RÚV

Þetta helst

News IS ↓ Επεισόδια: 765

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: www.ruv.is

Δημιουργός

RÚV

Κατηγορία

News

Ιστοσελίδα του podcast

www.ruv.is

Τελευταίο επεισόδιο

8 Οκτ 2026

Πού να ακούσεις;

Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομα

Τα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast

Κατέβασέ το από το Google Play Δωρεάν εγκατάσταση Android σχεδόν 10 εκατ. λήψεις · βαθμολογία 4,8 iOS σύντομα

Επεισόδια

Lögreglan rannsakaði fósturheimilið Gauksstaði 30.03.2026

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði eigendur fósturheimilisins Gauksstaða í Garði fyrir meint brot á barnaverndarlögum. Rannsóknin hófst árið 2019 og var tekin skýrsla af fjölda fólks sem hafði búið á heimilinu sem börn. Til rannsóknar var hvort eigendur fósturheimilisins, Jón Steinar Konráðsson og Linda Angelique Elizondo, hafi gerst brotleg gegn barnaverndarlögum og brot í opinberu starfi. Rannsó...

Saga móður sem tilkynnti Waltraud fyrir ofbeldi 27.03.2026

Marta Gunnardóttir var 25 ára einstæð móðir þegar hún sendi dóttur sína og son á fósturheimilið til Waltraud Paulsen í Mosfellssveit árið 1974. Þau bjuggu hjá Waltraud í tvö ár og upplifðu harðræði og ofbeldi sem hefur fylgt þeim æ síðan segir Marta. Börnin voru tveggja og fjögurra ára þegar þau fóru á heimilið. Stúlkan var beitt kynferðisofbeldi og drengurinn var bundinn og honum hótað með stórum...

Þráláta atvinnuleysið á Suðurnesjum 26.03.2026

Í þætti dagsins beinum höldum við áfram að ræða atvinnuhorfur hér á landi og beinum sjónum nú sérstaklega að atvinnuleysi á Suðurnesjum þar sem það er mest, 8,8 prósent. Rætt er við Guðbjörgu Kristmundsdóttur, formann Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, og Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, forseta bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Tvær systur segja frá fósturheimili Waltraud 25.03.2026

Tvær systur sem bjuggu á fósturheimili Waltraud Paulsen í Mosfellssveit segja sögu sína. Þær heita Hanna Hrefnudótitr og Ásdís Sveinjónsdóttir. Hanna var fjögurra til sex ára þegar hún bjó á heimilinu. en Ásdís var tveggja til fjögurra ára Minningar þeirra af dvölinni á heimilinu eru slæmar og hafa fylgt þeim í gegnum lífið. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Ofbeldið á fósturheimilinu í Mosfellssveit 24.03.2026

Guðrún Glódís Gunnarsdóttir, leikkona og söngkona, varð fyrir ofbeldi þegar hún dvaldi á fósturheimili í Mosfellssveit á áttunda áratugnum. Eigandi heimilisins var þýsk kona, Waltraud Paulsen, og var það hún sem beitti þessu ofbeldi segir Guðrún Glódís. Fósturheimilið var í heimahúsi hjá Waltraud sem bjó þar ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Waltraud er fædd árið 1935 og er ennþá á lífi. G...

Aukið atvinnuleysi á óvissutímum 23.03.2026

Í dag beinum við sjónum okkar að atvinnuleysi hér á landi sem hefur verið nokkuð til umfjöllunar síðustu vikur og mánuði - enda ekki verið meira frá því í faraldrinum - og ef hann er undanskilinn hefur það ekki mælst meira frá 2013. Rætt er við Arnald Sölva Kristjánsson, sérfræðing í vinnumarkaðshagfræði, Ingólf Bender, aðalhagfræðing Samtaka iðnaðarins og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra S...

Frumskógur fósturheimilanna: „Eins og ég væri í fangelsi“ 20.03.2026

Kona sem dvaldi á fósturheimili í Garðinum á Reykanesi segir að það hafi verið eins og fangelsi að búa þar. Hún bjó á heimilinu á árunum 2017 og 2019. Heimilið hét Gauksstaðir og er ekki lengur starfandi. Konan ber vistinni á heimilinu samt frekar vel söguna almennt séð en segir aðra stúlku hafa átt erfiðari stundir þar. Ekki fást skýr svör frá Barna- og fjölskyldustofu, arftaka Barnaverndarstofu,...

Er rétt að lækka matarskattinn? 19.03.2026

Í þætti dagsins er sjónum beint að verðhækkunum á mat og hvort æskilegt sé að lækka virðisaukaskatt á matvöru – alla vega tímabundið – eins og nágrannaríki okkar ætla eða íhuga að gera. Rætt er við Þórólf Matthíasson, prófessor emeritus í hagfræði, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseta ASÍ. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Þetta gerist næst í Bakkakotsmálinu 18.03.2026

Einn og hálfur mánuður er frá því að umfjöllun um Bakkakotsmálið var birt í fréttaskýringaþættinum Kveik. Þátturinn vakti mikla athygli og umtal næstu daga og vikur þar á eftir. En hvað gerist svo? Hvað eru stjórnvöld að gera til að bregðast við þessu máli? Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði ferns konar aðgerðir til að bregðast við Bakkakotsmálinu í kjölfar þáttarins. Samhliða er verið...

Deilt um bardagakvöld og reglur um bardagaíþróttir 17.03.2026

Í Þetta helst í dag beinum við sjónum okkar að bardagaíþróttum - sem virðast vera í sókn hér á  landi - og bardagakvöldum sem vakið hafa athygli að undanförnu. Viðmælendur: Ragnar Baldursson, lögmaður Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands Þórarinn Hjartarson, hnefaleikaþjálfari

Kaup risans Símans á vinsælum fjölmiðlum 16.03.2026

Fyrirhuguð kaup Símans á vinsælum fjölmiðlum eins og Vísi.is og Bylgjunni af Sýn hafa vakið athygli. Síminn hefur á síðustu tveimur árum keypt mörg fyrirtæki á auglýsinga- og fjártæknimarkaði og vaxið talsvert. Stærsti hluthafi Símans er fjárfestingarfélagið Stoðir sem á sér rúmlega 50 ára langa sögu í ólíkum myndum, meðal annars sem FL Group á árunum fyrir bankahrunið 2008. Meðal hluthafa Stoða e...

Áralangar deilur um tollflokkun á pítsaosti 13.03.2026

Í Þetta helst í dag eru það ostar sem eru til umfjöllunar - nánar tiltekið pitsaostur með viðbættri jurtaolíu, og áralangar deilur um tollflokkun á slíkum osti. Rætt er við Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, og Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Umsjón: Ingvar Þór

Sveitastjórnarmenn og bæjarstjórar skyldugir að birta hagsmunaskráningu sína 12.03.2026

Sveitarfélög á Íslandi verða skyldug til að birta hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda þeirra opinberlega ef frumvarp um ný sveitarstjórnarlög verður að lögum. Þetta er nýbreytni sem ekki hefur áður verið í sveitarstjórnarlögum. Þá eiga siðreglur sveitarstjórna líka að ná yfir framkvæmdastjóra og æðstu stjórnendur þeirra, það er að segja þá sem ekki eru kjörnir fulltrúar. Með la...

Saga þjóðaratkvæðagreiðslna á Íslandi 11.03.2026

Um fátt annað er rætt þessa dagana en fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í þætti dagsins ætlum við þó ekki að dvelja við atkvæðagreiðsluna um Evrópusambandið 29. ágúst - þess í stað verður sjónum beint að fyrri þjóðaratkvæðagreiðslum hér á landi - en Íslendingar hafa átta sinnum mætt á kjörstað og greitt atkvæði í slíkum kosningum. Rætt er...

30 milljóna króna verktakagreiðslur til samlagsfélags eiginmanns heilbrigðisráðherra 10.03.2026

Samlagsfélag Torfa Fjalars Jónasson hjartalæknis og Ölmu Möller, þingmanns Samfylkingarinnar og núverandi heilbrigðisráðherra, fékk greiddar tæplega 30 milljónir króna í vertakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk á Sjúkrahúsinu á Akureyri á árunum 2023 til 2025. Miklar deilur hafa geisað við Sjúkrahúsið á Akureyri síðastliðna mánuði út af þessum vertakasamningum. Framkvæmdastjórn sjúkrahúsins sagð...

Ört vaxandi gagnaversiðnaður 09.03.2026

Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að ört vaxandi gagnaversiðnaði hér á landi. Rætt er við Björn Brynjúlfsson, forstjóra Borealis Data Center og formann Samtaka gagnavera og Tinnu Traustadóttur, framkvæmdastjóra sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun.

Stjórnendur atNorth hagnast ævintýralega á sölu gagnaverafyrirtækisins 06.03.2026

Íslenska gagnverafyrirtækið atNorth hefur verið selt fyrir 485 milljarða króna líkt. Þetta er langstærsta salan á íslensku gagnaverafyrirtæki hingað til. Fyrirtækið var í eigu svissneska sjóðsstýringafyrirtækisins Partners Group að 95 prósent leyti og hópur stjórnenda atNorth átti 5 prósenta hluta. Stjórnendurnir skipta með sér rúmlega 24 milljörðum króna af söluverðinu að frádregnum kostnaði þeir...

Fordæmalaus staða fyrir stórmót 05.03.2026

Flautað verður til leik á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu 11. júní í sumar. Mótið fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, og nú liggur að mestu leyti fyrir hvaða þjóðir hafa tryggt sér þátttökurétt. Þeirra á meðal er Íran en vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum er eðli málsins samkvæmt ólíklegt að þeir mæti til leiks. Viðmælendur: Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur um málefni Írans Sigurlaugur...

Starfsfólk RIFF kvartar til Vinnumálastofnunar og borgarinnar 04.03.2026

Starfsmenn sem unnu á kvikmyndahátíðinni RIFF hafa kvartað til Vinnumálastofnunar og Reykjavíkurborgar vegna stjórnarhátta á hátíðinni. Gagnrýni þeirra beinist að eiganda og framkvæmdastjóra hátíðarinnar, Hrönn Marinósdóttir. Fyrrverandi starfsmannastjóri RIFF, Þorbjörg Jóhannsdóttir, segir frá reynslu sinni af því að starfa á hátíðinni sem annar starfsmaður, Guðmundur Steinn Gíslason Kjeld. Gagnr...

Nýtt tímabil kjarnorkuvopna hefst 03.03.2026

Við ætlum að ræða kjarnorku í dag, þróun kjarnorkuvopna og breytingu á viðhorfi til slíkra vopna, bæði í ljósi stríðsins í Miðausturlöndum og ummæla Frakklandsforseta í ræðu í gær, þar sem hann sagði næstu 50 ár verða tímabil kjarnorkuvopna. Viðmælendur: Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur Gísli Jónsson, sérfræðingur hjá Geislavörnum ríkisins

Efnahagslegar afleiðingar stríðs í Miðausturlöndum 02.03.2026

Í dag ætlum við að halda áfram að ræða stríðið í Miðausturlöndum sem hófst með loftárásum Ísraela og Bandaríkjamanna á Íran á laugardaginn - og beina sjónum sérstaklega að efnahagslegum áhrifum þess, olíunni og vöruflutningum, og hvort ástandið kunni að hafa áhrif á verðbólguhorfur hér á landi. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, og Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra Fél...

Fegurðarforskot og „looksmaxxing“ hugmyndafræði 27.02.2026

Í dag beinum við sjónum okkar að hugmyndinni um fegurðarforskot í ljósi mikillar umræðu um aukna áherslu á útlit, sem hefur birst okkur í fréttum um peptíðanotkun og looksmaxxing hugmyndafræði, sem gengur út á að hámarka eigin fegurð. Rætt er við Andrés Jónsson, almannatengil, og Þóru H. Christiansen, aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Íþróttafólk og auglýsingar 26.02.2026

Þótt alþjóða ólympíunefndin hafi ávallt verið ströng þegar kemur að auglýsingum urðu nokkrar breytingar á þessum leikum. Samningar íþróttafólks við fyrirtæki verða sífellt fleiri og stærri, líka á Íslandi. Rætt er við afreksstjóra ÍSÍ í þætti dagsins og framkvæmdastjóra auglýsingastofunnar Pipar\TBWA. Þau segja bæði að samningar íþróttafólks og fyrirtækja geti verið farsæl blanda. Annars vegar sé...

Latína: Mikilvæg undirstaða eða tilhaldstunga yfirstétta? 25.02.2026

Í dag beinum við sjónum okkar að latínu- og fornmálakennslu hér á landi, og áhyggjum af því að slíkt nám á framhaldsskólastigi sé að leggjast af. Nú stendur nefnilega til að draga úr latínukennslu við Menntaskólann í Reykjavík, eina skólanum sem enn kennir latínu, Viðmælendur: Böðvar Stefánsson, nemandi. Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, latínukennari. Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans...

Tjónaskráin og sérstakur dómstóll fyrir úkraínu 24.02.2026

Í dag eru 4 ár liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Hver er staða tjónaskrárinnar sem á að halda utan um þann skaða sem innrásin hefur valdið? Og hvernig á að draga Rússa til ábyrgðar þegar þeir viðurkenna enga sök? Rætt við Róbert Spanó, formann stjórnar tjónaskrárinnar, og Þórdísi Kölbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fyrrerandi utanríkisráðherra og sérstakan erindreka aðalframkvæmdastjóra Ev...

Άκου το podcast Þetta helst στο Replaio

Ραδιόφωνο και podcast σε μία εφαρμογή - δωρεάν, χωρίς εγγραφή. Εγκατάστησέ την σήμερα και μη χάσεις την πρεμιέρα

Κατέβασέ το από το Google Play

Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS