Bjarni Már Ólafsson
Golfstöðin
Golfstöðin er hlaðvarp um allt sem tengist bætingum í golfi. Sérstök áhersla á líkamlega þáttinn, styrktarþjálfun og annað sem getur hjálpað kylfingum að verða betri og spila gott golf án meiðsla. Þáttastjórnandi er Bjarni Már Ólafsson sjúkraþjálfari, golfstyrktarþjálfari og eigandi Golfstöðvarinnar í Glæsibæ sem er golfhermastöð, líkamsrækt og sjúkraþjálfun fyrir golfara.
Autor
Bjarni Már Ólafsson
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
2. Jul 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Tómas Hjaltested - Stigameistari Gsí 2025 - kominn heim frá USA 02.07.2026 29:52
Tómas Eiríksson Hjaltested er áhugaverður keppniskylfingur. Hann var að koma heim frá Bandaríkjunum en þar hefur hann verið á skólastyrk tengdum golfi síðustu ár. Sumarið 2025 var hann stigameistari á GSÍ mótaröðinni. Hann er einn af högglengri kylfingum landsins og hlakkar til íslandsmótsins í sumar. Hann segir okkur frá því afreki að hafa með viku millibili eða svo fengið albatross í Kiðjabergi...
Íþróttasálfræði og hausinn í golfi 09.06.2026 39:24
Margrét Lára Viðarsdóttir og Fannar Máni Fjalarsson starfa hjá Heil heilsumiðstöð og eru nýlega farin að bjóða upp á mjög áhugaverðan fyrirlestur um hausinn í golfi og hvernig má bæta hann. Þau fara aðeins yfir það hvað þau eru að predika í fyrirlestrinum, hvað kylfingar mættu tileinka sér við markmiðasetningu fyrir hringi ofl. Við ræðum aðeins Golf gamebook kvíðann sem sumir kannast vel við og he...
Kári Sölmundarson - Golfklúbburinn Oddur 08.05.2026 31:21
Kári formaður Golfklúbbsins Odds kom og spjallaði um stöðuna í Oddinum þetta vorið, hvernig völlurinn kemur undan vetri, hvað klikkaði síðasta sumar ofl. Hann segir frá stækkun vallarins, hvenær það fer af stað og hvernig sú stækkun er skipulögð. Við komum svo létt inn á golfbíla í Oddinum, róbótavæðingu, æfingasvæðið ofl. Styrktaraðilar þáttarins eru: Hreppamjólk Matland GB ferðir Suitup Bagbee
Bjarni Þór Hannesson -Yfirvallarstjórinn sem fræðir 16.04.2026 1:04:47
Gestur hlaðvarpsins í dag heitir Bjarni Þór Hannesson og er yfirvallarstjóri í Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Hann er mörgum kylfingum kunnugur fyrir það að setja áhugaverð myndbönd inn á samfélagsmiðla er varða golfvallaumhirðu og ástand golfvallanna í Mosfellsbæ. Bjarni er sprenglærður golfvallafræðingur, hefur starfað á mörgum golfvöllum og virðist hafa nokkuð gaman að því að miðla þekkingu á öllu s...
Sigmundur Einar Másson - Leikskipulag, tölfræði, strokes gained ofl 26.03.2026 53:49
Sigmundur Einar Másson er einn helsti séní landsins í leikskipulagi í golfi, strokes gained, tölfræði og fleira í þeim dúr. Hann hefur aðstoðað marga af bestu kylfingum landsins við að greina sinn leik og nota tölfræðilega greiningu til þess að skipuleggja sig og sínar ákvarðandi á golfvellinum. Í þættinum fer hann aðeins yfir bakgrunninn og hvernig hann endaði á að sérhæfa sig í þessum fræðum. Ha...
Kylfuhraðaþjálfun 11.02.2026 37:25
Í þessum þætti köfum við aðeins ofan í kylfuhraða, hvað ákvarðar hann og hvernig hægt er að þjálfa hann. Hvaða máli skiptir kylfuhraði í nútíma golfi og hver er munur á meðalhögglengd eftir forgjöf? Hver eru algengustu mistökin sem kylfingar gera þegar þeir þjálfa kylfuhraðann? Hvernig virka superspeed græjur og hverju skila æfingar með slíkum græjum? Styrktaraðilar þáttarins eru: - Hreppamjólk -...
Guðni Valur - sá högglengsti 12.01.2026 40:40
Guðni Valur Guðnason er þekktastur fyrir afrek sín í kringlukasthringnum. Hann leynir þó á sér á golfvellinum, er hörku kylfingur og sennilega sá allra högglengsti á landinu með kylfuhraða upp undir 150mph. Guðni Valur lýsir aðeins golfinu sínu, hvernig hann æfir og fleira. Hann segir okkur helstu tölur sem hann á í lyftingum, hvort hann stefni á long drive keppnir ofl skemmtilegt. Styrktaraðilar...
Hlöðver Guðnason - Golfkennari eldri kylfinga 13.12.2025 34:28
Hlöðver Guðnason byrjaði merkilega fullorðinn í golfi miðað við að hann sé PGA golfkennari og lágforgjafar keppniskylfingur. Hann segir okkur söguna af því hvernig hann byrjaði og hvernig ferlið var að lækka sig niður undir 5 í forgjöf. Við ræðum námskeið sem hann kennir í Golfstöðinni þar sem blandað er saman golfkennslu og líkamsrækt fyrir 60 ára og eldri. Í PGA náminu einbeitti Hlöðver sér sérs...
Birgir Björnsson kylfusmiður - mýtur tengdar kylfumælingum ofl 20.11.2025 34:00
Birgir Björnsson er pga kennari, kylfusmiður og allsherjar grúskari. Í þættinum ræða Biggi keisari, eins og hann er kallaður, heimsókn Bjarna Más til hans í kylfumælingu, hvað kom útúr þeirri mælingu og hvað Biggi gat ráðlagt honum. Í framhaldi ræða þeir hverjir hafa þörf á kylfumælingum, algengar mýtur í kringum slíkar mælingar og hvaða hluti verið er að hugsa við val á mismunandi kylfum og búnað...
Styrktarþjálfun golfara 04.11.2025 23:36
Í þessum þætti fjallar Bjarni Már sjúkraþjálfari- og golfstyrktarþjálfari um grunnatriðin í styrktarþjálfun golfara. Hvernig gagnast styrktarþjálfun golfurum, hvernig eiga golfarar að vera að lyfta öðruvísi en aðrir og svarar nokkrum algengum spurningum sem varðar málið. Styrktaraðilar þáttarins eru: GB ferðir Hverslun Suitup Matland Hreysti www.golfstodin.is
Grétar Eiríksson - Elva golf 23.10.2025 26:34
Í þessum þætti kemur Grétar Eiríksson PGA kennari og einn af stofnendum Elva golf og segir okkur frá þessu áhugaverða íslenska nýsköpunarfyrritæki. Þeir hafa þróað hárnákvæmt greiningartæki sem greinir hreyfingar kylfinga í öreindir, nánast um leið og slegið er. Fyrstu básar eru komnir í gagnið og Bjarni Már fór fyrir þáttinn í greiningu hjá Grétari sem sýndi honum græjurnar og greindi sveifluna....
Ragga Kristins - Mælingar, æfingar og golfið 14.10.2025 33:26
Gestur þáttarins er Ragga Kristins atvinnukylfingur. Hún fer yfir TPI Hreyfigreiningar sem hún hefur farið í, fyrst fyrir tveimur árum og svo sama dag og þátturinn var tekinn. Við ræðum niðurstöðurnar, hvernig hún æfir sig bæði í ræktinni og hvernig hún æfir sig í golfi. Ragga gefur okkur góða innsýn inní hennar tölur, markmið og áherslur í æfingum. Við förum talsvert á dýptina varðandi kylfuhraða...
Kynningarþáttur 14.10.2025 19:07
Í þessum þætti kynnum við hlaðvarpið Golfstöðina. Hvað verður tekið fyrir í framhaldinu, hver er þáttastjórnandinn og við hverju má búast. www.golfstodin.is Samstarfsaðilar þáttarins eru: Hreysti GB ferðir Suitup Matland
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet