Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Μην παραλείψεις να επισκεφτείς τη σελίδα του podcast και να στηρίξεις τον δημιουργό: fotbolti.net
Δημιουργός
Fotbolti.net
Κατηγορία
Ιστοσελίδα του podcast
Τελευταίο επεισόδιο
25 Νοε 2026
Πού να ακούσεις;
Podcast στην εφαρμογή Replaio Radio Έρχεται σύντομαΤα podcast έρχονται σύντομα στην εφαρμογή. Εγκατάστησέ την τώρα και δες πρώτος μια εντελώς νέα προσέγγιση στα podcast
Επεισόδια
Tveggja Turna Tal - Kristján Ómar Björnsson 05.12.2024
Gestur dagsins er Kristján Ómar Björnsson. Kristján Ómar er einn leikjahæsti leikmaður í sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu með skráða 531 mótsleiki hjá KSI auk þess sem hann spilaði í Svíþjóð, geri aðrir betur! Kristján Ómar stofnaði Nú skólann í Hafnarfirði þar sem hann er Heilsustjóri. Við fórum yfir víðan völl! Kristján valdi bestu leikmenn sem hann hefur spilaði með, besta þjálfarann, fór yfir...
Fótbolta nördinn - 8 liða úrslit: Afturelding vs RÚV 04.12.2024
8 liða úrslitin eru hafin og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Aftureldingu og RÚV. Fyrir Aftureldingu keppti Arnór Gauti Ragnarsson en fyrir RÚV keppti Jóhann Páll Ástvaldsson
Tveggja Turna Tal - Ívar Ingimarsson 02.12.2024
Fyrri gestur vikunnar er Stöðfirðingurinn Ívar Ingimarsson. Ívar var farinn að spila með meistaraflokki fyrir fermingu á Stöðvarfirði þar sem hann náði í menn í frystihúsið til að spila við sig sem krakki. Við fórum yfir feril Ívars á hundavaði. Þar segir frá dagbókarskrifum, seiglu ungs drengs og ákveðni. Einnig ræddum við lausagöngu sauðfjár og nú er þáttastjórnandi kominn í spjallhóp á facebook...
Hugarburðarbolti Þáttur 14 Liverpool óstöðvandi! 01.12.2024
Liverpool í gírnum gegn City! City í dýpstu lægð í stjóra tíð Guirdiola. Óvænt hetja Brentford manna gegn Leicester. Vítaþrenna Justin Kluivert gegn Wolves á útivelli! Marka veisla í fyrri hálfleik hjá West Ham og Arsenal. Góðir heimasigrar hjá Man Utd og Chelsea.
Enski boltinn - Hvers konar vél er hann eiginlega búinn að smíða? 01.12.2024
Arne Slot er búinn að búa til hreint út sagt ótrúlega vel á mettíma hjá Liverpool. Liverpool vann 2-0 sigur gegn Manchester City í dag og það er erfitt að sjá annað en að þeir verði Englandsmeistarar. Allavega eins og staðan er núna. Davíð Eldur, stuðningsmaður Manchester City, kom í heimsókn í kvöld og fór yfir vandamálin hjá City en hans menn eru í dimmum dal þessa stundina. Hann fór yfir stórle...
Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn Þorvaldsson 29.11.2024
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, er sérstakur gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net þessa vikuna. Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi. Elvar Geir og Tómas Þór ræða við Óskar um verkefnið hjá KR og ýmislegt fleira. Í seinni hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar.
Hugarburðarbolti Þáttur 13 GW12 Man City tapaði fimmta leiknum í röð! 26.11.2024
Liverpool á siglingu og eru með 8 stiga forskot í deildinni. Versti kafli Man City í 18 ár þegar þeir töpuðu fimmta leik sínum í röð! Áhyggjuefni fyrir nýjan stjóra Man Utd Ruben Amorim. Tottenham yrðu meistarar ef þeir myndu bara spila 38 leiki gegn Man City. Brighton með jafn mörg stig og Arsenal og Chelsea eftir 12.umferðir.
Enski boltinn - Stór frumraun, Púlarar í skýjunum og meistarar í dimmum dal 24.11.2024
Það var mikil eftirvænting fyrir frumraun Rúben Amorim hjá Manchester United. En honum er eflaust ljóst núna að hann á langan veg framundan. Man Utd gerði 1-1 jafntefli við Ipswich í fyrsta leik Portúgalans en fyrr í dag jók Liverpool forskot sitt á toppnum í átta stig. Það er orðið kalt á toppnum. Og svo er það Manchester City. Hvað er í gangi þar? Guðmundur Aðalsteinn, Hilmar Jökull og Magnús Ha...
Útvarpsþátturinn - Ísland, fréttaflóð úr Bestu og Viktor Örn 23.11.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 23. nóvember. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir landsliðið og fréttaflóðið úr Bestu deildinni þar sem félögin keppast um að styrkja sig. Gestur þáttarins er Íslandsmeistarinn Viktor Örn Margeirsson sem átti frábært tímabil með Breiðabliki og var valinn í lið ársins.
Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Fylkir vs MBL 21.11.2024
Þetta er síðasti þátturinn í 16-liða úrslitum og eftir þennan þátt er það ljóst hverjir munu taka þátt í 8-liða úrslitunum. Í þessum þætti tekur Haraldur Örn á móti Ragnari Braga Sveinssyni sem keppir fyrir Fylki og Jóhanni Inga Hafþórssyni sem keppir fyrir MBL.
Innkastið - Eigum að gera okkur vonir um HM 2026 20.11.2024
Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni eftir 1 - 4 tap gegn Wales í gær. Sjö stig en þau hefðu átt að vera miklu fleiri miðað við frammistöðuna. Baldvin Már Borgarsson og Haraldur Örn Haraldsson settust niður með Guðmundi Aðalsteini og fóru yfir landsleikjagluggann. Einnig rætt lengi um Age Hareide og hans framtíð sem landsliðsþjálfara. Næst er það undankeppni HM 2026 og þó það...
Tveggja Turna Tal - Nik Chamberlain 18.11.2024
Gestur vikunnar er Íslandsmeistari í fótbolta 2024. Nik Chamberlain kemur frá Englandi, lærði í Alabama og tengdist Íslandi þar í gegnum m.a. Sigga Sör, Kára Ársæls og Hjört Hjartar! Nik kom til Íslands og spilaði á Álftanesi og ÍH áður en hann spilaði fyrir austan hjá Hugin og KFF. Hann setti mark sitt á Íslenskan fótbolta hjá kvennaliði Þróttar og var á haustmánuðum Íslandsmeistari með Breiðabli...
Útvarpsþátturinn - Máni fer um víðan völl 16.11.2024
Það er landsleikjagluggi og þáttur vikunnar litast að sjálfsögðu af honum. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stjórnartaumana og með þeim er Máni Pétursson sérstakur gestur og fer yfir helstu mál.
Frá Akranesi til Gana: Fer aftur með fótboltabúnað fyrir jólin 14.11.2024
Hin ganverska Samira Suleman safnar nú fótbolta- og íþróttabúnaði sem hún fer með til Gana um jólin. Samira gerði þetta líka um síðustu jól en hún fór þá með mikið magn af treyjum, skóm og öðrum búnaði í heimabæ sinn og gladdi þar mörg börn sem eiga ekki fyrir slíkan búnað. Fyrir börnin skiptir þetta gríðarlega miklu máli en í Gana er ekki sjálfsagt mál að eiga fótboltaskó og aðra hluti til fótbol...
Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Víkingur vs Íþróttavikan 13.11.2024
16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Víking og Íþróttavikunni. Fyrir Víkinga keppti Davíð Örn Atlason en fyrir Íþróttavikuna keppti Hrafnkell Freyr Ágústsson.
Hugarburðarbolti GW12 Man City tapaði fjórða leiknum í röð! 12.11.2024
Man City tapaði fjórða leiknum í röð í öllum keppnum! Liverpool eru í góðum gír með 5 stiga forskot á City. Yoane Wissa drjúgur fyrir Brentford eftir meiðslin. Joao Pedro með alvöru innkomu hjá Brighton! Bruno Fernandes kom loksins með frammistöðu og Sammie Szmodics afgreiddi Tottenham í London.
Enski boltinn - Liverpool er bara besta lið Evrópu 11.11.2024
Liverpool stuðningsmenn eru í skýjunum þessa dagana en það er óhætt að fullyrða að liðið þeirra sé það besta í Evrópu um þessar mundir. Hvern hefði grunað það fyrir tímabilið? Útvarpsmennirnir Bolli Már Bjarnason og Heiðar Austmann komu í heimsókn í dag og fóru yfir tímabilið hjá Liverpool til þessa en liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forskot. Þá var einnig farið yfir aðra...
Tveggja Turna Tal - Jóhann Birnir Guðmundsson 11.11.2024
Gestur vikunnar er Jóhann Birnir Guðmundsson, eðalnáungi. Jói æfði eiginlega ekki fótbolta í 3 og 4 flokki því það var ekki lið í Garðinum, þaðan sem kemur. Elton John keypti hann til Watford og þar spilaði hann undir goðsögninni Graham Taylor. Jóhann spilaði svo i Englandi, Noregi og í Svíþjóð áður en hann kom heim til að spila með Keflavík. Eftir ferilinn hefur Jói verið þjálfari Keflavíku...
Útvarpsþátturinn - Kári Árna, Evrópuvelgengni Víkings og landsliðið 08.11.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins er Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi. Fjallað er um helstu fréttir úr íslenska boltanum, Evrópuvelgengni Víkings og íslenska landsliðið sem býr sig undir leiki gegn Svartfjallalandi og Wales í Þjóðadeildinni.
Fékk traustið áfram og gerði KA að bikarmeisturum 08.11.2024
Sæbjörn Steinke ræddi í vikunni við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, og gerði upp nýliðið tímabil með honum. KA varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins og endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar. Stigasöfnunin var lítil í byrjun móts og hugsuðu einhverjir hvort KA þyrfti hreinlega að skipta um þjálfara. Það var ekki gert og gengi liðsins batnaði til muna, við tók kafli þar sem KA tapaði ekki...
Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Breiðablik vs Þungavigtin 06.11.2024
16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Breiðablik og Þungavigtinni. Fyrir Breiðablik keppti Höskuldur Gunnlaugsson en fyrir Þungavigtina keppti Kristján Óli Sigurðsson.
Hugarburðarbolti - Liverpool aftur á toppinn! 05.11.2024
Liverpool aftur á toppinn eftir magnaðan leik á Anfield Road gegn Brighton. Man City og Arsenal töpuðu bæði. Dominic Solanke skein skært hjá Spurs gegn Aston Villa. Viðurinn heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. Dýrlingarnir með sinn fyrsta sigur í deildinni og Harry Wilson hetjan á Craven Cottage.
Enski boltinn - Liverpool á toppnum og velkominn Amorim 04.11.2024
Það eru viðburðarríkir dagar að baki í enska boltanum og nóg um að ræða að venju. Liverpool er á toppnum eftir frábæra byrjun og Manchester United var að ráða nýjan stjóra. Svo er Nottingham Forest heitasta lið deildarinnar. Magnús Haukur Harðarson og Gylfi Tryggvason settust niður og ræddu málin í dag ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni.
Rólegi stríðsmaðurinn sem aldrei vék frá Stjörnunni 04.11.2024
Daníel Laxdal lagði skóna á hilluna á dögunum eftir stórkostlegan feril með Stjörnunni. Daníel lék allan sinn feril í Garðabænum og skilur eftir sig mikla arfleifð hjá félaginu. Mikill stríðsmaður innan vallar en afar rólegur samt sem áður. Þessi mikli Stjörnumaður mætti í hlaðvarp á Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi aðeins um ferilinn, ákvörðunina um að hætta og hvað sé næst.
Tveggja Turna Tal - Haraldur Árni Hróðmarsson 04.11.2024
Gestur vikunnar er í einu áhugaverðasta starfi í íslenskum fótbolta. Haraldur Árni Hróðmarsson þjálfar lið frá bæjarfélagi þar sem enginn býr, því miður. Við ræddum saman um fótboltaferilinn, 48 tíma reglu Bo Hendrikssen, hvernig það var að þjálfa með Heimi Guðjóns, Tufa og Jóni Þór ásamt því sem Haraldur spáir því að trúðurinn Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna. Kvikmyndaunnendur landsins mu...
Παρόμοια podcast
Το Replaio δεν είναι εκδότης podcast - τα ονόματα των εκπομπών, τα εξώφυλλα και ο ήχος ανήκουν στους δημιουργούς τους και διανέμονται μέσω δημόσιων ροών RSS