Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: fotbolti.net
Δημιουργός
Fotbolti.net
Κατηγορία
Ιστοσελίδα του podcast
Τελευταίο επεισόδιο
25 Νοε 2026
Πού να ακούσεις;
Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομαΤα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast
Επεισόδια
Ungstirnin - 2000 úrvalslið og Blikar koma í heimsókn 27.11.2020
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum níunda þætti er fjallað um Yusuf Demir (Rapid Vienna), Marash Kumbulla (Roma) og Yunus Musah (Valencia). Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2000. Davíð I...
Miðjan - Siggi Bond var neyddur til að ræna apótek í Amsterdam 26.11.2020
Sigurður Gísli Snorrason varð Íslandsmeistari með FH árið 2015 en lífernið fór illa með hann. Fimm árum síðar fann hann botn í lífinu þegar hann mætti vopnaður byssu í apótek í Amsterdam og var handtekinn. Hann sneri lífinu við, tók sig á og átti gott tímabil með Þrótti í Vogum í sumar og stefnir hátt í fótboltanum að nýju. Siggi Bond segir sögu sína í Miðjunni í dag. Meðal efnis: - Hvaðan kemur g...
Fantabrögð - Lognið á undan storminum næstu helgi 24.11.2020
Það var fullur bátur af föntum í þættinum í dag. Hlutirnir virðast loks vera að færast í eðlilegt horf. Fantasy-guðirnir sýndu spilurum vægð þegar þeir leyfðu Bruno að skora. Liverpool hélt hreinu. Dominic Calwert-Lewin skoraði. Kane lagði upp. Chris Wood svaraði kal...
Enski boltinn - Ætla að sjá Tottenham taka við bikar í vor 23.11.2020
Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson mættu skellhlæjandi á skrifstofu Fótbolta.net. Tottenham situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag var rætt um sigur Spurs á Manchester City sem og aðra leiki helgarinnar í enska boltanum. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis...
Útvarpsþátturinn - Arnar Viðars, Sindri Kristinn og enski 21.11.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. nóvember. Elvar Geir og Tómas Þór ræða ítarlega við Arnar Þór Viðarsson, þjálfara U21 árs landsliðsins og yfirmann knattspyrnumála hjá KSÍ. Rætt er um frábæran árangur U21 land...
Fantabrögð - Kaup og Salah 19.11.2020
Fantasy liðin okkar halda áfram að verða fyrir áföllum í landsleikjahléum. Stærstu fréttirnar eru þær að Mohamed Salah sýktist af kórónaveirunni en spurningin er hvort hann verður frá í einn leik eða lengur. Ef maður selur hann, hvern á maður að kaupa í sta...
Heimavöllurinn - Íslandsmeistari best í 2. deild og ungfrú Hveragerði skuldar tattú 19.11.2020
2. deildin á hug og hjörtu Heimavallarins að þessu sinni. HK-ingarnir Karen Sturludóttir og Lára Hallgrímsdóttir fara yfir sumarið en HK leikur í Lengjudeildinni að ári. Þá kemur Dagný Rún Gísladóttir, konan sem átti stóran þátt í að stofna nýjan meistaraflokks Hamars, í heimsókn og segir frá ævintýrinu í Hveragerði.
Innkastið - Íslenska blandan breytist en margt jákvætt í kortunum 18.11.2020
Innkastið eftir tap Íslands gegn Englendingum á Wembley. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Ingólfur Sigurðsson og Magnús Már Einarsson fara yfir sviðið og ræða landsliðsmálin. Meðal umræðuefna: Frammistaðan gegn Englandi og einkunnir, Hamren og fleiri kveðja, hver verður næsti landsliðsþjálfari?, staða enska landsliðsins, U21 landsliðið á EM. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og...
Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskipti hjá Íslandi og Pepsi Max tíðindi 14.11.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Örvar Arnarsson, fréttamaður Fótbolta.net, er á línunni en hann var í Búdapest á fimmtudaginn þegar Ísland tapaði úrslitaleiknum gegn Ungverjalandi. Sigu...
Innkastið - Ólýsanlegt svekkelsi en hvað gerist næst? 12.11.2020
Landsleikurinn gegn Ungverjum er gerður upp í boði White Fox, Viking og Domino's. Íslandi tókst ekki að koma sér á þriðja stórmótið í röð. Hrikalega svekkjandi tapleikur í Búdapest þar sem Ísland var yfir þar til á 88. mínútu. Hvað fór úrskeiðis og hvað tekur við? Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir leikinn í .Net hljóðverinu.
Ungstirnin - Mikilvægt verkefni U21 og Luigi gestur 11.11.2020
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum áttunda þætti er fjallað um Becir Omeragic (FC Zurich), Leonidas Stergiou (St. Gallen) og Florian Wirtz (Bayer Leverkusen). Rætt er um mikilvæga leiki U21-landsliðsins sem spilar gegn Ítalíu...
Ítalski boltinn - Kvensjúkdómalæknirinn Lotito og lið umferða 1-7 10.11.2020
AC Milan trónir á toppnum þegar sjö umferðir eru liðnar af Serie-A. Lazio heldur áfram að safna stigum í uppbótartíma en utan vallar er liðið í vandræðum enda starfsmenn félagsins sakaðir um að svindla á Covid prófum. Eða hvað? Veit forseti liðsins betur en við öll hvernig veiran dreifir sér? Fiorentina nýtir landsleikjahléið til að ráða nýjan þjálfara sem þekkir Flórens betur en flestir og fyrstu...
Enski boltinn - Tom og Bjarni fóru yfir stóru málin 09.11.2020
Tómas Þór Þórðarson og Bjarni Þór Viðarsson á Síminn Sport kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir helgina í ensku úrvalsdeildinni. Þeir félagar ræddu um byrjun tímabils og einnig var rætt um stórleik Ungverjalands og Íslands. Meðal efnis: Firmino á að fara á bekkinn, þreyta í stórleiknum, fleiri skiptingar, Ole ennþá með klefann, Bruno Fernandes með heilt lið á bakinu, bakverðir Man Ut...
Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur landsliðsins og íslenskar fréttir 07.11.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 7. nóvember. Umsjón Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hitað upp fyrir Ungverjaland - Ísland, úrslitaleikinn um sæti á EM sem verður á fimmtudaginn. Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður er á línunni. Þá var einnig rætt við Sigurbjörn Hreiðarsson. Hann rýndi í stórleikinn í Búdapest og ræddi einnig aðeins um þá gulu og glöðu í Grindavík. Rætt var við Rú...
Ástríðan - Uppgjör 2. deildar með góðum gestum 06.11.2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Nú er komið að því að gera tímabilið í 2. deild upp en fulltrúar þeirra liða sem komust upp úr deildinni mættu í hljóðver. Magnús Þórir Matthíasson, leikmaður Kó...
Ástríðan - Uppgjör ársins í 3. deildinni 05.11.2020
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þessum þætti er tímabilið í 3. deildinni gert upp, opinberað val á liði ársins og þeim bestu í deildinni. Umsjónarmenn eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason.
Heimavöllurinn - Risa uppgjör á Maxinu, fimm vanmetnar og sú besta skeindi deildinni 05.11.2020
Keppni á Íslandsmótunum var hætt og bikarkeppnin blásin af. Blikar standa uppi sem Íslandsmeistarar en FH og KR falla. Heimavöllurinn gerir upp Pepsi Max deildina með góðvini þáttarins, Gylfa Tryggvasyni. Við opinberum úrvalslið Heimavallarins og veljum besta og efnilegasta leikmann, besta þjálfara og ýmislegt fleira.
Ítalski boltinn - Forsetar harðir í horn að taka 04.11.2020
Zlatan Ibrahimovic er kominn með sjö mörk í fjórum leikjum fyrir AC Milan sem trónir á toppi Serie-A eftir 6 umferðir. Bakfallsspyrnumarkið hans gegn Udinese var eitt af fjölmörgum stórkostlegum mörkum umferðarinnar. Varnarlína Inter bauð upp á hrekkjavökuþema gegn Parma og tveir þjálfarar eru á barmi þess að missa starfið. Þrír Íslendingar spiluðu stór hlutverk í bikarleikjum á meðan landsliðsmað...
Fantabrögð - Tökum skrýtna sénsa 03.11.2020
Fantabrögð fóru í saumana á því sem gerðist um helgina og spáðu í næstu umferð. Er Calwert-Lewin partýið búið? Er Jack Grealish orðinn skyldueign? Hvað með Jannick Vestergaard eða Diogo Jota? Er Chelsea að komast í gang? Á að selja Tottenham menn eftir næstu umferð?
Enski boltinn - Liverpool kreistir sigra og einbeitingarlaus Pogba 03.11.2020
Það var Liverpool þema í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolti.net í dag. Liverpool stuðningsmennirnir Hlynur Valsson og Hrafn Kristjánsson fóru yfir sviðið. Hlynur er lýsandi hjá Síminn Sport en Hrafn þjálfar körfuboltalið Álftnesinga. Meðal efnis: Liverpool kreistir sigra, Manchester City leikurinn gengur fyrir, Salah með miðverði eins og bakpoka, byrjun Jota ekki tilviljun, Mpabbe á óska...
Innkastið - Uppgjör Pepsi Max-deildarinnar 2020 02.11.2020
Innkastið gerir upp Pepsi Max-deild karla 2020. Einnig er rætt um Lengjudeildina. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis eru í sérstökum uppgjörsþætti tímabilsins. Lið ársins er opinberað, þjálfari ársins, leikmaður ársins, besti ungi leikmaðurinn og White Fox ákvörðun ársins.
Útvarpsþátturinn - Fótboltinn blásinn af 31.10.2020
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. október. Íslandsmótinu í fótbolta 2020 er lokið. Elvar Geir og Tómas Þór skoða lokastöðuna í þættinum og ræða um þessa ákvörðun. Rætt er við Ólaf Inga Skúlason hj&aa...
Ungstirnin - 98 úrvalslið og Ísak í sviðsljósinu 29.10.2020
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum sjöunda þætti setja þeir saman &u...
Ítalski boltinn - Afskorið svínshöfuð og ljót skilaboð 27.10.2020
Fimm umferðir eru nú liðnar af leiktíðinni á Ítalíu og sumir stuðningsmenn eru þegar farnir að hóta eigendum liðsins með afskornu svínshöfði og ljótum skilaboðum. Íslendingar eru farnir að byrja, koma inná og skora. Í þættinum verður líka farið yfir umferð þar sem Juventus missteig sig gegn Verona, AC Milan og Roma skildu jöfn í æsispennandi markaleik og haustþokan í Reggio Emilia gerði áhorfendum...
Fantabrögð - Botnlaus Bamford Brunch 27.10.2020
Mest óþolandi tímabil allra tíma heldur áfram í Fantasy Premier League. Mörkunum fækkaði heldur betur og stjórar sátu eftir með sárt ennið. Leeds var eina liðið sem skoraði meira en tvö mörk í umferðinni og það var Bamford brunchinn sem hélt áfram með þrennu. Manchester United og Chelsea stoppuðu í götin með því að stilla upp 5 manna vörn, á meðan Salah klikkaði sem vinsælasti fyrirliðinn. Wolves...
Παρόμοια podcast
Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS