Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

Tv IS ↓ 941 Folgen

Podcast með Sölva er þáttur sem lætur sér ekkert óviðkomandi. Fylgstu með áhugaverðu fólki úr öllum áttum setjast í stólinn hjá Sölva Tryggva.

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: solvitryggva.libsyn.com

Autor

Sölvi Tryggvason

Kategorie

Tv

Podcast-Website

solvitryggva.libsyn.com

Neueste Folge

3. Nov 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

#159 Þórarinn Ævars: Um lyfjafíkn, þunglyndi, hugvíkkandi efni og ævintýralegan bata 25.01.2023

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Þórarinn Ævarsson er landsþekktur athafnamaður sem var kominn algjörlega á botninn í mikla lyfjafíkn og djúpt þunglyndi. Í þættinum lýsir hann ótrúlegri atburðarrás sem á endanum varð til þess að hann spyrnti sér frá botninum og náði bata.  Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://ba...

#158 Axel Pétur: Um ríkasta prósentið, öflin sem stjórna og stóra samsærið í heiminum 23.01.2023

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Axel Pétur Axelsson hefur oft verið kallaður samsæringur Íslands. Hann hefur í áraraðir talað um hluti sem eru talsvert langt fyrir utan boxið. Í þættinum fara Axel og Sölvi yfir allt það helsta í samsæriskennigum. Allt frá stofnun seðlabankanna, hátíð aflanna sem ráða og ríkasta eina prósentinu yfir í næstu spádóma Axels. Þátturinn...

Erpur Eyvindarson (brot af því besta) 19.01.2023

solvitryggva.is Það er óhætt að kalla Erp Eyvindarson guðföður íslensku rappsenunnar. Maðurinn sem hefur alltaf farið eigin leiðir og gert það sem honum sýnist mætir hér í viðtal til Sölva þar sem þeir ræða allt frá anarkisma og ferðalögum, yfir í partý, tónlist og tilgang lífsins. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja...

#157 Eva Hauks og Jón Steinar: Um réttarkerfið, lögregluríki og hugrekki 16.01.2023

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Eva Hauksdóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson eru bæði lögmenn og þekkt fyrir að gefa engan afslátt á sannfæringu sinni. Í þættinum ræða þau um réttarkerfið, getuna til að standa með sannfæringu sinni, hætturnar við lögregluríki og alræði og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn...

#156 Matti Ósvald: Um karlmennsku, ástríðuna og tilganginn 11.01.2023

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Matti Ósvald er markþjálfi og heilsuráðgjafi. Í þættinum ræða Sölvi og Matti um sögu Matta, karlmennsku í nútímanum, leiðir til að ná jafnvægi og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíku...

#155 Erla Bolladóttir: Um lífshlaupið, aðkastið á götum úti og örlögin 09.01.2023

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Erla Bolladóttir sat mánuðum saman í gæsluvarðhaldi og eingangrun sem ung kona vegna eins umtalaðasta sakamáls Íslandssögunnar, Geirfinnsmálsins. Íslenska Ríkið greiddi henni nýlega miskabætur vegna málsins. Í þættinum fer Erla yfir málið allt, lífshlaup sitt, sátt við örlögin og fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://...

#154 Sara María með Sölva Tryggva 04.01.2023

https://solvitryggva.is/ Sara María Júlíusdóttir er fatahönnuður og lífsstílsráðgjafi sem stundar nú mastersnám í hugvíkkandi efnum, fyrst Íslendinga. Í þættinum ræða Sara María og Sölvi um byltinguna sem er í gangi bæði hér og í heiminum öllum. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/...

Ólafur Darri (brot af því besta) 03.01.2023

solvitryggva.is Ólafur Darri Ólafsson er líklega þekktasti leikari Íslands. Hér ræða hann og Sölvi um listina, geðlyfjanotkun, dýpstu dalina og hæstu hæðirnar. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofnasmidja.is/  

#153 Sigurjón Ernir: Um heilsu, ofurhlaup, að taka ábyrgð og verða sterkur 02.01.2023

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Sigurjón Ernir Sturluson er ofurhlaupari og afreksíþróttamaður. Í þættinum fara Sigurjón og Sölvi yfir alla helstu þætti í heilsu, ástríðu, leiðir til að framkvæma það sem við vitum að er gott fyrir okkur og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/...

#152 Herbert Guðmundsson: Um ótrúlegan feril, upprisu, fíkn og trú 27.12.2022

Nálagst má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Herbert Guðmundsson er löngu orðinn goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Þegar Herbert, sem er þekktur fyrir mikinn dugnað og gott hugarfar sat um tíma í fangelsi og missti allt eftir hrunið 2008. Í þættinum fara Sölvi og Herbert yfir magnaðan feril Herberts, ótrúlegt lífshlaup hans og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa -...

#151 Geir H.Haarde með Sölva Tryggva 18.12.2022

https://solvitryggva.is/ Geir H.Haarde er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands. Í þættinum ræða Geir og Sölvi um hrunið, landsdómsmálið, fundina með Pútín og Trump, pólariseringu í samfélaginu og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Bakarameistarinn - https://bakarameistarinn.is/ Nýja Vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Ofnasmiðja Reykjavíkur - https://ofn...

#150 Óttar og Jóhanna með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 14.12.2022

https://solvitryggva.is/ Hjónin Óttar Guðmundsson og Jóhanna Þórhallsdóttir höfðu þekkst í áratugi þegar þau urðu par. Í þættinum ræða þau um lykilinn að farsælu sambandi, hvað gefur lífinu gildi, pistla Óttars og margt fleira.

#149 Hannes Hólmsteinn:Um stjórnmál, hatursorðræðu, Landsdómsmálið og fleira 11.12.2022

https://solvitryggva.is/ Hannes Hólmsteinn Gissurarson er háskólaprófessor og rithöfundur. Í þættinum ræða Sölvi og Hannes um hugrmyndafræði í stjórnmálum, stöðu upplýsingamiðla, nýja bók Hannesar og margt margt fleira.

#148 Sara Odds: Um ábyrgð, fyrirgefningu, meðvirkni og breyskleika. 08.12.2022

https://solvitryggva.is/ Margrét Sara Oddsdóttir er lögfræðingur, yogakennari og markþjálfi. Í þættinum ræða hún og Sölvi um skuggavinnu, ástríðu, leiðir til að bæta sjálfan sig, stöðu drengja og margt fleira.

#147 Geir Ólafs: Um Kólumbíu, sönginn, kvíða og fundinn með Pútín 05.12.2022

https://solvitryggva.is/ Geir Ólafs kom inn í íslenskt tónlistarlíf með krafti, svo að eftir var tekið. Í þættinum ræða Sölvi og Geir um feril Geirs, sönginn fyrir Pútín, tengingarnar við Kólombíu, kvíða, náungakærleik og margt fleira.

#146 Wayne Paul með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 01.12.2022

https://solvitryggva.is/ Wayne Paul er sérfræðingur í hreyfingu og rekur nú Movelab, sem hefur það að markmiði að hjálpa fólki að bæta hreyfigetu sína. Wayne kom upphaflega til Íslands sem ferðamaður, en varð ástfanginn af landinu og settist hér að. Í þættinum ræða hann og Sölvi um hreyfingu, heilsu, leiðir til að bæta sig og margt fleira.

#134 Þór Guðnason með Sölva Tryggva (Hluti 1) 01.12.2022

https://solvitryggva.is/ Þór Guðnason hefur starfað við að hjálpa fólki að bæta heilsu sína í 20 ár. Hann keyrði gjörsamlega á vegg eftir að hafa stofnað líkamsræktarstöðina Primal og leitaði leiða til að laga sig um allan heim. Hann fann svarið í náttúrunni. Í þættinum ræða Sölvi og Þór um hugvíkkandi efni, heilsu, líf mannfólks árið 2022 og margt fleira.

#145 Einar Kárason: Um HM í fótbolta, ritskoðun, rétttrúnaðinn og reiðina á netinu 29.11.2022

https://solvitryggva.is/ Einar Kárason er einn farsælasti rithöfundur Íslands og hefur gefið út ógrynni bóka sem notið hafa mikilla vinsælda. Í þættinum ræða Einar og Sölvi um HM í fótbolta, ristkoðun í listum og bókmenntum, feril Einars og margt fleira.

#144 Kristján Einar með Sölva Tryggva 26.11.2022

https://solvitryggva.is/ Kristján Einar Sigurbjörnsson er nýkominn til Íslands eftir að hafa setið 8 mánuði í fangelsi á Spáni. Í fangelsinu upplifði hann hræðilega hluti sem flestir geta bara ímyndað sér úr bíómyndum. Í þættinum segir hann söguna alla.

#143 Inga Sæland: Um fátæktina, stjórnmálin og sorgina (brot úr áskriftarþætti) 21.11.2022

https://solvitryggva.is/ Inga Sæland er formaður Flokks fólksins. Í þættinum ræðir hún um hvað þarf að laga í íslensku samfélagi, hvað gerist á bakvið tjöldin á Alþingi, sorgina eftir að hafa misst 3 unga ástvini og margt margt fleira.

#142 Nicolai Engelbrecht: Um glæpina, dópið, viðsnúninginn og tilganginn 16.11.2022

https://solvitryggva.is/ Nicolai Engelbreght er ungur maður sem um áraraðir var fastur í verstu glæpagengjum Danmerkur, en fann svo leiðina út og hjálpar nú föngum og öðrum við að bæta líf sitt. Í þættinum fer hann yfir árin í undirheimunum, hvernig hann hefur reynt að bæta fyrir brot sín, karlmennsku og margt fleira.

#141 Hjalti Úrsus: Um Jón Pál, réttarmorðið á syni sínum, sorgina og fleira 14.11.2022

https://solvitryggva.is/ Hjalti Úrsus Árnason er einn öflugasti aflraunamaður Íslandssögunnar. Í þættinum ræðir hann um gullaldarárin í kraftasportinu, æfingarnar og ferðalögin með Jóni Páli og réttarmorðið á syni hans, sem nýlega lést aðeins 29 ára að aldri.

#140 Margrét Friðriksdóttir með Sölva Tryggva (brot úr áskriftarþætti) 09.11.2022

https://solvitryggva.is/ Margrét Friðriksdóttir rekur fréttamiðilinn frettin.is. Hún hefur verið mjög umdeild fyrir skoðanir sínar á undanförnum árum. Í þættinum ræðir hún föðurmissirinn, tímann þegar hún flakkaði um Indland í leit að svörum, hvatvísina og margt fleira.

#99 Donna Cruz með Sölva Tryggva 09.11.2022

Donna Cruz flutti fjögurra ára gömul til Íslands frá Filippseyjum. Hún sló nýlega í gegn fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Agnes Joy, þar sem hún fór með eitt af aðalhlutverkunum. Í þættinum ræða Sölvi og Donna um leiklistina, samfélagsmiðla, falinn rasisma á Íslandi og margt fleira. Þátturinn er í boði: Arionbanki - https://www.arionbanki.is/ Fitness Sport - www.fitnesssport.is   Fjarðarkaup / F...

#139 Kristján Jóhannsson: Um ástina, fjölmiðlahneykslið og stærstu stundirnar 07.11.2022

https://solvitryggva.is/ Kristján Jóhannsson er þekktasti óperusöngvari Íslandssögunnar. Hann hefur sungið í mörgum af stærstu listahúsum heims í áratugi. Í þættinum ræða Sölvi og Kristján ótrúlegan feril Kristjáns, árin áður en stóra tækifærið kom, fjölmiðlatryllinginn í kringum styrktartónleikana um árið og margt margt fleira. 

Höre den Podcast Podcast með Sölva Tryggva in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet