Snorri Björns
LANGA - hlaðvarp
Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.
Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: podcasters.spotify.com
Δημιουργός
Snorri Björns
Κατηγορία
Ιστοσελίδα του podcast
Τελευταίο επεισόδιο
22 Σεπ 2026
Πού να ακούσεις;
Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομαΤα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast
Επεισόδια
78. BONK æfingar, árangur út frá bakgarðinum, UTMB deilur, ketó og lexíur brautryðjandans - Elísabet Margeirs fer yfir áratug af ULTRA 27.03.2026 1:53:25
Elísabet Margeirs með væææna yfirferð á hlaupasenunni allt frá því að hér varð hrun. Ekki nóg með að ryðja brautina fyrir ultrahlaupum á Íslandi þá er hún að auki með frábæra innsýn í hlaupasenuna úti um allan heim ásamt því að vera næringarfræðingur, hlaupahaldari og þjálfari. Við ræðum hvernig bakgarðurinn spilar inn í ótrúlegan árangur Elísu, BONK æfingarnar sem hefði mátt sleppa, hvað Elísabet...
77. Elísa Kristinsdóttir – Gott form, harður haus. 25.03.2026 1:27:56
Elísa keppti í Chianti 75km síðustu helgi og sigldi sigrinum heim á móti Judith Wyder. Þetta er ekki eini UTMB sigurinn hennar síðan hún kom síðast í viðtal hjá LANGA og í millitíðinni var hún tekin inn í landsliðið, lenti í 11. sæti á HM og hljóp 10km undir 35 mín. Á sama tímabili fór hún í gegnum meiðsli og þjálfaraskipti sem við ræðum í þættinum ásamt ótrúlegri (og nákvæmri) kolvetnainntöku í C...
76. Hlauparar með myndavélar, KILIAN, Elísa & Andrea á móti heiminum, landsliðsvalið og Arnar Péturs stigahæstur 07.03.2026 1:57:31
Synir LANGA, Egill Örn og Guðlaugur Ari, fara yfir liðna atburði og veisluna sem er í vændum: Þarf að vera besti hlaupari landsins OG áhrifavaldur til þess að leggja íþróttina fyrir sig? Óánægja með landsliðsvalið Pendúllinn sveiflast: er FH að skemma partýið? Er brautin snúin aftur? Annað hvort er Arnar Péturs í formi lífs síns eða að hlaupa á biluðu hlaupabretti. Hvort myndirðu frekar: 27:4...
75. KLÆBO djúpköfun: yfirburðirnir, æfingarnar, spretturinn og afinn. 27.02.2026 2:01:54
Það dugði ekki minna til en að fá ólympíufarann, og fyrrum keppniaut Klæbo, Sævar Birgisson til þess að kafa djúpt í árangur og yfirburði Johannes Høsflot Klæbo sem við erum að horfa upp á þessa dagana. Hvernig varð hann svona góður? Er eðlilegt að geta unnið bestu sprettarana og líka mestu úthaldsvélarnar? Er þetta grunsamlegt? Hvernig æfir hann? Af hverju gera hinir ekki bara eins og hann? Hver...
Á ég að létta mig til að verða betri? Hormónar, fituprósenta, Vo2max og þreyttir íþróttamenn. 20.02.2026 1:31:17
Sigurður Örn Ragnarsson, Siggi í Greenfit, ræðir hér kaloríur, íþróttir og hvar við förum út af sporinu: Testesterón, lægri fituprósenta, bætingar, endurheimt, hormónajafnvægi, beinheilsa, þreyta og orkuleysi, orkuþörf á hvíldardögum, æfingamagn og ótrúleg tölfræði þeirra bestu í heiminum.
KLÆBO ER FARINN, íþróttamenn eða áhrifavaldar, afrek eða athygli, hver er ábyrgð fréttamanna? - Gunnar Birgisson 16.02.2026 2:04:19
Djúpköfun á árangri Johannes Klæbo: besta skíðagöngu- og sýklahræddasta íþróttamanni sögunnar. Afrek hans eru öll samkvæmt plani en afi hans og þjálfari lagði upp með að gera Klæbo að þeim besta í heiminum fyrir mörgum árum - þegar engar tölur bentu til þess að þarna væri „talent“ á ferðinni. Gunnar Birgisson mætir til þess að fræða okkur um afrek Klæbo og annarra Ólympíufara en við krefjum hann e...
72. Baldvin Þór – Tímamótaskref 25.01.2026 1:28:54
Baldvin tók 10km tímann sinn úr 29:30 niður í 27:40 á aðeins nokkrum vikum. Íslandsmetið er núna 2 sekúndum frá landsmeti Breta og 8 sekúndum frá landsmeti Bandaríkjamanna. Baldvin lýsir sjálfstraustinu sem byggðist upp vikurnar fyrir hlaup, ákvörðuninni um að breyta keppnisrútínunni (sleppa koffíni, sleppa rauðrófusafa) og treysta sjálfum sér, hvort að hann hefði getað hlaupið þetta hraðar (svari...
71. Baldvin, double threshold og hugarfar heimsmeistara - Siggi og Latsi 19.01.2026 1:45:53
Siggi og Latsi mættu með 13.000 efnaskiptapróf og glósubók undir beltinu til að athuga hvað sé hægt að læra af manninum sem þjálfaði upp fjóra heimsmeistara: Hugarfarið, magnið, ákefðin, kaloríurnar, hvíti djöfullinn og mjólkursýrumælingarnar, og hvernig þetta nýtist þér á þínum æfingum – ásamt greiningu á VO2max og mögulegum maraþontíma Baldvins Þórs eftir sögulegt 10km hlaup og vegferð Andreas A...
70. Svona verðuru heimsmeistari - í alvörunni. 16.01.2026 1:19:21
Arild Tveiten tók við Kristian Blummenfelt árið 2011, sem þá var "not good at anything," og gerði hann að besta þríþrautarmanni heims. Þjálfunaraðferðir Arilds hafa getið af sér þrjá Ironman heimsmeistara til viðbótar og orðið heimsfrægar undir formerkjum The Norwegian Method. Arild leyfði norsku krökkunum ekki að efast í eina sekúndu um að þau gætu orðið best í heimi og ræðir í þættinum lykilinn...
69. Hlaup: aldrei stærri, aldrei hraðari. Vorri og Snorri með augun á 2026. 06.01.2026 2:12:31
Yfirferð á árinu sem leið og hvaða bombur eru væntanlegar 2026. Greiningar á nýliðum, framförum, frammistöðum, óvæntum atburðum og vinsældum hlaupa á Íslandi - allt rökstutt með gögnum og góðum sögum. Viktor Orri mætti í stúdíóið í miklum gír, vægt til orða tekið.
„Reynum eitthvað sem að enginn trúir“ - Kristinn og Davíð Jónssynir 23.12.2025 1:27:32
Kiddi Aero og Davíð Jónssynir eru með bestu hjólreiðamönnum landsins. Kristinn var hjólreiðamaður ársins 2023 og 2024 og Davíð 2025. Davíð hefur keppt í elítuflokki síðan hann var 16 ára og það mætti segja að getustig bræðranna sé orðið það hátt að Ísland er orðið of lítið fyrir þá.
67. Hafdís Sigurðardóttir - Hjólreiðakona ársins fjögur ár í röð 12.12.2025 1:46:14
Hafdísi finnst lengra betra, LANGA hlaðvarp er sammála. 17.000 hitaeiningar fyrir tvo sólarhringa af hjóla-bakgarðinum, áherslur á þyngdarstjórnun í hjólreiðum, úr sundi í þríþraut og svo hjólreiðar, hausinn sem þarf til að verða góður úthaldsíþróttamaður og mörg önnur góð umræðuefni í þessum þætti.
Íþróttamannalaun, yfirburðir Karenar Axels, Kilian snýr aftur og bestu járnkarlarnir 05.12.2025 1:54:59
Ætla Tobbi og Þorsteinn loksins í götumaraþon? Munu þeir hafa Arnar Péturs? Hversu hratt þarftu að hlaupa keppnishlaup til að mega húðflúra tímann á þig? Tilnefningar til besta járnkarlsins, yfirferð á íþróttamannalaunum, hröð maraþon frá fjallahlaupurum og vinsælasti skór ársins 2025. Það var af nægu að taka.
65. Arnar Péturs tæklar Valencia, Ármannsdóminn og Víðavangsvígið en ekki Ironman 02.12.2025 1:56:29
Arnar Péturs hefur svo sannarlega fengið augu á langhlaupin síðasta áratugin og tekur hér væna yfirferð á Valencia maraþoninu næstu helgi, málaferlinu eftir Ármannshlaupið, hvort hann sé bestur í 100km vegalengdinni, ÍBR, ábyrgð hlaupahaldara gagnvart bestu hlaupurum landsins, hvort almenningi langi að skokka eða keppa, Víðvangs-víginu, Why Always Arnar og Laugaveginn 2026.
64. Tobbi í Ironman? 5 ástæður árangurs og hvað viltu heyra þegar þér líður sem verst? 28.11.2025 2:12:37
Sigurður Örn og Latsi gæddu sér á hlaðborði umræðuefna á einlægan, hvetjandi og fræðandi máta! Bjargaði happaeistað mannslífi síðustu helgi? Ætti Tobbi séns í Íslandsmetið í Ironman? Hvaða hvatning virkar best í erfiðri keppni? Hvað viltu heyra og hvað viltu alls ekki heyra yfir erfiðasta kaflann? Síðast en ekki síst fengum við Top 5 ástæður fyrir árangri Norðmanna (hefur þetta viðfangsefni verið...
Einvígi aldarinnar™ 21.11.2025 45:55
Latsi í þráðbeinni frá Cozumel, Mexíkó, þar sem Geir Ómars og Siggi Tri mætast á sunnudaginn næsta í Einvígi aldarinnar™. Íslandsmethafinn á móti besta þríþrautarmanni Íslands í heilum Ironman: 3,9km sund, 180km hjól og heilt maraþon! Hver ber sigur úr býtum? Er verið að horfa framhjá myrkrahestinum? Hvernig eru aðstæður og hvað koma þeir mörgum grömmum af kolvetnum ofan í sig?
Why always Arnar? Handalögmál, lyfjapróf, íslensk atvinnumennska og Harry Styles 19.10.2025 1:40:16
Synir LANGA fengu aldeilis umræðuefnin í hendurnar þessa helgina. Hér er farið yfir dramatíkina í víðavangshlaupunum, kærumenningu í hlaupasenunni, stór nöfn möguleg í Laugaveginn, íslenska atvinnumennsku, niðurstöður úr lyfjaprófum, Courtney Dauwalter og Harry Styles í götumaraþoni, enn annar norskur sigur og nýtt "heimsmet" hringinn í kringum Ísland.
Latsi og Geir Ómars: Noregur snýr aftur, 183gr carbs á klst, lægra lactate í carbon skóm og Siggi Tri reynir við Íslandsmet 10.10.2025 1:54:34
Íslensku Kristian Blummenfelt og Gustav Iden, þríþrautarkóngarnir Latsi og Geir Ómarsson mæta í settið og fara yfir víðan völl: Norsku þríþrautarprinsarnir sem röðuðu sér í fyrstu þrjú sætin á heimsmeistarmótinu nýverið, vendingar í þjálfarteyminu þeirra og ný nálgun á æfingar, Siggi Örn reyndi við Íslandsmet í Ironman og ætlar að gera aðra tilraun eftir nokkrar vikur, Casper Stornes innbyrti 183g...
Fyrir og eftir – Dóri & Guðfinna gera upp HM 28.09.2025 1:22:28
Guðfinna Kristín og Halldór Hermann (your favorite runner's favorite runner) mæta fyrir og eftir sín hlaup á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum hér í Canfranc. Þau glímdu (og glíma enn) bæði við beinbrot á árinu og þurftu að hagræða æfingum til þess að komast á mótið – sem gekk líka svona vel hjá þeim báðum. Allt um það og aðrar frammistöður í þessum þætti.
Sigurjón Ernir: Bakslög, breyttar áherslur, bílslys og bætingar! 26.09.2025 31:41
Sigurjón Ernir hefur átt brösótt ár sökum bílslyss en náð gríðar góðum árangri þrátt fyrir það. Hann ræðir landsliðsverkefnin sín síðasta áratuginn, hvernig hann breytti æfingum og fór að geta hlaupið meira/hraðar og bætingarárið sem hann átti fyrir tveimur árum. Hann deilir einnig með okkur litlum miða sem hann tekur með í hlaupið sitt á laugardaginn til þess að minna hann á fyrir hvern og af hve...
Andrea Kolbeins – Búin að bíða eftir þessu í tvö ár! 25.09.2025 21:36
Andrea er kannski Strava og Instagram dark en það er engin ástæða til að óttast. Hún mætir á ráslínuna, hliðin á Katie Schide, í sínu besta formi til þessa.
Þorsteinn Roy er í besta formi lífs síns 25.09.2025 44:55
Virkilega skemmtileg innsýn inn í haus eins besta hlaupara Íslendinga: Næringarplanið, brautin, vegferðin frá HM í Tælandi til dagsins í dag, valið milli long og short, hröð ultra hlaup og segment hunting í miðju heimsmeistaramóti.
Íris Anna & Anna Berglind - báðar með sub5 Laugaveg og tilbúnar í Short Trail 25.09.2025 27:45
Íris og Anna eru báðar búnar að koma sér í toppform fyrir HM 2025. Anna Berglind hefur aldrei æft jafn mikið, vikur upp á 130km og 5000 hæðarmetra – fullt tilefni til enda brautin í ár með þeim erfiðari sem sést hafa.
Upphitun fyrir HM: Tobbi greinir keppnina og árangur Íslendinga 25.09.2025 40:09
Þorbergur Ingi, reynslumesti landsliðsmaður Íslands, sest niður hér í Canfranc og les í stöðuna fyrir Heimsmeistaramótið í utanvegahlaupum sem fer fram næstu helgi.
60. Gleði vs. árangur, Kenía mætt í UTMB, sigurformúla í ruslið og eru hlaup að breytast í Formúlu 1? 05.09.2025 1:52:30
Vænleg yfirferð yfir stærstu utanvegahlaupaveislu ársins: UTMB. Kenía er farin að láta finna fyrir sér í trail-heiminum, með tilheyrandi efasemdum og spurningarmerkjum, er Courtney Dauwalter að taka keppninni of léttúðlega? Er Jim Walmsley ósnertanlegur? KK og KVK sigurvegarar UTMB þjálfaðir af sama aðilanum - sama aðila og Caleb Olson segir upp eftir stórsigur sinn í Western Sates! Hvað getur 100...
Παρόμοια podcast
Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS