Davíð, Kristleifur, Styrmir, Þorvaldur
Pant vera blár!
Pant vera blár! er íslenska borðspilapodcastið. Stjórnendur þáttarins eru Davíð Baldursson, Kristleifur Guðjónsson, Styrmir Hafliðason og Þorvaldur Guðjónsson ræða spil og spilatengd málefni ásamt því að segja öðru hverju brandara sem falla misvel í kramið hjá öðrum meðstjórnendum.
Autor
Davíð, Kristleifur, Styrmir, Þorvaldur
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
16. Jan 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
75. Spilaval 18.03.2024 45:54
Að velja sér spil er góð skemmtun enn stundum þarf að vanda til verka. Það má líkja góðu spilavali við gott efnahvarf þar sem stemming myndast og hópurinn þéttist og er tilbúinn að spila meira. Spilin og manneskjurnar sem valdar eru eru kölluð hvarfspil og hvarfvinir. Þegar samsetningin er góð myndast hópur sem kallast kjarnahópur. Til að mynda góðan kjarnahóp er einnig gott að hafa bakvið eyrað...
74. Bíómyndir og borðspil 03.03.2024 1:19:07
Aaaaand ACTION! Þú átt að gera... Það eru ótrúlega mörg borðspil með áhugaverðu þema, sögum og leikmönnum þar sem borðspilarar sogast inn í áhugaverðan heim í stutta stund. Í þessum þætti förum við yfir hvaða borðspil eru með góðan grunn af þema sem gæti orðið að bíómynd eða áhugaverðum þáttaseríum.
73. 2023 Uppgjör 04.02.2024 1:11:43
Spilaárið 2023 gert upp í tölum ogtölfræði með hjálp BGStats. Strákranir fara yfir bestu spilun sem þeir spiluðu í fyrsta skiptið á árinu og ræða hluti sem koma borðspilum ekkert við
72. Double Trouble 21.01.2024 2:05:27
Hafið þið séð myndina Tango and Cash með Sylvester Stallone og Kurt Russell? Hvað með Bad Boys, Men and Black, Double Team, Sherlock Holmes, Starsky & Hutch? Það eru jú til margar góðar sögur af tveimur hetjum sem þurfti að sigrast á ómögulegum verkefnum. Í þessum þætti kynnum til leiks nýtt teymi sem fær til sín góða gesti og má líkja best við 3CPO og R2D2
71. Áramótaspil 28.12.2023 1:14:36
PEW PEW PEW! Það er kominn tími til að sprengja upp enn eitt árið í burtu. Tíminn líður... nýtt ár ný mark...spilamarkmið! Í þessum þætti förum við yfir nokkur skemmtileg spil sem er gott að hafa á hliðarlínunni fyrir áramótapartíið. Við viljum einnig nýta tækifærið og þakka öllum sem hafa verið að hlusta og vonum að þið siglið með bros á vör inn í 2024!
70. Jólaspilin 2023 03.12.2023 2:05:55
Vitiði hvað við elskum meira enn jólin?.... Það er rétt! SPIL! Enn það er ekkert betra enn að vera með fjölskyldu og vinum um jólinn... að spila. Í þessum þætti aðstoðum við hlustendur að velja spil í pakkann fyrir jólin og fáum til okkar góðan aðila í létt spjall
69. Samvinna 19.11.2023 55:49
Hvað er betra enn að lifa í samfélagi þar sem allir vinna saman. Allir hjálpast að. Allir taka tillit til hvors annars og það er aldrei vesen. Við erum öll mismunandi forrituð í lífinu og þar af leiðandi ekki allar ákvarðanir í fullkomnu synchi... enn er það ekki bara gaman? Í þessum þætti fjöllum við um samvinnu í lífinu og förum kannski yfir nokkur samvinnuspil
68. Blá mjólk 05.11.2023 1:08:32
Hvort viltu þema á spilakvöldinu eða bara nýja tegund af bjór? Pant vera blár parar saman top10 spilin á BoardGameGeek við drykki. Eins og oft áður með topplista nálgast vinirnir þetta á ólíkan hátt og ótrúlegt en satt, þá eru þeir ekki sammála um allt.
67. Ferðadagbók Styrmis (Essen 2023) 22.10.2023 1:15:17
Kæra Dagbók, Í dag er ég mjög spenntur, alveg súper dúper ÚBER spenntur! Ég er nefnilega að fara til Þýskaland á spilaráðstefnu. Ég var ekki alveg viss hvort ég ætlaði að fara enn síðan var bara svo SJÚKLEGA gaman síðast að ég ákvað að drífa mig. Ég er að spá að vera smá flippaður og fá mér Baileys út í kaffibollan minn hérna upp á velli í tilefni dagsins og aldrei að vita nema taki eitt Encore sp...
66. Blákon II 08.10.2023 1:42:19
Blákon er ótrúlega skemmtileg spilaráðstefna sem haldin er 1-2x á ári í Munaðarnes í Borgarfirði. Enn hvað þarf í svona góða bústaðarferð fyrir 4 miðaldra einstaklinga frá fimmtudegi til sunnudags? - 3 pakka af eggjum - 3 pakka af beikon - 3 pakka af Vilko Pönnukökum + gott sýrop - 8 Kjúklingabringur - 10 pylsur og pylsubrauð með meðlæti - Salat - Mjólk - Nokkur kíló af snakki og nammi - Bjór, whi...
65. Midgard 2023 Live Show 17.09.2023 58:01
In is episode ví will be speaking ensku. Við went to Midgard, which was haldið in Laugardalur. We vere invited to host our podkast á Sunnudegi and record live. It went realí realí vel!
64: Stærðin skiptir máli - Glataður kynsjúkdómur 03.09.2023 1:11:23
Er gott að spila bara risastór spil, meðalstór spil eða er líka gott að spila lítil spil? Er það hvernig spilið er notað eða hvernig fílingurinn er í spilinu sjálfu eða þeim tilgangi sem spilið þjónar?
63. Einvígi - Eru duel spil að eyðileggja upprunalega spilið 20.08.2023 1:11:29
Eru Duel spil "Nánast fullkomlega og algjörlega tilgangslaus fyrirbæri" Eins og einn góður borðspilari orðaði það. Við getum öll verið sammála um það að Hollywood á það til að blóðmjólka góðar hugmyndir því jú... góð saga býr til pening.... og ef það eru komnir aðdáaendur að þessari sögu, afhverju ekki búa til meira efni sem býr til meiri pening? Enn þegar góð borðspil eru gerð... eru...
62. Blikksmiður? Nei...Stokkasmiður 16.07.2023 1:55:07
Stokkasmiður kom fyrst til sögunar í Mesopotamíu 4000 árum fyrir Krist. Stokkasmiður var iðnaður þar sem menn byrjuðu með ákveðin spil á hendi og þeir sem voru virkilega góður í þessum leik enduðu í konungsgildi sem var 10 manna hópur af bestu spilurum landsins. Talið er að stokkasmiðir hafi verið hryggjarstykkið í siðmenningu Súmera alla tíð þangað til að einn daginn hurfu allir stokkasmiðir og...
61. Ég gefst upp 02.07.2023 1:05:54
Ég gefst upp... ég gaf þessu séns og ég er búinn að gefast upp. Ég byrjaði að horfa á Lost og gafst upp á season 2... Ég gaf Adam Sandler tækifæri og fór á Jack & Jill í bíó, gafst upp og labbaði út í hlé... Svo spilaði ég spil sem allir voru búnir að segja að væri frábært enn ég fílaði það ekki öll 3 skiptin þannig ég gafst upp... Í þessum þætti förum við yfir spil þar sem við gáfumst upp......
60. UKGE23 18.06.2023 1:34:53
I shall be telling this with a sigh Somewhere ages and ages hence: Two roads diverged in a wood, and I— I took the one less traveled by, And that has made all the difference. Þetta er bútur úr vísu eftir Robert Frost sem heitir the Road Not Taken og er tileinkaður honum Styrmir sem var eini meðlimur Pant Vera Blár sem skellti sér á UK Games Expo í ár og er að sjálfsögðu næla sér í allskonar flotta...
58. Board Game Media 21.05.2023 1:13:10
Pant vera Blár er að sjálfsögðu miðlari #1 fyrir okkur Íslendinga og styttist í að við verðum áhrifavaldar heimsins, þegar við forum að gefa út spil og gefa þáttinn okkar einnig út á ensku, spænsku og frönsku. Enn þangað til er auðvitað er til annað gott efni sem við leitum í... Hvernig borðspilaramiðlara skoðum við ? Að hverju leitum við og hvert leitum við til að skoða fréttir, sækja upplýsingar...
57. Eitthvað fyrir börnin 07.05.2023 1:09:29
Won´t someone please think of the children?! Jú við hugsum sko um börnin - enda eiga meðlimir Pant Vera Blár helling af börnum eða samtals 11 börn! Sumir eiga reyndar fleiri börn en aðrir enn meðaltalið er samt 2.75 pr. meðlim. Þar af leiðandi erum við nú alveg duglegir að spila með krökkunum þegar tækifæri gefst. Í þessum þætti förum við yfir nokkur skemmtileg krakkaspil.
56. Vonbrigði 23.04.2023 2:00:41
Vonbrigði... þetta er ekki besta tilfinning í heimi, sérstaklega þegar maður er fullur tilhlökkun að fara spila skemmtilegt spil sem endar síðan á því að vera öööömurleg upplifun pakkað inn í fallegt dulargervi. Í þessum þætti förum við yfir spil sem hafa valdið okkur mestum vonbrigðum.
55. Pakkaferð 09.04.2023 42:20
Ef ég væri pakki þá væri ég klárlega besti pakkinn. Því besti pakkinn er alltaf betri en aðrir pakkar því inn í besta pakkanum er ekki bara brot af því besta heldur allt það besta!
54. Tíu Bestu Tugirnir 26.03.2023 1:41:15
Hvað er betra enn topp 10 listi? Topp Billjón listi! Þar sem við höfðum samt ekki tíma til að spila billjón spil þá ákvöðum við að fara millivegin og setja saman fyrsta íslenska topp100 spilalistann. Fáranlega góður listi fyrir þá sem vantar hugmyndir af spilum til að prófa.
53. Bailer! 12.03.2023 1:33:29
Það er margt svo óþolandi! Það er samt ekkert meira óþolandi en bailerar í spilum sem hafa ekki skriflega afsökun fyrir mætingaleysinu sínu.... stundum. Enn hvaða leiðir förum við þegar öllu er snúið á hvolf og spilaplönin breytast? Við tökum skemmtilegan snúning á þessu vandamáli
52. Of mikið af spilum!? 26.02.2023 1:19:37
Hvenær áttu of mikið af spilum....? Eða ætti maður að spyrja sig... á ég of lítið af spilum? Við veltum því fyrir okkur hvort það sé einhver tímapunktur í lífi borðspilara þar sem við segjum við okkur.... "Ég á of mikið af spilum :/"
51. Spilavin 2023 12.02.2023 1:36:38
Eru drekar vondir? Í flestum sögum eru drekar vondir og í trúabrögðum eru drekar tákn illsku og óreiðu í heiminum. Óumdeilanleg sönnunargögn hafa fundist nýlega sem benda svart á hvítt að drekar eru vondir. Það er því frábært að vera titlaður drekabani! Að öðru... í þessum þætti förum við yfir vel heppnaðan spilaviðburð sem haldin var á Hvolfsvelli
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet