frá Punta Arenas í Chile og lent á flugbraut sem er nokkur hundruð metra þykk íshella á Suðurskautslandinu. Flugið á lítið skylt við venjulegt áætlunarflug og hef...

#36 – Regluverkið eitt skilar ekki auknu flugöryggi – Kári Guðbjörnsson 26.11.2021

Rætt er við Kára Guðbjörnsson flugstjóra, flugumferðarstjóra og prófdómara til áratuga, en hann hefur m.a. getið sér gott orð fyrir námskeið og öryggisfundi fyrir einkaflugmenn og flugklúbba á síðustu árum og hefur talað fyrir aukinni samvinnu milli grasrótar flugsins og flugmálayfirvalda. Kári er hafstjór af fróðleik um flugmál og er ófeiminn við að gagnrýna ýmislegt sem hann telur að betur mætti...

# 35 - Ævintýri að fljúga fyrir Atlanta um allan heim – Kristín María Grímsdóttir 20.10.2021

Rætt er við Kristínu Maríu Grímsdóttur flugstjóra á Boeing 747 jumbó breiðþotu hjá Air Atlanta. Kristín María er þrátt fyrir ungan aldur búin að ferðast vítt og breitt um heiminn í starfinu, en hún hóf störf sem atvinnuflugmaður hjá Atlanta aðeins 24 ára gömul og segist alltaf hlakka til nýrra ævintýra í vinnunni. Ýmsar áskoranir eru fyrir unga konu að vinna sem flugmaður á framandi slóðum þar sem...

#34 – Verið hótað og boðnar mútur í starfi hjá ICAO – Þormóður Þormóðsson 24.09.2021

Þormóður Þormóðsson segir hér frá störfum sínum í einni af stærstu deildum ICAO Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, en hann annast þar eftirlit með að aðildarríkin sinni því sem þau eiga að sinna í öryggis- og gæðamálum. Þormóður lærði Aircraft maintenance management við Embry-Riddle Aeronautical Háskólanum, hann er lærður atvinnuflugmaður og að auki með meistaragráðu í hagfræði. Hann hefur lent í ýmsu...

# 33 – íslensk-ameríski herflugmaðurinn – John S. Magnusson 13.09.2021

Rætt er við Jón S. Magnússon sem byrjaði sitt flugnám á Íslandi á áttunda áratugnum og hélt síðan áfram flugnáminu í bandaríska sjóhernum. Hann er líkega einn fárra ef ekki eini Íslendingurinn sem hefur flogið í US Navy. Hann segir hér frá stórmerkilegum ferli, hvernig það var að vera í sjóhernum og t.d. að lenda á flugmóðurskipi. Jón átti einnig yfir 30 ára flugmannsferil hjá Northwest Airlines o...

#32 –Í farabroddi í innanlandsflugi – Sigurður Aðalsteinsson 19.06.2021

Sigurður Aðalsteinsson segir hér frá upphafsárum sínum í fluginu á Akureyri, þegar hann ásamt fleirum keypti Norðurflug af Tryggva Helgasyni flugstjóra og læriföður sínum. Til varð Flugfélag Norðurlands sem Sigurður tók þátt í að reka í nærri aldarfjórðung frá 1974 til 1997 og skilur eftir sig merkileg spor í flugsögunni. Hann var einnig annar tveggja stofnenda Austurflugs á Egilsstöðum og sinnti...

#31 – Þrautgóður á raunastund - Björn Pálsson sjúkraflugmaður 02.06.2021

Þátturinn er tileinkaður Birni Pálssyni flugmanni. Saga hans er ein merkasta saga íslensks flugmanns því líf hans og flugmannsstarf var helgað því að koma fólki til hjálpar í neyð og að hjálpa veikum og slösuðum. Björn varð þjóðkunnur fyrir frumkvöðlastarf sitt sín við sjúkraflugið og þeir voru margir sem áttu honum líf sitt að launa. Í heilan áratug frá 1950 til 1960 flaug Björn sjúkraflug á eins...

#30 – Icelandair í gang á ný – Bogi Nils Bogason 19.05.2021

Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair Group um stöðuna og sóknarfærin framundan. Icelandair er að koma starfseminni í gang aftur eftir erfiða tíma. Félagið er að fjölga flugferðum hratt og bæta við starfsfólki því eftirspurn eftir flugi er að aukast. Bogi ræðir hér um aukna möguleika með tilkoma Max vélanna, sem eru að nýtast enn betur en reiknað hafði verið með inn í leiðakerfi félag...

#29 – Ferðaviljinn og frelsi að aukast – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir 27.04.2021

Það er útlit fyrir viðspyrnu í ferðaþjónustunni á næstu mánuðum og af því tilefni er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra gestur í þætti #29. Hún segir ferðaþjónustufyrirtækin merkja aukna eftirspurn á næstunni samhliða auknum bólusetningum og meira frelsi til ferðalaga milli landa. Reynsla stjórnvalda af því að opna landamærin fyrir fólki með bólusetningarvottorð er mjög góð og...

#28 – Air Atlanta á fullu í faraldrinum– Baldvin Már Hermannsson forstjóri 14.04.2021

Rætt er við Baldvin Má Hermannsson ungan forstjóra Air Atlanta sem hefur á síðustu tveimur áratugum unnið fjöbreytt störf í fluginu og unnið sig til metorða innan fyrirtækisins. Hann segir hér frá þeim ótrúlegu áskorunum sem Air Atlanta hefur staðið frammi fyrir síðustu misserin og gerir enn. Air Atlanta flutti árið 2019 yfir 1,2 milljónir farþega en þegar eftirspurn eftir farþegaflugi hrundi vegn...

#27 – Flugævintýri í Landgræðslu - Páll Halldórsson og Sveinn Runólfsson 31.03.2021

Rætt er við Pál Halldórsson flugmann og fyrrum flugstjóra hjá Landhelgisgæslunni og Svein Runólfsson fyrrum Landgræðslustjóra. Tilefnið er að þeir félagar hafa tekið saman efni í glæsilega bók sem er að koma út um hið stórmerkilega ævintýri sem unnið var á eins hreyfils flugvélum við að græða upp örfoka land á árunum 1958 til 1992. Þeir Páll og Sveinn segja hér stuttlega frá þessu merka frumkvöðla...

Écoute le podcast Flugvarpið sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics