Guðmundur Hörður

Guðmundur Hörður

News IS ↓ 28 Folgen

Hlaðvarp um stjórnmál.

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: gudmundurhordur.blogspot.com

Autor

Guðmundur Hörður

Kategorie

News

Neueste Folge

19. Jun 2024

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Saga Íslandshreyfingarinnar 19.06.2024

Íslandshreyfingin var frjálslyndur umhverfisverndarflokkur sem var stofnaður í byrjun árs 2007 og bauð fram í Alþingiskosningum 12. maí það sama ár. Skoðanakannanir bentu til þess í fyrstu að flokkurinn gæti fengið um 5% fylgi og þrjá þingmenn, en þegar upp var staðið hlaut hann rúmlega 3% fylgi og engan þingmann. Mig langaði til að rifja upp sögu þessa framboðs, tilkomu þess og örlög, og settist...

Björg Eva: Finnum það sem sameinar okkur 07.04.2024

Björg Eva Erlendsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Landverndar og ég settist niður með henni til að ræða náttúruverndina, stöðu náttúruverndarhreyfingarinnar, hálendisþjóðgarð, ríkisstjórnarsamstarfið og áróðursherferðina um orkuskort og græn orkuskipti.

Sjálfboðaliðarnir sem sigruðu vellauðugt alþjóðfyrirtæki 09.05.2023

Það eru sextán ár liðin síðan að Hafnfirðingar efndu til sögulegrar íbúakosningar um stækkun álversins í Straumsvík, en þar tókst fámennum hópi sjálfboðaliða að bera sigurðorð af Alcan, vellauðugu kanadísku alþjóðfyrirtæki. Meðal þeirra sem tóku þátt í þessum slag voru þau Valgerður Halldórsdóttir og Pétur Óskarsson, en þau voru í forystu Hafnfirðinga sem börðust undir merkjum félagsins Sól í Stra...

Stéttaátök og kosningasvindl 17.10.2021

Í alþingiskosningum 1927 urðu tveir menn uppvísir að atkvæðafölsunum í máli sem hefur verið nefnt Hnífsdalsmálið, eina kosningasvindlinu hér á landi sem hefur komið inn á borð kjörbréfanefndar Alþingis, Hæstaréttar og Scotland Yard. Ég rakti þessa sögu í pistli sem hægt er að lesa á gudmundurhordur.medium.com , en hér ætla ég að fylgja pistlinum eftir með viðtali við Sigurð Pétursson sagnfræðing,...

Þjóðgarður er meira en merkimiðinn 30.12.2020

Umhverfisráðherra hefur lagt fram stjórnarfrumvarp á Alþingi um hálendisþjóðgarð. Viðbrögð við frumvarpinu hafa vakið furðu, sér í lagi margir fyrirvarar samstarfsflokka Vinstri Grænna í ríkisstjórn, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Af þessu tilefni ræddi ég við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, en náttúruverndarhreyfingin hefur fjölmargt við hálendisfrumvarpið að athuga...

Íslandsmet í undirskriftasöfnun 12.10.2020

Stjórnarskrárfélagið safnar nú undirskriftum almennings við þá kröfu að Alþingi virði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar frá 2012 og lögfesti nýju stjórnarskrána. Ríkisstjórn Vinstri-grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hefur ekki viljað heyra á þetta minnst og hefur boðað eigin stjórnarskrártillögur. Flokkarinar virðast að vísu ekki ná samstöðu um þessar tillögur og nú er margt sem bendir ti...

Slembivalin borgaraþing og rökræðufundir 01.09.2020

Viðtal við Sævar Finnbogason, doktorsnema í heimspeki sem leggur stund á lýðræðisrannsóknir, stjórnarmann í Öldu lýðræðisfélagi og einn af þeim sem komu að skipulagningu og úrvinnslu rökræðufundar stjórnvalda um breytingar á stjórnarskrá síðastliðið haust. Hann varar við afleiðingum þess að stjórnvöld hunsi endurtekið niðurstöður lýðræðislegs samráðs við almenning, það muni grafa undan trausti á s...

Öll þjóðfélög á öllum tímum hafa notað vímuefni 05.06.2020

Hlaðvarpið að þessu sinni er viðtal sem ég átti við Þorstein Úlfar Björnsson, en hann hefur skrifað bækur um sögu vímuefnanotkunar og það sem hann kallar fáránleika fíknistríðsins. Þá hefur hann nýverið birt nokkrar greinar um sama efni á Kjarnanum. Við settumst niður og ræddum um frjálslyndari viðhorf til kannabisneyslu, aukinn skilning á læknandi áhrifum hugvíkkandi efna og cbd-olíu, áhrif &nbsp...

„Þú ert fólkið sem kaus þig“. Viðtal við Andrés Inga Jónsson 10.05.2020

Viðtal sem ég átti við Andrés Inga Jónsson, þingmann utan flokka, en hann hefur setið á þingi fyrir Vinstri Græna frá 2016 en sagði sig úr þingflokknum fyrir hálfu ári síðan. Við ræddum um það hvernig sé að vera þingmaður án flokks, um stjórnarmyndunina 2017, dramatíska flokkráðs- og þingfundi, stjórnarskrána, lýðræðismálin, umhverfismálin og framtíð Andrésar í stjórnmálum. Síðan svaraði hann einn...

Stundin: Bankar eiga að vera bankar Sjálfstæðisflokksins 07.05.2020

Um bankakerfið, Sjálfstæðisflokkinn og samfélagsbanka.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um auðlindaákvæði 12.03.2020

Nú eru fimm ár liðin síðan hópur fólks safnaði undirskriftum undir yfirskriftinni „Þjóðareign“ með það að markmiði að stöðva frumvarp Sigurðar Inga Jóhannsson, þáverandi sjávarútvegsráðherra, um að afhenda útgerðum makrílkvóta til lengri tíma en eins árs. Tæplega 54 þúsund Íslendingar ljáðu hópnum nafn sitt og varð þetta því fimmta fjölmennasta undirskriftasöfnun sem hefur farið fram hér á landi....

Stytting vinnuvikunnar 15.02.2020

Það hefur sýnt sig að stytting vinnuvikunnar eykur bæði afköst og hamingju starfsfólks. En hvers vegna erum við þá ekki komin lengra á þessari vegferð? Ég ræddi við Guðmund D. Haraldsson, stjórnarmann í Öldu og áhugamann um styttingu vinnutímans.

Pólitíska eldflaugin 06.08.2019

Okkur sem þykja stjórnmálin yfirleitt full værðarleg hér á landi söknum Birgittu Jónsdóttur af pólitíska sviðinu – pólitísku eldflauginni eins og einn vinur hennar kallaði hana nýverið. Ég sló því á þráðinn til Birgittu og ræddi við hana stöðuna innan Pírata – en fyrst ræddum við m.a. um málskotsréttinn, handahófsvalda almenningsdeild Alþingis, friðhelgi einkalífsins, kínverska eftirlitssamfélagið...

Ómar og orkupakkinn 18.05.2019

Í umræðunni um þriðja orkupakkann hef ég talsvert rekist á spurninguna – hvar eru náttúruverndarsinnarnir? Og þeir hafa vissulega ekki verið háværir í þessari umræðu. Þess vegna hitti ég náttúruverndar-goðsögnina Ómar Ragnarsson og ræddi við hann um málið.

N-ið: Pálmey Gísladóttir og Einar Bergmundur 23.10.2018

Í þessum þætti fjalla ég um Neytendasamtökin – stöðu þeirra, fortíð og framtíð. Til þess að ræða þetta hef ég fengið tvo góða gesti, þau Pálmey Gísladóttur og Einar Bergmund, en þau hafa bæði gefið kost á sér til stjórnar Neytendasamtakanna, en kosningin fer fram um næstu helgi.

N-ið: Drífa Snædal 18.09.2018

Í þessum þætti hitti ég Drífu Snædal, framkvæmdastjóra Starfsgreinasambands Íslands, en hún sækist nú eftir því að verða kjörin forseti Alþýðsambandsins. Við ræddum auðvitað um sameiginleg hagsmunamál stéttarfélaga og neytendasamtaka, t.d. neysluskatta, mannsæmandi húsnæðiskerfi, stöðu verkafólks í landbúnaðarkerfinu, samvinnufélög og hvort taka þurfi verðtrygginguna úr sambandi ef gengið fer að f...

N-ið: Þorsteinn Sæmundsson 09.09.2018

Í þessum þætti fór ég niður á Alþingi og talaði við Þorstein Sæmundsson. Hann hefur verið einn þeirra þingmanna sem sett hefur neytendamál á oddinn í sínum málflutningi. Við spjölluðum um matvörumarkaðinn, landbúnaðarkerfið og bankana.

N-ið: Jóhannes Gunnarsson 20.08.2018

N-ið, hlaðvarp um neytendamál. Viðtal við Jóhannes Gunnarsson, fyrrverandi formann Neytendasamtakanna.

Stundin / „Auðvitað já!“ 08.01.2018

Pistill birtur á Stundinni 8.1.2017

Bar-rabb / Atli Þór Fanndal 21.08.2017

Bar-rabb / Atli Þór Fanndal by Guðmundur Hörður Guðmundsson

Bar-rabb / Jón Þórisson 26.04.2017

Viðtal við Jón Þórisson um stjórnmálaástandið og störf hans með Evu Joly og Pírötum. Tekið á Mímisbar 24. apríl 2017.

Bar-rabb / Sigurður Hólm Gunnarsson 05.12.2016

Viðtal við Sigurðu Hólm Gunnarsson um Samfylkinguna. Tekið á Lofti í Bankastræti 1. desember 2016.

Bar-rabb / Heiða Guðný Ásgeirsdóttir 26.11.2016

Bar-rabb / Heiða Guðný Ásgeirsdóttir by Guðmundur Hörður Guðmundsson

Bar-rabb / Ragnar Þór Ingólfsson 17.11.2016

Viðtal við Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmann í VR og Hagsmunasamtökum heimilanna. Tekið á Kaffi Laugalæk 17. nóvember 2016.

Bar-rabb / Kristinn Már Ársælsson 29.05.2016

Bar-rabb með Kristni Má Ársælssyni, doktorsnema og stofnanda Öldu lýðræðisfélags.

Höre den Podcast Guðmundur Hörður in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet