Poppsálin

Poppsálin

Health IS ↓ 112 Folgen

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar. 

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.facebook.com

Autor

Poppsálin

Kategorie

Health

Podcast-Website

www.facebook.com

Neueste Folge

9. Aug 2023

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Rofinn persónuleiki: Geðröskun eða athyglissýki? 16.09.2021

Í þessum þætti verður fjallað um nokkuð sérkennilega en sjaldgæfa geðröskun sem nefnist Rofinn persónuleiki. Fjallað verður um helstu einkenni og orsakir. Tengsl við áföll og misnotkun úr æsku verða gerð skil.  Rætt verður um þá staðreynd að röskunin hefur verið mjög umdeild og margir telja sálfræðinga og geðlækna hreinleg geta ýtt undir þróun röskunarinnar með rangri meðferð. Einnig verða dæmi úr...

Demi Lovato: Dansað við dauðann 06.09.2021

Í þessum þætti er fjallað um nokkur viðkvæm málefni.  Sagt er frá reynslu og erfiðleikum söngsnillingsins Demi  Lovato. Rætt er um einelti, áföll, átraskanir, nauðganir, vímuefnaneyslu og nóttina þar sem Demi fannst nær dauða en lífi eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af lyfjum.  Hægt er að styrkja Poppsálina með kaffibolla hér: https://www.buymeacoffee.com/poppsalin Endilega followið og læk...

Covid-19: Mótmælendur bólusetninga, samsæriskenningar og Dunning-Kruger áhrifin 31.08.2021

Í þessum þætti má heyra almennt rant og pælingar um mótmælendur bólusetninga, Covid - 19 samsæriskenningar og tengsl við fyrirbæri innan sálfræðinnar sem nefnist Dunning-Kruger áhrif. Þessi þáttur er með þeim verri. Sorry. En hljóðgæðin ágæt. Það er eitthvað ;) Hægt er að styrkja Poppsálina með því að kaupa kaffibolla hér: Poppsalin (buymeacoffee.com)

Simone Biles: Fimleikadrottning í hættulegum snúningi 27.08.2021

Í þessum þætti verður fjallað um fimleikadrottninguna Simone Biles. Farið verður í áföll í æsku,  erfiðleikana á Ólympíuleikunum í sumar, hættulega snúninga eða The Twisties, andlega heilsu og kynferðislega misnotkun af hálfu landsliðs læknisins Larry Nassar 

Vísindakirkjan - Tom Cruise, geimverur og útskúfun 20.08.2021

Í þessum þætti er farið í hugmyndir Vísindakirkjunnar. Skoðað verður hvernig kirkjan lokkar til sín nýja meðlimi og nýtir fræga einstaklinga til þess.  Tengsl kirkjunnar við fræga verður rædd og sérstaklega staða Tom Cruise.  Útskúfun, stór sérkennileg heimsmynd, fjárkúgun, lygalegir lygamælar ofl ofl 

Ross og Rachel - Ást í raunveruleikanum? 12.08.2021

Í þessum þætti er fjallað um ástarsögu Ross og Rachel úr Friends. Farið verður í þær sögusagnir sem hafa verið á sveimi um að leikararnir Jennifer Aniston og David Schwimmer sem léku Rachel og Ross séu að stinga saman nefjum.  Sálfræðin bak við það að leikarar séu líklegri en aðrar stéttir til að hefja ástarsambönd við samstarfsfélaga sína verður skoðuð sem og líffræðin bak við nálægð, nánd og kos...

Leonardo Dicaprio og tyggjóklessu áráttan (OCD) 10.08.2021

Í þessum fyrsta þætti  af annarri seríu Poppsálarinnar er farið ansi ítarlega í áráttu og þráhyggju eða OCD, einkenni, reynslusögur og orsakir. Skoðað verður tengslin við söfnunaráráttu eða hoarding.  Einnig verður reynsla leikarans Leonardo Dicaprio af OCD reifuð og rætt um leik hans í myndinni The Aviator þar sem hann leyfði röskuninni að magnast upp til að geta leikið hlutverkið betur. 

Frægt fólk - Dýrlingar eða ómeðvitaðar hugsanaskekkjur? 08.07.2021

Í þessum lokaþætti fyrstu seríu er fjallað um aðdáun okkar á frægu fólki.   Elva segir frá kynnum sínum af fyrrverandi kærustu Kurt Cobain.  Einnig er fjallað um það af hverju við höfum áhuga á frægu fólki og af hverju unglingsárin eru sérstök í því samhengi?  Hvað er Halo effect eða geislabaugsáhrif? Hvað eru frumhrif og kunnugleikaáhrif? Af hverju eru hjón oft lík? Af hverju kaupum við rándýru s...

Björk og ástsjúki eltihrellirinn 08.07.2021

Í þessum þætti er fjallað um söngkonuna Björk  og eltihrellinn Lopez, sem var með þráhyggju fyrir henni. Einnig er farið í ýmsa flokka stalkera eða eltihrella, einkenni, hegðun, áhættuþætti og normalíseringu ástar-eltihrella-hegðunar.  Mjög áhugavert allt saman :) Hægt er að styrkja Poppsálina með einum kaffibolla: https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

Undarlegt hvarf Richey úr Manic Street Preachers 01.07.2021

Í þessum þætti er fjallað um undarlegt mannshvarf. Þann 1. febrúar 1995 hvar gítarleikari Manic Street Preachers, Richey Edwards.  Margt bendir til þess að hann hafi tekið sitt eigið líf en sérkennileg atburðarás bendir þó einnig til þess að hann hafi mögulega horfið sjálfviljugur.  Í þættinum verður fjallað um sjálfsskaða og sálfræðilegar hugmyndir um það.  Hægt er að styrkja Poppsálina með rjúka...

Britney Spears (5. þáttur) - I'm a Slave 4 U 25.06.2021

Farið er í nýjustu vendingar í máli Britney Spears en hún tjáði sig loksins um frelsissviptinguna sem hún er búin að lifa við í 13 ár.  Hvað sagði hún í dómsal?  Út á hvað gengur #FreeBritney hreyfingin?  Hvernig virkar þetta kerfi á Íslandi og hver er staðan hér á landi þegar kemur að frelsissviptingum? 

Munchausen by proxy: Sögur, einkenni og orsakir 22.06.2021

Í þessum þætti af Poppsálinni verður farið í sérkennilega uppgerðarröskun sem nefnist Munchausen by proxy. Einnig verður farið almennt í Munchausen heilkenni, einkenni og mögulegar orsakir. Rætt verður um vöggudauða og tengingu þess röskunina. Farið verður í nokkur þekkt Munchausen by proxy mál eins og Gypsy Rose og rapparann Eminem. 

Ástar - "költið" 11.06.2021

Í þessum þætti er farið í sérkennilegan hóp sem nefnist Love has won. Leiðtogi hópsins Amy Carlson fannst látin fyrir stuttu síðan. Hún var vafin inn líkt og múmía, með ljósaseríu utan um sig og þakin glimmeri. Amy taldi sig  vera margra milljarða ára gömul og hafa verið Marilyn Monroe í fyrra lífi. Einnig taldi hún að leikarinn Robin Williams heitinn væri hennar helsti samstarfsmaður.  Stórskrýti...

Friends - Welcome to the real world! It sucks. You're gonna love it! 03.06.2021

Welcome to the real world! It sucks. You're gonna love it!  Í þessum þætti mætir Sólrún Ósk Lárusdóttir sálfræðingur og snillingur í Poppsálina og ræðir sjónvarpsþættina Friends. Elva Björk þáttastjórnandi og Sólrún ræða um vinsældir þáttanna, sálfræðilegar hugmyndir um vinsældirnar og af hverju fólk í dag horfir enn. Einnig ræða þær um ólíku karakterana í þættinum og hvaða karakter var &quot...

Latifa - Týnda prinsessan frá Dubai 28.05.2021

Í þessum þætti er farið í stór sérkennilegt mál sem flótti Latifu prinsessu frá Dubaí er. Farið verður yfir sögu Latifu, stöðuna í dag og þær óskýru myndir sem hafa birst af henni sem einhvers konar sönnun fyrir því að hún sé á lífi.  Hver er Latifa? Hver er faðir hennar, hvernig og af hverju er hún að flýja? 

Kurt Cobain - andlát og samsæriskenningar 19.05.2021

Í þessum þætti er farið í mjög viðkvæmt mál.  Fjallað er um andlát Kurt Cobain, söngvara Nirvana.. Farið er í ýmsar staðreyndir og kenningar um dauða hans, ástæður, aðdragandann og mögulegar gerendur.  Í þessari viku fylgir auka þáttur með þessum þætti. Í þeim þætti spjallar Elva við Heiðar, söngvara Botnleðju um Grunge tónlist og áhrif Nirvana.  Fjallað er um sjálfsvíg og hvet ég þá sem finna fyr...

Heiðar Örn - Grunge áhrifin og Botnleðja 19.05.2021

Í þessum þætti fær Elva til sín meistarann Heiðar Örn söngvara Botnleðju. Þau ræða um Grunge tónlistarstefnuna, Nirvana og Kurt Cobain og áhrif þeirrar hljómsveitar á heila kynslóð. Heiðar segir frá þeim Botnleðju gaurum og ævintýrum þeirra .

Bríet - Frosið hjarta verður hlýtt 12.05.2021

Í þessum þætti af Poppsálinni ræðir Elva við yndislegu söngkonuna Bríeti.  Ástarsorgin, uppgjörið, textarnir og tónlistin, útlitspælingar og álit annarra.  Einnig er farið í það af hverju við hlustum á sorglega tónlist þegar okkur líður illa. Af hverju veljum við að hlusta á sorgleg ástarlög þegar við erum í ástarsorg?  Hljóðgæðin eru ekki 100% þar sem þátturinn var tekinn upp í gegnum Zoom en aul...

Kurt Cobain og sjálfsvígssmit 05.05.2021

Í þessum þætti er farið í mjög viðkvæmt mál.  Fjallað er um ævi Kurt Cobain, söngvara Nirvana. Rætt er um andlát hans, dagana fyrir það og þau áhrif sem það hafði á samfélag hans. Farið verður í smitáhrif sjálfsvíga eða Copycat suicide og í rannsókn á því hvernig dauði Kurt Cobains hafi áhrif á samfélagið í Seattle. Fjallað er um sjálfsvíg og hvet ég þá sem finna fyrir vanlíðan og upplifa sjálfvíg...

Af hverju "elskum" við morð? 23.04.2021

Í þessum þætti mætir Margrét Valdimarsdóttir doktor í afbrotafræði og lektor í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri og spjallar um af hverju við höfum svona mikinn áhuga á morðum og öðrum glæpum. Af hverju eru hlaðvörp um glæpi svona vinsæl sem og þættir um raðmorðingja? Einnig ræða þær Margrét og Elva um þá hugmynd að konur sæki frekar í svona efni og sæki jafnvel í að kynnast morðingjum persón...

Amanda Bynes: Frelsissvipt barnastjarna 16.04.2021

Í þessum þætti af Poppsálinni er farið í mál Amöndu Bynes sem var vinsæl barnastjarna sem lék í mörgum barna og unglingamyndum og þáttum. Fjallað er um möguleg veikindi hennar, langvarandi frelsissviptinguna og óhugnanlegar kenningar um aðal framleiðanda barnaþáttanna sem hún lék í, Dan Schneider.  Hægt er að styrkja Poppsálina með því að splæsa í einn kaffibolla eða svo: https://www.buymeacoffee....

Britney Spears (4. þáttur) - Hvað er að frétta elskan? 09.04.2021

Í þessum fjórða þætti um hina yndislegu Britney Spears mæta Britney sérfræðingarnir Daniel Oliver og Fjóla Heiðdal í þáttinn og fara yfir stöðu mála.  Þau spjalla um sérkennilega hegðun hennar á Instagram undanfarið, sjálfræðissviptinguna, yfirlýsingu samfélagsmiðla konu sem starfar með Britney og rose eða red/pink verkefnin hennar Britney. 

Meint andlát Avril Lavigne 31.03.2021

Í þessum þætti verður farið í sérkennilegt mál sem tengist popp pönk söngkonunni Avril Lavigne. Fyrir nokkrum árum fóru sögur á kreik um andlát hennar og telja margir að hún hafi látist árið 2003 og að leikkona að nafni Melissa Vandella hafi upp frá því leikið Avril Lavigne.  Þetta er stór skrýtið mál. Í þættinum verður líka farið í samsæriskenningar og afhverju það getur verið þægilegt að trúa á...

Michael Jackson - Líkamsskynjunarröskun, lýtaaðgerðir og andlát 25.03.2021

Í þessum öðrum þætti um Michael Jackson er fjallað um útlitsþráhyggju hans, útlits áhyggjur og líkamsskynjunarröskun eða Body dysmorphic disorder. Einnig er farið í aðdragandann að andláti hans og þátt einkalæknis í dauða Jackson.  Fjallað er um það sem hefur áhrif á þróun líkamsskynjunarröskunar og leiðir til að bæta líðan.  Minni á kaffibolla síðuna þar sem hægt er að styrkja Poppsálina um kaffi...

Michael Jackson og Pétur Pan heilkennið 17.03.2021

Í þessum fyrsta þætti um Michael Jackson verður fókusinn á sérkennilega og barnalega hegðun hans og tengsl við hegðunarmynstur eða röskun sem nefnist Pétur Pan heilkennið. Í næsta þætti verður farið í fleiri sálfræðileg fyrirbæri sem tengja má við söngvarann.  Ég minni á að hægt er að styrkja Poppsálina með einum kaffibolla ;) https://www.buymeacoffee.com/poppsalin

Höre den Podcast Poppsálin in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet