Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : www.spreaker.com
Auteur
Thorarinn Hjartarson
Catégorie
Site du podcast
Dernier épisode
21 oct. 2026
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
#392 Agnar Tómas Möller - Pendúlsveiflan til hægri verður ekki stöðvuð 13.02.2025 1:03:40
Þórarinn ræðir öðru sinni við Agnar Tómas Möller um hin ýmsu mál. Sérstök áhersla er lögð á breytt umhverfi stjórnmálanna í heiminum og hvernig pendúllinn virðist ætla að sveiflast langt til hægri eftir langt skeið vinstri stjórnmála. - Hver er framtíð Evrópu? - Er MEGA á leiðinni? - Hvað ætlar Trump sér að gera með tollastríðinu? Þessum spurningum er svarað hér.
#391 Diljá Mist og Jakob Birgisson - Valkyrjuelskendur 09.02.2025 55:04
Þórarinn ræðir við Diljá Mist Einarsdóttur og Jakob Birgisson um stöðu stjórnmálanna. Til að styðja þetta framtak og fá þáttinn á undan öðrum má fara á www.pardus.is/einpaeling.
#390 Hörður Arnarsson - Vond staða í orkumálum komin til vegna meðvirkni gagnvart minnihlutahópum 06.02.2025 54:45
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunnar, mætir öðru sinni til þess að ræða stöðuna í orkumálum. Hann telur vonda stöðu í orkumálum komna upp og ástæðuna segir hann vera meðvirkni gagnvart minnihlutahópum sem hafa aðgengi að fjölmiðlum, sem dansa í takt. Staða Hvammsvirkjunnar sé mikið bakslag og mikilvægt sé að kippa leyfinu í liðinn eins fljótt og auðið er. Ellegar sé staðan orðin alvarleg. Ti...
#389 Helgi Hrafn Gunnarsson - Upplýsingahernaður og skömm 28.01.2025 1:20:27
Þórarinn ræðir við Helga Hrafn Gunnarsson, fyrrum þingmann Pírata, um stjórnmálin í dag, upplýsingahernað, Rússland, tjáningarfrelsi, lýðræði, skömm, heiðursglæpi og margt fleira. - Ætlar Helgi Hrafn aftur á þing? - Stendur lýðræðissamfélögum ógn af trúarbrögðum? - Eru Rússar þeir einu sem stunda upplýsingahernað? Þessum spurningum er svarað hér.
#388 Trausti Breiðfjörð - Hægrimenn flytja útlendingavandann inn 22.01.2025 1:07:00
Þórarinn ræðir við sósíalistann Trausta Breiðfjörð en hann hefur verið virkur í starfi sósíalistaflokksins og setið sem borgarfulltrúi í Reykjavík. Þá er rætt um símanotkun, sósíalisma, kapítalisma, fjölmenningu, heiðursmenningu, bresk kynferðisafbrotagengi, örorku og margt fleira. - Eru hægrimenn að flytja inn útlendingavandann? - Er fjölmenning komin til að vera? - Afhverju er örorka að aukast...
#387 Ísak Rúnarsson - Styður ný ríkisstjórn við verðmætasköpun? 21.01.2025 58:17
Þórarinn ræðir við Ísak Rúnarsson, forstöðumann málefnasviðs Samtaka atvinnulífsins. Í þættinum er lögð sérstök áhersla á hvaða undirstöður þurfi að vera til staðar til þess að ríki ná árangri og er bókin Why Nations Fail notuð til þess að fjalla um þau mál. Í því samhengi er rætt um atvinnufrelsi, Milton Friedman, kerfislega þætti verðmætasköpunar, fjölmenningu, kulnun, strandveiðar, fiskeldi og...
#386 Brynjar Níelsson - Ríkið er ekki lausnin 15.01.2025 1:53:52
Þórarinn og Brynjar tylla sér og ræða hin ýmsu mál. Í fyrstu er fjallað um það afhverju það er gott að búa á Íslandi og formann Sjálfstæðisflokksins. Í kjölfarið er rætt um vanda Sjálfstæðisflokksins, kulnun, nýja ríkisstjórn, fjölmenningu, stjórn Reykjavíkurborgar, spillingu, skólamál, lyfjanotkun barna, væl innan veggja háskólanna og margt fleira. - Er hægt að taka mark á háskólagráðum? - Er Ísl...
#385 Sigurður Anton - Hvað er fasismi? 11.01.2025 1:53:02
TikTokstjarnan Sigurður Anton vakti mikla athygli í aðdraganda nýliðinna alþingiskosninga þar sem hann ræddi um fasisma, stjórnmálin, nýfrjálshyggju og fleira. Í þessum þætti er rætt um þau mál ásamt fyrirtækjaeign verkafólks, kynferðisafbrotahringi í Bretlandi, kynjamál og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling
#384 Sölvi Tryggvason - Sjálfsábyrgð, RÚV og Donald Trump 05.01.2025 1:07:41
Sölvi Tryggvason, hlaðvarpsstjórnandi með meiru, spjallar við Þórarinn um stjórnmálin á Íslandi, hugarfar, heilsu, Donald Trump, RÚV og margt fleira. - Afhverju klárar RÚV ekki umfjöllunina um Sölva Tryggvason? - Sölvi Tryggvason er spenntur að sjá breytingarnar sem Donald Trump og Robert F. Kennedy munu gera. - Myndi Sölvi starfa hjá RÚV fyrir þrjár milljónir á mánuði? Þessum spurningum er svarað...
#383 Björn Jón Bragason - Sjálfshatur hins Vestræna heims 30.12.2024 1:12:40
Björn Jón Bragason mætir í settið og ræðir hina ýmsu hluti. Meðal annars mannréttindi, stjórnmálin á Íslandi, hugarfar, hægribylgju ungs fólks, menningarlega afstæðishyggju, vinstri róttækni og Vestræn Gildi. - Fylgja því engar kröfur að gerast íslenskur ríkisborgari? - Er hægribylgja ungs fólks óumflýjanleg? - Er menningarleg afstæðishyggja fyrirlitlegri en aðrar syndir? Þessum spurningum er svar...
#382 Albert Jónsson - Ísland geti ekki sturtað niður efnahagi landsins í þágu loftslagsaðgerða 26.12.2024 1:05:34
Þórarinn ræðir við Albert Jónsson, sérfræðing í málefnum alþjóðasamskipta ásamt því að hafa verið ráðgjafi á hinum ýmsu sviðum í öryggis- og varnarmálum fyrir sendiherra og ráðherra. Í þessum þætti er rætt um átök í Sýrlandi, hagsmuni Íslands í breyttum heimi og sérstöðu Íslands í loftslagsmálum
#381 Sigríður Mogensen - Orkumálastjóri skaðaði umræðuna um orkumál 23.12.2024 59:43
Þórarinn ræðir við Sigríði Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI og formaður ráðgjafarnefndar EFTA, um iðnað á Íslandi. - Hvernig skaðaði Halla Hrund Logadóttir, fyrrum orkumálastjóri, umræðuna um orkumál? - Er Íslandi betur borgið innan ESB? - Mun Valkyrjustjórnin vera stjórn verðmætasköpunnar? - Afhverju er erlend fjárfesting álitin tortryggileg? Þessum spurningum, og fjölmörgum f...
#380 Björn Berg Gunnarsson - Jólahagfræði, verðmætasköpun og ábyrgð foreldra 21.12.2024 1:06:58
Þórarinn ræðir við Björn Berg Gunnarsson, ráðgjafa, rithöfund og fyrirlesara, um jólahagfræði, ábyrgð foreldra, stjórnmálin og margt fleira. - Ætla foreldrar að bíða eftir því að kerfið kenni börnunum að reima skóna? - Er skynsamlegt að taka Netgíró lán? - Mun Valkyrjustjórnin leggja grunn að verðmætasköpun? Þessum spurningum er svarað hér.
#379 Halldór Armand - Hugmyndafræði kraumar undir öllu í samfélaginu 19.12.2024 1:02:57
Halldór Armand skrifaði nýlega bók sem að heitir Mikilvægt rusl og fjallar um sorphirðufólk á tímum hrunsins. Í upphafi hlaðvarpsins er rætt stuttlega um bókina en þorri hlaðvarpsins fer í að ræða listamannalaun, hugmyndafræði og stjórnmálin. - Er maður líklegri til að fá listamannalaun ef maður skrifar um loftslagskvíða á Gaza? - Eru stjórnmálaflokkar raunverulega femínískir? - Er fyrirtækjum á Í...
#378 Gummi Hafsteinsson - Gervigreind: Framþróun og glötuð tækifæri 17.12.2024 1:06:12
Guðmundur Hafsteinsson, eða Gummi, hefur gefið út bók sem ber heitið Gummi. Í bókinni fjallar hann um litríkan feril í tæknigeiranum en hann kom að vinnslu Siri, Google Maps og fjölda annarra smáforrita í vinnu sinni fyrir stærstu fyrirtæki heims í tæknigeiranum, bæði Apple og Google. Í þessum þætti er farið yfir vítt svið og Guðmundur spurður eftirfarandi spurninga: - Verður Evrópa eftirbátur fra...
#377 Jakob Birgisson - Kerfið, kulnun síminn og Flokkur fólksins 15.12.2024 1:24:24
Þórarinn og Jakob Birgisson fara um víðan völl. Í upphafi er rætt um stjórnmálin og úrslit kosninganna, trúverðugleika flokkanna, símanotkun barna, kulnun, bakslagið og margt fleira.
#376 Erna Mist - Listin á ekki að vera trójuhestur hugmyndafræði 13.12.2024 1:14:36
Erna Mist, listmálari, mætir til þess að ræða hina ýmsu hluti er varðar list. Fjallað er um stjórnmálin, rétttrúnaðinn, menningarminni, athyglishagkerfið, listamannalaun og margt fleira. - Hvað þýðir það þegar höfuðborgin hættir að vera íslensk? - Er list nútímans trójuhestur hugmyndafræði? - Geta unglingar höndlað farsíma athygliskerfisins?
#375 Þórður Gunnarsson - Vinstristjórn myndi auka hægrisveifluna 09.12.2024 1:01:37
Þórður Gunnarsson er hlustendum kunnugur, hagfræðingur sem hefur marga hatta. Að þessu sinni er rætt um niðurstöður kosninga, orkumál, vinstrið, borgarlínu og margt fleira. - Er loftslagsiðnaðurinn innihaldslaus kjaftaklúbbur? - Mun Dagur B. taka við Samfylkingunni? - Hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus...
#374 Björgvin Ingi Ólafsson - Ráðleggingar til næstu ríkisstjórnar 07.12.2024 1:32:10
Björgvin Ingi Ólafsson er meðeigandi hjá Deloitte á Íslandi og sinnir hinum ýmsum verkefnum sem ráðgjafi hjá hinu opinbera og víðar. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við hann um úrslit kosninganna, ráð til næstu ríkisstjórnar, Willum Þór og árangur í heilbrigðiskerfinu, ESB, gervigreind, nýsköpun og skólakerfið.
#373 Þorsteinn V. Einarsson - Kosningahlaðvarp 29.11.2024 1:25:22
Þórarinn ræðir við Þorstein V. Einarsson, frumkvöðul á sviði kynjamála og hlaðvarpsstjórnandi. Fjallað er um hina ýmsu hluti er varðar kosningarnar en stór hliðarskref einnig tekin. Rætt er um Miðflokkinn, Vinstri Græna, hvaða flokkar geti talist femíniskir, og: Er kynjafræði vísindagrein? #MeToo Vísindaleg vinnubrögð Hvernig horfir búrkan við Þorsteini Rasismi Rétttrúnaður Woke Margt fleira. Njót...
#372 Víðir Reynisson (S) - Alþingiskosningar 2024 28.11.2024 1:07:20
Þórarinn ræðir við Víði Reynisson, oddvita Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi um: - Útlendingamál og landamærin - Ferðaþjónustuna - Stjórnmálin og jafnaðarmennsku - ESB - Flugvöllinn í Reykjavík - Margt fleira. Njótið!
#371 Diljá Mist Einarsdóttir (D) - Alþingiskosningar 2024 27.11.2024 1:12:18
Diljá Mist Einarsdóttir mætir í settið til þess að ræða áherslur Sjálfstæðisflokksins. Fjallað er um jafnlaunavottun, sem að Diljá kallar "láglaunavottun", Viðreisn, Samfylkinguna, vinstrið, fjölmenningu, útlendingamál, efnahagsmál og margt fleira.
#370 Alma Möller - (S) Alþingiskosningar 2024 26.11.2024 59:54
- Hver er stefna Samfylkingarinnar í einkarekstri heilbrigðiskerfisins? - Er kerfið að fara að laga kerfið? - Hversu mikið fjármagn þarf heilbrigðiskerfið? Þessum spurningum og fjölmörgum fleirum er svarað í þessum þætti!
#369 Arnar Þór Jónsson (L) - Alþingiskosningar 2024 25.11.2024 59:34
- Eru allir flokkar á þingi spilltir? - Afhverju eru fjármunir sem varið er í loftslagsaðgerðir sóun? - Eru fjölmiðlar á móti Arnari Þór? Þessum spurningum er svarað í þessum þætti.
#368 Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (B) - Alþingiskosningar 2024 24.11.2024 55:15
- Gekk #MeToo of langt? - Skjátlast héraðsdómi um búvörulögin? - Er fiskeldi nauðsynleg forsenda fyrir blómlegt líf á Vestfjörðum? Þessum spurningum og fjölmörgum öðrum er svarað í þessu viðtali við frambjóðanda Framsóknar í Reykjavík Norður, Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur.
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics