Karfan
Karfan
Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.karfan.is
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Verðlaunaafhending fyrir 2017-18 NBA tímabilið 27.03.2018 1:26:55
Nú þegar aðeins nokkrir leikir eru eftir af tímabilinu og mörg lið eru komin í hvíldarstöðu fyrir úrslitakeppnina, er vel við hæfi að veita nokkur verðlaun. Hver verður valinn verðmætasti leikmaðurinn, hver er besti varnarmaðurinn, nýliði ársins og eitthvað fleira. Svör við þessum spurningum og hvernig restin af deildarkeppninni á eftir að spilast er að finna í þessari nýjustu útgáfu NBA Podcasts...
Neyðarupptaka eftir körfu aldarinnar 21.03.2018 1:02:24
Í þessari síðustu útgáfu er farið yfir fyrstu leiki úrslitakeppninnar. Þar sem að þrjár af fjórum viðureignum virðast ætla að enda með sópi, eða hvað? Annað kvöld mun Njarðvík mæta KR og ÍR tekur á móti Stjörnunni. Á föstudaginn eiga Haukar við Keflavík og Tindastóll mæta Grindavík. Gestur þáttarins er maður með mikið tölfræðiblæti, sem og er hann einn af fyrrum ritstjórum Karfan.is, Hörður Tulini...
Hvað lið vinnur úrslitakeppni 1. deildar kvenna? 15.03.2018 53:58
Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar ræðir Bryndís Gunnlaugsdóttir, leikmaður meistaraflokks kvenna hjá ÍR, 1. deild kvenna þetta árið. Við förum yfir gengi ÍR, ræðum ný afstaðna skoðanakönnun 1. deildar kvenna og ræðum framtíð kvennakörfunnar á næstu árum ásamt mikilvægi góðra þjálfara í yngri flokkum kvenna. Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:00:30 – Kynning og létt spjall um ÍR...
Úrslitakeppnin að hefjast: Hvað gerðist hjá Keflavík? 13.03.2018 1:33:10
Það er hátíð í bæ hjá körfuboltaáhugafólki landsins. Úrslitakeppnin í Dominos deild karla er að hefjast og framundan er körfuboltaveisla. Í þætti vikunnar spáum við í spilin og gerum upp deildarkeppnina. Gestur þáttarins er Þröstur Leó Jóhannsson leikmaður Keflavíkur. Hann fer yfir ferilinn og gerir upp þetta skrautlega tímabil hjá Keflavík. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur 1:00 - Hvar by...
Hvaða lið fer upp í Dominos með Skallagrím? 04.03.2018 1:32:26
Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar ræðir Skúli Guðmundsson, stjórnarmaður í karlaráði meistaraflokks karla hjá Skallagrími, 1. deild karla þetta árið. Við förum yfir ný krýnda deildarmeistarana, Skallagrím, ræðum ný afstaðna skoðanakönnun 1. deildar karla og ræðum undir lokin fjölda útlendinga í deildunum á næsta ári og hvort hægt sé að kaupa sér lið og titil á Íslandi. Umsjó...
Jón Arnór: Vill stíga frá leiknum áður en ég verð gæjinn sem er ekki inná í lokin 28.02.2018 1:29:40
Í nýjustu útgáfu af Podcasti Karfan.is er rætt við geitina, Jón Arnór Stefánsson. Farið er yfir víðan völl, þar sem byrjað er á æskuárunum í KR, síðan miðskólann í Bandaríkjunum, NBA árið, ferilinn í Evrópu og margt, margt fleira. Þá er einnig tekin staða á landsliðinu og Dominos deildinni. Undir lokin er svo farið yfir hvar hann sér sjálfan sig á næstu árum. Gestur: Jón Arnór StefánssonUmsjón: Da...
Margrét Sturlaugs: Markmið að gera leikmenn að betri einstaklingum 17.02.2018 1:24:17
Margrét Sturlaugsdóttir körfuboltaþjálfari og fyrrum leikmaður Keflavíkur er gestur vikunnar í Podcastinu. Hún ræðir körfuboltauppeldið, fyrsta titil Keflavíkur og áherslur sínar í þjálfun. Margar góðar sögur af ferlinum koma upp og hið skrautlega hálfa ár sem þjálfari meistaraflokks Keflavíkur gert upp. Auk þess sem Margrét ræðir opinskátt um baráttu sína við veikindi. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson...
Russell Westbrook verður aldrei besti leikmaður meistaraliðs 14.02.2018 1:25:00
Í nýjustu útgáfu af NBA Podcasti Karfan.is er farið yfir stöðu liðanna í deildinni. Spáð í spilin fyrir lokasprett deildarkeppninnar, því blóðbaði sem baráttan um 8. sætið í hvorri deild á eftir að vera. Þá er í lokin létt umræða um komandi sumar, bæði hvaða leikmenn séu á leiðinni nýjir inn í deildina, sem og þá búferlaflutninga sem líklegir þykja. Umsjón: Davíð Eldur & Sigurður OrriDagskrá:0...
Æsilegur endasprettur framundan! 02.02.2018 1:21:16
Það styttist heldur betur í úrslitakeppnin í Dominos deildunum. Liðin hafa nú staðfest þá leikmannahópa sem fara í lokasprett deildanna en félagaskiptaglugginn lokaði í liðinni viku. Framundan er æsilegur lokasprettur og til að gera upp síðustu umferðir og taka stöðuna fengum við Hörð Unnsteinsson í spjall. 1:00 - Umræða um Dominos deild karla 18:45 - Umræða um Dominos deild kvenna 31:30 - Hvaða l...
Það er kaos í Cleveland 25.01.2018 1:19:34
Í nýjustu útgáfu af NBA Podcasti Karfan.is er farið yfir stöðu liðanna í deildinni. Spáð í brotthvarfi Jason Kidd frá Milwaukee Bucks, vandræðum Cleveland Cavaliers, fýlunni sem Kawhi Leonard er farinn í og mörgu fleiru. Þá eru stjörnulið deildanna skoðuð í lokin. Þar sem að Sigurður Orri og Baldur Beck færa rök fyrir og velja leikmenn í sín stjörnuliðGestur: Baldur BeckUmsjón: Davíð Eldur & S...
Ná Keflavík og KR að verja titla sína? 09.01.2018 1:21:52
Í nýjustu útgáfu af Podcasti Karfan.is er farið yfir Dominos deildirnar og komandi bikarhelgi. Gestur þáttarins ekki af verri endanum, Árni Eggert Harðarson, aðstoðarþjálfari ÍR.Fyrst er rætt við Árna um körfuboltann í Breiðholtinu áður en farið er yfir spurningakönnun sem lögð var fyrir hlustendur. Þá er einnig spáð í því hvaða lið eigi raunhæfa möguleik á að verða bæði Íslands og bikarmeistarar....
Systkinin með flauturnar 08.01.2018 1:41:34
Flestir körfuboltaunnendur á Íslandi kannast við að hafa skoðun á hinum eða þessum dómum í leikjum og telja sig eflaust geta staðið sig betur en margir dómarar á Íslandi. Því fer þó fjarri að þetta sé auðvelt starf og ljóst að mikla ástríðu þarf til að verða meðal fremstu og þekktustu dómara á Íslandi. Stuttu eftir áramót ræddi Karfan.is við þau Davíð Tómas Tómasson og Georgíu Olgu Kristiansen og...
Á toppnum um jólin: Úr þátttakendum í sigurvegara 30.12.2017 42:55
Jólunum fylgja yfirleitt gleði en gleðin er þó væntanlega meiri hjá þeim liðum sem eru í efstu sætum deildanna. Darri Freyr Atlason er einn af þeim sem geta verið ansi sáttir við sína stöðu um hátíðarnar. Þessi 23. ára gamli þjálfari tók við meistaraflokki Vals í Dominos deildinni fyrir tímabilið. Hann var ekki lengi að stimpla sig rækilega inní Dominos deildina því hann situr á toppnum með lið si...
Bræður á vellinum 28.12.2017 52:37
Rétt fyrir jól tók Helgi Hrafn Ólafsson viðtal við þá Nebosja og Nemanja Knezevic sem spila saman fyrir Vestra í 1. deild karla. Þrátt fyrir sameiginlegt ættarnafn eru þeir ekki skyldir og eru ekki einu sinni frá sama landi. Þeir ræddu um íslenskan körfubolta samanborið við austur-evrópskan, erfiðustu andstæðinga sína hérlendis og kúltúr körfubolta áhangenda í Serbíu ásamt öðrum hlutum. Gestir: Ne...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet