Háskólinn á Akureyri

Temjum tæknina

Temjum tæknina er hlaðvarp um gervigreind og fólk. Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri við Háskólann á Akureyri, tekur á móti gestum og ræðir tækni, spunagreind, sjálfvirkni og áhrif tæknibyltinga á daglegt líf. Gestir þáttarins koma úr ólíkum áttum – allt frá sérfræðingum til þeirra sem eru að taka sín fyrstu skref í tækninni. Áherslan er á mannlegar sögur og tengsl tækni við samfélagið í víðum skilningi og áhrif á ólíkar greinar.

Autor

Háskólinn á Akureyri

Kategorie

Technology

Podcast-Website

temjumtaeknina.podbean.com

Neueste Folge

10. Jun 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

#S2-10 Eyjólfur Guðmundsson - Hvað setur þú í magnarann? 10.06.2026

Samtal við Eyjólf Guðmundsson — fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, deildarforseta við Landbúnaðarháskóla Íslands og fyrrverandi hagfræðing hjá CCP (EVE Online). Gervigreindin sem magnari, LLM eins og Minecraft, fatan sem hver kynslóð fyllir, velviljaða búrið og fullveldi yfir eigin gögnum — og af hverju þetta snýst um stjórnarhætti, ekki tækni.

#S2-09 Pietro Segreto - Hvað verður um útgáfuiðnaðinn þegar gervigreind tekur völdin? 10.06.2026

Íslenska: Hvað verður um útgáfuiðnaðinn þegar gervigreind tekur völdin? Ég ræði við Pietro Segreto, ítalskan doktorsnema sem rannsakar gervigreind í útgáfu, um hvers vegna útgefendur eru í kjarnann hliðverðir þekkingar, hvernig þeir færast frá því að selja bækur yfir í að selja þjónustu byggða á gögnum sínum, og af hverju gögn — ekki líkönin sjálf — eru raunverulega verðmætið. Samtal um sköpun, sj...

#S2-08 Guðmundur Smári Gunnarsson - Valhöll range-boltanna: Dans, golf, gervigreind og einlendu tegundirnar 22.05.2026

Í þessum þætti mætir Guðmundur Smári Gunnarsson. Við ræðum hvernig flókin mannleg færni mótast í taugakerfinu og hvernig líkamsvitund nýtist jafnt í dansi, flugveiði og golfi. Magnús deilir tilraun sinni þar sem hann notar gervigreind til að greina Trackman-gögn og hreyfimyndbönd til að endurbyggja golfsveifluna. Saman velta þeir upp „prompt-prófi“ Guðmundar um einlendu dýrin á Íslandi, „2026-stim...

#S2-07 Dr. Sigrún Stefánsdóttir - Hvað á frystihúsvinna á Akureyri sameiginlegt með framrás gervigreindar? 10.03.2026

Í þessum þætti fær Magnús Smári til sín dr. Sigrúnu Stefánsdóttur, fjölmiðlafræðing og fyrrum dagskrárstjóra RÚV. Þau ræða þróun fjölmiðla, stöðu íslenskrar tungu og hvernig gervigreindin breytir námi og fréttamennsku. Sigrún deilir athyglisverðri tilraun þar sem nemendur kepptu við tæknina og veltir því upp hvort við séum að ræna ungt fólk dýrmætri lífsreynslu. Samtal um dýpt, gagnrýna hugsun og...

#S2-06 Smári Sigurðsson - "Við erum búin að hlaða múra í kringum okkur." 15.12.2025

Í þessum þætti er gestur minn Smári Sigurðsson, múrarameistari og faðir minn. Saman ræðum við breytta tíma, frá uppvexti í sveit og vinnu við Laxárvirkjun yfir í tækniöldina sem við lifum í dag. Smári hefur haldið sig fjarri tölvum og snjallsímum stærstan hluta ævinnar og hefur einstaka sýn á hvernig tæknin hefur breytt samskiptum okkar – eða eins og hann segir: „Við erum búin að hlaða múra í krin...

#S2-05 Lilja Dögg Jónsdóttir - Hvernig lifir lítið tungumál af á öld gervigreindar? 10.12.2025

Í þessum þætti af ræðir Magnús Smári við Lilju Dögg Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Almannaróms, miðstöðvar um máltækni á Íslandi. Samtalið er ferðalag um fortíð, nútíð og framtíð íslenskunnar í stafrænum heimi. Lilja rekur sögulega baráttu þjóðarinnar fyrir íslenskum stöfum á lyklaborðum, útskýrir þá brýnu þörf sem er á íslenskum þjálfunargögnum fyrir gervigreind og lýsir þeim metnaðarfullu verkefnu...

#S2-04 Sálin í vélinni: Samtal við Roberto Buccola & Giorgio Baruchello 01.12.2025

Hver er sál tækninnar? Í þessum enska þætti ræðir Magnús Smári við ítölsku hugsuðina Dr. Roberto Buccola og prófessor Giorgio Baruchello. Í stað tæknilegrar umræðu er gervigreind krufin með tækjum sálgreiningar, goðafræði og heimspeki. Eru reikniritin nýir guðir og gervigreindin nútíma gullgerðarlist?

#S2-03 Sigurður Óli Árnason - Hvernig sköpum við raunverulegt virði með gervigreind? 06.11.2025

Í þessum þætti af "Temjum tæknina" sest Magnús Smári niður með Sigurði Óla, vöruþróunarstjóra hjá Datalab, og þeir rýna í eina af stærstu spurningum samtímans: Hvernig sköpum við raunverulegt virði með gervigreind? Í hlaðvarpinu er m.a. fjallað um muninn á "gamaldags" spálíkönum og nýrri spunagreind/skapandi-gervigreind á borð við ChatGPT. Sigurður deilir hagnýtri reynslu sinni af því að hanna lau...

#S2-02 Pia Susanna Sigurlína Viinikka - Sönnunardrifin nálgun og ný aðferðafræði 17.10.2025

Sérstakur þáttur" af Temjum tæknina, þar sem óljóst er hvor sé gestur eða hlaðvarpsstjórnandi, en Pia Sigurlína langaði að ræða við Magnús um Scite sem nemendur og starfsmenn HA hafa aðgang að í tilefni að Open Access. Sagt verður frá hvers vegna Scite.ai varð fyrir valinu og hvernig innleiðingin gengur. Hvaða hlutverk bókasafnið hefur í ferlinu? Einnig verður rætt um hvað sönnunardrifin nálgun er...

#S2-01 Pétur Maack Þorsteinsson - Getur spjallmenni komið í stað sálfræðings? 15.10.2025

Getur spjallmenni komið í stað sálfræðings? Og hvaða ábyrgð berum við á tímum þar sem tæknin býður upp á skjótar lausnir við flóknum mannlegum vanda? Pétur Maack Þorsteinsson sálfræðingur fer yfir mörkin milli manns og vélar og veltir upp spurningunni um hvað raunverulega skiptir máli þegar fólk þarf á stuðningi að halda.

#S1-09 Sverrir Bergmann 11.09.2025

Í þessum þætti af „Temjum tæknina“ ræðir Magnús Smári Smárason við Sverri Bergmann Magnússon, nýútskrifaðan viðskiptafræðing frá Háskólanum á Akureyri og bæjarfulltrúa. Við byrjum að ræða um meistararitgerð Sverris þar sem hann rannsakaði áhrif síaukinnar stafrænnar tengingar á mörk vinnu og einkalífs hjá sveitarstjórnarfólki. Þaðan þróast umræðan yfir í víðtækar áskoranir nútímans, svo sem stöðug...

#S1-08 Tolli og Dr. Auðbjörg Björnsdóttir 20.05.2025

Í þessum þætti af Temjum tæknina ræðir Magnús Smári við listamanninn Tolla og Dr. Auðbjörgu Björnsdóttur um áhrif gervigreindar á sköpun, menntun og manneskjuna. Samtal þeirra snýst um jafnvægi, innri ró og hvernig við getum nýtt tæknina á mannúðlegan og skapandi hátt.

#S1-07 Sean Rife (English) 08.05.2025

In this episode of Temjum tæknina (Taming Technology), we speak with Professor Sean Rife, co-founder of Scite, about the role of AI in science and education. The interview is in English. The University of Akureyri recently signed a two-year agreement with Scite, granting full access to students and staff. Implementation has begun in collaboration with faculty, the university library, and the IT an...

#S1-07 Sean Rife 08.05.2025

Í þessum þætti af Temjum tæknina ræðum við við prófessor Sean Rife, meðstofnanda Scite, um áhrif gervigreindar á vísindastarf og menntun. Viðtalið fer fram á ensku. Háskólinn á Akureyri hefur nýlega gert tveggja ára samning við Scite sem veitir öllum nemendum og starfsfólki aðgang að þessari öflugu þjónustu – og er innleiðing hafin í samstarfi við kennara, bókasafn og upplýsingatæknimiðstöð.

#S1-06 Safa Jemai 08.05.2025

Í þættinum fáum við innsýn í ótrúlega vegferð Safa Jemai, sem flutti frá Túnis til Íslands 23 ára, lærði íslensku á fimm mánuðum og rekur í dag tvö gjörólík fyrirtæki – Vikonnek í gervigreindarlausnum og Mabrúka í kryddum sem tengir hana á áhugaverðan hátt við uppruna sinn í Túnis. Safa ræðir við Magnús um reynslu sína af því að byrja upp á nýtt í nýju landi, hvernig hún sameinar tækni og matarhef...

#S1-05 Jónatan Sólon Magnússon 03.04.2025

Gestur þáttarins er Jónatan Sólon Magnússon, doktorsnemi við heimspeki- og vísindaaðferðafræðistofnun Kepler háskólans í Linz, Austurríki. Jónatan rannsakar gervigreind og efnahagsaðstæður í tengslum við þá þróun með sérstaka áherslu á vinnumarkaðinn. Við ræðum áhrif gervigreindar á störf, hvernig sjálfvirknivæðing getur haft í för með sér breytingar á vinnumarkaði og hugmyndina um "frelsi frá vin...

#S1-04 Gísli Ragnar Guðmundsson 03.04.2025

Í þættinum fær Magnús Smári heimsókn frá Gísla Ragnari Guðmundssyni, fyrrum starfsmanni Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins sem tók þátt í gerð aðgerðaáætlunar Íslands í málefnum gervigreindar til 2026 og nú starfar sem ráðgjafi hjá KPMG. Þeir ræða stöðu gagnamála hjá hinu opinbera, áskoranir við innleiðingu gervigreindar í íslenskri stjórnsýslu, mikilvægi góðra gagnagrunna fyrir gervigr...

#S1-03 Dr. Ari Kristinn Jónsson 21.03.2025

Dr. Ari Kristinn Jónsson er einn áhrifamesti tæknileiðtogi Íslands – fyrrum NASA-vísindamaður, fyrrverandi rektor HR og frumkvöðull á sviði gervigreindar, menntunar og nýsköpunar. Í þessum þætti skyggnumst við inn í ótrúlegan feril hans, leiðtogastíl og ástríðu fyrir því að nýta tækni til að leysa raunveruleg vandamál – frá Mars-jeppum yfir í menntun framtíðarinnar.

#S1-02 Helena Sigurðardóttir 12.03.2025

Gesturinn í þessum þætti er Helena Sigurðardóttir kennsluráðgjafi hjá Háskólanum á Akureyri, Helena er grunnskólakennari og hefur verið mikill frumkvöðull í að innleiða tækni frá spjaldtölvuvæðingu grunnskóla yfir í gervigreind verkfæri í háskólasamfélaginu, virkilega gaman að fá hana í spjall og margir afar áhugaverðir punktar ræddir.

#S1-01 Gunnar Ásgeir Ásgeirsson - Gervigreind, íslenskt mál og þýðingar 21.02.2025

Í þessum fyrsta þætti er rætt við Gunnar Ásgeir Ásgeirsson, kerfisstjóra við Háskólann á Akureyri, hann deilir reynslu sinni úr kvikmyndabransanum – sögum af sýningarstjórastarfinu sem hvarf með stafrænu byltingunni til textavinnslu og verndun íslenskunar. Við spyrjum: Hvernig temjum við tæknina á ábyrgan hátt, án þess að missa tökin? Gunnar er líka gestgjafi hlaðvarpsins Litli mallakúturinn – hlu...

#Trailer - Temjum tæknina 14.02.2025

Temjum tæknina í stað þess að láta hana stjórna okkur

Höre den Podcast Temjum tæknina in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet