Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

Tv IS ↓ 941 Folgen

Podcast með Sölva er þáttur sem lætur sér ekkert óviðkomandi. Fylgstu með áhugaverðu fólki úr öllum áttum setjast í stólinn hjá Sölva Tryggva.

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: solvitryggva.libsyn.com

Autor

Sölvi Tryggvason

Kategorie

Tv

Podcast-Website

solvitryggva.libsyn.com

Neueste Folge

3. Nov 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

#138 Sigga Kling snýr aftur (brot úr áskriftarþætti) 01.11.2022

https://solvitryggva.is/ Sigríður Klingenberg er löngu orðin landsþekkt fyrir stórmerkilegan fatastíl, spádóma og skemmtanir um allt land. Í þættinum ræða Sigga og Sölvi um ótrúlegar sögur af Siggu, getuna til að standa með sjálfum sér og margt margt fleira.

#137 Sergio Moreno með Sölva tryggva (Ferðin til Kólumbíu - brot úr áskriftarþætti) 27.10.2022

https://solvitryggva.is/ Sergio Moreno er ungur maður sem fæddist í versta fátækrahverfinu í Medellin í Kólombíu . Sölvi tók viðtalið þegar hann var sjálfur á ferðalagi í Suður-Ameríku. Sergio vann sig út úr fátæktinni og rekur nú ferðaþjónustui. Í þættinum lýsir hann því hvernig var að sofna við skotbardaga sem barn, sjá lík á götunum, eiga vini í verstu glæpaklíkum Kólombíu og mörgu fleiru.

#136 Tinna Marína með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 24.10.2022

https://solvitryggva.is/ Tinna Marína Jónsdóttir hefur unnið til verðlauna í lyftingum aðeins örfáum árum eftir að hafa greins með MS-sjúkdóminn. Eftir að hafa farið niður í 45 kíló og farið í djúpan dal, hefur hún unnið upp þrek, líkamlegan styrk og jákvætt hugarfar á undraverðan máta. Í þættinum fara Sölvi og Tinna yfir vegferð Tinnu, allt frá keppni í Idol stjörnuleit fram á daginn í dag. 

#135 Þór Guðnason með Sölva Tryggva (Hluti 2 - brot úr áskriftarþætti) 17.10.2022

https://solvitryggva.is/ Þór Guðnason hefur starfað við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í 20 ár. Hann keyrði gjörsamlega á vegg eftir að hafa stofnað líkamsræktarstöðina Primal og leitaði leiða til að laga sig um allan heim. Hann fann svarið í náttúrunni. Í þættinum ræða Sölvi og Þór um hugvíkkandi efni, heilsu, líf mannfólks árið 2022 og margt fleira.

#134 Þór Guðnason með Sölva Tryggva (Hluti 1 - brot úr áskriftarþætti) 17.10.2022

https://solvitryggva.is/ Þór Guðnason hefur starfað við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í 20 ár. Hann keyrði gjörsamlega á vegg eftir að hafa stofnað líkamsræktarstöðina Primal og leitaði leiða til að laga sig um allan heim. Hann fann svarið í náttúrunni. Í þættinum ræða Sölvi og Þór um hugvíkkandi efni, heilsu, líf mannfólks árið 2022 og margt fleira.

#113 Guðni Ágústsson með Sölva Tryggva 16.10.2022

https://solvitryggva.is/ Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva. Eftir áratugi á þingi og setu í ráðherrastól er Guðni nú kappsamur um að njóta lífsins. Í þættinum ræðir hann um störfin á þinginu, umræðuna í samfélaginu, bætta heilsu og margt fleira.

#133 Guðni Gunnars með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 15.10.2022

https://solvitryggva.is/ Guðni Gunnarsson hefur í áratugi starfað við allt sem snýr að andlegri og líkamlegri heilsu bæði á Íslandi og erlendis. Í þættinum ræða Sölvi og Guðni um feril Guðna, árin í Los Angeles, leiðir til að bæta heilsu og margt fleira.

#112 Ellý Ármanns snýr aftur 14.10.2022

https://solvitryggva.is/ Ellý Ármannsdóttir varð þjóðþekkt eftir að hafa starfað sem þula á Ríkissjónvarpinu um árabil. Hún er óhrædd við að segja skoðanir sínar og fer vægast sagt sínar eigin leiðir í lífinu. Í þættinum ræðir hún um hamingjuna, stöðuna í samfélaginu, mikilvægi þess að standa með sjálfum sér og margt fleira.

#132 Guðjón Heiðar með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 13.10.2022

https://solvitryggva.is/ Guðjón Heiðar Valgarðsson er eins konar andlit samsæriskenninga á Íslandi. Eftir að hafa haft frekar hefðbundnar skoðanir á unga aldri varð kúvending eftir atburðina 11. september 2001. Síðan þá hefur Guðjón Heiðar efast um mjög margt sem er borið á borð fyrir okkur. Í þættinum ræða hann og Sölvi um samsæriskenningar, upplýsingaflæði, fjölmiðla og fleira.

#131 Haffi Haff með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 10.10.2022

https://solvitryggva.is/ Hafsteinn Þór Guðjónsson eða Haffi Haff skaust fram á sjónarsviðið eftir vaska framgöngu í undankeppni Eurovision. Síðan þá hefur hann komið fram víða og vakið athygli hvert sem hann fer. Í þættinum fara Sölvi og Haffi yfir feril Haffa,  pólariseringu í samfélaginu, trúnna, það að mega vera öðruvísi og margt fleira.

#130 Erna Ýr með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 05.10.2022

https://solvitryggva.is/ Erna Ýr Öldudóttir blaðamaður hefur oft vakið athygli fyrir að ganga gegn meginstraumnum í ýmsum málum. Í þættinum fer hún yfir ferilinn í fjölmiðlum, stöðuna í heimsmálum, samfélagsgerðina á Íslandi og margt fleira.

#129 Kristinn Sigmarsson með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 03.10.2022

solvitryggva.is Kristinn Sigmarsson er ungur maður sem hefur sérhæft sig í öllu sem snýr að heilsu og bættum lífsstíl. Eftir að hafa ætlað að taka eigið líf aðeins 15 ára gamall lagði hann allt í sölurnar til að finna hamingjuna og starfar nú við að hjálpa fólki. 

#128 Iaroslav með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 28.09.2022

solvitryggva.is Iaroslav Lekhterov Kom hingað frá Úkraínu eftir að hafa flúið stríðið í heimalandinu. Eiginkona hans og barn komust úr landi, en honum var meinað að fara yfir landamærin. Eftir að hann náði loks að flýja bað konan hans um skilnað. Hann ákvað því að flytja til Íslands. Í þættinum ræðir hann um dagana sem spreningarnar byrjuðu, ótrúlegt ferðalag til að komast úr landi og hvernig það...

#117 Kalli Snæ með Sölva Tryggva 28.09.2022

https://solvitryggva.is/ Guðmundur Karl Snæbjörnsson er þrautreyndur læknir sem stendur fast á sannfæringu sinni. Honum var hótað kærum og fangelsisvist af hinu opinbera í faraldrinum og segir læknum bannað að fara eftir sannfæringu sinni. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um stöðuna í samfélaginu, hvað við getum lært af faraldrinum og hvað þarf helst að óttast.

#127 Hafsteinn Núma með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 26.09.2022

https://solvitryggva.is/ Hafsteinn Númason hefur gengið í gegnum meira en flestir. Hann hefur misst 4 börn, þar af 3 í snjóflóðinu á Súðavík, auk þess að lenda svo sjálfur í alvarlegu slysi. Í þættinum ræða Hafsteinn og Sölvi um atburðina fyrir vestan, þrautseigju, trúna á guð, tilgang og margt fleira.

#126 Þórhildur Magnúsdóttir með Sölva Tryggva 19.09.2022

https://solvitryggva.is/ Þórhildur Magnúsdóttir er verkfræðingur sem vakið hefur athygli fyrir að tala opinberlega um að vera í opnu ástarsambandi. Í þættinum ræða Sölvi og Þórhildur um sambönd, afbrýðissemi, samfélagsnorm og margt fleira.    

#125 Jón Steinar með Sölva tryggva (brot úr áskriftarþætti) 15.09.2022

https://solvitryggva.is/ Jón Steinar Gunnlaugsson er hæstaréttarlögmaður og prófessor í lögfræði. Hann hefur vakið athygli í gegnum árin fyrir að segja skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Jón Steinar um samfélagsmál, fíkniefni, dómstóla og margt fleira.

#124 Arnþrúður Karls með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 12.09.2022

https://solvitryggva.is/ Arnþrúður Karlsdóttir hefur starfað við fjölmiðla í 40 ár. Hún var líka ein fyrsta lögreglukona Íslands, er með 3 háskólagráður og var afrekskona í íþróttum. Í þættinum fer hún yfir ferilinn, allt frá stofnun Rásar 2 til áranna 20 á Útvarpi Sögu.  

#123 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva (Hluti 2 - brot úr áskriftarþætti) 09.09.2022

https://solvitryggva.is/ Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og fleira. Í þættinum er farið yfir magnaða sögu Guðrúnar, heilsu, upplýsingar, fjölmiðla og fleira.

#122 Guðrún Bergmann með Sölva Tryggva (Hluti 1 - brot úr áskriftarþætti) 08.09.2022

https://solvitryggva.is/ Guðrún Bergmann hefur unnið við heilsu í meira en 30 ár, auk þess að reka fyrirtæki og fleira. Í þættinum er farið yfir magnaða sögu Guðrúnar, heilsu, upplýsingar, fjölmiðla og fleira.

#121 Siggi Stormur með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 06.09.2022

https://solvitryggva.is/ Sigurður Þ. Ragnarsson hefur um árabil verið á skjám landsmanna og er löngu orðin goðsögn í íslenskum fjölmiðlaheimi. Í þættinum segir Siggi Stormur sögur af ferlinum í fjölmiðlum og stjórnmálum, ræðir opinskátt um skammdegisþunglyndi sem hann glímir við og baráttu sonar hans, sem hefur verið meira og minna í 9 mánuði á spítala.

#120 Siggi Stormur með Sölva Tryggva 05.09.2022

https://solvitryggva.is/ Sigurður Þ. Ragnarsson hefur um árabil verið á skjám landsmanna og er löngu orðin goðsögn í íslenskum fjölmiðlaheimi. Í þættinum segir Siggi Stormur sögur af ferlinum í fjölmiðlum og stjórnmálum, ræðir opinskátt um skammdegisþunglyndi sem hann glímir við og baráttu sonar hans, sem hefur verið meira og minna í 9 mánuði á spítala.

#119 Arnar Þór með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 31.08.2022

https://solvitryggva.is/ Arnar Þór Jónsson lögfræðingur hefur vakið athygli fyrir að vera óhræddur við að tjá óvinsælar skoðanir í fjölmiðlum undanfarin ár. Í þættinum ræða Sölvi og Arnar um hlutverk ríkisins, mikilvægi þess að vera hugrakkur, hjarðhegðun og margt fleira.

#118 Nökkvi Fjalar með Sölva Tryggva 29.08.2022

https://solvitryggva.is/ Nökkvi Fjalar Orrason vakti ungur athygli með Áttunni og hefur verið í sviðsljósinu síðan. Hann býr nú í London, þar sem hann rekur fyrirtæki sitt. Í þættinum ræða Sölvi og Nökkvi um markmið, gildi, leiðir til að standa með sjálfum sér, hugrekki og margt fleira.    

#117 Kalli Snæ með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 24.08.2022

https://solvitryggva.is/ Guðmundur Karl Snæbjörnsson er þrautreyndur læknir sem stendur fast á sannfæringu sinni. Honum var hótað kærum og fangelsisvist af hinu opinbera í faraldrinum og segir læknum bannað að fara eftir sannfæringu sinni. Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um stöðuna í samfélaginu, hvað við getum lært af faraldrinum og hvað þarf helst að óttast.  

Höre den Podcast Podcast með Sölva Tryggva in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet