Podcaststöðin
Mótorvarpið
Bragi Þórðarson fjallar um allt mótorsport á fjórum hjólum og fær til sín góða gesti, bæði fyrrum og núverandi keppendur ásamt öðrum mótorsport-fræðingum.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: podcasters.spotify.com
Autor
Podcaststöðin
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
14. Okt 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
#96 Rallýcross, 6. Umferð 2021 01.09.2021 1:28:03
Bragi og Ívar Örn fara yfir lokaumferðina í rallýcrossi sem fram fór á nýrri braut Kvartmíluklúbbsins. Thumbnail mynd: Ingi Haraldsson
#95 Kemi Rallý Reykjavík 2021 25.08.2021 1:12:48
Bragi fær til sýn rallýsérfræðingana Baldur Arnar og Heimi Snæ. Þeir fara yfir gang mála í Kemi Rallý Reykjavík sem fram fór 20. - 21. Ágúst, en þar enduðu einmitt Baldur og Heimir í öðru sæti.
#94 Rallýcross, 5. Umferð 2021 18.08.2021 1:49:41
Bragi og Ívar Örn fara yfir fimmtu umferðina í Rallýcrossinu auk þess að renna létt yfir hvað hefur gengið á í sumar í Rallýcrossinu.
#93 KFC Torfæran 2021 11.08.2021 53:33
Bragi og Jakob C fara yfir fimmtu umferð Íslandsmeistaramótsins í torfæru þar sem Skúli Kristjánsson á Simba tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í sérútbúna flokknum.
#92 Ljóma rallið 2021 04.08.2021 1:07:16
Bragi og Heimir Snær fara yfir Ljóma rallið sem haldið var í Skagafirði 24. Júlí 2021.
#91 Akranes torfæran 2021 28.07.2021 1:49:12
Bragi og Jakob C eru mættir aftur þar sem torfærutímabilið er á fullu! 4 keppnir á 5 vikum og stefnir allt í að Íslandsmótin ráðist snemma í ár.
#90 Blönduós torfæran 2021 21.07.2021 1:48:28
Bragi og Jakob C fara yfir skemmtilegustu torfærukeppni í 56 ára sögu torfærunnar á Íslandi!
#89 Afsakið hlé 14.07.2021 17:32
Bragi hafði því miður ekki tíma til að taka upp alvöru þátt þessa vikuna en verður kominn sterkur aftur með Jakob C að tala um Blönduós torfæruna í næstu viku.
#88 Isavia Torfæran 2021 07.07.2021 1:38:24
Bragi og Jakob C fara yfir aðra umferð Íslandsmótsins í torfæru sem fram fór á Egilsstöðum 3. Júlí 2021.
#87 Kemi-rallið 2021 30.06.2021 1:24:09
Bragi fær til sín Heimi Snæ Jónsson og fara þeir yfir aðra umferð Íslandsmeistaramótsins í ralli sem fram fór á Kaldadal og Uxahryggjum 26. Júní 2021.
#86 Drift á Bíladögum 23.06.2021 1:23:27
Önnur umferð Íslandsmótsins í drifti fór fram á Bíladögum BA á Akureyri föstudaginn 18. Júní 2021. Bragi fékk drift sérfræðinginn Kristinn Snær Sigurjónsson til að fara yfir keppnina með sér.
#85 Rallý, 1. Umferð 2021 16.06.2021 1:32:19
Bragi fær til sín Íslandsmeistarana í ralli frá 2019, Baldur Arnar og Heimi Snæ. Þeir fara yfir fyrstu umferðina í ralli sem fram fór á Suðurnesjum 4. og 5. Júní 2021.
#84 Rallýcross, 2. Umferð 2021 09.06.2021 1:44:36
Ívar Örn er mættur aftur til Braga og fara þeir félagar yfir aðra umferðina í Rallýcrossi sem fram fór 6. Júní 2021.
#83 Drift, 1. umferð 2021 02.06.2021 1:26:28
Bragi fær til sín Kristinn Snæ Sigurjónsson driftara og fara þeir yfir fyrstu umferð Íslandsmótsins í Drifti sem fram fór sunnudaginn 30. Maí.
#82 Kvartmíla, 1. Umferð 2021 26.05.2021 1:16:16
Bragi fær til sín Crazy Racing bræðurna Ingimund Helgason og Hilmar Jacobsen. Þeir fara yfir fyrstu umferðina í Kvartmílu sem fram fór 22. Maí.
#81 Rallýcross, 1. umferð 2021 19.05.2021 1:50:13
Bragi fær til sín rallýcrossfræðinginn Ívar Örn Smárason og fara þeir yfir hasarinn í fyrstu umferð Íslandsmótsins sem fram fór á Rallýcross brautinni í Kapelluhrauni á sunnudaginn.
#80 Sindratorfæran 2021 12.05.2021 1:42:52
Bragi og Jakob Cecil fara yfir eina skemmtilegustu Hellutorfæru sem fram hefur farið. Mikið var um tilþrif og drama síðasta laugardag á Hellu.
#79 Torfæra - Bessi og Jakob Cecil 04.05.2021 1:38:22
Við hitum upp fyrir Sindratorfæruna sem verður í beinni útsendingu laugardaginn 8. Maí 2021 á www.motorsport.is.
#78 Rallýcross - Agnar og Birgir 28.04.2021 1:04:13
Liðsmenn Team 88 Racing hita upp fyrir komandi Rallýcross tímabil með Braga. Þeir hafa verið að keppa síðan 2018 en allt stefnir í metþátttöku í Rallýcrossinu í ár!
#77 Torfæra - Skúli Kristjáns og Raggi Skúla 21.04.2021 1:24:48
Ragnar Skúlason var meistari í götubílaflokknum í torfærunni árin 1992, 94 og 2017. Skúli Kristjánsson er á fullu að keppa í sérútbúna flokknum, varð annar til Íslandsmeistara í fyrra og er ríkjandi heimsmeistari!
#76 Torfæra - Geir Evert Grímsson 14.04.2021 1:49:07
Geir Evert Grímsson byrjaði að keppa í torfæru árið 2015, en seldi bílinn eftir 2019 tímabilið og hefur staðið í ströngu við að smíða nýja Sleggju fyrir 2021 tímabilið.
#75 Sögustund - Halldór Úlfarsson 07.04.2021 1:38:57
Íslandsmeistarinn í ralli árið 1983 kom í spjall til Braga en Halldór keppti í ralli í rúm 20 ár og keppti meðal annars í fyrstu rallkeppninni sem haldin var hér á landi.
#74 Drift - All Out Racing 31.03.2021 1:12:09
Jóhann Rafn Rafnsson og Sigurbergur Eiríksson, meðlimir driftliðsins All Out Racing mættu í spjall til Braga og ræddu komandi tímabil og fleira. Keppnisliðið stefnir á að mæta með fimm bíla í driftið í sumar!
#73 Sögustund - Eiríkur Friðriksson (Eiki kokkur) 24.03.2021 46:51
Eiki var einn litríkasti keppandinn í rallinu frá 1981-1988. Hann keppti með mörgum frægustu ökumönnum íslenskrar rallsögu, t.d. Hafsteini Haukssyni, Bjarma Sigurgarðarsyni og Birgi Þór Bragasyni. Eiki náði góðum árangri bæði sem ökumaður og aðstoðarökumaður.
#72 Sögustund - Rafn Arnar Guðjónsson 17.03.2021 1:33:25
Rafn Arnar var í kringum flest allar tegundir akstursíþrótta í 37 ár, bæði sem keppandi, keppnishaldari og starfsmaður. Þekktastur er hann fyrir torfæruakstur í kringum aldamótin.
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet