RÚV

Samfélagið

Society IS ↓ 477 Folgen

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is

Autor

RÚV

Kategorie

Society

Podcast-Website

www.ruv.is

Neueste Folge

26. Feb 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Geðlestin, þróun og áhrif veiðarfæra og hvenær lærðu Íslendingar að skrifa? 16.09.2025

Í gulum september, sem nú stendur yfir, er lögð áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi. Í tilefni af gulum september ætla landssamtökin Geðhjálp að ferðast um landið með geðlestina. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, kom í spjall. Stór hluti þess afla sem er sóttur í hafið við Ísland er veiddur með bot...

Vernd íslenskra hafsvæða, dulúðlegar fjalir á Þjóðskjalsafninu og rannsókn á fjölmiðlanotkun 15.09.2025

Fyrir árið 2030 hyggjast íslensk stjórnvöld tryggja vernd 30% hafsvæða við Ísland. Þetta er stórt stökk því í dag er bara örlítið brot af hafinu við Ísland verndað. Snjólaug Árnadóttir, dósent við Lagadeild HR og forstöðumaður Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík, ætlar að ræða við okkur um hafréttarmál en það er allur gangur á því hvort alþjóðasáttmálar um vernd hafsins e...

Iðnaðarúrgangi breytt í hönnun, ný barkarbjöllutegund ógnar ungplöntum, dökkar hliðar gervigreindarinnar 12.09.2025

Árið 2024 umbreytti hönnunarfyrirtækið FÓLK Reykjavík 14,5 tonnum af iðnaðar- og neytendaúrgangi í verðmætar hönnunarvörur. Blómavasar, veggljós, bakkar og púðar voru búin til úr afgangssteini-, gleri og textíl sem annars hefði farið til spillis, endað í landfyllingu eða verið brennt með tilheyrandi umhverfiskostnaði. Við ræðum við Rögnu Söru Jónsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Fólk Reykjaví...

Minnkandi arðsemi menntunar, ástríða fyrir íþróttakennslu og uppfinning sem eyðir plastrusli 11.09.2025

Borgar sig að vanmeta menntun? var yfirskrift málþings sem fór fram í Grósku í byrjun vikunnar. Arðsemi háskólanáms á Íslandi hefur dregist saman um helming frá árinu 2008, samkvæmt nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem unnin var fyrir BHM. Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, segir okkur frá helstu niðurstöðum. Íþróttakennsla barna í grunnskólum hefur tekið breytingum þau fjörutíu...

Skólar farnir á fullt eftir sumarfrí, hafsbotninn við Ísland kortlagður og rannsókn á Parkinson sjúkdómi 10.09.2025

Hvað vitum við um lífríkið á hafsbotninum umhverfis Ísland? Þekking vísindamanna er gloppótt og sömuleiðis vitneskja um áhrif botnvörpuveiða á þetta lífríki. Í sumar hitti Samfélagið Steinunni Hilmu Ólafsdóttur, sjávarlíffræðing, um borð í nýja hafrannsóknaskipinu, Þórunni Þórðardóttur. Steinunn Hilma var á leið í nokkurra vikna siglingu til að rannsaka lífríki hafsbotnsins við Ísland og sagði okk...

Framlag atvinnulífsins til loftslagsmála og staðleysa í borgum 09.09.2025

Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda í loftslagsmálum. Ársfundur samtakanna fór fram á dögunum. Við ræðum við Nótt Thorberg, forstöðumann Grænvangs, um getu atvinnulífsins til að leggja sitt af mörkum í loftslagsmálum, helstu hindranir og sóknarfæri og samstarfið við stjórnvöld. Páll Líndal veltir í pistli dagsins fyrir sér staðaranda, staðleysu og Disney-væðingu og setur í...

Bókasafnsdagurinn og 60 ára gömul frægðarför körfuboltalandliðsins til Bandaríkjanna 08.09.2025

Bókasafnsdagurinn er haldinn í borgarbókasafninu í Kringlunni í dag. Þema dagsins er lestur er bestur - fyrir sálina. Guttormur Þorsteinsson, bókavörður, segir okkur allt um dagskrána á bóksafninu í dag. Við heyrum söguna af því þegar íslenska körfuboltalandsliðið fór næstum því á fund Bandaríkjaforseta, á sjöunda áratug síðustu aldar. En Evrópumótið í körfubolta fer nú fram í Kýpur, Finnlandi, Pó...

Húllumhæ í Borgarnesi: Hinseginhátíð Vesturlands og Brákarhátíð 27.06.2025

Samfélagið sendi út frá hljóðveri Ríkisútvarpsins í Hjálmakletti í Borgarnesi og ræddi við forsvarsmenn hátíðanna tveggja sem setja svip sinn á bæinn um helgina, Hinseginhátíð Vesturlands og Brákarhátíð. Við skoðum úrvalið í Regnbogasjoppunni og Guðrún Steinunn Guðbrandsdóttir, forseti Hinsegin Vesturlands, og Hafþór Ingi Gunnarsson, formaður Hollvinasamtaka Borgarness, segja frá tilurð hátíðanna,...

Meira um lífríkið við Mógilsá og endurvinnsla textíls 26.06.2025

Við höldum áfram að rannsaka lífríkið við rannsóknarstöð Lands og skóga að Mógilsá í Kollafirði. Arnhildur Hálfdánardóttir slóst í maí í fyrra í för með þeim Brynju Hrafnkelsdóttur, skógfræðingi hjá Landi og skógi, og Matthíasi S. Alfreðssyni, skordýrafræðingi hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sem vinna saman að því að rannsaka nýja landnema á borð við grenivefara og sniglanárakka. Þau skoða hvað h...

Vísindamenn flýja Bandaríkin, lífríkið við Mógilsá, DNA í lofti 25.06.2025

Í gær fjölluðum við í Samfélaginu um aðför að loftslagsvísindum og vísindastofnunum í Bandaríkjunum og við höldum okkur á svipuðum nótum í dag. Umrót í vísindalandslagi Bandaríkjanna gæti haft víðtækari áhrif. Einar Mantyla, sérfræðingur í nýsköpun hjá Orkídeu – sem hefur fengist við svokallaða vísindalega nýsköpun um árabil – ætlar að setjast hjá okkur og ræða spekileka sem hefur lengi legið til...

Helíum og aðför að loftslagsvísindum 24.06.2025

Við verðum á vísindalegum nótum í þætti dagsins og byrjum á að ræða um helín – eða helíum – lofttegund sem við þekkjum einna helst úr sautjánda-júní-blöðrum en gegnir einnig mikilvægu hlutverki í læknavísindum og vísindarannsóknum á hinu og þessu. En notkun okkar á þessari gastegund er langt umfram framleiðslu – þetta er takmörkuð auðlind sem við göngum á og erum mjög léleg í að endurnýta. Ágúst K...

Gervigreind og níkótínpúðar, lögregludagbók frá 1941 23.06.2025

Fyrirtæki eru í auknum mæli farin að nýta gervigreind til að auka afköst, bæta sölustarf og ná betur til réttra markhópa – líka fyrirtæki sem fremleiða sígarettur. Þau veðja þó ekki lengur á retturnar heldur hafa fjárfest fyrir hundruð milljarða í níkótínpúðum og nýta tæknina til að koma þeim hraðar í hendur – og undir varir – ungra neytenda. Og síðan kíkjum við í heimsókn í Þjóðskjalasafn Íslands...

Vestasta grenjaskytta landsins og nýjar skordýrategundir 20.06.2025

Í dag fjöllum við um refaveiðar. Samfélagið leggur leið sína til Patreksfjarðar, þar sem Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum, ræddi við grenjaskyttu sem starfar í gamla Rauðasandshreppi, vestasta odda landsins. Hann segir tilganginn ekki vera að útrýma refnum heldur halda fjölda þeirra í skefjum svo fuglalífið geti blómstrað. Og við höldum okkur í ríki dýranna...

Pallborð á kvenréttindadaginn, skordýrapistill 19.06.2025

Pallborð á kvenréttindadaginn: Í dag eru 110 ár liðin frá því konur 40 ára og eldri fengu kosningarétt - kvenréttindadagurinn 19. júní á sér langa sögu og upp á hann hefur verið haldið með margvíslegum hætti - og við látum ekki okkar eftir liggja hér í Samfélaginu á Rás 1 og blásum til pallborðsviðræðna um stöðu kvenna og kvára. Við ætlum að líta um öxl en líka reyna að bera kennsl á hin fjölmörgu...

Matseðill náttúrunnar, Murakami heiðursdoktor við HÍ, svefn unglinga 18.06.2025

Í tilefni af degi sjálfbærrar matargerðarlistar verður í dag boðið upp á gönguferð og plöntusmakk fyrir utan Norræna húsið í Reykjavík. Að þessu standa meðal annars samtökin Borgarnáttúra, sem ætla að kenna fólki að bera kennsl á villtar matjurtir í grenndinni og samtökin Slow food á Íslandi. Svava Hrönn Guðmundsdóttir, stundum kennd við sinnep, verður einn fulltrúi Slow food á staðnum og hún ætla...

Hugsandi kennslustofur, Ný rannsókn á maíhitabylgjunni, glæsiskipið Gullfoss 16.06.2025

Um 120 kennarar í grunn- og framhaldsskólum komu saman fyrir helgi til að læra nýstárlega aðferð til að kenna stærðfræði. Aðferðin er kölluð upp á íslensku hugsandi kennslustofur og er tíunduð í samnefndri bók eftir hinn sænska Peter Liljeberg – prófessor í stærðfræðimenntun við Simon Fraser-háskólann í Kanada, og það var einmitt hann sem stóð fyrir þessu námskeiði ásamt Bjarnheiði Kristinsdóttur,...

Úttekt á regnhlífanotkun. Gerir Google út af við fréttamiðla? Pistill um hafið 13.06.2025

Þjóðhátíðardagurinn er handan við hornið, eða helgina og viti menn - þá er spáð rigningu um mest allt land enda ekki almennilegur 17. júní nema það rigni og helst duglega. Til að búa landsmenn undir hæhó og jibbý jei ákvað Samfélagið að ráðast í rannsókn á regnhlífanotkun á Íslandi fyrr og nú - og spyrja: Eru regnhlífar gagnlegar eða ef til vill algerlega gagnslausar á Íslandi? Hvers vegna ráðum v...

Rúnar götuljósmyndari, baráttan fyrir afglæpavæðingu heimabruggs 12.06.2025

Rúnar Gunnarsson ljósmyndari er einn fárra sem stundað hefur götuljósmyndun á Íslandi - raunar hefur hann myndað mannlífið í 65 ár. Við hittum Rúnar á Lækjartorgi og ræðum við hann um götuljósmyndun, mannlífið í miðborg Reykjavíkur í áranna rás og hvort tíminn sé mögulega bara einhvers konar blekking. Félag áhugafólks um gerjun – eða FÁGUN – er stofnað utan um áhugamál sem er í raun og veru ólögle...

World Pride gert upp, samfélagslöggur í sókn, mjólkurvörur og hamfarahlýnun 11.06.2025

Mannréttindaráðstefna World Pride var haldin í síðustu viku í höfuðborg Bandaríkjanna – en ráðstefnan er hluti af stærstu hinsegin viðburðarröð heims og dregur að sér þátttakendur, sérfræðinga og leiðtoga alls staðar að úr heiminum til að ræða stöðu og framtíð mannréttinda hinsegin fólks. Fulltrúar Samtakanna 78 og Hinsegin daga tóku meðal annarra þátt í ráðstefnunni og í dag koma þeir í heimsókn...

Glæpatíðni á Íslandi og sumarstörf 06.06.2025

Í dag fjöllum við um glæpi. Þegar fylgst er með almennri umræðu á Íslandi mætti stundum halda að glæpatíðnin í dag væri hærri en gengur og gerist og stundum heyrast jafnvel raddir sem segja að ástandið hér á landi sé stjórnlaust – af hinum ýmsu ástæðum. En hvað segja tölurnar okkur? Snorri Örn Árnason, verkefnastjóri hjá ríkislögreglustjóra og aðjúnkt í afbrotafræði við Háskóla Íslands kíkir í hei...

Fann frelsi í þremur fermetrum, sumarhraðallinn Startup supernova, að eitra fyrir sínum nánustu 05.06.2025

Fyrir fjórum árum stóð Loftur Guðmundsson, verkfræðingur, á krossgötum, ákvað að láta reyna á gamlan draum og flutti í húsbíl. Nýlega ákvað hann að minnka við sig og býr nú í þriggja fermetra sendiferðabíl á Sævarhöfða í Reykjavík, þar sem fleira fólk býr í húsbílum og smáhýsum með aðgang að rafmagn og hreinlætisaðstöðu. Við heimsækjum Loft sem líklega er einn nægjusamasti maður landsins og kynnum...

Gervigreind og matarsóun, hand-, fóta- og munnsjúkdómur, verkjameðferðir 04.06.2025

Tæknin hjálpar okkur við margt í daglegu lífi, en mun gervigreind hjálpa til við að leysa stór vandamál sem steðja að heiminum, eins og matarsóun. Eyrún Magnúsdóttir, gervigreindarfréttaritari Samfélagsins, ætlar að koma til okkar og fjalla um það hvernig gervigreind og matarsóun tengjast. Reglulega berast foreldrum leikskólabarna tölvupóstar um að hinn eða þessi sjúkdómur hafi skotið sér niður í...

Hertar umbúðakröfur, kynjuð raddbeiting og árfarvegur Túría-ár 03.06.2025

Ýmsar umbúðir sem fyrirtæki hér á landi nota verða ólöglegar ef og þegar ný umbúðareglugerð Evrópusambandsins verður innleidd í íslenskt regluverk í gegnum EES-samninginn. Reglurnar lúta að hönnun, samsetningu og stærð umbúða og koma til með að snerta marga framleiðendur hér. Til dæmis verður bannað að pakka gúrkum og tómötum í plast, litlar smjöröskjur og pokarnir með tómatsósu, sem oft fylgja fr...

Reykjavík Fringe Festival og hitamótmæli á Austurvelli 02.06.2025

Hátíðin Reykjavík Fringe Festival fer fram í áttunda sinn þessa vikuna, þar verða margs konar listform og gjörningar ráðandi; uppistand, ljóð, ljósmynda- og leiksýningar - meira að segja burlesque-danssýning þar sem kettir koma við sögu. Við fáum tæknistjóra hátíðarinnar, Juliette Louste, til að ræða við okkur um þessa hátíð sem á rætur sínar að rekja til grasrótarhreyfingar listamanna í Skotlandi...

Ósanngjarnar kröfur um samskiptahæfileika og hafið 30.05.2025

Oft eru gerðar miklar kröfur um samskiptahæfileika í atvinnuauglýsingum, jafnvel í störfum þar sem þeirra er ekki þörf. Þetta getur haft útilokandi áhrif fyrir einhverfa sem búa oft yfir öðrum styrkleikum sem nýtast vel í starfi. Eru gáfur jafnvel að fara til spillis vegna þess að vinnumarkaðurinn er of einsleitur? Í meistararitgerð með yfirskriftinni: Allir eiga að vera mega hressir og með brenna...

Höre den Podcast Samfélagið in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet