RÚV
Heimsglugginn
Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Gleymdu stríðin í Afríku 27.02.2025 23:32
Fáir Íslendingar þekkja jafn vel til Afríku og Stefán Jón Hafstein sem hefur um áratugaskeið starfað að þróunaraðstoð. Stefán Jón var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvakt Rásar 1.
Hvíta gullið á Grænlandi og árásir Trumps á Úkraínuforseta 20.02.2025 22:45
Danmarks Radio hefur tekið úr birtingu „Grønlands hvide guld“, umdeilda heimildarmynd um kríólítvinnslu á Grænlandi. DR rak einnig ritstjóra sem bar ábyrgð á henni. Myndin var gagnrýnd meðal annars fyrir að rugla saman hagnaði af kríólítvinnslunni og veltu í rekstrinum. Donald Trump Bandaríkjaforseti fer mikinn í árásum á Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu, kallar hann einræðisherra og segir hann...
Albert Jónsson: Vopnahlé líklegra en friðarsamningar í Úkraínu 13.02.2025 23:11
Gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugga vikunnar var Albert Jónsson, sérfræðingur í öryggis- og utanríkismálum og fyrrverandi sendiherra. Hann telur að litlar líkur séu á að hægt verði að gera friðarsamninga á milli Rússa og Úkraínumanna. Verði Trump Bandaríkjaforseti að ósk sinni um að stríðinu ljúki verði það líklega með vopnahléi. Albert bendir á að friðarsamningar hafi aldrei verið gerðir á mill...
Sænska þjóðin í sorg, kosningar á Grænlandi, ný norsk stjórn og fjör í breska þinginu 06.02.2025 22:50
Í Heimsglugganum var sjónum beint að norrænum málum. Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddi við Boga Ágústsson um sorgina í Svíþjóð eftir fjöldamorð í skóla í Örebro, kosningar sem hafa verið boðaðar á Grænlandi 11. mars og minnihlutastjórn norska Verkamannaflokksins. Þá heyrðum við Keir Starmer í breska þinginu úthúða fyrri stjórn fyrir veisluhöld á COVID-tímanum.
Utanríkismál í hverfulum heimi 30.01.2025 23:18
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, ræddi öryggis- og varnarmál við Boga Ágústsson. Þorgerður Katrín sagði nú vera óvissu, jafnvel ólgutíma, og nauðsyn að vera í náinni samvinnu við mestu vinaþjóðir okkar. Hún lagði áherslu á nauðsyn þess að reglur væru virtar í alþjóðasamskiptum. Hún sagði mikla samstöðu með norrænu ríkjunum og að norræn og evrópsk samvinna skipti miklu mál...
„Í Guðs bænum sýndu miskunn“ 23.01.2025 24:16
Donald Trump var aftur til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvakt Rásar 1 og við heyrðum í biskupi Washington biðja forsetann um að sýna miskunn. Ummæli Trumps um Panama og Grænland voru einnig á dagskránni er Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu við Boga Ágústsson um erlend málefni. Fjallað var um sögu Panama og skipaskurðinn þar.
Vopnahlé á Gaza, Grænland, Eystrasalt og afsögn bresks ráðherra 16.01.2025 23:45
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu erlend málefni við Boga Ágústsson eins og jafnan á fimmtudagsmorgnum á Morgunvaktinni. Samið hefur verið um vopnahlé á Gaza eftir grimmdarleg átök, þar sem talið er að nærri 50 þúsund Palestínumenn hafi beðið bana og á annað þúsund Ísraelsmenn. Forsætisráðherra Dana ræddi í síma í gær við verðandi Bandaríkjaforseta og lagði áherslu á að Gr...
Hótanir Trumps um að beita hervaldi til að ná Grænlandi undir Bandaríkin. 09.01.2025 23:37
Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna segist ekki geta útilokað að beita hervaldi eða efnahagslegum aðgerðum til að ná Grænlandi og Panama undir yfirráð Bandaríkjanna. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu Grænlandsmál við Boga Ágústsson í Heimsglugganum. Bandaríkjamenn hafa raunar haft herstöðvar á Grænlandi síðan 1951 samkvæmt varnarsamningi milli Bandaríkjanna og Danm...
Óvissa í alþjóðamálum í upphafi nýs árs 02.01.2025 22:03
Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu stöðu alþjóðamála í upphafi nýs árs. Bogi sagði að ekki yrði sagt að 2024 hafi verið gott ár á alþjóðavettvangi: í kosningum fengu popúlskir flokkar víða byr í seglin, umhverfisráðstefna Sameinuðu þjóðanna skilaði engu og stór hluti heimsins virðist kæra sig kollóttan um sífellt hættulegri hamfarahlýnun. 2024 er heitasta ár sem hefur mælst og það...
Norræn pólitík og jólalög 19.12.2024 22:43
Norski Verkamannaflokkurinn er í miklum öldudal um þessar mundir eins og stjórnarflokkar víðar á Norðurlöndum. Framfaraflokkurinn nýtur mests fylgis og þykir tíðindum sæta að hann skuli njóta meiri stuðnings en Høyre sem hefur haft afgerandi forystu á hægri væng norskra stjórnmála. Sænska kosningarannsóknin við háskólann í Gautaborg hefur birt lista yfir mat kjósenda á stjórnmálaleiðtogum frá 1979...
Sýrlendingar hafa aldrei ráðið eigin örlögum 12.12.2024 23:10
Bashar al-Assad hefur hrakist frá völdum í Sýrlandi og óvissa hvað tekur við. Ólíklegt er að almenningur fái ráðið því hverjir taki við stjórn, það hefur aldrei verið lýðræði í Sýrlandi í árþúsunda sögu landsins. Farið var yfir sögu landsins í Heimsglugga vikunnar.
Frí í útlöndum? Um alþjóðastarf þingmanna 21.11.2024 21:43
Vilborg Ása Guðjónsdóttir var gestur Heimsgluggans. Hún er alþjóðastjórnmálafræðingur og vinnur að doktorsritgerð um þátttöku þingmanna í alþjóðastarfi. Hún segir enn eima eftir af þeirri afstöðu að slíkt starf sé „frí í útlöndum“ og að viðhorf gagnvart alþjóðastarfinu sé neikvætt og ekki borin virðing fyrir því. Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákons krónprins Noregs, situr í gæsluvarðhaldi vegna r...
Utanríkismál í kosningabaráttunni 14.11.2024 23:16
Heimsglugginn fjallaði að þessu sinni um hlut utanríkis- og varnarmála í kosningabaráttunni fyrir Alþingiskosningarnar 30. nóvember. Bogi Ágústsson ræddi við Davíð Stefánsson og Piu Hansson. Davíð er formaður Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál og Pia er forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands en þau standa fyrir fundi um utanríkis- og varnarmál ásamt Stofnun stjórnsýs...
Þýska stjórnin fallinn, Trump endurkjörinn 07.11.2024 23:29
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Guðrún Hálfdánardóttir ræddu við Boga Ágústsson um fall þýsku stjórnarinnar. Þar sauð upp úr eftir deilur um ríkisútgjöld á milli stjórnarflokkanna. Frjálsir demókratar vildu draga úr útgjöldum til félagsmála og grænna verkefna til að loka gati í ríkisbúskapnum. Jafnaðarmenn og Græningjar gátu ekki sætt sig við þau áform og Olaf Scholz kanslari rak Christian Lindner,...
Sögulegar kosningar í Japan 31.10.2024 23:50
Stjórnmál í Japan eftir þingkosningar um síðustu helgi voru til umræðu í Heimsglugganum í Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við Kristínu Ingvarsdóttur, lektor í japönskum fræðum við Háskóla Íslands. Þingkosningar á sunnudag sættu talsverðum tíðindum. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, LDP, sem hefur farið með stjórn í Japan nánast óslitið í nærri 70 ár, beið afhroð. Flokkurinn tapaði 64 þi...
Erfið prófraun lýðræðis 24.10.2024 22:16
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson um stöðu lýðræðis og kosningar á árinu 2024. Talað hefur verið um árið sem „kosningaárið mikla“ og þegar hafa kjósendur í 67 löndum greitt atkvæði í þing- eða forsetakosningum. Í þessum löndum búa 3,4 milljarðar fólks. Áður en 2024 verður liðið verður einnig gengið til kosninga í löndum þar sem 440 milljónir búa. Þar eru...
Alex Salmond og vandræði Northvolt 17.10.2024 20:22
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson minntust Alex Salmonds sem lést um síðustu helgi. Hann var óskoraður leiðtogi sjálfstæðishreyfingar Skota fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 2014. Þeir ræddu einnig erfiðleika Northvolt í Svíþjóð sem átti að verða lykilfyrirtæki í sókn evrópskra bílaframleiðenda á rafbílamarkaðnum, risastórt fyrirtæki sem framleiddi rafhlöður fyrir bíla. Reksturinn hefur hins ve...
Friðarráðstefna í Reykjavík, breskir Íhaldsmenn hrökkva til hægri 10.10.2024 22:39
Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans og ræddi friðarráðstefnu Höfða, friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, sem fer fram í Iðnó í dag. Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo um leiðtogakjör í breska Íhaldsflokknum þar sem almennir félagar kjósa leiðtoga í stað Rishi Sunaks. Eftir kosningar í þi...
Harmleikur í Mið-Austurlöndum og landsfundur breskra Íhaldsmanna 03.10.2024 23:01
Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu um hörmuleg átök í Mið-Austurlöndum þar sem veruleg hætta er á frekari útbreiðslu og hörmungum fyrir fólk sem þarna býr. Gyðingahatur hefur aukist mikið síðasta árið eftir árás Hamas á Ísrael og gífurlega mannskæðar árásir Ísraelshers á Gaza. Þá ræddu þau einnig landsfund breska Íhaldsflokksins og þau fjögur sem berjast um...
Efnahags- og stjórnmál í Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð 26.09.2024 23:15
Stjórnmálaflokkar í Bretlandi halda landsfundi þessar vikurnar, Frjálslyndir demókratar í síðustu viku, Verkamannaflokkurinn í þessari og Íhaldsflokkurinn í næstu viku. Hamingja og eindrægni ríkti hjá Frjálslyndum sem fengu 72 þingmenn kjörna í þingkosningunum í júlí. Ekki hafa setið fleiri Frjálslyndir í neðri málstofunni í heila öld. Ætla hefði mátt að sigurgleði ríkti einnig á landsfundi Verkam...
Fordæmalaus kúgun í Venesúela, vextir, Úkraína og Mossad 19.09.2024 25:33
Heimsglugginn fjallaði þessa vikuna um vaxtalækkun í Bandaríkjunum, Bromma-flugvöll í Stokkhólmi, stríðið í Úkraínu, skýrslu Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um Venesúela og Mossad, leyniþjónustu Ísraelsmanna. Mossad er almennt talin bera ábyrgð á sprengjutilræðum gegn Hisbollah-liðum í Líbanon.
Lichtman spáir Harris sigri, hlutleysi Sviss og Farage í þinginu 12.09.2024 25:30
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu margt í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar-1. Nefna má hlutleysi Sviss, norrænan sjónvarpsþátt um öryggismál á Norðurlöndum eftir innrás Rússa í Úkraínu og inngöngu Finna og Svía í NATO. Við heyrðum í nýjum sænskum utanríkisráðherra, Nigel Farage í breska þinginu og Allan Lichtman, sem hefur reynst sannspár um úrslit forsetakosninga í Bandaríkjun...
Telur hvorki Rússa né Úkraínumenn geta sigrað í stríðinu 05.09.2024 22:17
Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, var gestur Heimsgluggans. Hann og Bogi Ágústsson ræddu stríðið í Úkraínu, harðar loftárásir Rússa, sókn Úkraínumanna inn í Kúrsk-hérað í Rússlandi og breytingar á ríkisstjórn Úkraínu. Valur telur ólíklegt að stríðið vinnist á vígvellinum, það endi líklega með vopnahléi og Úkraínumenn þurfi að sætta sig við að Rússar ráði því landi sem þeir hafi hernu...
Danmörk, Færeyjar og Grænland og vandræði norsku konungsfjöskyldunnar 29.08.2024 24:17
Bogi Ágústsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu ágreiningsefni innan danska ríkissambandsins. Færeyingar vilja sjálfstæða aðild að WTO, Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Grænlendingar vilja að Grænlendingur verði skipaður í nýtt embætti norðurslóðasendiherra. Nokkuð varð ágengt til að leysa þennan ágreining á fundi leiðtoga landanna í vikunni. Þá ræddu þau erfiðleika norsku konungsfjölskyldunnar þar...
Fíkniefni í Skotlandi, gengjastríð, konunglegur skandall í Noregi og Robert Kennedy yngri 22.08.2024 24:28
Fleiri deyja vegna neyslu fíkniefna í Skotlandi en nokkru öðru landi í Evrópu. Skotar hafa miklar áhyggjur, vonir eru að neyslurými geti fækkað dauðsföllum. Stjórnvöld í Danmörku og Svíþjóð hafa ákveðið að auka mjög samstarf í baráttu gegn glæpagengjum. Dómsmálaráðherrar landanna og ríkislögreglustjórar hittust og ákváðu aðgerir sem eiga að stoppa að samfélagsmiðlar séu notaðir til að lokka börn o...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet