Karfan
Karfan
Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.karfan.is
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Yngvi Páll: Körfuboltabúðir Vestra, starfið á Ísafirði og aðlögunarhæfni þjálfara 14.06.2018 28:07
Blaðamaður Karfan.is var fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og tók nokkur stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem voru þar. Yngvi Páll Gunnlaugsson, yfirþjálfari Vestra og einn af skipuleggjendum körfuboltabúðanna, kom í viðtal daginn eftir að búðunum lauk til að ræða þær. Við ræddum hvernig hann sæi næsta tímabil fyrir sér og hvernig gengi að fá leikmenn vestur á Ísafjörð. Starfið...
Hannes Jónsson: Körfubolti er orðin heilsárs-íþrótt 13.06.2018 32:30
Blaðamaður Karfan.is var fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og tók nokkur stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem voru þar. Að þessu sinni fékkst formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson, til að mæta í stutt viðtal. Við ræddum Vestra körfuboltabúðirnar og sumarstarf KKÍ ásamt yngri landsliðaverkefni (og verkefni A-landsliðanna) í sumar. Að lokum ræddum við vöxt körfubolta á Íslandi og hvert...
Fer LeBron James til Rockets eða Lakers? 12.06.2018 43:41
NBA tímabilið kláraðist á dögunum með sigri Golden State Warriors. Úrslitaserían var frekar ósanngjörn þar sem að Cavaliers lágu 4-0 fyrir meisturunum. Í þessum síðasta þætti tímabilsins er farið yfir úrslitakeppnina og við hverju megi búast af leikmannamarkaðinum í sumar. Þátturinn er einnig á iTunesUmsjón: Davíð Eldur & Sigurður OrriTryggvi Snær á leið í deildina (00:30)Casey til Pistons (10...
Elvar Már um háskólaboltann, landsliðið og þjálfun 08.06.2018 22:50
Blaðamaður Karfan.is er fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og er að taka stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem eru þar. Enn annar þjálfunarþáttur af Podcasti Karfan.is er því kominn í loftið. Elvar Már Friðriksson var leynigestur í búðunum í ár og Karfan.is var svo lánsamt að ná eldsnöggu viðtali við hann. Elvar ætti að vera flestum körfuboltaunnendum góðkunnur eftir landsliðsævi...
Jóhannes Kristbjörnsson um þjálfun, hugarfar og Njarðvík 06.06.2018 25:25
Blaðamaður Karfan.is er fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og er að taka stutt og laggóð viðtöl við þjálfara sem eru þar að taka þátt. Enn annar þjálfunarþáttur af Podcasti Karfan.is er því kominn í loftið. Þar er rætt við Jóhannes Albert Kristbjörnsson, Njarðvíking og reynslubolta, bæði sem leikmaður og þjálfari. Jói talar um eftirminnilega tapleiki og hvaða lærdóm megi draga af þeim. Einbeiti...
Kristjana um þjálfun, Keflavík og eljuna 05.06.2018 28:46
Nýr þjálfunar þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar er rætt við Kristjönu Eir Jónsdóttur, þjálfara yngri flokka Keflavíkur, aðstoðarþjálfara U-16 stúlkna og aðalþjálfara U-14 stúlkna. Elja er til umræðu og hvernig leikmenn geti þjálfað það upp í sér sem og hvernig það skilar sér inni á vellinum. Þjálfarar Keflavíkur og sigurvilji Keflvíkinga ber á góma og við ræðum hvaða hlutverki t...
Brynjar Þór um þjálfun, síðustu tímabil með KR og framtíðina 02.06.2018 50:25
Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar er rætt við Brynjar Þór Björnsson, fimmfaldan Íslandsmeistara með KR og stofnanda körfuboltaþjálfunar Brynjars. Við ræðum KR og Laugardalinn, streetball með gömlum hetjum og körfuboltaþjálfun Brynjars. Brynjar segir frá hvað honum finnst skipta máli í skotum og hvernig maður verður góður skotmaður. Landsliðið er rætt og við förum gegnum hlut...
Upphitun fyrir lokaúrslit NBA deildarinnar 30.05.2018 54:55
Annað kvöld hefjast lokaúrslit NBA deildarinnar þar sem að Cleveland Cavaliers og Golden State Warriors mætast í fyrsta leik. Fjórða árið í röð sem þessi lið mætast í úrslitum, en þó má segja að um eilítið breytta hópa sé að ræða. Í þessari síðustu útgáfu af NBA podcasti Körfunnar er farið yfir málefni dagsins, undanúrslitin sem voru að klárast og það einvígi sem eftir er. Umsjón með þættinum hafa...
Er LeBron James besti leikmaður allra tíma? 22.05.2018 1:38:03
Úrslitakeppni NBA deildarinnar er nú vel komin af stað. Fyrsta umferð óneitanlega meira spennandi en sú önnur, og sú þriðja ekki ennþá innihaldið spennandi leik. Þó vissulega séu bæði einvígin mjög áhugaverð. Í þættinum er farið yfir þessar viðureignir og reynt að sjá fyrir hvernig þetta muni spilast það sem eftir líður. Gestur þáttarins er ritstjóri NBA Ísland og sérfræðingur Stöð 2 Sport, Baldur...
Ágúst: Hvernig ná leikmenn árangri? 22.05.2018 49:46
Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar er rætt við Ágúst Björgvinsson, þjálfara Vals, um þjálfun yfir sumarið, körfuboltabúðir og hvað skipti hann máli á æfingum. Ágúst fer yfir þjálfaranámskeiðin hjá KKÍ ásamt menntun þjálfara á Íslandi og nefnir nokkra áhrifamestu kennara sína og bækur. Hann ræðir það sem honum finnst skipta máli fyrir árangur hjá liðum og leikmönnum, vinnusemi...
Raggi Nat í spjalli - Stóri bekkjartrúðurinn frá Hveragerði 08.05.2018 1:44:46
Ragnar Nathanaelsson er gestur vikunnar í Podcasti karfan.is þar sem hann gerir upp ferilinn en hann hefur komið víða við. Það eru margar stórskemmtilegar sögur sem Raggi segir frá í þessum þætti auk þess sem nýlokið tímabil er gert upp. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur 11:45 - Nýjustu fréttir - Danero í Tindastól 16:50 - Ágúst dregur Ragga á æfingar í Hveragerði 13:30 - Veðrið kom í veg...
Warriors gegn Cavaliers, enn og aftur? 07.05.2018 1:37:21
Úrslitakeppni NBA deildarinnar er nú vel komin af stað. Fyrsta umferð óneitanlega meira spennandi en sú önnur, en ekki er ólíklegt að hún klárist á næstu dögum. Í þættinum er farið yfir þessar viðureignir og reynt að sjá fyrir hvernig þetta muni spilast það sem eftir líður. Gestur þáttarins er ritstjóri NBA Ísland og sérfræðingur Stöð 2 Sport, Baldur Beck. Gestur: Baldur BeckUmsjón: Davíð Eldur &a...
(Endurútgefið - Feb 2017) Craig fyrir EuroBasket 07.05.2018 53:10
Maltbikarkeppnin fór fram um helgina og stóð KR og Keflavík uppi sem bikarmeistarar í meistaraflokki. Helgin var stanslaus veisla og því er Podcastþáttur vikunar með viðhafnarsniði. Craig Pedersen landsliðsþjálfari Íslands settist niður með okkur og ræddi um körfubolta og íslenska landsliðið. Liðið mun leika á Eurobasket 2017 í Finnlandi en það er annað stórmótið sem landsliðið tekur þátt í. Peder...
(Endurútgefið - Sep 2017) Finnur Freyr fyrir tímabilið 29.04.2018 1:44:40
Rykið er enn að falla hjá körfuboltaáhugafólki eftir Eurobasket 2017. Íslenska liðinu tókst ekki að koma heim með sigur í farteskinu en eftirminnilegt mót fyrir íslenskan körfubolta var það engu að síður. Finnur Freyr Stefánsson aðstoðarþjálfari liðsins settist niður í Podcasti Karfan.is eftir mótið, gerði það upp og ræddi landsliðssumarið sem var tíðindamikið. Einnig voru titlarnir hjá KR ræddir...
(Endurútgefið - Nóv 2016) Helena fyrir síðasta tímabil 29.04.2018 1:36:21
Framundan eru tveir landsleikir hjá A-landsliði kvenna í undankeppni Eurobasket. Leikirnir eru gegn Slóvakíu og Portúgal, mikil breyting er á leikmannahóp liðsins. Helsta breytingin er sú að fyrirliði landsliðsins og besti leikmaður Íslands Helena Sverrisdóttir á von á barni og er ekki með. Hún settist niður með podcasti Karfan.is og ræddi ferilinn, Dominos deildirnar og landsleikina. Hvað gerðist...
Frá Gnúpverjum til Hveragerðis 27.04.2018 1:12:41
Örlítið er eftir af tímabilinu í Dominos deildunum en úrslitaeinvígin eru vel á veg komin og ráðast úrslitin á næstu dögum. Í podcasti vikunnar er spáð í spilin og síðustu leikir gerðir upp. Gestur þáttarins er Máté Dalmay nýráðinn þjálfari Hamars í Hveragerði. Hann gerir upp árin með Gnúpverjum og segir frá því hvernig tækifærið hjá Hamri kom til. Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur Efnisyf...
Haddi um úrslitaeinvígið, Njarðvík og þjálfun 21.04.2018 1:33:19
Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar ræðir Hallgrímur Brynjólfsson, fyrrum þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur, feril sinn sem leikmann og sem þjálfara. Haddi, eins og hann er yfirleitt kallaður, fer yfir liðin sem hann spilaði með og hvernig hann leiddist út í þjálfun og rekur síðan Njarðvíkur ævintýrið sitt á nýliðnu tímabili. Við tölum svo almennt um úrvalsdeild kvenna sem er ný...
Upphitun fyrir úrslitaeinvígi Dominos deildanna með Vilhjálmi Steinarssyni 18.04.2018 1:19:32
Á morgun hefjast lokaúrslit Dominos deildar kvenna með fyrstu viðureign Hauka og Vals í DB Schenker Höllinni í Hafnarfirði. Degi seinn fara lokaúrslit Dominos deildar karla svo af stað í Síkinu á Sauðárkróki með fyrsta leik Tindastóls og KR.Podcast Körfunnar fékk aðstoðarþjálfara Hauka, Vilhjálm Steinarsson, til þess að rýna í báðar viðureignir, fara yfir viðsnúning Hauka síðasta árið og ræða nokk...
Upphitun fyrir úrslitakeppni NBA deildarinnar - Getum ekki beðið eftir Lance! 12.04.2018 1:52:58
Í þessum síðasta þætti er farið yfir við hverju er að búast í einvígi fyrstu umferðar úrslitakeppninnar. Úrslitakeppnin fer af stað á laugardaginn með fjórum leikjum, seinni fjórir fyrstu leikirnir eru svo degi seinna. Gestur þáttarins er ritstjóri NBA Ísland og sérfræðingur Stöð 2 Sport, Baldur Beck. Fyrsti leikurinn sem hann mun leiða landann í gegnum er fyrsti leikur Cleveland Cavaliers og Indi...
(Endurútgefið - Nóv 2017) Hlynur og Jakob ræða ferilinn og landsliðið 06.04.2018 51:16
Íslenska landsliðið leikur í kvöld sinn fyrsta leik í undankeppni heimsmeistaramótsins 2019. Liðið er í riðli með Búlgaríu Finnlandi og Tékklandi og mun leika á móti þeim þjóðum heima og heiman. Fyrsti leikur liðsins fer fram í Pardubice í Tékklandi, en sá annar komandi mánudag gegn Búlgaríu heima í Laugardalshöll. Liðið kom saman í Tékklandi síðasta mánudag, þar sem það hefur verið við æfingar al...
(Endurútgefið - Jan 2017) Sverrir Þór ræðir um ferilinn og Keflavík 06.04.2018 1:24:12
Keflavík og Tindastóll koma frá hátíðunum í topp sætum Dominos deildanna. Einhverjar breytingar hafa verið gerðar á liðum og körfuboltinn aftur farinn að rúlla eftir ofát og græðgi jólanna. Hið unga og efnilega lið Keflavíkur fær alvöru prófraun strax þegar liðið mætir íslandsmeisturum síðustu þriggja ára Snæfell. Gestur vikunnar er einmitt Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Keflavíkur. Hann er næstl...
(Endurútgefið- Jan 2017) Birna Valgarðs um ferilinn og fleira 06.04.2018 1:20:17
Þegar dag fer að lengja sækir alvaran að körfuboltaliðum landsins. Leikirnir fara að skipta meira máli og hvert stig getur skipt á endanum öllu. Í Dominos deild kvenna virðast Keflavík, Snæfell, Skallagrímur og Stjarnan ætla að stinga af en Njarðvík getur breytt því með sigri í vikunni. Danero Thomas flúði Akureyri og skrifaði undir í breiðholti í vikunni. Mun það hafa einhver áhrif eða verða bæði...
Meiri dramatík og spenna framundan? - Undanúrslitin að hefjast 03.04.2018 51:55
Undaúrslit Dominos deildar karla hefjast annað kvöld þegar ÍR fær Tindastól í heimsókn. Í hinu einvíginu mætast svo KR og Haukar. Í þætti vikunnar verður farið yfir tíðindamikil einvígi í átta liða úrslitum og spáð í spilin fyrir einvígin í undanúrslitunum. Gestur þáttarins er Hraunar Karl Guðmundsson leikmaður Gnúpverja og körfuboltaáhugamaður mikill. Umsjón: Ólafur Þór og Davíð Eldur Efnisyfirli...
Helena og Finnur Atli ræða lífið og tilveruna 01.04.2018 1:14:01
Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar ræða Helena Sverrisdóttir og Finnur Atli Magnússon lífið og tilveruna, bæði innan og utan körfunnar. Hjónin tilvonandi (sem gifta sig í sumar) fara yfir fyrstu minningarnar úr körfunni, tala um fyrsta stefnumótið sitt, ræða körfuboltann í Hafnarfirði og hvernig systkini makans hafi tekið á móti sér. Við ræðum seinasta spennuleik beggja og at...
Er Íslandsmeistaratitillinn á leiðinni úr Keflavík? 01.04.2018 1:07:52
Á morgun hefjast undanúrslit Dominos deildar kvenna með fyrsta leik viðureignar Skallagríms og deildarmeistara Hauka. Degi seinna leika Valur og Íslandsmeistarar Keflavíkur svo fyrsta leik í sínu einvígi. Í þessari síðustu útgáfu Karfan.is er farið yfir deildarkeppnina sem lauk fyrir nokkrum dögum. Hvað kom á óvart, hvaða leikmenn áttu bestu tímabilið, hvað sé í kortunum fyrir úrslitakeppnina og m...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet