RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.ruv.is
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Marco Polo í Kína 02.04.2023 52:00
Árið 1271 lagði Marco Polo af stað í ferð til Kína og fór eftir Silkileiðinni. Faðir hans og föðurbróðir höfðu komið til Kína nokkrum árum áður og hitt Kublai Khan, keisara í Kína. Umsjónarmaður hefur frásögnina þar sem Ítalarnir þrír eru komnir til borgarinnar Shangdu. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Fleiri sögur af Münchausen 26.03.2023 52:00
Umsjónarmaður grípur í þriðja sinn niður í bókinni Svaðilfarir á sjó og landi. Herferðir og kátleg ævintýri Münchausens baróns, eins og hann sagði þau við skál við vini sína, eftir Gottfried August Bürger, í þýðingu Ingvars G. Bryjólfssonar. Bókin var gefin út af bókaútgáfunni Norðra árið 1951. Í þetta sinn liggur leið hans um ísilagðar slóðir Norðurhafa, þar sem hann hittir ísbirni og allskonar k...
Framhald frásagnar Richard Henry Dana Jr. 19.03.2023 52:00
Hornhöfði, syðsti oddi Suður-Ameríku, er sakleysislegur í góðu veðri en sumarið (veturinn!) 1838 var bandaríska skipið Alert vikum saman að reyna að brjótast fyrir hann gegnum hafísbreiður, jakaborgir og illviðri sem stóðu vikum saman. Fyrir viku las Illugi Jökulsson úr frásögnum Richard Henry Dana, háseta á Alert, en þá voru aðstæður um borð orðnar svo skelfilegar að skipverjar voru farnir að und...

Hásetinn Richard Henry Dana Jr. 12.03.2023 50:00
Illugi Jökulsson les úr bók eftir bandaríska rithöfundinn Richard Henry Dana, sem fæddist í Cambridge í Massachusetts árið 1815. Hann réð sig sem óbreyttur háseti á flutningaskipi sem sigldi fyrir Hornhöfða, syðsta odda Suður-Ameríku til Kaliforníu. Hann skrifaði bókina Two Years Before The Mast, þar sem hann lýsir þvi sem fyrir hann bar. Í maí 1836 lagði hann af stað á öðru skipi til baka, sem hé...
Hásetinn Richard Henry Dana Jr. 12.03.2023 52:00
Illugi Jökulsson les úr bók eftir bandaríska rithöfundinn Richard Henry Dana, sem fæddist í Cambridge í Massachusetts árið 1815. Hann réð sig sem óbreyttur háseti á flutningaskipi sem sigldi fyrir Hornhöfða, syðsta odda Suður-Ameríku til Kaliforníu. Hann skrifaði bókina Two Years Before The Mast, þar sem hann lýsir þvi sem fyrir hann bar. Í maí 1836 lagði hann af stað á öðru skipi til baka, sem hé...
Æviminningar Gunnars Þorbergssonar, framhald 05.03.2023 52:00
Illugi Jökulsson heldur áfram að lesa úr æviminningum Gunnars Þorbergssonar, eða Gunnars Th. Oddssonar, eins og nefndi sig þegar hann bjó vestanhafs. Frásögnin hefst á því þegar ísbjörn nálgast land í Loðmundarfirði árið 1881.
Æviminningar Gunnars Þorberssonar, framhald 26.02.2023 52:00
Illugi Jökulsson heldur áfram að vinsa efni úr hinum fróðlegu æviminningum Gunnars Þorbergssonar, eða Gunnars Th. Oddssonar, sem fæddist á Loðmundarfirði 1865. Hann greinir frá uppeldi sínu á venjulegu alþýðuheimili á látlausan en snotran hátt og hlustendur frá að kynnast ýmsu sem ekki öllum hefði þótt frásagnarvert.

Sagt frá Gunnari Th. Oddssyni 19.02.2023 52:00
Árið 1936 birtist frétt í Norðablaðinu Degi, þar sem sagt var frá Gunnari Th. Oddssyni, sjötugum íslenskum hlaupara í Vesturheimi. Hann fæddist í Nes-hjáleigu í Loðmundarfirði 1865. Þegar hann var gamall maður í Vesturheimi ritaði hann svolítið kver með sjálfsævisögu sinni og fylgdi henni úr hlaði með þessum orðum: „Þó ég taki nú penna í hönd til að rita ferðasögu mína yfir lífshafið, finn ég vel...
Sagt frá Gunnari Th. Oddssyni 19.02.2023 50:00
Árið 1936 birtist frétt í Norðablaðinu Degi, þar sem sagt var frá Gunnari Th. Oddssyni, sjötugum íslenskum hlaupara í Vesturheimi. Hann fæddist í Nes-hjáleigu í Loðmundarfirði 1865. Þegar hann var gamall maður í Vesturheimi ritaði hann svolítið kver með sjálfsævisögu sinni og fylgdi henni úr hlaði með þessum orðum: „Þó ég taki nú penna í hönd til að rita ferðasögu mína yfir lífshafið, finn ég vel...
Hungursneyð í Úkraínu 1932-33 12.02.2023 52:00
Umsjónarmaður heldur afrma að lesa úr æviminningum Viktors Kravtsenkos. Haldið er áfram að segja frá hungursneyðinni í Úkraínu, sem Sovétmenn reyndu að halda í þagnargildi. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Samyrkjubús- og iðnvæðing í Úkraínu 1932 05.02.2023 52:00
Umsjónarmaður les úr æviminningum Viktors Kravtsenkos, þar sem fjallað er um samykjubúin í Úkraínu, iðnvæðinguna og harðstjórn Moskuvaldsins. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Ævisaga Viktors Kravtsjenkos, framhald 29.01.2023 52:00
Höfundur heldur áfram að lesa úr æviminningumr Úkraínumannsins Viktors Kravtsjhenkos, Ég kaus frelsið. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hrakningar á sjó 22.01.2023 52:00
Umsjónarmaður les frásagnir sem Jens Hermannsson kennari safnaði saman og gaf út á síðustu öld. Þetta er frásagnir breiðfirskra sjómanna. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hrakningar á sjó 22.01.2023 52:00
Umsjónarmaður les frásagnir sem Jens Hermannsson kennari safnaði saman og gaf út á síðustu öld. Þetta er frásagnir breiðfirskra sjómanna. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Munchhausen hjá Tyrkjasoldáni 15.01.2023 52:00
Umsjónarmaður heldur áfram að segja frá þýska baróninum af Munchhausen. Hann var kominn í þjónustu Tyrkjasoldáns og frásagnir hans eru lyginni líkastar. Umsjón: Ilugi Jökulsson.

Skólaár Þorvaldar Thoroddsen 08.01.2023 50:00
Þorvaldur Thoroddsen sem var einn merkasti vísindamaður okkar Íslendinga báðum megin við aldamótin 1900. Umsjónarmaður les úr minningum hans frá skólaárum í Latínuskólanum og fyrstu árunum í Reykjavík. Skemmtilegar lýsingar á skólalífi og höfuðstaðnum á ofanverðri 19. öld. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Lesið úr ævisögum íslenskra menntamanna 01.01.2023 52:00
Sú var tíð meðan Íslendingar voru enn undir stjórn Dana að þeim fannst Danir líta á þá sem ómenntaða barbara eða villimenn. Jón Thorkillius rektor skrifaði þá stuttar ævisögur íslenskra menntamanna til að sýna fram á annað, og í þessum þætti verður lesið úr nokkrum skemmtilegum ævisögum - til dæmis um Jón Vestmann sem átti æsilega ævi í þjónustu Tyrkja áður en hann gerðist mektarmaður í Kaupmannah...

Dagleg líf á dögum Krists 25.12.2022 50:00
Daglegt líf á dögum Krists er umfjöllunarefni þessa jólaþáttar, sem er framhald þáttarins á undan. Úr hvaða samfélagi voru þau Jósef og María sprottin, hverju trúðu þau og samferðamenn þeirra, hvert var samspil alþýðunnar í Palestínu við Rómverja, og var Jesúa frá Nasaret einstakur í sinni röð - eða bara einn af mörgum? Umsjón: Illugi Jökulsson.

Winston Churchill kemur til Reykjavíkur 18.12.2022 52:00
Í ágúst 1941 kom Winston Churchill í heimsókn til Reykjavík. Heimsóknin vakti mikla athygli, Reykvíkingar fögnuðu breska forsætisráðherranum ákaft og Churchill fannst lofið gott. En hvað var hann að vilja og hvernig gekk heimsóknin fyrir sig? Hér er leitað fanga m.a. í ævisögu lífvarðar Churchills og einnig vitnað í skrif hans sjálfs um heimsóknina, en þar þakkaði hann sér hugmyndina að hitaveitu...
Magnús Stephensen og Játníngar Rousseaus 11.12.2022 52:00
Jean-Jacques Rousseau (1712-1778) var einn af merkustu mönnum Evrópu á 18. öld, Hann var heimspekingur og rithöfundur sem átti furðu mikinn þátt í að móta skoðanir nútímafólks á bæði manninum og náttúrunni, en var líka einstakur brautryðjandi í sjálfsævisöguskrifum. Játningar hans eru bæði djúpur og einstaklega skemmtilegur vitnisburður um það. Í þessum þætti verður sagt frá Rousseau og svo glugga...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet