RÚV
Íþróttavarp RÚV
Hlaðvarpsþættir um íþróttir.
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Arnór Þór Gunnarsson 08.06.2023 28:15
Gestur Íþróttavarpsins í dag er handboltamaðurinn Arnór Þór Gunnarsson. Arnór leikur á sunnudaginn síðasta handboltaleikinn á ferlinum þegar hann spilar með Bergischer í lokaumferð efstu deildar Þýskalands á móti Erlangen. Arnór fer yfir ferilinn á þessum tímamótum í Íþróttavarpinu. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
Atli Eðvalds: 40 ár frá afreki sem varla verður leikið eftir 04.06.2023 40:03
Hinn 4. júní árið 1983 vann Atli Eðvaldsson ótrúlegt afrek, því þann dag skoraði hann öll fimm mörk Fortuna Düsseldorf í 5-1 sigri liðsins á Eintracht Frankfurt í efstu deild Þýskalands í fótbolta. Strax daginn eftir skoraði svo Atli sigurmark Íslands í 1-0 sigri á Möltu í undankeppni EM á Laugardalsvelli og toppaði þar með hreint ótrúlegan sólarhring á sínum ferli. Atli rifjaði upp þennan magnaða...
Ragnheiður Júlíusdóttir 01.06.2023 27:33
Gestur Íþróttavarpsins í dag er ein besta handboltakona landsins, sem þó hefur ekki spilað handboltaleik síðan í lok janúar í fyrra. Ragnheiður Júlíusdóttir hefur verið stórskytta í liði Fram undanfarinn áratug og algjör lykil kona í sigursælu liði Fram. Þá hefur hún einnig verið hluti af íslenska landsliðinu og átti meðal annars sinn besta landsleik á Ásvöllum í október 2021 gegn Serbíu þegar hún...
Þórir Hergeirsson 27.05.2023 30:12
Þóri Hergeirsson þarf ekki að kynna fyrir mörgum en hann hefur stýrt norska kvennalandsliðinu í handbolta við góðan orðstýr síðastliðin 14 ár. Með liðinu hefur hann unnið heimsmeistaramót, evrópumót og Ólympíuleika og virðist hvergi nærri hættur. Þórir kom til landsins í vikunni til að halda fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík um vegferð sína með norska landsliðinu. Við settumst niður með Þóri ef...
Rúnar Kárason og Hanna Guðrún Stefánsdóttir 12.05.2023 45:12
Íþróttavarpið er handboltatengt þessa vikuna. Gestir eru Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Rúnar Kárason. Hanna lagði skóna á hilluna í síðustu viku eftir heil 28 ár í meistaraflokki. Hún fer yfir ferilinn og boltann. Rúnar Kárason stendur svo bæði í ströngu og á tímamótum. Hann er kominn í úrslit Olísdeildarinnar með ÍBV en skiptir á næsta ári í sitt uppeldisfélag, Fram. Hann fer yfir langan og viðbu...
Logi Gunnarsson og Agnes Suto 04.05.2023 34:55
Íþróttavarp vikunnar er tvískipt. Við spjöllum við Agnesi Suto, fimleikakonu. Á þessu keppnistímabili hefur Agnes ekki aðeins keppt á stærstu mótunum í áhaldafimleikum hér heima, heldur líka á öllum stærstu hópfimleikamótunum. Svo förum við yfir ferilinn með Loga Gunnarssyni, körfuboltamanni úr Njarðvík sem lagði skóna á hilluna nýverið. Logi er fjórði leikjahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðs...
Gummi Ben og Villi í Steve Dagskrá 26.04.2023 50:23
Það er búið að vera mikið um að vera í íþróttum hérlendis og erlendis undanfarið. Við fengum til okkar lífskúntstnerana Vilhjálm Frey Hallsson úr hlaðvarpinu Steve Dagskrá og Viaplay og Guðmund Benediktsson af Sýn sem hafa fylgst vel með. Við ræðum landsliðsþjálfaramál HSÍ og KSÍ og förum yfir það sem stendur upp úr í íþróttunum hér heima.
Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir 06.04.2023 28:26
Gestir Íþróttavarpsins að þessu sinni eru Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir landsliðskonur í handbolta. Fram undan eru tveir umspilsleikir við Ungverjaland um laust sæti á HM. Þeir eru ræddir, en líka farið yfir víðan völl. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
Vignir Vatnar Stefánsson - nýjasti stórmeistari Íslands í skák 30.03.2023 40:37
Vignir Vatnar Stefánsson varð um miðjan mars stórmeistari í skák. Hann er 16. Íslendingurinn sem nær þessum áfanga og sá næstyngsti frá upphafi. Vignir Vatnar leit við í Íþróttavarpið og ræddi áfangann, skáklistina, lífið sem stórmeistari og alls konar annað. Umsjón: Einar Örn Jónsson
Vésteinn Hafsteinsson verðandi afreksstjóri ÍSÍ 02.02.2023 55:27
Gestur Íþróttavarpsins þessa vikuna er Vésteinn Hafsteinsson nýráðinn afreksstjóri ÍSÍ. Vésteinn tekur við starfinu 1. maí, en er þegar byjraður að vinna á bak við tjöldin. Fram undan hjá honum er stórt og viðamikið verkefni við að auka vægi afreksíþrótta á Íslandi og gera afreksstarfið betra og faglegra. Vésteinn ræddi þetta allt saman fram og til baka í þættinum. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjör...
HM í handbolta - Ásgeir Örn Hallgrímsson 21.01.2023 29:17
Þátturinn að þessu sinni var tekinn upp strax eftir tapið fyrir Svíum í gærkvöld. Ísland er nú nær örugglega úr leik í baráttunni um að komast í 8-liða úrslit HM og þar með í Ólympíuforkeppnina. Ásgeir Örn Hallgrímsson fyrrverandi landsliðsmaður Íslands og einn af sérfræðingum HM stofunnar á RÚV var gestur Íþróttavarpsins og fór yfir sviðið rétt eftir leik. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
HM í handbolta - Seinni bylgjan í heimsókn 19.01.2023 29:56
Þáttur dagsins var tekinn upp á hóteli fjölmiðlafólks í Gautaborg. Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Seinni bylgjunnar á Stöð 2 Sport, leit í heimsókn. Sigurinn á Grænhöfðaeyjum var til tals en aðaláherslan var á leik Íslands og Svíþjóðar á morgun. EInnig voru gamlir stórleikir gegn Svíum rifjaðir upp. Umsjón: Einar Örn Jónsson og Helga Margrét Höskuldsdóttir.
HM í handbolta - Henry Birgir Gunnarsson 15.01.2023 38:46
Tapið fyrir Ungverjum í gær svíður sárt. Það þýðir þó ekkert að gefast upp, enda nóg eftir af mótinu og enn vel hægt að komast í 8-liða úrslit. Henry Birgir Gunnarsson íþróttafréttamaður hjá Vísi og Stöð 2 var gestur Íþróttavarpsins í dag og fór yfir sviðið með okkur. Henry hefur farið á annan tug stórmóta. En þar sem tapið í gær svíður svona mikið ákváðum við að snúa hnífnum í sárinu og rifjuðum...
HM í handbolta - Ólafur Stefánsson 13.01.2023 45:25
Gestur Íþróttavarpsins í dag er Ólafur Stefánsson fyrrverandi landsliðsfyrirliði Íslands í handbolta. Við fórum yfir tilfinninguna daginn eftir sigurinn á Portúgölum, samanburð við Óla og félaga og gamla liðið, karakterana í liðinu og svo útlitið fyrir morgundaginn þegar Ísland mætir Ungverjum. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson
HM í handbolta - Gunni Magg og Gústi Jóh 11.01.2023 28:33
Íþróttavarpið heilsar í dag frá Kristianstad í Svíþjóð. Þar hefur íslenska landsliðið í handbolta leik gegn Portúgal á HM á morgun. Einar Örn Jónsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson fóru yfir málin, en stærsti hlutur þáttarins er hins vegar spjall við aðstoðarþjálfara íslenska landsliðsins. Það eru þeir Gunnar Magnússon og Ágúst Þór Jóhannsson. Umjón: Einar Örn Jónsson og Þorkell Gunnar Sigurbjör...
HM í handbolta - Björgvin Páll og Ólafur Guðmunds 09.01.2023 35:47
Íþróttavarpið er í Þýskalandi í dag og ræðir við landsliðsmenn eftir leikina tvo gegn Þýskalandi um helgina, og spáir í spilin fyrir HM sem hefst á fimmtudag. Viðmælendur dagsins eru reynsluboltarnir Björgvin Páll Gústavsson og Ólafur Guðmundsson. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
HM í handbolta - Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson 06.01.2023 28:47
Íþróttavarpið ræðir við landsliðsmenn Íslands í handbolta í aðdraganda HM í Svíþjóð. Gestir þáttarins í dag eru landsliðsmennirnir Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson. Þeir eru líka liðsfélagar hjá Kolstad í Noregi og konurnar þeirra eru systur. Þeir eru því mikið saman og eru góðir vinir. Þetta er til umræðu í þættinum ásamt HM sem er framundan, hvernig Sigvaldi valdi að spila fyrir...
HM í handbolta - Aron Pálmarsson 04.01.2023 35:44
Heimsmeistaramót karla í handbolta hefst eftir örfáa daga. Af því tilefni verður Íþróttavarpið á fullri ferð í janúar bæði á Rás 2 og í lengri útgáfu á hlaðvarpsveitum. Gestur þessa þáttar er landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson. Aron ræðir upphaf síns landsliðsferils, vonir og væntingar með landsliðinu á HM í janúar, væntanlega heimkomu í FH og ýmislegt fleira. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnss...
Gunnar Huseby, 100 ára 08.08.2021 29:46
Ein af fyrstu íþróttastjörnum Íslands, Gunnar Huseby, fæddist 4. nóvember 1923 eða fyrir 100 árum. Hann var tvöfaldur Evrópumeistari í kúluvarpi en vandamál með áfengi varð til þess að hann keppti aldrei á Ólympíuleikum. Síðar setti hann þó tappann í flöskuna alveg sjálfur. Gunnar setti fjölda Íslandsmeta í kúluvarpi og kringlukasti og var landsfrægur. Í þessum þætti er saga Gunnars Huseby sögð og...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet