--
APRÓ Varpið
APRÓ Varpið er hlaðvarp samnefnds upplýsingatæknifyrirtækis þar sem fróðleikur og vangaveltur mætast. Við ræðum áhrif tækniþróunar á atvinnulífið og samfélagið í heild. Fáum til okkar áhugaverða viðmælendur og óvænta gesti. Köfum ofan í stefnur og strauma og reynum að skilja kjarnann frá hisminu. APRÓ Varpið er hagnýtt, mannlegt og oftar en ekki á léttu nótunum.
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Hvar lenda gögnin þín þegar gervigreindin tekur við? 29.06.2026 51:07
Gervigreind er orðin hluti af daglegum rekstri fyrirtækja og stofnana. En hvert fara gögnin þegar við notum ChatGPT, Claude og aðrar gervigreindarlausnir? Í þessum þætti APRÓ Varpsins er farið yfir hvernig sömu gervigreindarmódelin geta verið háð gjörólíkum vinnslusamningum, gagnavernd og lögsögu eftir því hvaða leið er valin. Fjallað er um EU Data Boundary, ábyrgð kaupenda og þjónustuaðila og hva...
Notkun gervigreindar í hugbúnaðarþróun 08.04.2026 1:06:47
Markviss notkun gervigreindar er ómissandi hluti af árangursríkri hugbúnaðarþróun. Í þessum þætti APRÓ Varpsins ræðum við forritun og endurforritun með gervigreind. Við veltum vöngum yfir stöðunni í dag og bregðum upp framtíðarsýn. Viðmælendur okkar eru þeir Hjálmar Leó Einarsson verkefnastjóri og Jósúa Theodórsson forritari, báðir hjá APRÓ.
APRÓ Varpið - Hlöðver Þór Árnason framkvæmdastjóri APRÓ 20.02.2026 1:12:35
APRÓ er upplýsingatæknifélag byggt á sameiningu þriggja sérhæfðra fyrirtækja í hugbúnaði, skýjaþjónustu, gagnatækni og gervigreind: Andes, Prógramm og Miracle. Hlöðver Þór Árnason er framkvæmdastjóri APRÓ. Hér er rætt við Hlöðver um bakgrunn hans, tilurð APRÓ, verkefni fyrirtækisins í dag og sýn hans á framtíðina.
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics