Guðfríður Daníelsdóttir og Halldóra Vattnes
Snyrtifræðingarnir
Podcast þættir sem fjalla um allt sem tengist starfi snyrtifræðinga og hvað meðferðir snyrtifræðingar bjóða upp á og hvernig er gott að undirbúa sig fyrir það. Einnig um húðumhirðu, notkun snyrtivara og ásamt því að svara spurningum sem hlustendur okkar hafa varðandi húð, snyrtimeðferðir og snyrtivörur.
Autor
Guðfríður Daníelsdóttir og Halldóra Vattnes
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
9. Mai 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Tiktoktrend 19.04.2024 39:58
Í þættinum ræðum við um nokkur tiktoktrend eins og dermaplaning, dry shaving og brow lamination. Ásamt því að svara nokkrum spurningum sem við höfum fengið á samfélagsmiðlum.
Húðgreining og Húðrútína 12.04.2024 43:09
Förum í gegnum hvernig húðgreining fer fram og hvað er verið að skoða í henni. Því næst förum við yfir hvernig grunnhúðrútína er að okkar mati og af hverju.
Rebekka Einars 06.04.2024 1:02:04
Við fengum hana Rebekku Einars til okkar í gott spjall og ræddum við um hennar starf sem snyrtifræðingur og hvaða meðferðir eru algengastar hjá henni. Ásamt því hvernig hún náði að vekja upp ást sína aftur á augabrúnum og allt það nýjasta í aðferðum til að gera fullkomnar brúnir.
Meira um okkur og Snyrtifræðinámið 28.03.2024 1:04:33
Meiri lýsing á okkar ferli frá því við byrjuðum í námi sem snyrtifræðingar og til dagsins í dag. Einnig farið yfir snyrtifræðinámið og hvað skólinn hefur upp á að bjóða og létt spjall í kringum það.
Fyrsti þáttur 23.03.2024 1:00:50
Kynning á okkur sjálfum og hvert markmið okkar með þáttunum er. Þar sem fermingartímabilið er í fullu fjöri þá förum við smá yfir notkun á snyrtivöru hjá ungu fólki og hvernig samfélagsmiðlar hafa áhrif á það. Ásamt því tölum við um hvað er gott að hafa í huga fyrir fermingar og önnur tilefni.
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet