Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : www.spreaker.com
Auteur
Thorarinn Hjartarson
Catégorie
Site du podcast
Dernier épisode
21 oct. 2026
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
#450 Jónas Atli Gunnarsson - Hækkun húsnæðisverðs hefur áhrif á fjölskyldumynstur framtíðarinnar 30.07.2025 1:04:32
Þórarinn ræðir við Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, um uppbyggingu húsnæðis. Fjallað er um þau áhrif á fasteignamarkaðinn sem kunna að eiga sér stað vegna dræmrar sölu á nýbyggingum. Rætt er um ýmsa þætti sem kunna að hafa áhrif á þessa stöðu líkt og hlutdeildarlán, lækkun stofnkostnaðar fyrir óhagnaðardrifna úrræða, stjórnmálin, hvort að HMS sé pólitísk stofn...
#449 Þórður Gunnarsson - Spurning hvað Flokkur fólksins þolir lengi að fá ekkert í gegn 28.07.2025 1:07:09
Þórarinn ræðir við hagfræðinginn Þórð Gunnarsson um ýmis málefni. Rætt er um stjórnmálin á Íslandi, breytta stöðu í útlendingamálum og orkumálum, vindorku, orkutilraunir á Spáni, stöðu vinstrisins, Sjálfstæðisflokkinn og margt fleira. - Afhverju vill enginn hlusta lengur á Landvernd? - Hversu lengi þolir Flokkur fólksins að fá ekkert í gegn? - Er Kristrún Frostadóttir besti leiðtogi Íslandssögunna...
#448 Jasmína Crnac - Hvernig er hægt að eiga samtal um útlendingamál? 24.07.2025 1:16:33
Þórarinn ræðir við Jasmínu Crnac sem hefur bæði reynslu af því að vera flóttamaður og starfa með flóttafólki hér á landi. Fjallað er um hinar ýmsu áskoranir sem mæta löndum sem taka á móti flóttafólki og hvaða áhrif almenningsumræður hafa á málaflokkinn. Rætt er um menningu, stjórnmálin, lýðræði, MENAPT löndin, hvort að endurkomubann eigi að vera á afbrotamenn, öfgaöfl á Íslandi, ofþjónustu og fy...
#447 Jóhanna Jakobsdóttir - Woke-ið er yfirstéttardekur 19.07.2025 1:06:57
Þórarinn ræðir við Jóhönnu Jakobsdóttur, skjalaþýðanda, um tungumálið, rétttrúnaðinn, stjórnmálin, triggerwarning, transmál og áhrif skoðunarkúgunar. Rætt er sérstaklega um stjórnlyndi latra einstaklinga sem að vilja ekki verja eigin skoðanir. Uppeldismál koma einnig upp og rætt hvaða áhrif það hefur ef börn öðlast ekki skráp áður en komið er á fullorðinsár og hvernig þau verða ósjálfbjarga. Trig...
#347 Daníel Jakobsson - Fiskeldi besta leiðin til að auka útflutningsverðmæti 17.07.2025 1:05:08
Þórarinn ræðir við Daníel Jakobsson, forstjóra Arctic Fish, á Ísafirði um fiskeldi, samfélagslega ábyrgð, Þingeyri, veiðigjöldin, stjórnmálin og margt annað. Rætt er sérstaklega um áhrif veiðigjaldsins á Ísafjörð, ákvörðun Arctic Fish að leggja niður fóðurstöðina á Þingeyri, áhrif fiskelda á nærumhverfi og sjávarbotn fjarðanna þar sem þau eru starfrækt, dýraníð og áhrif á laxveiðiár. Einnig er ræt...
#446 Páll Heiðar Pálsson - Hið opinbera á að vera lausnin, en er vandamálið 11.07.2025 1:03:19
Páll Heiðar er fasteignasali og eigandi stofunnar pallpalsson.is. Í þessum þætti er rætt um fasteignamál og rýnt í virðiskeðju húsnæðisuppbyggingar. Fjallað er um lóðaskort, stjórnmálin, stöðu verktaka, afhverju fólk kýs að nýta þjónustu fasteignasala, hver er munurinn á að selja nýbyggingu og annað húsnæði og hvaða áhrif kulnun á markaði muni koma til með að hafa til lengri tíma og verðbil nýrra...
#445 Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller - Ríkjandi hugmyndafræði menntaelítunnar er skemmdarstarfsemi 09.07.2025 1:31:53
Þórarinn ræðir við Björn Jón Bragason og Agnar Tómas Möller um tengsl þekkingar, efnahagslegs frelsis og pólitísks frelsis. Sérstök áhersla er lögð á menningu og menntakerfið sem undirstöður framfara í nútímasamfélagi. Þremenningarnir vara við að óveðurský séu farin að hrannast upp og að verði ekki gripið í taumana muni þróunin leiða til minni velsældar fyrir komandi kynslóðir. Hugleiðingarnar eru...
#434 Ævar Sveinn Sveinsson - Sveitarfélögin ábyrg fyrir fasteignaskorti og hárri verðbólgu 05.07.2025 1:04:54
Þórarinn ræðir við Ævar Svein Sveinsson, húsasmiðameistara og verktaka um húsnæðisuppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu. Fjallað er sérstaklega um þau atriði sem að viðhalda skorti á húsnæði og hvað veldur því að ákveðnar íbúðir seljast ekki. Ævar Sveinn telur að afköst þeirra sem starfa við húsnæðisuppbyggingu sé ekki nálægt því sem hún gæti verið. Ástæðan sé einföld; ákvarðanir stjórnvalda. Þétting...
#433 Gunnar Smári Egilsson - Yfirtaka hýenuhvolpa á Sósíalistaflokknum 02.07.2025 1:06:31
Þórarinn ræðir við Gunnar Smára Egilsson um stöðu sósíalisma á Íslandi í samhengi við yfirtöku nokkurra aðila á Sósíalistaflokknum nýverið. Rætt er um hugmyndafræðina, pólitíkina, hvort að Gunnar sér sár yfir því að hafa verið bolað út, hvort að byltingin éti alltaf börnin sín, staða Samfylkingarinnar, stöðu vinstrisins, peninga Sósíalistaflokksins og hvort að Gunnar Smári sé hættur í stjórnmálum....
#432 Frosti Logason - Þversagnir og fráhvarf rétttrúnaðarins 30.06.2025 1:12:02
Þórarinn ræðir við Frosta Logason, fjölmiðlamann með meiru sem stýrir þáttum ða Brotkast.is. Fjallað er um hvernig rétttrúnaðurinn náði tökum á akademíu í Vestrænum háskólum og leikhúsinu, uppruna woke-sins í samhengi við Frankfurtar Háskólann, Ísrael, Íran og Írak, #MeToo, innflytjendamál og Vestræn gildi. - Afhverju kemur straumur fólks til Evrópu sem hatar Evrópsk gildi? - Hver er afrakstur #Me...
#431 Sigríður Á Andersen - Fengjum legusár við borðið í ESB 26.06.2025 1:12:24
Þórarinn ræðir við Sigríði Á Andersen, þingmann Miðflokksins um stjórnmálin á Íslandi, veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar og bókun 35. Rætt er sérstaklega um áhrif veiðigjaldafrumvarpsins á byggðir út á landi og hvort að það muni koma til með að skila árangri þegar allt kemur til alls. Einnig er rætt um réttaráhrif Bókunar 35 á dómskerfið á Íslandi, hvort að aðrar reglur þurfi að lúta í lægra...
#430 Teitur Atlason - Vinstrimenn skapa öfgahægrið með rasistastimplinum 23.06.2025 1:12:43
Þórarinn og Teitur Atlason ræða hreinskilningslega um hælisleitendamál á Ísland og í Evrópu. Fjallað er um flóttafólk í samhengi við velferðarkerfið og vakiðathygli á ýmsum málum er varðar sumarfrí flóttafólks til heimalands sem það er að flýja, atvinnuþátttöku í Evrópulöndum, öfgahreyfingar og vinstrið, hópinn Ísland þvert á flokka og margt fleira. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur he...
#429 Diljá Mist Einarsdóttir - Við mætum ekki ómenningu á miðri leið 21.06.2025 40:22
Diljá Mist Einarsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Í þessum þætti er rætt um ýmsa hluti. Meðal annars Facebook, stjórnmál á Íslandi, stöðu kvenna í Mið-Austurlöndum, tvískinnung femínista og margt fleira. - Eigum við að koma til móts við ómenningu? - Afhverju eru femínistar tilbúnar að styðja íhaldssöm gildi er varðar klæðaburð kvenna? - Er ný ríkisstjórn að gera allt sem síðasta ríkisstjó...
#428 Gunnar Úlfarsson - Svartir sauðir þrífast best á opinberum vinnumarkaði 18.06.2025 1:09:10
Þórarinn ræðir við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá Viðskiptaráði um svarta sauði á opinberum vinnumarkaði og húsnæðismál. Fjallað erum áhrif þess á vinnustaðamenningu að yfirmenn hafi fá sem engin bjargráð til þess að losa sig við lélega starfsmenn. Rætt er um afleiddar afleiðingar á vinnuþrek annarra starfsmanna og hvernig til langs tíma þetta fyrirkomulag mun koma til með að rýra þjónustu hjá...
#427 Hermann Nökkvi Gunnarsson - Það sem sameinar þá sem mótmæla öllu er andúð á Vestrænum gildum 14.06.2025 1:04:03
Þórarinn ræðir við Hermann Nökkva Gunnarsson, blaðamann á Morgunblaðinu, um stjórnmálin á Íslandi, hægrisveifluna, Trump, leikskólamál, og margt fleira. Sérstök áhersla er lögð á Suðurnesin en Þórarinn og Hermann telja báðir að Reykjanesskaginn í heild sinni fái minni athygli en hann á skilið í opinberri umræðu. Rætt er um jarðshræringar og Grindavík, hælisleitendamálin á Ásbrú, álit embættismanna...
#426 Líf Magneudóttir - No borders er ekki raunhæft 11.06.2025 1:10:06
Þórarinn ræðir við Líf Magneudóttur, eina borgarfulltrúa Vinstri grænna í Reykjavík, um stjórnmálin. Rætt er um framtíð Vinstri grænna, borgarmeirihlutann, pólitíkina, hægribylgjuna, útlendingamál, húsnæðismál, leikskólamálin og borgarlínuna. - Afhverju telur Líf no borders hugmyndafræðina vera ómögulega? - Hver er framtíð Vinstri grænna? - Hvenær verður borgarlínan kláruð? Þessum spurningum er s...
#425 Brynjar Karl - Er ævintýri Aþenu lokið? 04.06.2025 1:14:12
Þórarinn ræðir við Brynjar Karl enn á ný þar sem að þessu sinni er rætt sérstaklega um aðkomu borgarinnar og samskipti hennar við Aþenu, körfuknattleikliðs sem hefur verið undir stjórns Brynjars frá upphafi. Fjallað er sérstaklega um málefni Breiðholtsins sem hafa verið mikið í deiglunni undanfarin misseri. Farið er yfir þær félagslegu áskoranir sem hafa farið síversnandi, menningarlegar áskoranir...
#424 Heiðar Guðjónsson - Pendúllinn er að sveiflast kröftulega til hægri 02.06.2025 1:31:20
Þórarinn ræðir enn á ný við Heiðar Guðjónsson sem er hlustendum þáttarins vel kunnugur. Í þættinum er rætt um fjölbreytt og djúpstæð málefni sem varða íslenskt samfélag og þróun þess til framtíðar. Fjallað er um hægri bylgju meðal ungs fólks og hvernig Ísland gæti litið út eftir hálfa öld, um átakamál á borð við Queers for Palestine og tengsl gyðinga við fjármálakerfið, auk þess sem saga mótmælend...
#423 Lil Binni - "Ég myndi deyja fyrir stelpurnar sem vilja cancela mér" 30.05.2025 58:57
Lil Binni, eða Brynjar Barkarson, er tónlistarmaður sem er frægastur fyrir aðkomu sína í hinni sívinsælu hljómsveit ClubDub. Brynjar hefur miklar áhyggjur af því hvert samfélagið virðist stefna og fyrir skömmu tjáði hann sig um fjölmenningarstefnu Vesturlanda og lét orð falla um múslima sem eru ekki til eftirbreytni. Í þessum þætti er rætt um þessi ummæli og sýn Brynjars á heiminum. Hann er spurðu...
#422 Taxý hönter - Leigubílstjórar fluttir beint frá Mogadishu á Leifstöð 29.05.2025 1:47:15
Þórarinn talar við Friðrik Einarsson en hann hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undir nafninu Taxý hönter þar sem hann birtir myndbönd af breyttu ástandi á leigubílamarkaði. Hann telur ástandið vera óviðnunandi og er það vegna erlendra aðila sem hafa komið inn á markaðinn sem eru ekki tilbúnir að lúta sömu reglum og viðmiðum sem tíðkast hafa á leigubílamarkaði hérlendis. Friðrik segir þetta vera...
#421 Jón Gunnarsson og Brynjar Níelsson - Woke-ið er bara gamli fasisminn 27.05.2025 1:58:10
Þórarinn ræðir við tvíeykið Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson. Farið er um víðan völl og rætt um stjórnmálin heima fyrir, ESB, veiðigjöldin, Dag B. Eggertsson, þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar, Grafarvoginn, Útlendingamál, félagslegt húsnæði, rétttrúnaðinn, Gretu Thunberg, borgarlínuna og Úlfar Lúðvíksson. - Var það rétt hjá Þorbjörgu Sigríði að reka Úlfar Lúðvíksson úr embætti? - Er woke-ið bar...
#420 Árni Helgason - Umræðan heldur okkur í stanslausu uppnámi 24.05.2025 1:45:43
Þórarinn ræðir við Árna Helgason, lögmann og varaþingmann Sjálfstæðisflokksins, um stjórnmál, hugmyndafræði, mannréttindabylgjur og margt fleira. Farið er yfir mismunandi hugðarefni er varðar veiðigjöldin, ríkisstjórnarsamband Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins, rétttrúnaðinn og hvernig samfélagið missti hausinn og útlendingamál. - Afhverju hefur útlendingaumræður breyst undanfarin ár? -...
#419 Sigurður Stefánsson: Ríkisstjórnin muni slá Íslandsmet í fjölda þeirra sem eignast ekki húsnæði 22.05.2025 1:17:27
Þórarinn ræðir við Sigurð Stefánsson, framkvæmdarstjóra og stofnanda Aflvaka, þróunarfélags sem starfar í Kópavogi að yfir 5000 íbúðum. Í þættinum er rætt um stöðuna á húsnæðismarkaðnum, hvað sé að, skilyrði til uppbyggingar, stjórnmálin og fleira. Sigurður telur gagnadrifna nálgun vera lykil þess að tryggja fólki séreign en það skorti sárlega hjá stjórnvöldum sem stefni samfélaginu í óefni. - Mun...
#417 Albert Jónsson - Er þriðja heimsstyrjöldin hafin? 18.05.2025 1:05:55
Þórarinn ræðir við Albert Jónsson, sérfræðing í öllu er varðar utanríkismál. Að þessu sinni er rætt um þær miklu vendingar sem nú eiga sér stað í alþjóðakerfinu, hverjar þær eru, hvað þær þýða, og hvaða áhrif þær kunna að hafa á Vesturlönd. Þar að auki er rætt um loftslagsmál í víðum skilningi og stöðu Íslands sérstaklega í þeim efnum. - Er þriðja heimsstyrjöldin hafin? - Afhverju ætti Ísland að t...
#418 Stelpurnar í Aþenu - "Við erum ekki fórnarlömb" 16.05.2025 55:42
Þórarinn ræðir við leikmenn kvennaliðs körfuknattleiksdeildar Aþenu, sem hafa æft og keppt undir stjórn Brynjars Karls Sigurðssonar. Þetta eru þær Eybjört Ísól Torfadóttir, Gréta Björg Melsted, og Tanja Brynjarsdóttir, dóttir Brynjars Karls. Starfsemi félagsins hefur vakið talsverða athygli undanfarið, einkum vegna umræðu um þjálfunaraðferðir Brynjars, sem ýmsir innan íþróttahreyfingarinnar hafa g...
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics