Podcaststöðin
Mótorvarpið
Bragi Þórðarson fjallar um allt mótorsport á fjórum hjólum og fær til sín góða gesti, bæði fyrrum og núverandi keppendur ásamt öðrum mótorsport-fræðingum.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: podcasters.spotify.com
Autor
Podcaststöðin
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
14. Okt 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
#71 Torfæra - Jóhann Gunnlaugs og Jón Reynir 10.03.2021 1:02:43
Liðsmenn torfæruliðsins b You Racing mættu til Braga en þeir kepptu sitt fyrsta tímabil í torfærunni á síðasta ári á Thunderbolt. Það er heil fjölskylda sem rekur liðið en Jóhann keyrir bílinn.
#70 Sögustund - Eyjólfur Melsteð 06.03.2021 2:23:27
Eyjólfur hefur verið að keppa ralli í um 20 ár á allskyns bílum, allt frá Renault Clio yfir í sérsmíðaðan Jeep Cherokee. Auk þess hefur hann farið í rallýskóla í Noregi og þekktur fyrir að pæla vel í uppstillingu bíla.
#69 Sögustund - Kristján Einar Kristjánsson (seinni hluti) 24.02.2021 2:09:02
Kristján Einar er sennilega sá Íslendingur sem náð hefur hvað lengst í akstursíþróttum. Hann varð Íslandsmeistari í Go-Kart árið 2006 og keppti þrjú ár erlendis í Formúlu 3.
#68 Sögustund - Kristján Einar Kristjánsson (fyrri hluti) 17.02.2021 1:38:14
Kristján Einar er sennilega sá Íslendingur sem náð hefur hvað lengst í akstursíþróttum. Hann varð Íslandsmeistari í Go-Kart árið 2006 og keppti þrjú ár erlendis í Formúlu 3. Hann fer það ítarlega yfir ferilinn með Braga að skipta þurfti þættinum í tvo hluta.
#67 Rallý - Baldur Haraldsson 10.02.2021 2:14:50
Baldur varð Íslandsmeistari í ralli árin 2014 og 2015. Hann fer vel yfir ferilinn með Braga en Baldur byrjaði að fylgjast með ralli árið 1977.
#66 Torfæra - Steingrímur Bjarnason 03.02.2021 1:39:18
Steingrímur hefur verið að keppa í torfæru frá 1990 og alltaf á sama Willys jeppanum. Hann er fjórfaldur Íslandsmeistari í götubílaflokknum ásamt því að eiga tvo titla í sandspyrnu.
#64 Uppgjör 2020 - Kvartmíla, Sandspyrna og Rallýcross 27.01.2021 1:31:32
Bragi heldur áfram að gera upp árið 2020 og í þessum lokaþætti uppgjörsins fær hann til sín Íslandsmeistara í spyrnugreinum og rallýcrossi.
#65 Torfæra - Verðlaunaafhending FO Iceland 23.01.2021 41:28
Sérstakur aukaþáttur Mótorvarpsins fer í að veita þrjá farandbikara sem venjulega eru veittir á lokahófi torfærunnar.
#63 Uppgjör 2020 - Kappakstur, E-Rally, Torfæra og Drift 20.01.2021 1:38:35
Bragi heldur áfram að gera upp árið 2020 og fær til sín Íslandsmeistara í Kappakstri, E-Rally, Torfæru og Drifti
#62 Uppgjör 2020 - Rallý 13.01.2021 1:27:49
Bragi fékk til sín Íslandsmeistarana í ralli og fóru þeir yfir síðasta tímabil þegar Akís var að afhenda keppendum meistarabikarana.
#61 Torfæra - Haukur Viðar Einarsson 06.01.2021 1:28:13
Bragi byrjar nýja árið á að tala við torfærukappann Hauk Viðar Einarsson sem að stendur í stórræðum fyrir komandi keppnistímabil. Haukur hefur verið í toppslagnum í sérútbúna flokknum síðustu ár og stefnir á titil árið 2021.
#59 Sögustund - Þórir Schiöth 09.12.2020 1:41:52
Þórir Schiöth kom með margar nýungar í torfæruna, m.a. stýri á fjórum hjólum og ausudekk. Hann fer yfir ferilinn með Braga en Þórir var einn litríkasti keppandi torfærunnar á sínum Jaxl.
#58 Sögustund - Hlöðver Baldursson 02.12.2020 2:41:00
Hlöðver Baldursson hefur verið í kringum rallið síðustu 23 ár bæði sem keppandi, service-maður og starfsmaður. Hans fjölskylda er sú næstsigursælasta í íslenskri rallsögu, alls með 13 titla.
#57 Sögustund - Björn Ingi Jóhannsson 25.11.2020 1:58:45
Björn Ingi keppti í torfæru frá 1999-2004 með góðum árangri. Hann var einnig þekktur fyrir mikil tilþrif og svakalegar veltur í slagnum við Gísla G og Halla P.
#56 Sögustund - Steingrímur Ingason (fyrri hluti) 18.11.2020 1:45:10
Steingrímur Ingason keppti í ralli frá 1978 til ársins 2000, bæði hér heima og erlendis. Hann er einna þekktastur fyrir að hafa sérsmíðað sér rallýbíl og keppt á honum með góðum árangri í tæplega 10 ár. Þátturinn varð svo langur að skipta þurfti honum í tvo hluta, í þessum fyrri hluta tölum við um árin 1978-1988.
#56 Sögustund - Steingrímur Ingason (seinni hluti) 18.11.2020 2:02:33
Steingrímur Ingason keppti í ralli frá 1978 til ársins 2000, bæði hér heima og erlendis. Hann er einna þekktastur fyrir að hafa sérsmíðað sér rallýbíl og keppt á honum með góðum árangri í tæplega 10 ár. Í þessum seinni hluta fjöllum við um 1988-2000.
#55 Sögustund - Ívar Guðmundsson 11.11.2020 1:45:51
Ívar keppti í torfæru í 8 keppnistímabil og vann á þeim tíma 15 keppnir og 4 Íslandsmeistaratitla. Hann fór yfirlitríkan ferilinn með Braga.
#54 Spyrna - Feðgarnir Stefán og Kristján 04.11.2020 1:53:41
Bragi fær spyrnufeðgana Stefán Kristjánsson og Kristján Stefánsson í spjall og fara þeir yfir ferla sína bæði í kvartmílu og sandspyrnu. Þeir hafa unnið Íslandsmeistaratitil í flokki breyttra jeppa síðustu tvö ár með talsverðum tilþrifum.
#53 Sögustund - Helgi Óskarsson 28.10.2020 1:35:03
Helgi Óskarsson byrjaði að fylgjast með ralli árið 1977 og var draumurinn alltaf að fara keppa sjálfur. Eftir að hafa farið í kvalafulla lengingaraðgerð í Síberíu á táningsárunum varð sá draumur að veruleika.
#52 Rallý - Guðmundur Snorri og Magnús 21.10.2020 1:52:08
Bragi fær til sín Íslandsmeistarana í jeppaflokknum árið 2020 í ralli en bæði Gummi Snorri og Maggi hafa keppt í ralli í 15 ár.
#51 Rallý og Rallýcross - Fylkir og Heiða Karen 14.10.2020 1:45:28
Fylkir Jónsson og Heiða Karen Fylkisdóttir urðu fyrstu feðginin til að vinna rallýkeppni yfir heildina með sigri í Haustrallinu. Fylkir byrjaði að keppa í Rallýcrossi löngu áður en Heiða fæddist en fjölskyldan sér líka um keppnishald.
#50 Torfæra - Snorri Þór Árnason 07.10.2020 1:33:48
Á torfæruferlinum hefur Snorri keppt í 21 keppni, unnið 13, 5 sinnum í öðru og tvisvar í þriðja. Hann kom í Mótorvarpið til Braga að ræða þennan magnaða feril en Snorri snýr aftur í torfæruna á Kórdrengnum sínum árið 2021.
#49 Rallý - Ísak Guðjónsson 30.09.2020 1:55:14
Lifandi goðsögn í íslenku ralli mætir aftur í Mótorvarpið! Ísak Guðjónsson heldur áfram þar sem frá var horfið í þætti #18 og fer yfir ferilinn allt til dagsins í dag, en Ísak tryggði sér sinn þriðja Íslandsmeistaratitil árið 2020.
#48 Torfæra - Jiiibbííí 23.09.2020 1:36:59
Sigurður Ingi Sigurðsson byrjaði að keppa í torfæru í vor. Hann fer yfir hvernig það er að byrja í þessu sporti ásamt liðstjóranum sínum, Sævari Jónssyni.
#47 Torfæra - Team Guttinn Reborn 16.09.2020 1:39:26
Það er fullt hús gesta í þætti dagsins. Bræðurnir Ingólfur og Kjartan Guðvarðasynir mæta ásamt liðstjóranum Sigurbirni Ingvarssyni. Ingólfur leiðir Íslandsmótið í torfæru nú þegar ein umferð er eftir.
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet