RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Danadrottning, mannasiðir á páskum og erfðabreytingatækni 16.04.2025 59:14
Margrét Þórhildur Danadrottning fagnar 85 árum í dag með sínum nánustu í Fredensborgarhöll - og í morgun hyllti lúðrasveit konunglegu lífvarðasveitarinnar drottningu á tröppum hallarinnar. Guðný Laxdal, sem heldur úti samfélagsmiðlum undir nafninu Royal Icelander, kemur til okkar og ræðir líf og störf þessarar merku konu, sem sat lengst í valdastóli allra þjóðhöfðingja Dana. Við ræðum líka við Alb...
Stjórnmálaveturinn og heimsókn í Hússtjórnarskólann í Reykjavík 15.04.2025 59:07
Þingveturinn hefur verið forvitnilegur - ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við völdum rétt fyrir jól og þing var svo sett 4. febrúar síðastliðinn. Þetta hefur því ekki verið langur tími hjá nýrri ríkisstjórn en við fórum yfir þingveturinn með Magnúsi Geir Eyjólfssyni, þingfréttaritara RÚV. Í 103 ára gömlu 800 fermetra húsi við Sólvallagötu í Reykjavík er að finna Hússtjórnarskólann í Reykjav...
Breiðholt, endurheimt og bréf af vígvellinum 14.04.2025 59:09
Sumum þykir orðræða um Breiðholtið oft vera frekar neikvæð. Kristín Dögg Kristinsdóttir, þjóðfræðingur og Breiðhyltingur, er alin upp í Fellahverfi í Breiðholtinu. Í BA ritgerð sinni í þjóðfræðináminu rannsakaði hún upplifun nokkurra einstaklinga af því að alast upp í hverfinu. Hún kallar eftir jákvæðara umtali um hverfið. 2020-2030 er áratugur endurheimtar hjá Sameinuðu þjóðunum. Endurheimt vistk...
Sýndarverslanir, dýr í heimilisleit og fegurðin 08.04.2025 59:14
Sýndarverslanir spretta upp eins og gorkúlur og hverfa jafnhratt, segir Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. Hún ræddi þetta fyrirbæri í Samfélaginu fyrir nokkrum mánuðum og er nú komin aftur í sömu erindagjörðum, en miklar áhyggjur eru víða vegna þessa verslunarmáta og sumar þessara verslana virðast vera búnar til og reknar af gervigreind. Dýrahjálp Íslands er félag sjálfb...
Smalastúlkur, drykkjurútar og galdranornir, áhrif hamfarahlýnunar á tilfinningalífið og unga fólkið árið 1948 07.04.2025 59:03
Smalastúlkur, drykkjurútar og galdranornir verða á dagskrá þáttarins í dag - en samkvæmt rannsókn Dagrúnar Óskar Jónsdóttur, aðjúnkts í þjóðfræði við Háskóla Íslands eru það helstu birtingarmyndir kvenna í íslenskum þjóðsögum. Og síðan ætlum við að velta fyrir okkur áhrifum hamfarahlýnunar á tilfinningalíf okkar. Ola Martin Sandberg er heimspekingur og nýdoktor við Háskóla Íslands sem hefur um nok...
Samfélagið í Íshúsi Hafnarfjarðar 04.04.2025 59:03
Við heilsum frá Íshúsinu í Hafnarfirði – þar eru vinnustofur listamanna, hönnuða, handverksmanna og fleiri og hér verðum við í dag. Íshús Hafnarfjarðarer viðeigandi staður á sjálfum Hönnunarmars, sem hófst á miðvikudag og lýkur á sunnudag. Hér í Íshúsinu við smábátahöfnina í Hafnarfirði er sannarlega nóg af hönnun og ýmsu öðru sem við ætlum að kynna okkur í dag. Tónlist úr þættinum: ARETHA FRANKLI...
Loforð Trumps og gæludýrahald 03.04.2025 57:36
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur verið fyrirferðamikill í umræðunni á þessum rúmlega 70 dögum sem eru liðnir frá embættistöku hans, enda hefur hann alls ekki setið auðum höndum. Síðasta umdeilda ákvörðun hans var í gær, þegar hann tilkynnti um nýja tolla á vörur sem eru fluttar inn til Bandaríkjanna – þar á meðal vörur frá Íslandi. Forsetinn lofaði ýmsu í kosningabaráttunni - er hann einfaldle...
Félagsleg einangrun, Kennedy-skjölin og köld böð 02.04.2025 59:10
Félagsleg einangrun er lýðheilsuvandi til jafns við reykingar, ofneyslu áfengis og fleiri stórfelldar ógnir við almenna heilsu, að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Og félagsleg einangrun er frekar algeng, talið er að eitt af hverjum tíu ungmennum upplifi félagslega einangrun og um fjórðungur eldra fólks. En hverjar eru orsakirnar? Hvað er til ráða? Við ræðum við Líneyju Úlfarsdóttur, sálfræð...
Skólasóknarvandi og lýðræði á tímum tækniauðvalds 01.04.2025 56:34
Skólaforðun er hugtak sem fór að heyrast fyrir nokkrum árum, en í því felst að börn forðast að mæta í skóla af ýmsum ástæðum. Þetta virðist vera nokkuð algengt, ef marka má umræðuna - en hvað veldur og hvers vegna mæta börnin ekki í skólann? Við ræðum við Sigrúnu Harðardóttur dósent í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands sem rannsakar skólaforðun barna í íslenskum grunnskólum ásamt fleirum. Og í sein...
Framtíð kræklingaræktar, kynhlutlaust mál og Sigfús Sigurhjartarson 31.03.2025 59:20
Fyrir rúmum áratug var stunduð umfangsmikil bláskeljarækt á Íslandi - síðan hrundi þessi grein - og það sem meira er þörungar sem framleiða taugaeitur hafa gert krækling hættulegan til neyslu. Á greinin sér viðreisnar von? Og hvað er hægt að gera í þessum eiturþörungum? Sara Harðardóttir þörunga- og erfðafræðingur hjá Hafrannsóknastofnun stýrir nú stórri rannsókn á öryggi og hagkvæmni í bláskeljar...
Samfélagið í Andrými 28.03.2025 58:18
Í dag förum við í heimsókn í Andrými, svokallað róttækt félagsrými við Bergþórugötu í miðborg Reykjavíkur. Í gær var boðið upp á ókeypis kvöldverð í rýminu, eldaðan úr afgöngum, gefins og rusluðum mat – eins og gert er tvisvar í mánuði, og Samfélagið leit við, hitti Elí Hörpu- og Önundarbur sem sagði okkur frá starfseminni og veitti okkur innsýn í undirbúning kvöldverðarins. Og svo rifjum við upp...
Líðan íslenskra ungmenna, óæskilegir kælimiðlar, eiturefni 27.03.2025 59:16
Í dag fjöllum við um líðan íslenskra ungmenna, eitt af stóru málunum í samfélagsumræðunni þessi misseri. Því er stundum haldið fram að geðheilsu íslenskra ungmenna fari hrakandi, lyfjanotkun sé of mikil – og að staða þessara mála sé mjög slæm. Á morgun verður haldinn fundur undir yfirskriftinni Heilsan okkar – þar sem geðheilsa og líðan ungmenna verður til umfjöllunar. Og í dag fáum við til okkar...
Gervi og ekta ferðamennska, Gervigreindarhæp, minningar ungbarna 26.03.2025 59:16
Fyrir tæpum tíu árum gerði kanadíski popparinn Justin Bieber flak gamallar varnarliðsvélar sem nauðlenti á Sólheimasandi fyrir tæpum fimmtíu árum heimsfrægt. Enn sér ekki fyrir endann á vinsældum þess. Landeigendur hafa gripið gæsina og rukkað fyrir bílastæði en nú standa þeir á ákveðnum tímamótum. Flakið er orðið ansi veðrað og það vakti athygli í vikunni þegar fréttastofa stöðvar 2 greindi frá þ...
Lífríki Breiðafjarðar, borgir sem breytast með tímanum 25.03.2025 59:15
Í dag umvefjum við okkur lífríki Breiðafjarðar. Í síðustu viku kíkti Samfélagið í heimsókn á Snæfellsnes og kom við á náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi, sem sinnir vöktunum og rannsóknum á lífríkinu í Breiðafirði og víðar á Vesturlandi. Við ræðum við Róbert Stefánsson, forstöðumann náttúrustofu Vesturlands, meðal annars um haferni, háhyrninga, og ágengar tegundir í íslenskri náttúru. Og síða...
Gróðureldar ógna vatnsverndarsvæði, Stéttaskipting á Íslandi, Mikilvægasta starfið árið 1971 24.03.2025 55:00
Þann 4. apríl 2021 logaði stórt svæði í Heiðmörk, gróðureldarnir voru erfiðir viðureignar enda allt skraufaþurrt. Vatnsverndarsvæðið í Heiðmörk þjónar meginþorra þjóðarinnar - og eftir eldana greindust í vatninu krabbameinsvaldandi efni sem ekki höfðu fundist þar áður. Við ætlum að ræða við Maríu J. Gunnarsdóttur, sérfræðing hjá Vatnaverkfræðistofu Háskóla Íslands, en hún rannsakaði áhrif gróðurel...
Jöklar á Íslandi, Framkvæmdir í Grundarfjarðarbæ, Æðarsetur Íslands 21.03.2025 55:18
Við tökum stöðuna á íslenskum jöklum og framtíð þeirra í tilefni af alþjóðlegum degi jökla, Andri Gunnarsson, verkefnisstjóri vatnafars hjá Landsvirkjun og formaður Jöklarannsóknarfélags Íslands, JÖRFÍ, hefur verið úti um allar trissur að tala á málþingum af þessu tilefni - en gefur sér tíma til að stoppa stutt við hjá okkur og spjalla um jökla á Íslandi. Heimsókn á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarb...
Lögfræði og gervigreind, Hvað er stríð og hvað er þjóðarmorð? 20.03.2025 58:50
Hvernig finnum við jafnvægi milli réttinda og gervigreindar – milli lagasetningar og samkeppnishæfni Evrópu í þróun tækninnar. Þetta var meginstef á ráðstefnu um gervigreind og lögfræði sem fór fram í Hörpu í gær á vegum Háskólans í Reykjavík. Á henni voru saman komnir nokkur hundruð lögfræðingar og aðrir sérfræðingar til að velta sér upp úr þessum málum, og við mættum líka til að taka púlsinn þar...
Reynslusaga: Long Covid er eins og spennitreyja, ME-félagið um börn og Long Covid, Vísindaspjall um plastmengun 19.03.2025 59:06
Atli Þór Kristinsson, sagnfræðinemi, var í vinnu, námi og stundaði félagslífið af krafti en eftir að hafa smitast af COVID-19 er hann óvinnufær. Sjúkdómur Atla Þórs heitir Long Covid og hann líkir honum við spennitreyju. Atli Þór segir okkur frá upplifun sinni af sjúkdómnum. Hann hefur í rannsóknum sínum kafað ofan í veruleika ungs fólks sem dvaldi á elliheimilum á síðustu öld, og segja má að hann...
Vísindaleg nýsköpun og heimsókn í háleynilegt seðlaver 18.03.2025 57:35
Í dag pælum við í hugtakinu „vísindaleg nýsköpun“. Hvað er það? Hvernig fer svoleiðis nýsköpun fram? Og hvernig stöndum við okkur hér á landi í að hagnýta vísindi? Einar Mantyla, sem hefur starfað á þessu sviði um árabil, segir að Ísland sé tuttugu árum eftir á. En hvers vegna? Hvað er til ráða? Við ræðum við Einar hér á eftir um vísindalega nýsköpun. Bankarnir reka saman seðlaver á háleynilegum s...
Hvað varð um umhverfismálin? Nýjar veforðabækur og staða vinnuhjúa. 17.03.2025 59:16
Eru umhverfismálin horfin úr umræðunni? Hvað varð um þau? Um helgina komu hundrað manns saman á opnum fundi í Háskólanum í Reykjavík til þess að ræða stöðu umhverfismála og horfa til framtíðar. Þetta var fólk úr grasrótinni en líka úr atvinnulífinu og pólitíkinni. Skipuleggjendur fundarins, þær Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Valgerður Árnadóttir og Kamma Thordarson, segja okkur frá fundinum og a...
Rasismi í garð Grænlendinga, umdeildar herstöðvar, loftslagsbreytingar á norðurslóðum 14.03.2025 56:04
Kerfisbundinn rasismi Dana í garð Grænlendinga er ekki nýr af nálinni enda teygir nýlendusagan sig 300 ár aftur í tímann. Nýlega, mitt í Trump-fárinu og hneykslinu í kringum heimildamyndina um hvíta kreólít-gullið, birti danska ríkissjónvarpið grínþátt sem var kornið sem fyllti mælinn og fjöldi fólks mótmælti í Nuuk, forsætisráðherra landsins þar á meðal. Við fjöllum um rasisma í garð Grænlendinga...
Námsmenn gagnrýna námslánakerfið, tilraunabúið á Hesti, gangverk náttúrunnar 13.03.2025 58:12
Í dag tökum við snúning á hagsmunabaráttu stúdenta. Á dögunum birtist frumvarp um breytingu á lögum um menntasjóð námsmanna. Markmið frumvarpsins er að skýra lögin, þá sérstaklega fyrirkomulag um námsstyrki og endurgreiðslur, en hagsmunasamtök stúdenta hafa gagnrýnt hluta frumvarpsins og segja að breytingarnar geti, í einhverjum tilfellum, gert illt verra fyrir stúdenta. Lísa Margrét Gunnarsdóttir...
Grænlenskt sjálfstæði og auðlindir, elítuskólar, kannabis 12.03.2025 56:41
Grænland er í brennidepli hér á Rás 1 þessa vikuna - og reyndar um allan heim, að því er virðist. Við ræðum sjálfstæði Grænlands og auðlindir við Rachael Lorna Johnstone, prófessor í lögfræði og sérfræðing í þjóðarrétti við Háskólann á Akureyri og Illisimatusarfik-háskóla á Grænlandi. Og við fjöllum líka um birtingarmyndir stéttaskiptingar í íslensku samfélagi við Berglindi Rós Magnúsdóttur, prófe...
Slys á hafi úti, hvítleiki og sjúkdómar 11.03.2025 59:05
Við ætlum að fjalla um það hvernig Landhelgisgæsla Íslands bregst við skipsbrunum, árekstrum skipa á hafi úti og alvarlegum umhverfisslysum. Í gær sigldi portúgalska flutningaskipið Solong á bandaríska olíuskipið Stena Immaculate, sem lá fyrir akkeri í Norðursjó, 16 kílómetra úti fyrir höfninni í Hull. Bæði skipin standa í ljósum lögum. Mikið magn flugvélaeldsneytis lekur í sjóinn og til að bæta g...
Hugmyndahraðhlaup fyrir heilbrigðiskerfið, Sjóvarnir og sjávarflóð, Formaður Póstfreyjufélagsins 1969 10.03.2025 59:08
Vandamál heilbrigðiskerfisins voru í forgrunni á hugmyndahraðhlaupi um helgina. Þar safnaðist saman skapandi fólk sem reyndi að finna lausnir á biðlistum, óskilvirkum tilvísunum og óeinstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu. Hugmyndahraðhlaupið var á vegum Klak – Icelandic Startups og í dag ræðum við við Atla Björgvinsson og Frey Friðfinnsson frá Klak um hugmyndahraðhlaup, nýsköpun og heilbrigðistæk...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet