Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ Επεισόδια: 2954

Podcastþættir Fótbolta.net

Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: fotbolti.net

Δημιουργός

Fotbolti.net

Κατηγορία

Sports

Ιστοσελίδα του podcast

fotbolti.net

Τελευταίο επεισόδιο

25 Νοε 2026

Πού να ακούσεις;

Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομα

Τα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast

Κατέβασέ το από το Google Play Δωρεάν εγκατάσταση Android 10 εκ.+ λήψεις · βαθμολογία 4,7+ iOS σύντομα

Επεισόδια

Fantabrögð - Þreföld þristamús! 05.05.2021

Frestun á leik Manchester United og Liverpool gerði það að verkum að þessi umferð fór fyrir ofan garð og neðan. Harry Kane var langvinsælasti fyrirliðinn en honum tókst að safna heilum tveimur stigum gegn stálstrákunum frá Sheffield. Aron og Gunni mættu í stúdíóið t...

Ástríðan - Premier League leikmaður í Vogana og upphitun fyrir 1. umferð 04.05.2021

Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu komandi sumar. Farið var yfir 1. umferð í 2. og 3.deild. Helstu félagaskipti voru skoðuð og meðal annars sprengja úr Vogunum! Létt spá fyrir leikina og hvað verður um Einherja? Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.

Enski boltinn - Allt tryllt á Old Trafford 03.05.2021

Lætin á Old Trafford og leikir helgarinnar í enska boltanum voru til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður á RÚV, og Hlynur Valsson, lýsandi hjá Símanum, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Meðal efnis: Bálreiðir stuðningsmenn, hliðin opnuðust, hvað gerist í sumar?, stjóraskipti Chelsea skipta sköpun, Tuchel notar hópinn vel, svalur Zidane, skjálft...

BÁN: Addi með belti og axlabönd og Hanski hélt hreinu 02.05.2021

Boltinn á Norðurlandi ræddi það helsta sem gerðist um helgina. KA byrjaði með flugeldasýningu, Þór lagði Magna og mikil dramatík á Dalvík. Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Steinke fóru yfir stóru málin og heyrðu í Egga Fúsa. Spáð í spilin og rýnt til gagns. Þátturinn er í boði Kaffid.is, PSA og Vamos.

Innkastið - Nýr leikur en sömu úrslit þegar Rúnar mætir Óskari 02.05.2021

Uppgjör 1. umferðar Pepsi Max-deildar karla í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis fara yfir leikina. Domino's Pizza býður upp á þáttinn. Meðal efnis: KR vinnur alltaf Blika, Sölvi langbestur í Víkinni, skýrsla úr leiðinlegum leik í Kórnum, magnaður markvö...

Heimavöllurinn: Lúxus fyrirpartý fyrir Pepsí Max 01.05.2021

Fótboltasumarið 2021 er að hefjast og spennan er óbærileg. Aníta Lísa knattspyrnuþjálfari og Karólína Jack leikmaður Fylkis mæta á Heimavöllinn í lokaupphitun fyrir Pepsí Max deildina. Við heyrum einnig í Báru Kristbjörgu sem fer yfir draumaliðið sitt og rýnir í deildina.

Útvarpsþátturinn - Lengjuspáin og opnunarleikurinn krufinn 01.05.2021

Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur þáttarins: Rafn Markús Vilbergsson. Opnunarleikur Pepsi Max-deildarinnar, leikur Vals og ÍA, er krufinn og farið yfir helstu fréttir varðandi deildina. Burðarefni þáttarins er þó spá Lengjudeildarinnar, fjallað er um öll liðin tólf.

Binni og Grímsi í KA-Special - „Sterkasta KA-liðið by a mile" 30.04.2021

Sæbjörn Steinke ræddi við þá Brynjar Inga Bjarnason og Hallgrím Mar Steingrímsson leikmenn KA í sérstökum upphitunarþætti fyrir mót. KA mætir HK í fyrsta leik sínum á morgun og ljóst að KA vill vera í baráttunni um eitthvað stærra og meira en undanfarin ár. Þátturinn var tekinn upp í Podcast Stúdíói Akureyrar.

Fantabrögð - Fantabrögð x Hemson 29.04.2021

Það vantaði bæði Gylfa og Gunna þessa vikuna og því brá Aron á það ráð að fá gest sem hefur gengið ansi vel á þessu tímabili í Fantasy, sjálfan Heiðmar Eyjólfsson sem er langefstur Íslendinga og númer 6 í heiminum. Þeir ræddu gen...

Innkastið - Púlsinn tekinn fyrir fyrstu umferð 28.04.2021

Innkastið er með léttan upphitunarþátt fyrir 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar þar sem Elvar Geir og Magnús Már taka púlsinn á góðum mönnum. - Jóhannes Karl Guðjónsson ræðir um sumarið framundan hjá ÍA en liðið á opnunarleikinn gegn Val á föstudag. - Tryggvi Hrafn Haraldsson, sóknarmaður Vals, ræðir um meiðslin sem hann hlaut í æfingaleik nýlega. - Gunnar Birgisson ræðir um fréttir vikunnar og gisk...

Enski boltinn - Martraðarsumar framundan 27.04.2021

Tottenham tapaði gegn Manchester City í enska deildabikarnum um helgina og bið félagsins eftir bikar lengist. Stjóraskipti Tottenham, úrslitaleikurinn og staðan almennt í enska boltanum var til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, voru gestir þáttarins í dag. Meðal efnis: Martraðarsumar framundan, Reykjalundur,...

Innkastið x Ástríðan - Lögreglumál og Púskas verðlaunasjálfsmark 26.04.2021

Mjólkurbikarinn er farinn af stað en aðeins einn leikur er eftir í 1. umferðinni. Í þessum sérstaka bikarþætti sameinast Innkastið og Ástríðan í yfirferð um bikarleiki helgarinnar. Elvar Geir, Sverrir Mar og Ingó Sig eru í hljóðveri. Meðal efnis: Lögreglan kölluð til, Púskas verðlaunasjálfsmark, Hjörtur á skotskónum, Svavar Elliði og félagar í Gullfálkanum brotlentu, Baldvin fékk rautt og vígslule...

Útvarpsþátturinn - Stóri Pepsi Max þátturinn 24.04.2021

Upphitunarþáttur Pepsi Max-deildarinnar 2021. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Farið er yfir spá Fótbolta.net fyrir Pepsi Max-deildina 2021. Öll liðin eru skoðuð og menn setja ýmsar athugasemdir við spánna!

Heimavöllurinn - Of feimin til að mæta á æfingar, FH ætlar upp og Arna Sif dóminerar skosku háloftin 23.04.2021

Sumarið er komið og það er þétt dagskrá á Heimavellinum að þessu sinni. Karitas Tómasdóttir, splunkuný landsliðskona úr Rangárvallasýslu mætir í heimsókn auk FH-inganna Ernu Guðrúnar Magnúsdóttur og Selmu Daggar Björgvinsdóttur sem geta ekki beðið eftir fótboltasumrinu. Þá slá þáttastýrur á þráðinn til Glasgow þar sem okkar kona, Arna Sif Ásgrímsdóttir, er að gera gott mót.

Ungstirnin - Pepsi Max upphitun með Rikka G 22.04.2021

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Þátturinn að þessu sinni er sérstakur upphitunarþáttur fyrir Pepsi-Max Deildina sem hefst 30. apríl nk. Útvarpsmaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason mætir sem gestur og spáir fyrir...

Ofurdeildin fjarar út og Woodward stekkur frá borði 21.04.2021

Annar aukaþáttur vegna Ofurdeildarinnar. Áætlanir um stofnun deildarinnar hafa runnið út í sandinn eftir að ensku félögin stukku frá borði. Elvar Geir og Magnús Már skoða málið með tveimur sérfræðingum. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, ræðir um hvað varð deildinni að falli. Gunnar Gunnarsson, ritstjóri Austurfréttar og sérfræðingur um Manchester United, fer yfir þau tí...

Ítalski boltinn - Lítill spiltími Andra vonbrigði 20.04.2021

Hlaðvarpsþátturinn Ítalski boltinn er aftur mættur eftir smá hlé. Björn Már Ólafsson fer yfir allt það helsta sem er að gerast í ítalska boltanum og hvernig síðustu vikur hafa spilast. Skoðað er hvernig Íslendingarnir hafa verið að gera, rætt um stöðu m&aacute...

Enski boltinn - Óvæntur brottrekstur Mourinho og Ofurdeildin 19.04.2021

Brottrekstur Jose Mourinho, ný Ofurdeild og leikir helgarinnar voru til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, og Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Meðal efnis: Sprengja milli Mourinho og Levy, óvæntur brottrekstur, hvað gerir ungur Mason við stýrir?, Mourinho gæti tekið við landsliði...

Allt nötrar út af Ofurdeildinni - NBA deild í Evrópu 19.04.2021

Stofnun nýju Ofurdeildarinnar kallar á sérstakan aukaþátt. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, fer yfir þessa nýju deild og peningana á bak við hana. Elvar Geir og Magnús Már ræða við Björn Berg um allt sem tengist þessum risastóru fréttunum.

Útvarpsþátturinn - Siggi Höskulds, vetrarverðlaun og Spánarspark 17.04.2021

Pepsi Max-deildin fær stórt pláss í þætti Elvars Geirs og Tómasar Þór þessa vikuna. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, er gestur þáttarins og þá eru Vetrarverðlaunin 2021 opinberuð þar sem bestu leikmenn undirbúningstímabilsins eru valdir. Ein...

Meistaradeildin - Enskur úrslitaleikur í kortunum 14.04.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er með sérstakan aukaþátt í hlaðvarpsformi þar sem fjallað er um 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir leikina, skoða undanúrslitin og spá í Evrópudeildarleikina framundan.

Fantabrögð - Messi KingGod dregur vagninn 13.04.2021

Öllum að óvörum var Stuart Dallas stigahæsti leikmaður umferðarinnar í Fantasy Premier League, sem var óheppilegt því flestir sem áttu hann stilltu honum upp sem þriðja varamanni á bekk. Jesse Lingard a.k.a. Messi KingGod heldur áfram að vera ekkert eðlilega góður og er nú með tæp 13 stig að meðaltali síðustu 3 umferðir. Tottenham á tvöfalda umferð og við megum reikna með því að sjá svívirðilega t...

Enski boltinn - West Ham bestir í London 12.04.2021

Baráttan um Meistaradeildarsæti verður harðari og harðari og það voru dramatísk sigurmörk í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Tómas Steindórsson, stuðningsmaður West Ham, og Guðmundur Gunnar Guðmundsson, stuðningsmaður Arsenal, og Mate Dalmay, markaðsstjóri Fótbolta.net, fóru yfir stöðuna í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Meðal efnis: Meðal efnis: Moyes á Zoom, Nolan drillaði liðið, fyndi...

Útvarpsþátturinn - Alfons, Rúnar Kristins og Meistaradeildin 10.04.2021

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. apríl. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Hringt er til Noregs þar sem Alfons Sampsted ræðir um stöðu mála. Alfons er ríkjandi Noregsmeistari með Bodö/Glimt en upphafi norsku deildarinnar var f...

Fantabrögð - Whole Jota Love 07.04.2021

A-príl mánuðurinn mikli byrjaði heldur hægt og var það einungis fyrirliðinn Harry Kane sem bjargaði umferðinni hjá mörgum. Liverpool unnu 3-0 sigur á Arsenal þar sem Diogo Jota skoraði tvö mörk. Hann er nú eftirsóttasta varan í Fantasy Premier League og þjálfarar keppast vi&et...

Άκου το podcast Fotbolti.net στο Replaio

Ραδιόφωνο και podcast σε μία εφαρμογή - δωρεάν, χωρίς εγγραφή. Εγκατάστησέ την σήμερα και μη χάσεις την πρεμιέρα

Κατέβασέ το από το Google Play

Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS