Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: fotbolti.net
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Útvarpsþátturinn - Öflugri en nokkru sinni fyrr 25.04.2026
Lengjudeildin er öflugri en nokkru sinni fyrr og hún fær stóra sviðið í útvarpsþættinum þessa vikuna. Deildin er farin af stað; farið er yfir spá þjálfara og fyrirliða og rýnt í vonir og væntingar. Í þættinum er einnig hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Benedikt Bóas í hljóðveri.
Niðurtalningin - Þriðja árið í röð? 24.04.2026
Því er spáð að Breiðabliki verði Íslandsmeistari þriðja árið. Þær eru að koma inn í nýtt tímabil sem tvöfaldir meistarar en þó hafa orðið miklar breytingar á hópnum og teyminu í kringum liðið. Agla María Albertsdóttir og Kristín Dís Árnadóttir, leikmenn liðsins, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir allt það helsta tengt Blikaliðinu.
Niðurtalningin - Síðasta skrefið í tröppunum 24.04.2026
Það er komið að því, Besta deild kvenna fer af stað í kvöld. FH er spáð öðru sæti deildarinnar. Guðni Eiríksson, þjálfari liðsins, og Katla María Þórðardóttir, fyrirliði, komu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um ýmislegt tengt liðinu.
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin 24.04.2026
Besta deild kvenna fer af stað í kvöld með látum. Til þess að hita upp þá gerði Fótbolti.net stóran upphitunarþátt með góðum gestum. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrði umræðunni en sérfræðingar með honum voru Snæbjört Pálsdóttir, Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson.
Innkastið - Mega skammast sín og gera það 23.04.2026
Innkastið eftir 3. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Víkingur vann stórleikinn, Valsmenn sannfærandi, baráttusigur Þórs, KR rúllaði yfir ÍBV, ÍA og KA er enn án sigurs og bitlausir Blikar gerðu markalaust jafntefli gegn Keflavík.
Niðurtalningin - Langar að upplifa það aftur í Víkinni 23.04.2026
Það er komið að liðinu sem spáð er þriðja sæti í Bestu deild kvenna sumar, Víkingur Reykjavík. Einar Guðnason, þjálfari Víkinga, og Emma Steinsen, leikmaður liðsins, komu við á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um sumarið sem er framundan.
Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Draumaliðið vs 433 22.04.2026
Fyrri undanúrslitaþáttur Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Helgi Fannar Sigurðsson fyrir 433. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni
Hugarburðarbolti GW 33 Er eitt ríkasta félagslið í heimi að falla? 21.04.2026
Fórum yfir 33 umferð deildarinnar þrátt fyrir 3 óspilaða leiki. Stórleikur umferðarinnar Man City gegn Arsenal stóðst allar væntingar og meira til.
Niðurtalningin - Mun Stjarnan skína bjart í sumar? 21.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Veislan fer af stað á föstudag. Núna er komið að liðinu sem er spáð fjórða sæti. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, og Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir, lykilkona liðsins, mættu í hljóðver og fóru yfir stöðuna.
Niðurtalningin - Þróttur horfir í Meistaradeildina 20.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna sem fer af stað á föstudaginn. Þrótturum er spáð fimmta sæti deildarinnar en markmiðin eru sett hærra en það í Laugardalnum. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, mætti ásamt Jóhann Kristinni Gunnarssyni, nýjum þjálfara liðsins, í hljóðver og fór yfir stöðu mála.
Enski boltinn - Guð blessi Norður-London 20.04.2026
Enski boltinn á mánudegi eftir stærsta leik tímabilsins til þessa. Manchester City hafði betur gegn Arsenal í svakalegum fótboltaleik í gær. Ef bæði þessi lið vinna rest þá ræðst deildin á markatölu. Hvaða lið verður eiginlega meistari? Manchester United fór langt með að tryggja sér Meistaradeildarsæti, Chelsea er í dimmum dal en ekki dimmari dal en Tottenham. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur o...
Útvarpsþátturinn - Kallaðir þú mig fokking tussu? 18.04.2026
Innkastið í beinni á X977. Önnur umferð Bestu deildarinnar er gerð upp. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í fiskabúrinu á Suðurlandsbraut. Mönnum var heitt í hamsi og dómararnir í sviðsljósinu. KR og Stjarnan eru með fullt hús en Keflavík og KA hafa ekki náð að koma sér á blað. Farið er yfir alla leikina og hitað upp fyrir næstu umferð sem verður spiluð á miðvikudag og fimmtudag.
Niðurtalningin - Hver er pælingin hjá Val? 17.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna, Valskonum er spáð sjötta sætinu. Það eru breyttir tímar á Hlíðarenda og verið að móta nýja stefnu. Við ræddum við Matthías Guðmundsson, þjálfara liðsins, og Málfríði Önnu Eiríksdóttur, leikmann liðsins, um stefnuna og komandi tímabil.
Niðurtalningin – Húsvíkingurinn í brúnni á Akureyri 16.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er það Þór/KA sem er spáð sjöunda sæti deildarinnar. Við hringdum til Akureyrar og ræddum við Aðalstein Jóhann Friðriksson, þjálfara Þórs/KA, um komandi tímabil. Alli Jói tók við liðinu í vetur og er spenntur fyrir sumrinu.
Niðurtalningin - Himnasending sem kom til Eyja í fyrra 15.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð áttunda sæti, ÍBV. Við hringdum til Vestmannaeyja og ræddum við Jón Óla Daníelsson, þjálfara ÍBV, og Avery Mae Vanderven, fyrirliða liðsins. Viðtalið fer því fram á bæði íslensku og ensku.
Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta 15.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð níunda sæti, Grindavík/Njarðvík. Natasha Anasi, leikmaður liðsins, og Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, komu í hljóðver og fóru yfir allt það helsta hjá þessu áhugaverða liði.
Fótbolta nördinn - Njarðvík vs Grindavík 15.04.2026
Fjórði þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík og Damir Muminovic fyrir Grindavík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni
Hugarburðarbolti GW 32 Rosaleg spenna! 14.04.2026
Við Össi Árnason fórum vel og vandlega yfir 32. umferð í enska. Arsenal tapaði á heimavelli og Man City er á hælum þeirra með 0-3 sigri á Chelsea. Þetta og allt hitt í þætti dagsins.
Niðurtalningin - Nýir vindar blása um í dal draumanna 13.04.2026
Það styttist núna heldur betur í Bestu deild kvenna en hún fer af stað eftir tæpar tvær vikur. Við á Fótbolta.net spáum í spilin fyrir mótið en Fram er spáð tíunda sæti. Við hringdum til Tenerife þar sem Framarar voru í æfingaferð og ræddum við Anton Inga Rúnarsson, þjálfara liðsins, og Hildi Maríu Jónasdóttur, fyrirliða liðsins, um komandi tímabil. Það hafa orðið talsverðar breytingar frá síðustu...
Enski boltinn - Stressið tekur öll völd 13.04.2026
Það er svakaleg helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni en hún kláraðist í kvöld með óvæntum sigri Leeds á Manchester United á Old Trafford. Fjölmargir íslenskir stuðningsmenn Leeds gerðu sér ferð á leikinn í Manchester og skemmtu sér væntanlega konunglega. Stuðningsmenn Arsenal og Tottenham skemmtu sér ekki eins vel um helgina, en það fór allt úrskeiðis hjá þessum liðum. Guðmundur Aðalsteinn, Guðmu...
Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val 12.04.2026
Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke gera upp sunnudagsleikina í Bestu deildinni. Fyrstu umferð er lokið. Þórsarar byrja á sigri á Hlíðarenda, KR náði að landa dramatískum sigri gegn nýliðum Keflavíkur og Stjarnan gerði góða ferð til Akureyrar. Jafntefli í Eyjum og í Úlfarsárdal.
Útvarpsþátturinn - Óheppileg mistök og vítakall 11.04.2026
Veislan er byrjuð! Besta deildin er farin af stað. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke eru í hljóðveri. Fjallað er um stórmeistarajafntefli Víkings og Breiðabliks, hitað upp fyrir leiki sunnudagsins og farið yfir helstu fréttir og tíðindi.
Enski boltinn - Sjokkerandi lélegt hjá Liverpool 10.04.2026
Lokaspretturinn er framundan í ensku úrvalsdeildinni. Hvaða lið verður meistari? Hvaða lið komast í Meistaradeildina? Hvaða lið fellur með Burnley og Wolves? Guðmundur Aðalsteinn fór yfir það helsta sem hefur gerst að undanförnu og helstu sögulínur með þeim Magnúsi Hauki Harðarsyni og Kára Snorrasyni. Farið var yfir úrslit í enska bikarnum og Meistaradeildinni ásamt því sem er framundan í ensku úr...
Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu 04.04.2026
Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, er sérstakur álitsgjafi en hitað er rækilega upp fyrir Bestu deildina. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum og fara yfir spá Bestu deildarinnar með Halldór sem sérfræðing. Í seinni hluta þáttarins er svo Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gestur.
Niðurtalningin - Skjöldurinn verður loksins kyrr 03.04.2026
Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings er spáð toppsætinu í spánni hér á Fótbolta.net. Skyldi spáin rætast yrði Víkingur fyrsta liðið til að verja Bestu deildar skjöldinn. Víkingarnir tveir, Tómas Guðmundsson og Ásgeir Frank Ásgeirsson, gerðu sér ferð á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og ræddu um komandi tímabil í Víkinni
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet