Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University
HR Hlaðvarpið
HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).
Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: www.ru.is
Πού να ακούσεις;
Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομαΤα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast
Επεισόδια
Sálfræðispjallið//Aðgengilegar aðferðir HAM þróaðar á stafrænu formi fyrir foreldra-Cathy Creswell prófessor við Háskólann í Oxford 02.05.2025 31:20
Prófessor Cathy Creswell er gestur Sálfræðispjallsins að þessu sinni. Hún er virtur breskur sálfræðingur sem sérhæfir sig í barna- og þroskasálfræði með sérstakri áherslu á kvíðaraskanir hjá börnum og unglingum. Crewsell gegnir prófessorsstöðu við Háskólann í Oxford þar sem hún stýrir rannsóknarhópnum The Oxford Psychological Interventions for Children and Adolescents (TOPIC) . Eitt af hennar merk...
Verkfræðivarpið // 33. þáttur: Dr. Darren Dalcher prófessor við Lancaster háskólann í Bretlandi 18.03.2025 36:48
Helgi Þór Ingason ræddi við Darren Dalcher Dr. Darren Dalcher er prófessor við Lancaster háskólann í Bretlandi og leiðir rannsóknasetur á sviði verkefnastjórnunar. Bakgrunnur hans er verkefnastjórnun í upplýsingatækni en Darren er virtur alþjóðlegur vísindamaður og hefur ritað fjölmargar vísindagreinar og bækur á sviðinu. Hann hefur m.a. unnið fyrir bresku verkefnastjórnunarsamtökin APM og leiddi...
RU Sporth Psych Podacst Episode 1: Katie Castle 13.03.2025 26:47
Katie Castle is a Canadian psychologist who specializes in working with children and adolescents in sports. She has a background in gymnastics as an athlete and coach and uses it to help athletes find a balance between sports and private life. She presented her research on the negative psychological consequences of early attainment among young people at the FEPSAC Conference in 2024 and the Reykja...
Íþróttarabb HR // 21. þáttur: Sigurbjörn Árni Arngrímsson 25.02.2025 1:02:03
Ingi Þór Einarsson, lektor við Íþróttafræðideild HR, ræðir við Sigurbjörn Árna Arngrímsson sem oftast er kallaður Bjössi. Bjössi hefur gengt starfi skólameistara við Framhaldsskólann á Laugum frá árinu 2015 og kennt bæði við HÍ og HR þar sem hann kennir þjálfunarlífeðlisfræði í meistaranámi í dag. Bjössi hefur komið víða við og spjalla þeir félagarnir meðal annars um frægar íþróttalýsingar hans, v...
Sálfræðispjallið//Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði-seinni hluti 11.02.2025 59:00
Í öðrum þætti Sálfræðispjallsins, hlaðvarpi sálfræðideildar HR, fáum við að hlýða á hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði þar sem þeir taka fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar. Þetta er seinni þáttur af tveimur. Réttarsálfræði er fræðigrein sem leitast við að skilja afbrot, af hverju þau eiga sér stað, hvernig sé hægt að grípa inn í og hvernig megi hagnýta sálfræðilega þekkingu í réttarkerfinu....
Sálfræðispjallið// Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði-fyrri hluti 23.01.2025 1:10:13
Í fyrsta þætti Sálfræðispjallsins, hlaðvarpi sálfræðideildar HR, fáum við að hlýða á hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði þar sem þeir taka fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar. Þetta er fyrir þáttur af tveimur. Réttarsálfræði er fræðigrein sem leitast við að skilja afbrot, af hverju þau eiga sér stað, hvernig sé hægt að grípa inn í og hvernig megi hagnýta sálfræðilega þekkingu í réttarkerfinu....
Verkfræðivarpið // 32. þáttur:Um umbætur á verkefnastjórnsýslu í Danmörku, á grunni árangurs sem náðst hefur í Noregi -Dr. Per Svejvig 11.12.2024 40:07
Helgi Þór Ingason ræddi við Per Svejvig Dr. Per Svejvig er prófessor við Háskólann í Árósum í Danmörku og leiðir þar rannsóknir og kennslu á sviði verkefnastjórnunar. Bakgrunnur hans er á sviði upplýsingatækni og verkfræði en hann hefur mikla reynslu af verkefnastjórnun í dönsku atvinnulífi og er með alþjóðlega B vottun. Per er afkastamikill vísindamaður og vel þekktur fyrir sitt framlag og hin se...
Verkfræðivarpið // 31. þáttur: Gilbert Silvius -Um sjálfbærni, sem lykilhugtak í verkefnastjórnun 02.12.2024 40:27
Helgi Þór Ingason ræddi við Gilbert Silvius. Dr. Gilbert Silvius prófessor við HU háskóla í Hollandi er reyndur fyrirlesari, ráðgjafi og vísindamaður sem lagt hefur áherslu á verkefnastjórnun og upplýsingastjórnun. Gilbert hefur gefið út yfir 100 fræðigreinar og nokkrar bækur og hefur umsjón með fræðilegum rannsóknum við nokkra háskóla víðsvegar um Evrópu. Hann átti frumkvæði að og þróaði fyrsta v...
HR hlaðvarpið // Pössum púlsinn og veskið í desember 02.12.2024 37:28
Gestir dagsins í HR hlaðvarpinu eru þau Sigrún Þóra Sveinsdóttir og Valdimar Sigurðsson. Sigrún Þóra er sálfræðingur sérhæfð í lífeðlislegri sálfræði. Hún er doktorsnemi í sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og hefur starfað sem leiðtogi sálfræðiþjónustu fullorðinna hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu og sálfræðingur lögreglu. Valdimar er prófessor við Viðskipta- og hagfræðideild og forstöðum...
Verkfræðivarpið // 30 þáttur - Stórvirkið Samgöngusáttmáli 27.11.2024 57:18
Gestir Verkfræðivarpsins eru þeir Þorsteinn R. Hermannsson og Dr. Þröstur Guðmundsson frá Betri samgöngum. Þeir eru reyndir verkfræðingar sem leiða m.a. undirbúningsvinnu við Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem fullyrða má að sé eitt flóknasta og mest krefjandi verkefni seinni tíma. Raunar er Samgöngusáttmáli safn margra verkefna og Betri samgöngur hafa mikilvægu hlutverki að gegna við áætl...
Verkfræðivarpið // 29. þáttur: Gervigreind við sjálfvirknivæðingu viðskiptaferla (RPA) 22.11.2024 37:17
Gestur Verkfræðivarpsins er Hanna Kristín Skaftadóttir lektor við Háskólann á Bifröst. Í spjalli við Þórð Víking segir Hanna Kristín frá “háskólanum í skýinu” eins og Bifröst skilgreinir sig í dag. Hanna er nú að leggja lokahönd á doktorsritgerð sína um sjálfvirknivæðingu viðskiptaferla eða RPA. RPA er talið geta lækkað kostnað og aukið skilvirkni svo um munar ekki síst í dag þegar að gervigreind...
Lagadeildin // 1. þáttur: Helga Kristín Auðunsdóttir, lektor við lagadeild 05.11.2024 30:23
Helga Kristín Auðunsdóttir er lektor við lagadeild HR. Hún hvetur laganema til að skoða námstækifæri erlendis og hugsa út fyrir boxið. Sjálf lauk hún doktorsgráðu í lögfræði frá Fordham háskóla í New York og nam lögfræði við Aristotle háskólann í Thessaloniki í Grikklandi. Hún lauk BS gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2004 og ML gráðu í lögfræði árið 2006 frá sama skóla. Lauk...
Verkfræðivarpið // 28. þáttur: Anna Sigríður Islind og Stefán Ólafsson 31.10.2024 45:38
Í Verkfræðivarpinu að þessu sinni taka tali þeir Þórður Víkingur og Helgi Þór, tvo fræðimenn og kennara á sviði gervigreindar. Það eru þau Anna Sigríður Islind dósent og Stefán Ólafsson lektor. Bæði eru þau með allra fróðasta fólki um gervigeind og notkun mállíkana bæði í fræðilegum og hagnýtum tilgangi. Af þessu hlaust skemmtileg, áhugavert og fræðandi spjall sem gefur leikum sem lærðum innsýn...
Íþróttarabb HR // 20. þáttur: Rob Duffield 24.10.2024 52:22
Professor Rob Duffield works in the School of Sport, Exercise & Rehabilitation at the University of Technology Sydney. He is also the Head of Research & Development at Football Australia. Today he discusses his research with Professor Hugh Fullagar of Reykjavik University. Rob talks about his main research interests, including fatigue and recovery in sports science, specifically short and...
Verkfræðivarpið // 27. þáttur Agnes Hólm Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Verkefnastjórnunarfélags Íslands 18.10.2024 41:31
Agnes Hólm Gunnarsdóttir er gestur verkfræðivarpsins. Agnes er MSc í iðnaðarverkfræði og hefur starfað sem sérfræðingur og stjórnandi í hugbúnaðariðnaði, stóriðjunni og á verkfræðistofu. Nú hefur hún hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Verkefnastjórnunarfélags Íslands og ræðir í þættinum um hlutverk félagsins og ýmsar spennandi nýjungar í starfsemi þess, auk þess sem haustráðstefna félagsins k...
HR hlaðvarpið// Dr. Þórhildur Halldórsdóttir, dósent við sálfræðideild 15.10.2024 31:39
Í tilefni af geðheilbrigðisviku HR, sem fór fram í áttunda sinn nú í byrjun október, fengum við Dr. Þórhildi Halldórsdóttur, dósent við sálfræðideild, í hlaðvarp HR. Þórhildur er klínískur barnasálfræðingur og hefur í rannsóknum sínum einblínt á geðheilbrigði ungs fólks. Hún hefur m.a. rannsakað afleiðingar samkomutakmarkana á tímum Covid-19 heimsfaraldursins á líðan ungmenna og rannsakar nú áhrif...
Íþróttarabb HR // 19. þáttur: Rick Howard 01.10.2024 41:50
Rick Howard, gestaprófessor við Háskólann í Reykjavík, ræðir um rannsóknir sínar við Dr. Peter O'Donoghue. Rannsóknir Rick snúa að íþróttum barna og ungmenna, langtímaþróun íþróttamanna, styrktar- og þrekþjálfun í íþróttum barna og ungmenna, og líkamlegt læsi. Hann ræðir einnig um hvernig rannsóknir hans nýtast við þjálfun, með áherslu á bætta frammistöðu íþróttamanna, og þær hindranir sem ge...
Íþróttarabb HR // 18. þáttur: William Low 05.09.2024 41:15
Í íþróttarabbi HR að þessu sinni er rætt við William Low sem er aðstoðarprófessor í íþróttasálfræði í Herion Watts háskólanum í Skotlandi. William er gestafyrirlesari í mastersnámi íþróttafræðideildar HR og er sérfræðingur í álagsþjálfun (pressure training). Í álagsþjálfun vinna þjálfarar og íþróttasálfræðingar markvisst að því að auka andlegt álag á æfingum til að undirbúa íþróttafólk undir álag...
Íþróttarabb HR // 17. þáttur: Egill Ingi Jónsson 02.09.2024 46:03
Ingi Þór Einarsson lektor við íþróttafræðideild HR ræðir við Egil Inga Jónsson íþróttafræðing og skíðaþjálfara um skíðaþjálfun á Íslandi. Egill hefur þjálfað skíðafólk á öllum stigum allt frá byrjendum upp í Ólympíufara. Nýverið gerði Egill verkefni þar sem hann fjallar um hæfileikamótun skíðafólks og mikilvægi þess að hafa heildræna stefnu í skíðaþjálfun á Íslandi UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI Nám í íþróttafræ...
Íþróttarabb HR // 16. þáttur: Hjördís Ólafsdóttir 14.06.2024 46:57
Við settumst niður með Hjördísi Ólafsdóttur sem útskrifaðist úr MEd í kennsluþjálfun og heilsu vorið 2022, og ræddum við hana um áhugavert lokaverkefni þar sem hún gerði fræðsluefni um blæðingar og svo um sýn hennar á íþróttakennsluna sérstaklega sundkennslu. UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- o...
Íþróttarabb HR // 15. þáttur: Endurheimt, svefn og næring íþróttafólks - Dr. Hugh Fullagar 07.06.2024 50:54
Peter O´Donoghue prófessor við íþróttafræðideild HR ræðir við nýjan starfsmann íþróttafræðideildar Prófessor Hugh Fullagar. Hugh sérhæfir sig í rannsóknum á svefn, endurheimt og næringu íþróttafólks, allt mikilvægir þættir í frammistöðu íþróttafólks og fjalla þeir um þessi efni í samhengi við íþróttir og rannsóknir. UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr...
Verkfræðivarpið // 23. þáttur: Nýr Landspítali Háskólasjúkrahús 07.06.2024 59:25
Nýr Landspítali Háskólasjúkrahús, NLSH verkefnið, er eitt stærsta og flóknasta verkefni seinni tíma. Þjóðarsjúkrahúsið mun breyta heilbrigðisþjónustunni til hins betra. Gunnar Svavason verkfræðingur hefur leitt verkefnið frá byrjun Þetta mikla verkefni hefur verið mikil áskorun fyrir þau sem að því standa og gagnrýni hefur verið höfð uppi. Í mjög áhugaverðu spjalli í Verkfræðivarpinu fer Gunnar S...
Frumkvöðlavarp HR // 7. þáttur: Kristinn Þorleifsson - Kerecis 14.05.2024 17:08
Í þessum þætti ræðir Ásgeir Jónsson við Kristinn Þorleifsson, yfirmann vörustjórnunar, markaðsmála og vörumerkja hjá Kerecis vorið 2023. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti...
Frumkvöðlavarp HR // 8. þáttur: Guðbjörg Rist - Atmonia 14.05.2024 14:02
Í þessum þætti ræðir Ásgeir Jónsson við Guðbjörgu Rist, framkvæmdarstjóra Atmonia vorið 2023. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti nýsköpunarvettvangur háskólanema á Íslandi,...
Frumkvöðlavarp HR // 9. þáttur: Garðar Stefánsson - GOOD GOOD 14.05.2024 13:24
Í þessum þætti ræðir Svava Björk Ólafsdóttir við Garðar Stefánsson, framkvæmdarstjóra og meðstofnanda GOOD GOOD vorið 2023. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti nýsköpunarvet...
Παρόμοια podcast
Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS