fr

RÚV Hlaðvörp

Aldrei las ég Laxness

Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð og ræða með góðum gestum. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson Grafík: Silvía Sif Ólafssdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : shows.acast.com

Auteur

RÚV Hlaðvörp

Catégorie

Arts

Site du podcast

shows.acast.com

Dernier épisode

21 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,7+ iOS bientôt

Épisodes

Íslandsklukkan 21.10.2026

Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hún hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf og makkeringar Snæfríðar Íslandssólar en fer einnig ofan í saumana á handritasöfnun Arnasar Arneusar. Gestur klúbbsins að þessu sinni er Sandra Barilli, leikkona og skemmtikraftur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

07: Heimsljós II 07.10.2026

Heimsljós er stórvirki sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940 og fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Í þessum seinni þætti um verkið ræðum við Bára Gísladóttir, tónskáld, um seinni bindin tvö 3. Hús skáldsins 4. Fegurð himinsins. Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið. Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir Hosted on Acast....

06: Heimsljós I 17.09.2026

Heimsljós er stórvirki sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940 og skiptast hlutarnir í 1. Ljós heimsins 2. Höll sumarlandssins 3. Hús skáldsins 4. Fegurð himinsins. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljós,/himi...

Aukaþáttur; Salka - ástin og dauðinn 17.09.2026

Í þættinum ræðum við fyrsta hluta Sölku Völku og sýninguna Salka; Ástin og dauðinn, við leikkonuna, leikskáldið og leikstjórann Unni Ösp Stefánsdóttur. Sýningin er einleikur á vegum þjóðleikhússins og Landnámsseturs Íslands, byggður á fyrsta bindi skáldsögunnar og hefur vakið umtalsverða athygli undanfarna mánuði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Aukaþáttur; Magnús Jóhann og Laxness safnið / Gunnlaugur Bjarnason og sálmabókasvipur 17.09.2026

Halla hittir Magnús Jóhann Ragnarsson, tónlistarmann, á vinnustofu sinni og ræðir við hann um veglegt Laxness safn sem hann hefur komið sér upp. Síðan ræðir Tómas við Gunnlaug Bjarnason, söngvara, um vörumerkið Laxness, þá sérstaklega línurnar sem einkenna flestar bókakápur skáldsins og nefnast sálmabókasvipur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Aukaþáttur; Davíð Þór á Gljúfrasteini 17.09.2026

Í þessum sérstaka aukaþætti Aldrei las ég Laxness komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa verið við kvæð...

05: Úngfrúin góða og Húsið 19.06.2026

Úngfrúin góða og Húsið er stutt verk sem Halldór Laxness skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til að stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er systrasaga, Rannveig er yngri systirin sem sagan hverfist um en Þuríður er sú eldri sem gift er verslunarmanni þorpsins og gerir allt í sínu valdi til að viðhalda heiðri ættar sinnar og húss - en verk hennar koma því miður niðri á lí...

04: Salka Valka 15.05.2026

Salka Valka kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932. Sölku skrifaði Halldór Laxness fyrst sem hugmynd að kvikmynd á meðan hann dvaldi í Bandaríkjunum þar sem hann var í viðræðum við framleiðsluöflin í Hollywood um að gera kvikmynd um þessa sterku konu á buxum. Skáldsagan verður síðan til eftir að Halldór snýr aftur heim án kvikmyndasamnings og breytast þá drættir sögunnar umtalsvert en Salka Val...

03: Vefarinn mikli frá Kasmír 15.05.2026

Vefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins. Vefarinn mikli frá Kasmír er umdeild bók. Stuttu eftir útgáfu birtust tvær frægir og mjög ósammála dómar um hana í sama tímariti annar rómaði hana með o...

02: Undir Helgahnúk 23.03.2026

Undir Helgahnúk kom út árið 1924. Verkið skrifaði Halldór Laxness í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið. Skáldsagan er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar, sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer í framhaldi að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfun...

01: Barn náttúrunnar 20.02.2026

Í þessum þætti ræðum fyrstu skáldsögu Halldórs, Barn náttúrunnar, með góðum gestum, þeim Vilhelm Neto, leikara og Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Écoute le podcast Aldrei las ég Laxness sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics