Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : www.spreaker.com
Auteur
Thorarinn Hjartarson
Catégorie
Site du podcast
Dernier épisode
23 oct. 2026
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Prófkjörsþáttur - Sjálfstæðisflokkurinn (Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir) 15.03.2022 59:20
Dagana 18-19 mars næstkomandi munu Ragnhildur Alda vilhjálmsdóttir og Hildur Björnsdóttir etja kappi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sigurvegarinn mun síðan leiða flokkinn í næstkomandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara þann 14. maí. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Öldu um hennar áherslur og afhverju hún telur sig betur í stakk búna til þess að leiða flokkinn í þessum kosningum...
Borgarstjórnarkosningar 2022 - Samfylkingin (Dagur B. Eggertsson) 14.03.2022 51:33
Þórarinn ræðir við Dag. B. Eggertsson Borgarstjóra. Dagur skrifaði nýverið bók sem nefnist Nýja Reykjavík. Rætt er um bókina og komandi borgarstjórnakosningar þar sem að Dagur ætlar að bjóða sig fram fyrir Samfylkinguna. Farið er yfir skipulags- og húsnæðismál, hvort Samfylkingin ætlar að breyta sínum áherslum vegna útkomu í síðustu alþingiskosningum, velferðarmál og fleira. Að lokum spyr Þórarinn...
#127 Innrásin í Úkraínu - Menning og saga (Viðtal við Jón Ólafsson) 10.03.2022 42:15
Jón Ólafsson er prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Rússlands. Í þessu hlaðvarpi er rætt um þau menningarlegu og sögulegu áhrif sem stríðið mun koma til með að hafa í alþjóðakerfinu. Rætt er um stöðu Rússa frá falli múrsins, appelsínugulu byltinguna í Úkraínu og hvort að til sé sú lausn sem að allir sem í hlut eiga geti sætt sig við.
#126 Hvað ætlar Pútín sér í Úkraínu? (Viðtal við Sigurð Má Jónsson) 05.03.2022 25:30
Www. Patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Sigurð Má Jónsson á áttunda degi innrásar Rússa í Úkraínu. Sigurður hefur skrifað pistla um málefni Rússa og Pútín undanfarin og að Pútín sé hættulegasti maður í heimi. Umræðuefnin snúa að stöðu Rússa í alþjóðakerfinu, leikjafræðilega möguleika Rússa, viðbrögð Vestrænna þjóða og áhrif efnahagsþvinanna, falsfréttir og fleira.
#125 Excellent sheep - Is the education system failing the young? (with Bill Deresiewicz) 03.03.2022 49:46
Bill Deresiewicz is a former Yale professor who wrote a book about the failures of the elite education institutions in the West called Excellent Sheep: The Miseducation of the American elite and the way to a meaningful life. In this podcast, Þórarinn speaks with Bill about how he perceives the problem today, who are these excellent sheep, the grade-inflation, wokeism and its implications on free s...
#124 Hvaða upplýsingar eiga erindi við almenning? (Viðtal við Jakob Bjarnar) 27.02.2022 1:04:22
Þórarinn ræðir enn og aftur við Jakob Bjarnar um hvers konar upplýsingar eiga erindi við almenning. Fjórir blaðamenn eru sakborningar í stórfurðulegu máli sem snýr að byrlun, símastuldi og kynferðisbroti. Umræðurnar snúa að þessu máli, viðbrögðunum við því, mikilvægi fjölmiðla, dagskrárvaldi, femínisma og fyrirvarapólitík. Þetta viðtal var tekið upp þann dag sem Rússar ákváðu að gera innrás í Úkra...
#123 Innrás í Úkraínu - Leikjafræði, hagsmunir og saga (Viðtal við Brynju Huld Óskarsdóttur) 25.02.2022 25:25
www.patreon.com/einpaeling Brynja Huld er öryggis- og varnamálfræðingur sem hefur meðal annars starfað fyrir NATO í Afghanistan. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Brynju Huld um innrásina í Úkraínu út frá leikjafræðilegri strategíu. Annars vegar frá sjónarhorni Rússa og hins vegar NATO. Rætt er um fölsk loforð og rauðar línur, breytta heimsmynd, lýðræðisvæðingu og einræði.
#122 Kynferðisafbrot, ásakanir og #MeToo (Viðtal við Unnar Karl Halldórsson) 20.02.2022 1:09:23
Þórarinn ræðir við Unnar Karl Halldórsson um pistla sem hann hefur skrifað til stuðnings við þolendur kynferðisafbrota. Pistlarnir hafa náð mikilli athygli en Unnar talar hispurslaust um þessi mál. Rætt er um ásakanir, #metoo hreyfinguna, pólitík, hagsmunabaráttu og fleira.
#121 Samgöngur, borgarlína og Samherji (Viðtal við Arnar Þór Ingólfsson) 17.02.2022 22:42
www.patreon.com/einpaeling Arnar Þór Ingólfsson er rísandi stjarna í blaðaheiminum. Nýlega var honum tilkynnt að hann væri sakborningur í máli sem tengist starfsmanni Samherja. Hér er tæpt á því og jafnframt spurt hvort hlaðvörp séu fjölmiðlar. Samtalið snýst þó aðallega um samgöngumál, borgarlínu og borgarstjórnarpólitík. Rætt er um bílamenningu, kostnað við borgarlínu, rask vegna þéttingar byggð...
#120 Hagfræðisnilldin fæddist ekki í fundarherbergi í Valhöll (Viðtal við Sigmar Guðmundsson) 13.02.2022 58:43
Sigmar Guðmundsson hefur gagnrýnt stjórnvöld undanfarið vegna ýmissa ákvarðanna sem teknar hafa verið í efnahagsmálum. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Sigmar um húsnæðismál, velferðarmál og heimspekina bakvið jöfnuð og skiptingu auðs.
#119 Kjaraviðræður og hagsmunabarátta (Viðtal við Halldór Benjamín Þorbergsson) 09.02.2022 24:09
Þórarinn ræðir við Halldór Benjamín Þorbergsson, formann Samtaka Atvinnulífsins. Rætt er um stöðu SA í atvinnulífi og hagsmunabaráttu launþega, næstkomandi kjarabaráttu, kaupmátt, krónutöluhækkanir, húsnæðismál og fleira. Að lokum er snert á þeim áherslum sem að Halldór telur að Íslandi þurfi að leggja í þróun atvinnulífsins og tengsl þess við akademíuna.
#118 Kóvid, velferðarsamfélag og PC-menning (Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur) 06.02.2022 1:03:42
Þórarinn ræðir við Kristrúnu Frostadóttur um hvernig sé að starfa á Alþingi, efnahagshorfur fyrir og eftir kóvid, kostnaðinn sem fylgir því að reka gott velferðarsamfélag og fleira. Undir lok samtalsins ræðir Þórarinn við Kristrúnu um rétttrúnaðarvæng Samfylkingarinnar og hvort að flokkurinn þurfi að móta áherslurnar til þess að breiða út faðminn til ólíkarri hópa.
#117 Jafnréttisiðnaðurinn, #MeToo, kynjafræði og öfgar (Viðtal við Evu Hauksdóttur) 04.02.2022 24:17
Þórarinn ræðir við Evu Hauksdóttur um ærumeiðingar og ásakanir um kynferðisbrot, brotaþola sem aðila máls, jafnréttisiðnaðinn, femíniskar rannsóknir, samhengi brota, pottormamálið og torskiljanleg hugtök.
#116 Ríkisfjármál - Aðföng, framboð og peningaprentun (Viðtal við Ólaf Margeirsson) 27.01.2022 21:44
Þórarinn ræðir við Ólaf Margeirsson um ríkisfjármál og stefnu ríkisstjórnarinnar í þeim efnum. Rætt er um hvort Landspítalinn geti ráðið til sín það starfsfólk sem að hann þarf, peningarprentun og hvernig ríkið kveikir í peningum, hvort skuldir ríkissjóðs séu áhyggjuefni, vermætasköpun þegar kaupmáttur verður of mikill og pólitískan hvata ríka fólksins til þess að halda húsnæðisverði háu.
#115 Omicron breytti öllu og Ísland þarf nýja nálgun í baráttunni við Covid-19 (Viðtal við Ragnar Frey Ingvarsson) 23.01.2022 52:26
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Ragnar Frey Ingvarsson um Covid-19. Ragnar hefur farið mikinn undanfarið en hann telur Omicron breyta faraldrinum og að meta þurfi stöðuna upp á nýtt. Þórarinn ræðir þessi mál við hann. Rætt er um hvernig Covid-deildin var stofnuð. Hvort að við myndum koma til með að bregðast við veiru á borð við Omicron með jafn hörðum aðgerðum í framtíðinni, ógreind...
#114 Lýsir Verbúðin raunveruleikanum? (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson) 22.01.2022 55:43
www.patreon.com/einpaeling Verbúðin eru þættir sem sýndir eru á RÚV um þessar mundir. Þættirnir sýna íslenskt samfélag um það leyti sem núverandi kvótakerfi í fiskveiðum var tekið upp. Þórður Snær skrifaði beinskeyttan pistil um þættina. Í pistlinum lýsir hann hvernig íslenskt sjávarútvegskerfi hefur þróast frá þessum árum og hvernig málunum er háttað í dag. Þórarinn ræðir við Þórð um bæði þættina...
#113 Pottormar, #MeToo og uppbyggileg réttvísi (Viðtal við Margréti Valdimarsdóttur) 15.01.2022 1:09:36
Margrét Valdimarsdóttir er afbrotafræðingur og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri. Kristín og Þórarinn ræða við Margréti um pottormana sem komust með nýjum hætti í sviðsljósið þegar að ung kona, Vítalía Lazareva, steig fram og lýsti atburðarrás í heitapotti með þeim við sumarbústað. Umræðurnar snúa að stöðu fjölmiðla í kynferðisafbrotamálum, valdaójafnvægi, persónufrelsi, fórnarkostn...
#112 Elítur og valdakerfi á Íslandi (Viðtal við Gunnar Helga Kristinsson) 13.01.2022 31:20
Gunnar Helgi Kristinsson er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Í nýrri bók Gunnars fjallar hann um elítur á Íslandi, hvernig mismunandi elítuhópar tengjast og um áhrif þeirra á samfélagið. Í þessu hlaðvarpi ræðir Þórarinn við Gunnar um hvað sé elíta, hverjir á Íslandi tilheyri þeim hópi, um muninn á lokuðum og opnum elítukerfum, hvort hægt sé að verja pólitískar stöðuveitingar, um fj...
#111 Að upplifa stríð (Viðtal við Jasmínu Vajzovic Crnac) 08.01.2022 22:09
www.patreon.com/einpaeling Á árunum 1992 til ársins 1995 geysuðu hryllileg átök í Bosníu. Þetta voru umbreytingatímar þar sem mikil spenna í Júgóslavíu leiddi til stríðs, þjóðarmorðs, nauðgunarbúða og annarskonar hroðaverka. Jasmina Vajzovic Crnac kom ung að aldri til Íslands sem flóttamaður eftir að hafa þurft að flýja Bosníu. Í þessu viðtali lýsir Jasmína upplifuninni af því að búa við stríðsást...
#110 Nýársþáttur 2022 01.01.2022 41:06
Þórarinn, Eyþór og Ívar Elí ræða ýmis mál sem áttu upp á pallborðið árið 2021. Rætt er um KSÍ, #MeToo, samfélagsmiðla, stöðu landspítalans, hvort að hægt sé að taka viðtal við Sölva Tryggva og fleira.
#109 Hentifræði og rétttrúnaður (Viðtal við Ivu Marín Adrichem) 26.12.2021 24:17
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Ivu Marín Adrichem um hentifræði og rétttrúnað. Rætt er um öflun upplýsinga, kynjafræði, það að framboð slæmra einstaklinga svarar ekki eftirspurn rétttrúnaðarriddara, get-in-lineisma, narratív stjórnun og transmál. www.patreon.com/einpaeling
#108 KSÍ og #MeToo (Viðtal við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur) 22.12.2021 1:22:02
Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur um KSÍ málið og hvernig það er að vera ungur fótboltamaður, #MeToo, rangar sakagiftir,vændi, hvort að það megi misstíga sig, fylgni föðurleysis og þess að gerandi sé sjálfur fórnarlamb kynferðisofbeldis og menningu.
#107 Útþynning orða (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson) 19.12.2021 1:01:09
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir enn og aftur við Jakob Bjarnar. Að þessu sinni snýr umræðuefnið að útþynningu orða en Jakob telur rétttrúnaðariðnaðinn fremja hryðjuverk gegn tungumálinu í sínum aðgerðum. Rætt er um Megas, nauðgunarmenningu, femínisma og framtíð grínista. www.patreon.com/einpaeling
#106 Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi (Viðtal við Mána Pétursson) 16.12.2021 49:13
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Mána Pétursson en Máni er þekktur fyrir að hafa haldið úti útvarpsþættinum Harmageddon ásamt Frosta Logassyni um margra ára skeið. Máni hefur ákveðið að gefa út bók sem ber heitið "Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi". Bókin er sjálfshjálparbók fyrir karlmenn sem telja sjálfshjálparbækur vera fyrir aumingja. Tvímenningarnir ræða skilaboð bókarin...
#105 Er Ísland í stöðu til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda? (Viðtal við Albert Jónsson) 10.12.2021 22:07
www.patreon.com/einpaeling Þórarinn ræðir við Albert Jónsson um alþjóðastjórnmál og loftslagsbreytingar. Tvímenningarnir ræða landfræðilega stöðu Íslands, Norðurslóðir og mögulegar nýjar siglingaleiðir, harðnandi deilur Kína og Bandaríkjanna, kjarnorkuvopn, flóttafólk og fleira. Um miðbik samtalsins færast umræðurnar í átt að loftslagsbreytingum. Albert telur að staða Íslands bjóði ekki upp á marg...
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics