Háskólinn á Akureyri
Forysta & samskipti
Í hlaðvarpinu er fjallað um ýmsa þætti sem falla undir forystu og samskipti , eins og farsæla forystu og stjórnun, árangursrík samskipti, samningatækni, lausn ágreinings og vandamála o.fl. Sigurður fær til sín fólk sem er að fást við ólíka hluti og deilir með okkur mismunandi þekkingu og reynslu. Umsjón: Sigurður Ragnarsson, forseti Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri og stjórnenda- og forystuþjálfari.
Autor
Háskólinn á Akureyri
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
23. Mär 2026
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
11: Olga Ýr Björgvinsdóttir - Ólíkir leiðtogastílar og er gæðastjórnun sexí? 23.03.2026 1:03:08
Gestur þáttarins er Olga Ýr Björgvinsdóttur, ein af stjórnendum líftæknifyrirtækisins Arctic Therapeutics og sérfræðingur í forystu og stjórnun. Í þættinum er m.a. fjallað um ólíka leiðtogastíla, og þ.á.m. rannsókn hennar á leiðtogastílum í líftæknifyrirtækjum. Einnig er komið inná hluti eins og hvað einkennir farsæla leiðtoga og mikilvægi þess að starfa sem öflugt teymi. Margir fletir faglegrar f...
10: Edda Björgvinsdóttir - Húmor er lífsins nauðsynlegur – líka á vinnustöðum 08.12.2025 1:27:27
Gestur: Edda Björgvinsdóttir, leikari, leikstjóri, skemmtikraftur, fyrirlesari, stjórnendaþjálfari og gersemi þjóðarinnar. Edda hefur líka skrifað meistararitgerð um húmor í stjórnun ásamt að vera með diplómagráðu í jákvæðri sálfræði og sálgæslu frá Háskóla Íslands. Nýr þáttur af hlaðvarpinu Forysta og samskipti er kominn í loftið en umsjónarmaður er Sigurður Ragnarsson forseti Viðskiptadeildar Há...
09: Haraldur Daði Ragnarsson 27.06.2025 1:17:19
Gestur Sigurðar í þættinum er Haraldur Daði Ragnarsson, stofnandi og einn af eigendum markaðsstofunnar Manhattan Marketing og lektor við Háskólann á Bifröst, stjórnunarráðgjafi og einn fremsti sérfræðingur landsins í forystufræðum, stefnumótun, breytingastjórnun og í stjórnun viðskiptatengsla (CRM). Í þættinum er sérstaklega rætt um og áhersla á faglega eða árangursríka forystu og hvers vegna flei...
08: Gervigreind - Auðbjörg Björnsdóttir og Magnús Smári Smárason 04.03.2025 1:13:22
Forysta og samskipti: Hvað er gervigreind og hvers vegna þurfum við að tileinka okkur hana? - Gervigreindin mælir með að þú missir ekki af þessum þætti… Nýr þáttur af hlaðvarpinu Forysta og samskipti er kominn í loftið en umsjónarmaður er Sigurður Ragnarsson, forseti Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri (HA) og stjórnenda- og forystuþjálfari. Gestir Sigurðar í þættinum eru Dr. Auðbjörg Björnsdótt...
07: Frá Asíu til Íslands - Rebekka Kristín Garðarsdóttir 08.01.2025 1:13:57
Gestur Sigurðar í þættinum er Rebekka Kristín Garðarsdóttir, forstöðukona og verkefnastjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Wise. Rebekka Kristín hefur yfir 20 ára reynslu sem stjórnandi og forystumanneskja. Hún starfar nú hjá Wise en starfaði meðal annars áður í Hong Kong sem stjórnandi hjá LinkedIn og Microsoft, auk þess sem hún stofnaði og rak fyrirtæki þar ytra. Margt kemur til tals, eins og munurin...
06: Alþingiskosningar 2024 - Grétar Þór Eyþórsson 26.11.2024 1:01:50
Gestur Sigurðar í þættinum er Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri. Grétar Þór hefur viðamikla reynslu sem stjórnandi, fræðimaður og kennari. Hann er t.d. fyrrum forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri og hefur sinnt stjórnmálaskýringum í fjölmiðlum í áraraðir. Farið er yfir alþingiskosningarnar framundan og sérstaklega út frá forystu og hvernig fo...
05: Kjartan Sigurðsson lektor við HA og nýsköpunar- og frumkvöðlagúru 19.09.2024 1:10:38
Kjartan er hafsjór af reynslu og fróðleik og ræðir og fræðir okkur um allskonar hluti á sviði nýsköpunar og frumkvöðlamennsku, þ.á.m. félagslega nýsköpun (e. Social innovation) og hvað einkennir afburða frumkvöðla. Í tengslum við samskipti og nýsköpunar- og frumkvöðlahugsun undirstrikar hann meðal annars mikilvægi þess að stjórnendur tali við starfsfólkið sitt. Einnig er komið inná fortíð Kjartans...
04: Eyjólfur Guðmundsson 18.06.2024 1:08:04
Gestur Sigurðar í þættinum er Eyjólfur Guðmundsson fráfarandi rektor Háskólans á Akureyri. Eyjólfur hefur verið rektor HA síðustu tíu ár. Áður var hann sviðsstjóri greiningar og aðalhagfræðingur hjá tölvuleikjafyrirtækinu CCP; og þar áður forseti viðskipta- og raunvísindadeildar HA. Eyjólfur segir okkur frá ýmsum þáttum í starfi sínu, til dæmis hvað skiptir mestu máli í tengslum við að leiða og ta...
03: Forsetakosningarnar - Grétar Þór Eyþórsson 30.04.2024 47:38
Gestur Sigurðar í þessum þætti er Grétar Þór Eyþórsson, forseti Viðskiptadeildar HA og prófessor í stjórnmálafræði. Grétar Þór hefur leitt starf Viðskiptadeildar HA síðustu fjögur ár og hefur viðamikla reynslu sem stjórnandi, fræðimaður og kennari. Hann er t.d. fyrrum forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri og hefur sinnt stjórnmálaskýringum í fjölmiðlum í áraraðir. Grétar Þór hefur...
02: Hildigunnur Svavarsdóttir 31.01.2024 49:22
Gestur Sigurðar í þessum þætti er Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Hildigunnur hefur viðamikla reynslu sem stjórnandi og forystumanneskja og er m.a. fyrrum framkvæmdastjóri á Sjúkrahúsinu á Akureyri og fyrrum skólastjóri Sjúkraflutningaskólans auk þess sem hún hefur verið formaður Landssambands heilbrigðisstofnana og setið í stjórnum fagfélaga hérlendis sem erlendis. H...
01: Sirrý Arnardóttir 20.12.2023 57:43
Fyrsti gestur Sigurðar er Sirrý Arnardóttir. Hún er þekkt fyrir ýmis störf, þ.á.m. úr fjölmiðlum en og hún er líka kennari, sérfræðingur og ráðgjafi í öllu sem tengist betri tjáningu. Hún er einnig rithöfundur og nýjasta bókin hennar heitir einmitt Betri tjáning: Örugg framkoma við öll tækifæri. Sirrý segir okkur m.a. frá bókinni og kemur inn á ýmsa aðra þætti er tengjast betri tjáningu og öflugri...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet