Bráðavarpið
Bráðavarpið
Podcast by Bráðavarpið
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : soundcloud.com
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Hlynur Höskuldsson - Þjálfun Úkraínskrahermanna 21.10.2023 10:47
Hlynur Höskuldsson Bráðatæknir, sagði frá þjálfun Úkraínskra hermanna sem slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefur komið að síðan í maí 2023.
Bráðavarpið Á EMS 2022 24.05.2022 37:33
Bráðavarpið var á EMS2022 í Glasgow. Í þættinum fáum við örlitla innsýni í það hvað er um að vera á svona ráðstefnum og fáum létta leiðsögn um sýningarsvæðið á hvað þar fyrir augu ber.
Fyrsti Dagur EMS 2022 04.05.2022 35:57
Bráðavarpið er á EMS 2022 í Glasgow í Skotlandi. Í þessum þætti fengium við þá Arnar Pál Gíslason bráðatækni og nýjan formann fagdeildar sjúkraflutningamanna og Sverri Örn Jónsson bráðatækni til þess að fara yfir atburði dagsins með okkur.
Aldís Arna Tryggvadóttir - Streituráðgjafi 20.01.2022 49:45
Aldís Arna Tryggvadóttir streituráðgjafi kom til okkar í Bráðavarpið og fræddi okkur um streitu, hver eru einkenni streitu, hvað er hægt að gera í henni og allt þar á milli. Bráðavarpið er styrkt af landssambandi slökkviliðs og sjúkraflutningamanna. Sendið okkur endilega póst á bradavarpid@bradavarpid.is ef þið hafið hugmynd af umfjöllunar efni sem Bráðavarpið ætti að taka fyrir! Eins getið þið se...
Brad Newbury - Erfiðar Ákvarðanir 23.10.2021 25:27
Brad Newbury, bráðatæknir og eigandi National Medical Education and Training Center, kom í spjall í Bráðavarpið. Brad Hélt fyrirlestur um erfiðar ákvarðanir, á námsstefnunni Á vakt fyrir Ísland sem haldin var dagana 22. og 23. október. við fengum Brad til þess að setjast niður með okkur og segja okkur í stuttu máli um hvað fyrirlestur hans fjallaði og einnig sagði Brad okkur frá skólanum sem hann...
Tómas Guðbjartsson, hjarta og lungnaskurðlæknir. Á vakt fyrir Ísland 23.10.2021 47:21
Tómas Guðbjartsson hjarta og lungnaskurðlæknir hélt áhugaverðan fyrirlestur á námsstefnunni Á vakt fyrir Ísland, sem haldin er að Landssambandi slökkviliðs og sjúkraflutningamanna á dögunum. Þar ræddi Tómas um meðferð hníf og skotáverka á Íslandi. Við fengum Tómas til þess að setjast niður með okkur í Bráðavarpinu og segja okkur frá fyrirlestrinum og fleira!
Sigríður B. Þormar - Hvernig Nálgumst Við Aðstandendur 08.10.2021 38:52
Sigríður B. Þormar, Sálfræðingur og hjúkrunarfræðingur kom í spjall til okkar og fór yfir það hvernig gott væri að nálgast aðstandendur og aðkomendur að slysum og eða alvarlegum veikindum. Þátturinn er eins og venjulega í samstarfi við Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningamanna. Við minnum á námsstefnuna ,,Á vakt fyrir Ísland" sem fer fram dagana 22 og 23 Október næst komandi. Skráning á lso...
Már Kristjánsson Yfirlæknir Á A7 27.09.2021 35:13
Már Kristjánsson Yfirlæknir á A7 smitsjúkdómadeild LSH og yfirmaður farsóttarnefndar LSH var gestur Bráðavarpsins í dag. Már kom til okkar í spjall í janúar 2020 og fannst okkur rétt að taka spjallið aftur, nú rúmu einu og hálfu ári síðar.
Heimilsofbeldi - Drífa Jónasdóttir Og Erla Sigríður Sigurðardóttir 03.09.2021 51:10
Heimilsofbeldi er málefni sem þarf að ræða opinskátt. Til þess fengum við þær Drífu Jónasdóttur og Erlu Sigríði Sigurðardóttur í Bráðavarpið. Þær hafa hvor á sínu sviði kafað ofan í málin og deila hér með okkur sinni reynsu, þekkingu of sýn á hvernig heilbrigðisstarfsfólk ætti að nálgast verkefnið sem er heimilsofbeldi. Hér er linkur á skýrslu Drífu sem rædd er í þættinum: https://www.stjornarradi...
Svandís Svavarsdóttir Heilbrigðisráðherra 23.08.2021 24:41
Svandís Svavarsdóttir Heilbrigðisráðherra mætti í spjall í Bráðavarpið og fór yfir skýrslu starfshóps um framtíðarsýn í sjúkraflutningum og bráðaþjónustu til árins 2030. Málefni bráðaþjónustunnar eru ráðherra greinilega hugleikin og því mjög gaman að ræða þessa hluti við hana! Virkilega áhuga vert spjall sem er vel þess virði að hluta á!
Yousef Ingi Tamimi 14.07.2020 49:42
Yousef Ingi Tamimi Hjúkrunafræðingur og Sjúkraflutningamaður í Svíþjóð kom í spjall til okkar í Bráðavarpið og fór yfir utanspítalaþjónustukerfið í Svíþjóð. Við ræddum einnig sjúkraflutninga í Svíþjóð á Covid tímum og margt annað skemmtilegt!
Höskuldur Sverrir Þáttur 3 04.05.2020 48:49
Þá er komið að síðasta en alls ekki síðsta hlutanum af spjalli okkar við Höskuld Sverri Friðriksson. Í þættinum förum við meðal annars yfir ferðir hans til Líbanon og Nígeríu og svo margt fleira.
Höskuldur Sverrir Þáttur 2 01.05.2020 1:20:02
Við höldum áfram með spjall okkar við Höskuld Sverri Friðriksson. En í þessum þætti fer hann yfir árin í Bandaríkjunum, lengsta sjúkraflutninginn og svo ótrúlega margt annað! þriðji þáttur af af spjalli við Höskuld kemur svo út mánudaginn 4 maí.
Höskuldur Sverrir Friðriksson 26.04.2020 1:00:58
Höskuldur Sverrir Friðriksson Bráðatæknir til rúmlega 30 ára hefur svo sannarlega frá mörgu að segja! Okkur fannst tilvalið á þessum skrítnu tímum að setjas niður með honum og fara yfir ferilinn og hvað á daga hans hefur drifið! Við vekjum athygli á því að þetta er fyrri þáttur af tvemur, seinni þátturinn kemur út næst komandi föstudag 1 maí.
Covid19 - Einkenni, inngrip og fleira 30.03.2020 1:05:19
Við beindum kastljósinu að Covid19 verkefninu sem gengur yfir heiminn þessa dagana í Bráðavarpinu í dag. En við fengum þá Jóhann Má Ævarsson sérnámslækni í heimilslækningum og Bergþór Stein Jónsson sérnámslækni í Bráðalækningum í Minnisota til þess að fara yfir sjúkdóminn og þau inngrip og meðferðir sem verið er að prufa víðsvegar um heiminn. í fyrrihluta þáttarins sagði Loftur Einarsson slökkvili...
Líkamsbeiting - Stoðkerfið 26.03.2020 39:40
Aldís Þóra Harðardóttir Kírópraktor hjá Sjúkraþjálfun Selfoss kom í Bráðavarpið og fór yfir stoðkerfisverki, þá aðalega bakverki með okkur. Hvernig ber að beita sér rétt þegar til dæmis sjúklingum er lyft? Hver eru einkenni brjósklos?
Afhverju eiga sjuklingar að vera tengdir í monitor 06.03.2020 16:00
Hjúkrunarfræðingarnir Signý Sveinsdóttir og Þórdís Edda Hjartardóttir héldur erindi á Bráðadeginum 2020 og kynntu þar gæðaverkefni sem þær hafa unnið að á bráðamóttöku Landsspítalans undan farið. Verkefnið snýr að því að vekja heilbrigðisstarfsfólk til umhugsunar um notkunar sírita eða mónitora við umönnum sjúklinga.
Wuhan Veiran 29.01.2020 33:40
Már Kristjánsson yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landsspítalans og Hjálmar Björgvinsson deildarstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra komu í Bráðvarpið og sögðu okkur frá kóronaveirunni sem kennd er við Wuhan hérað í Kína sem geysar um heiminn þessa dagana. https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/greinar/grein/item38806/Koronaveiran-2019-nCoV-%E2%80%93-Frettir-og-fraedsla/Novel-coronavirus-201...
Forgangsakstur 01.12.2019 54:15
Björgvin Óli Ingvarsson Sjúkraflutningamaður og forgangsakstursþjálfari kom til okkar í Bráðavarpið og fór yfir það með okkur hvernig ber að haga akstri á forgangi. Hvaða tækni er gott að nota, hvað ber að varast og svo framvegis. Hér kemur linkur á rannsókn sem gefin var út í Bandaríkjunum í Júlí 2019: https://www.annemergmed.com/article/S0196-0644(18)31325-8/pdf
Sjúkraflug Á Íslandi 15.11.2019 27:38
Hvað gera þeir um borð í sjúkraflugvél Mýflugs? Er eitthvað öðruvísi við að vinna við sjúkling umborð í flugvél eða sjúkrabíl? Svör við þessum spruningum og miklu fleiri er að finna í þessum þætti af Bráðavarpinu. Anton Berg Carrasco Bráðatæknir hjá Slökkviliði Akureyrar kom og sagði okkur frá sjúkrafluginu.
Mark Dixon Um Nám Í Limerick Og Háls Og Hrygg 19.10.2019 13:59
Mark Dixon Bráðatæknir hélt fyrirlestur á ráðstefnunni á vakt fyrir Ísland. Þar fjallaði hann um nám sjúkraflutningamanna sem og nýja rannsókn sem háskólinn í Limerick, þar sem Mark er kennlsustjóri, gerði um háls og hryggáverka. Hér er linkur á þá rannsókn: https://emj.bmj.com/content/32/12/939
Dr. Richard Lyon 19.10.2019 16:09
Dr. Richard Lyon hélt fyrirlestur á námsstefnunni á vakt fyrir Ísland þar sem hann fór yfir það hvaða verklag utanspítalaþjónustan í London styðst að miklu leiti við en það er sjúkraþyrluþjónustan HEMS.
Hvað Er Öryggi 18.10.2019 10:40
Reynir Guðjónsson öryggisstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hélt fyrirlestur á námsstefnunni Á vakt fyrir Ísland. Fyrirlesturinn ber nafnið ,,Hvað er öryggi?" Við fengum Reyni í stutt spjall í Bráðavarpið um öryggi!
Eiturefnaslys Og Nýtt Nefúðalyf Við Krömpum 18.10.2019 13:46
Doktor Sveinbjörn Gizurarson kom í viðtal í Bráðavarpið og fræddi okkur um eiturefni og viðbrögð við eiturefnaslysum. Hann talaði einnig um byltingarkenndan nefúða sem brýtur upp krampa sem hann hefur þróað og er á leiðinni á markað í Ameríku.
Grunnendurlífgun 16.10.2019 24:32
Bráðatæknarnir Anton Berg Carrasco og Sverrir Örn Jónsson komu í heimsókn í Bráðavarpið og ræddum við aðeins um grunnendurlífgun. En grunnendurlífgun skiptir sköpum þegar sjúklingar lenda í hjartastoppi. Gagnlegt efni er að finna td á: http://www.endurlifgun.is/ og á: https://www.erc.edu/about/restart
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics